Þjóðviljinn - 23.04.1987, Síða 10
Konur og karlar eiga að vinna
saman í pólitískum flokkum
segir Ingibjörg Hafstað, sem skipar 9. sœti G-listans á Norðurlandi vestra
Ingibjörg Hafstað er kennari
og bóndi í Vík í Skagafirði. Mað-
ur hennar er Sigurður Sigfússon
og eiga þau einn son. Ingibjörg
skipar 9. sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins á Norðurlandi
vestra.
Það vekur athygli mína að nú
skipar þú 9. sæti listans en varst í
3. sæti fyrir síðustu Alþingiskosn-
ingar Hvað veldur?
Tvö efstu sætin eru eins
skipuð. Og mér fannst sjálfsagt
að gefa einhverjum öðrum tæki-
færi til að taka þetta sæti. Nú er
það Unnur Kristjánsdóttir og ég
tel að hún sé afskaplega vel hæf.
Ég taldi mig heldur ekki hafa
nógan tíma til að sinna þessu eins
og skyldi. Það er ekki eðlilegt
heldur að listinn sé alltaf eins
skipaður.
Hvers vegna telur þú að konur
eigi svo erfitt uppdráttar í
stjórnmálum yfirleitt?
Það er fyrst og fremst þetta
ójafnrétti sem enn ríkir á milli
kynjanna. Konur hafa of mikið
að gera. Þær eru með heimilis-
störfin nær eingöngu á sínum
herðum og vinnu utan heimilisins
líka. Það dugir ekki lengur vinna
annars aðilans til að framfleyta
heimili. Þá er lítill tími eftir, ekki
síst hjá konunni, til að sinna
áhugamálum hvort sem það er á
sviði stjórnmáia eða annars.
Einnig það að stjórnmálaflokk-
arnir eru byggðir upp af körlum
og starfið nær eingöngu í höndum
karla hingað til og við erum ekki
komnar lengra en þetta. Okkur
hefur ekki tekist að breyta þessu
kerfi nema að litlu leyti. Funda-
formið er t.d. þungt og oft leiðin-
legt. Þó finnst mér samt sem áður
að konur og karlar eigi að vinna
saman í pólitískum flokkum eins
og á öðrum sviðum félagslega.
Víkjum að skólamálum. Hver
er staða okkar dreifbýlinga þegar
mcnntun barna okkar er annars
vegar?
Staða menntamála í landinu er
afar bágborin og mér finnst sem
stigin hafi verið skref afturábak í
flestum þáttum. Það er ekkert
sjálfsagður hlutur að ætla sér að
framfylgja grunnskólalögum í
landinu. Það hafa atburðir und-
anfarandi mánaða á Norðurlandi
eystra sýnt. Hlutur menntunar er
lítilsvirtur. Jafnrétti til náms eftir
búsetu manna eru orðin tóm.
Kennarastarfið er ekki lengur
freistandi starf eins og það var
t.d. þegar ég var að læra. Menn
verða þá að fara í þetta starf af
hugsjón, ekki freista launin
þeirra. Kennarastarfið er orðið
kvennastarf eins og önnur lágl-
aunastörf í landinu. Þau störf sem
hafa með uppeldi barna að gera
eru orðin láglaunastörf. Þó að
þau séu lofsungin gjaman sem
ábyrgðarmestu störf þjóöfélags-
ins. Aðbúnaður er víða mjög
slæmur. Þótt í dag séu gerðar sí-
auknar kröfur til menntunar á
öllum sviðum. Þjóðfélagið er
orðið háþróað en sú þróun nær
ekki til skólanna. Þeir eru langt á
eftir, gjörsamlega staðnaðir, sér-
staklega grunnskólarnir. Náms-
gagnagerð er í lágmarki svo og öll
uppbygging. Flóttinn af lands-
byggðinni núna er ekki eingöngu
vegna ójöfnuðar í atvinnu eða
kjaramálum heldur ekki síður
ójöfnuður í menntamálum; það
er e.t. v. stærri þáttur en fólk gerir
sér grein fyrir. Fólk sem hefur
metnað eða hefur þörf fyrir
aukna félagslega þjónustu eða
öðru vísi þjónustu en fæst heima í
héraði, hefur í raun og veru ekki
um annað að velja en að fara
burtu.
