Þjóðviljinn - 23.04.1987, Page 2
—SPURNINGINi
Hvernig hefur þér
fundist kosninga-
baráttan að þessu
sinni?
Karen Guðmundsdóttir elli-
lífeyrisþegi:
Hún hefur nú verið hálfbragð-
dauf. Ég vona að það verði
sem minnst breyting á stjórn-
inni. Höfum við það ekki gott?
Jenný Davíðsdóttir tölvun-
arfræðingur:
Hún hefur verið mjög fjöl-
breytt. Ég hef reynt að fylgjast
með eins og ég hef mögulega
getað.
örn Arason tónlistarkennari:
Hörð, og snúist meira um
menn en málefni. Það finnst
mér vera rangt. Maður hlýtur
fyrst og fremst að kjósa um
málefni.
Hörður Hákonarson
rafeindavirki:
Hún hefur virkað sem per-
sónuskoðanir en stefnuum-
ræður og það finnst mér
slæmt. Fólk virðist blindast í
stundaræsingi.
Geirþrúður Kristjánsdóttir,
eigandi augfýsingastofu:
Hún hefur verið ansi lífleg,
svipað og fyrir aðrar kosning-
ar. Fólk er alltaf kaffært í
áróðri fyrir allar kosningar.
FRÉTTIR
Kosningarnar
Lokasóknin hafin
Hugur í þeim sem skipa baráttusœti Alþýðubandalagsins úti á landi
Austurtand
„Bjartsýni okkar eykst með
hverjum degi sem líður, við finn-
um að málstaður okkar nýtur
mikils stuðnings og við mætum
hvarvetna velvilja," sagði Unnur
Sólrún Bragadóttir, sem skipar
annað sætið á lista Alþýðubanda-
lagsins á Austfjörðum í samtali
við Þjóðviljann, í gær. Úrslitin
verða tvísýn: Baráttan stendur
milli þriggja lista um fimmta
þingsætið í kjördæminu.
Unnur Sólrún sagði að aðal-
áherslan væri lögð á byggðamál-
in, jafnréttis- og friðarmál:
„Stjórnarflokkarnir koma til
kjósenda og boða óbreytta
stefnu. Fyrir okkur þýðir það
kaupmáttarskerðingu, lengri
vinnuviku og áframhaldandi
fólksflótta. Við höfnum þessari
stefnu og stjórnarflokkarnir eiga
mjög undir högg að sækja. Þeir
hafa látið reka á reiðanum í mál-
efnum landsbyggðarinnar síðustu
fjögur árin með þeim afleiðing-
um að landauðn blasir við verði
ekkert að gert.
Það sem er mikilvægast í þess-
um kosningum er að allir vinstri-
menn leggist á eitt til þess að gera
veg Alþýðubandalagsins sem
mestan: Eina raunverulega
valkostinn gegn landeyðingar-
stefnunni sem rekin hefur verið.
Sérstaklega vona ég að konur
fylki sér um flokkinn og láti ekki
kasta ryki í augun á sér.
Við viljum að sveitarfélögin
ráði í meira mæli í hvað fjár-
veitingar fari og að nýsköpun í
atvinnulífinu verði efld,“ sagði
Unnur Sólrún. „Það er stutt í.
kosningar en nú verða allir aðl
Alþjóðlegi dansflokkurinn,
Allnations Dance Companv frá
New York kom til íslands í gær og
heldur hér eina danssýningu í
dag, sumardaginn fyrsta. Dans-
flokkurinn, em eru átta dansarar
af mörgum þjóðernum hefur að-
setur í International House í New
York, sem er alþjóðlegt stúdenta-
heimili þar sem m.a. margir ís-
lendingar í framhaldsnámi hafa
dvalið. Auk listamannanna eru
tæknimenn og stjórnandi með í
förinni.
Alþjóðlegi dansflokkurinn
sýnir dansa frá mörgum löndum,
og listamennirnir sýna margir
hverjir dansa frá sínu heima-
landi. Dagskráin er fjölbreytt,
leggjast á eitt. Við kvíðum ekki
úrslitunum ef vinstrimenn standa
saman um Aiþýðubandalagið.“
Norðurland eystra
„Alþýðubandalagið er í sókn í
kjördæminu þrátt fyrir aukinn
fjölda framboða. Stjórnarflokk-
arnir bjóða nú báðir fram klofið
auk Flokks mannsins, Kvenna-
lista og Þjóðarflokks. Það sem
ræður úrslitum í kosningunum er
það hvort vinstrimenn bera gæfu
til að standa saman,“ sagði Svan-
fríður Jónasdóttir, sem skipar
annað sætið á lista Alþýðubanda-
lagsins í Norðurlandskjördæmi
eystra. Alþýðubandalagið hefur
sett sér það mark að fá tvo menn
kjörna á þing úr kjördæminu,
Svanfríði og Steingrím J. Sigfús-
son alþingismann.
„Málefnagrundvöllur okkar er
traustur og fólk snýr sér í auknum
mæli að Alþýðubandalaginu. Því
að þrátt fyrir aukinn fjölda fram-
boða hafa andstæðurnar í
stjórnmálum skerpst: íhaldið tví-
og þríklofið annarsvegar, Al-
þýðubandalagið hinsvegar.
Stjórnarflokkana hefur skort
heilsteypta stefnu í málum lands-
byggðarinnar, þá skortir alla
framtíðarsýn.
