Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 16.04.1987, Blaðsíða 8
FAGNAÐARERINDIÐ í SOLENTINAME Ég er ekki kominn tii að fíyija frið heldur sverð FRELSUNARGUÐFR/£ÐINGUR LES RITNING- UNA MEÐ B/ENDUM í NICARAGUA Hér á eftir fer kafli úr bókinni „Kærleikur í verki" sem Ern- esto Cardenal hefursaman skrifað. Undirtitill bókarinnar er „Fagnaðarerindið ' í Solenti- name“. Solentiname er eyjaklasi í stærsta stöðuvatni Nicaragua, sem ber nafn landsins. Þar búa um 1000 manns, bændur og fiski- menn, og þar stofnaði hinn þekkti kennimaður, skáld og nú- verandi menntamálaráðherra Sandinistastjórnarinnar, Ernesto Cardenal, leikra manna klaustur. Á árum áður, fyrir byltingu Sand- inista, reyndi hann að miðla boð- skap kristninnar, og þá ekki síst þeim félagslega boðskap hennar sem hann vildi leggja mikla áherslu á, til fólksins á eyjunum. Ekki síst með því, að á sunnu- dögum var ekki flutt prédíkun eftir ritiningarlestur heldur héldu viðstaddir uppi samræðum um það sem lesið var. Athugasemdir fólksins þóttu svo merkar og djúpar í einfaldleik sínum að Ernesto Cardenal var hvattur til að geyma samtölin á segulbönd- um. Síðar meir vann hann upp úr þessu efni þá bók sem hér er vitn- að til. Að gjöra menn ósátta Mattheus 10, 34-37. Áður en við lásum þessa ritn- ingargrein hafði OSCAR séð yfirskrift dagsins og hrópaði: Þetta skil ég ekki. Hann kom til að færa okkur sameiningu. Hvers vegna segir hér að hann valdi mis- klíð? Hann sem á að vera kær- Ieikurinn! Ég sagði að við skyldum lesa textann fyrst. Við lásum þennan stutta kafla úr Mattheusarguð- spjalli og gerðum svo athuga- semdir við hann. tlið ekki að ég sé kominn til að fflytja frið á jörð ég er ekki kominn til að flytjafrið heldur sverð ANTENOR: Það hefur alltaf ríkt óréttlæti á jörðunni. Kristur kemur til að binda endi á það ástand. Þvf kemur hann til að berjast. En hann mun ekki berj- ast einn. Hann þerst með okkur. MARCELINO: Hann kom með mjög beitt vopn sem er hans orð. Hann kom með þetta vopn handa okkur. Og við því tökum við hér. Einhver sagði: Jesús er á móti því að menn hagi seglum eftir vindi. Þess vegna sagðist hann ekki kominn til að flytja frið. Og ARMANDO yngri sagði: Til er tvennskonar friður. Til er sá friður að samþykkja blátt áfram óréttlætið, segja ekkert við arðráninu. Og til er annar friður, sá sem við höfum eftir að við höf- um öðlast réttlæti, þegar búið er að koma hlutum í lag. LAUREANO: Mér sýnist að Jesús sé hér að segja okkur, að einmitt vegna þess hver hann var ætlaði hann ekki að breyta öllu í hvelli, skipta öllu upp á nýtt. Þvert á móti, það er okkar mál að berjast svo að við getum haft frið ARMANDO: Vegna þess að maður verður að berjast til að eignast þann frið, ekki satt? LAUREANO: Já, menn verða að berjast hart í hverju Iandi til að réttlæti komist á í heiminum. ALEJANDRO: Ég sé annað - maður getur ekki eignst frið ef maður elskar náungann í alvöru. Jafnvel þar sem friður er í byggð- inni, eins og hér í Solentiname, þar sem lífið er friðsælt og ham- ingjusamt vegna þess að við búum í friði hver við annan, jafnvel hérna, dýpst inni í okkur er áhyggjan, óróinn...vegna þess að við sjáum óréttlætið skýrar en áður. Og ég held að kærleikurinn sé ástæðan fyrir þessari áhyggju. Og þá getur maður sagt: þessi hér býr ekki við fullan frið vegna þess að hann lætur sér annt um aðra menn. Og það væri mjög slæmt ef við öll héldum ró okkar Einhver sagði: Úr því Jesús kom til gera breytingar, það er að segja byltingu, þá kom hann ekki með friði heldur ófriði. Ég: Það er augljóst að meðan til er stétt kúgaðra og stétt kú- gara, þá getur maður ekki óskað eftir friði milli kúgaðra og kú- gara, vegna þess að það þýðir að kúgunin heldur áfram. En ef við viljum að hin kúgaða stétt sé frelsuð, svo að ekki séu lengur til kúgaðir og kúgarar, þá viljum við í rauninni ekki frið. OSCAR: Nú skil ég. Jesús kom með sameiningu fyrir suma en ekki alla menn. Fyrir suma - þá sem eru með kærleikanum. Ernesto Cardenal: skáld, munkur, menntamálaráöherra. Hann er ástæða sundrungar vegna þess að hann er forsenda einingar. Fjölskyldan, náungi minn Ég er kominn til að gjöra son ósáttan við föður sinn og dóttur við móður sína og tengdadóttur við tengdamóður sína og heimilismennirnir verða óvinir húsbóndans LAUREANO: Þetta sýnist stefna gegn kærleikanum, en reyndar á maður ekki alltaf að vera bundinn fjölskyldu sinni, sínu eigin fólki. Maður á að standa með öllum, hvort sem þeir eru skyldir eða óskyldir manni, því að þeir eru líka bræður manns. Annar drengur sagði: Það kemur stundum fyrir að faðirinn er arðræningi en sonurinn er sannkristinn maður og sonurinn verður að vera á móti honum ANTENOR: Það er ekki hægt að komast hjá þessari sundrung í fjölskyldunum. Alltaf þegar nýj- ar hugmyndir koma sem eru gegn hefðunum, þá eru foreldrarnir oftast nær með því sem var og nýju hugmyndirnar eru á móti þeim. LAUREANO: Mér skilst að hann tefli hinum ungu gegn hin- um gömlu,.syni gegn föður, dótt- ur gegn móður, tengdadóttur gegn tengdamóður. Mér sýnist að Jesús skilji það, að sú sundrung sem hann vekur upp í fjöl- skyldum verði einkum á milli kynslóða. Og það er vegna þess að unga fólkið er oftast nær með byltingunni en ekki gamla fólkið. Ég lét þess getið að þessi sundr- ung í fjölskyldum sem Jesús tal- aði um hefði komið skýrt fram á Kúbu á dögum byltingarinnar þar. Margar fjölskyldur voru sundraðar og þetta hlýtur alltaf að gerast þegar bylting á sér stað. LEONEL: Og hve lengi? Þangað til við höfum sameinast, ekki satt? Vegna þess að þetta getur ekki haldið áfram enda- laust. Sundrung á sér stað til að síðar verði sameining, friður að lokum. ARMANDO: En þangað til kemur Jesús til að rjúfa einingu fjölskyldunnar, sem var talin heilög, og úr því fjölskyldan er undirstaða þjóðfélagsins þá kem- ur hann til að umbylta öllu samfé- laginu. Hér lýsir hann því opin- skátt yfir að hann rjúfi friðinn í samfélaginu. ANTENOR: Þetta með fjöl- skylduna, mér finnst það líka að- ferð til að tala um stéttabarátt- una. Sverð kœrleikans Hver sem ann föður eða móður meir en mér hann er mín ekki verður og hver sem ann syni eða dóttur meir en mér er mín ekki verður. Einn af ungu mönnunum safgði: Það eru margir hérna sem eru alltof bundir fjölskyldum sín- um. Og OLIVIA sem ekki hafði fyrr tekið til máls, sagði : Jesús segir ekki hér að við verðum að elska Guð himnanna og gleyma fólkinu, eins og menn hafa skilið það í okkar hefðbundnu trú. Og því arfleiða menn „Guð að pen- ingunum sínum, eins og þeir segja, vegna þess að þeir vilja heldur að guð fái þá en þeir fá- tæku. Nei, ég held að þegar Jesús er að tala um kærleika til sín, þá setji hann sjálfan sig í stað hinna fátæku og náunga okkar yfir höfuð. Og hann á við það að við ættum að elska alla menn, alla náunga okkar og ekki aðeins fjöl- skyldu okkar. Annar bætti við: Að elska guð er að elska bróður sinn, ekki satt? LAUREANO: Bróður sinn, en ekki bróður þinn vegna þess að hann er sonur móður þinnar, heldur vegna þess að hann er bróðir þinn, eins og allir menn eru FELIPE: Sumir halda að þeir gleðji Guð með bænum og söngv- um, en að syngja Guði er að elska sinn bróður. Ein stúlknanna sagði: Hér er um að ræða að elska ekki bara fjölskyldu sína og vini, heldur alla menn og það er erfitt. ARMANDO: Og úr því við erum að tala um Guð himnanna- Guð himnanna er ekki til, eða að minnsta kosti getum við ekki þekkt hann nema eins og hann verður hold í öðrum mönnum. FELIPE: Hver sá sem elskar aðra menn er í reyndinni farinn að þekkja Guð. Ég sagði að þetta væri einmitt það sem lesa mætti um hjá Jó- hannesi. ALEJANDRO: Það er vegna þess að guð er kærleikur. Hver sem elskar þekkir hann vegna þess að hann hefur þekkt kær- leikann. JULIO: Sverðið klýfur, sundr- ar, og nú skil ég hvers vegna hann segist koma með sverð. GLORIA: Sverð kærleikans. ÁB þýddi M.aprfl 1MT 1W7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.