Við viljum færa valdið heim í
hérað, auka vöruþróun í lands-
byggðarplássunum og færa þann-
ig framleiðsluna og verðmæta-
sköpunina til þeirra sem raun-
verulega afla tekna þjóðarbúsins.
Við viljum ekki tvær þjóðir í
þessu landi: Fólkið á þéttbýlis-
svæðinu og úti á landsbyggðinni á
að vinna saman að uppbyggingu
þar eru m.a. dansar frá Indlandi,
Mexíkó, Rússlandi og Bandaríkj-
unum, svo fátt eitt sé talið. Síðst á
dagskránni eru dans frá Filipps-
eyjum, „Tinkling" sem Alþjóð-
legi dansflokkurinn hefur gert
frægan víða um heim.
Listamenn sem koma fram á
danssýningunni eru frá Kína, Fil-
ippseyjum, Mexíkó, Bandaríkj-
unum og Sovétríkjunum.
Alþjóðlegi dansflokkurinn er á
leið til Norðurlanda, þar sem
hann mun sýna í mörgum borgum
og bæjum í fjórar vikur. Að þessu
sinni verður aðeins ein sýning hér
á landi, í íslensku óperunni á
sumardaginn fyrsta kl. 17.00.
Verði aðgöngumiða er mjög í hóf
stillt, kosta 250.- kr.
Margrét Frímannsdóttir: Það má
enginn liggja á liði sínu á kjördag.
Þóra Þórðardóttir: Ef ekkert er að
gert blasir landauðn við. Stjórn-
arflokkarnir hafa sýnt að þeir hafa
engan skilning á málum lands-
byggðarinnar.
landsins alls.“ Svanfríður sagðist
telja að úrslitin geti ráðist á fá-
einum atkvæðum: „Það verður
mjótt á mununum og hvert at-
kvæði vegur þungt þegar upp er
staðið. Þessvegna má nú enginn
skorast undan, - lokasóknin
stendur nú yfir og hún getur fært
okkur sigur.“
Vestfirðir
„Það er fyrirsjáanlegt að heilu
byggðirnar leggjast í eyði ef ekk-
ert verður að gert. Stjórnarflokk-
arnir hafa rekið svívirðilega
stefnu gagnvart landsbyggðinni
sem byggir á skilnings- og tillits-
leysi. Það er því úrslitaatriði fyrir
þetta kjördæmi að fulltrúi Al-
þýðubandalagsins nái kjöri til al-
þingis,“ sagði Þóra Þórðardóttir
sem skipar 3ja sætið á lista Al-
þýðubandalagsins á Vestfjörð-
um, en þar er nú háð grimmileg
kosningabarátta og öruggt að úr-
slit munu ekki ráðast fyrr en síð-
asta atkvæðið verður talið upp úr
kjörkassanum.
Þóra sagði að atvinnu- og sam-
göngumál væru í ólestri í kjör-
dæminu: „Ef ekkert verður að
gert blasir ekkert annað en land-
auðn við. Vestfirðingar þurfa
stórbættar samgöngur og nýja
strauma í atvinnulífið. Við þurf-
um að gera fólki kleift að eignast
húsnæði úti á landsbyggðinni án
þess að eiga á hættu að verða
gjaldþrota þurfi það að selja aft-
ur.
Alþýðubandalagið er í sókn í
þessu kjördæmi,“ sagði Þóra.
„Hins vegar er hætt við að at-
Svanfríður Jónasdóttir: Hvert at-
kvæði vegur þungt þegar upp
verður staðið.
Unnur Sólrún Bragadóttir: Við
kvíðum ekki úrslitunum ef vinstri-
menn standa saman.
kvæði félagshyggj ufólks tvístrist
á smáflokka ef það gerir sér ekki
grein fyrir því að það verður að
leggja öflugasta málsvara byggð-
ar í landinu öllu lið sitt. Við
megum ekki ónýta atkvæði okkar
á þann hátt, það er vatn á myllu
stjórnarflokkanna. Það er gífur-
lega mikilvægt að við sameinumst
um að tryggja Kristni góða kosn-
ingu.“
Suðurland
„Þetta gengur vel hér í kjör-
dæminu en við þurfum sannar-
lega á öllu okkar að halda og það
má enginn liggja á liði sínu á kjör-
dag,“ sagði Margrét Frímanns-
dóttir, oddviti á Stokkseyri í gær,
en hún skipar efsta sætið á lista
Alþýðubandalagsins á Suður-
landi. „Hér í kjördæminu eru
fjórir listar, þar á meðal við í Al-
þýðubandalaginu, að slást um tvö
þingsæti og það er augljóst að
menn verða að halda vel á málum
og vinna duglega alveg þar til
kjörstöðum verður lokað á
laugardagskvöldið, ef við eigum
að ná öðru þessara sæta.
Ég finn að það er hugur í fólki
og ég veit að það mun vinna
jafnvel enn betur saman, þann
stutta tíma sem eftir er af þessari
kosningabaráttu,“ sagði Mar-
grét.
Á morgun er opið hús og
sumargleði á Selfossi hjá Alþýðu-
bandalaginu á Suðurlandi en á
föstudag sagðist Margrét ætla að
gera víðreist á vinnustöðum fyrir
austan fjall.
—hj/lg.
Óperan
Alþjóðlegur
dansflokkur
Myndir: Sig.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 23. apríl 1987