Hver er áhersla Alþýðubanda-
lagsins í skólamálum?
Alþýðubandalagið hefur lagt
áherslu á félagslegan jöfnuð. Og
ég trúi því að það gildi í skólamál-
um líka. Mér fannst breytast tölu-
vert ástandið í tíð síðustu vinstri
stjórnar a.m.k. afstaðan til skól-
anna. Mér fannst fara af stað starf
sem gaf góð fyrirheit en nú hefur
það verið brotið niður. Stefnan
var sú að færa valdið og stafið æ
meira heim í hérað, en nú virðist
sú stefna ríkja að færa allt starf og
alla stjórnun til Reykjavíkur.
Meira að segja heyrast þær raddir
að ef börn þurfa á sérkennslu að
halda í einhverjum mæli og ekki
er hægt að fá fólk til starfa út í
sveitirrar þá sé ekkert tiltökumál
að senda þau til Reykjavíkur. Nú
er verið að endurskoða lög um
fræðsluskrifstofur og fræðsluráð
og ég veit ekki hvernig það kann
að enda.
Nú ert þú öðrum þræði bóndi.
Hvert er álit þitt á þeirri stefnu
sem nú er í mótun í landbúnað-
armálum?
Það hefur verið áhyggjuefni
síðustu mánuði þau vandamál
sem maður verður vitni að dag-
lega og tengjast landbúnaðinum.
Efnahagsstefna stjórnvalda hefur
leikið bændur grátt eins og annað
launafólk. Kvótakerfi í landbún-
aðinum hefur mistekist í veiga-
VIÐHORF
miklum atriðum og bitnað hvað
harðast á litlum bújörðum, sem
eru margar og mikilvægar í
byggðakeðjunni. Hver sú jörð
sem fer í eyði er blóðtaka fyrir
smá byggðarlög. Hávaxtastefna
ofan á verðtryggð lán auk sam-
dráttar í niðurgreiðslum hafa og
slæm áhrif á afkomu bænda.
Stefnumörkun varðandi nýjar
búgreinar er losaraleg og stuðn-
ingur frá hinu opinbera ófull-
nægjandi.
Hvað skal gera?
Það þarf að breyta fram-
leiðslustjórnun. Örva sölu land-
búnaðarafurða með vandaðri
vöruþróun og markaðsstarfsemi
en ekki bara setja jarðir í eyði.
Við eigum að styðja það sem
hægt er að framleiða hérlendis og
ekki flytja inn glórulaust hvers
kyns óþarfa.
Hvað hefur helst mótað afstöðu
þína til Alþýðubandalagsins?
Það sem helst hefur mótað af-
stöðu mína til Alþýðubandalags-
ins er fyrst og fremst andstaða
mín gegn her í landi og andúð á
hernaðarbandalögum og brölti
yfirleitt. Alþýðubandalagið er
ennþá eini stjómmálaflokkurinn
sem hefur tekið afstöðu til þeirra
mála á þann hátt sem mér líkar.
Þó að við höfum enn her í landi þá
er ég viss um að meirihluti al-
mennings hefur áhyggjur og vill
stöðva umsvif hersins og draga úr
efnahagslegum áhrifum hans hér-
lendis.
Eitthvað að lokum sem er þér
öðru fremur ofarlega í huga?
Náttúrvernd og mengunar-
vandi eru mér ofarlega í huga.
Fólk er ótrúlega áhugalítið um
þau mál. Við höfum enn hreint
vatn og loft en mengun á sér ekki
takmörk, við þurfum að gæta
okkar. „Tjernobyl" slys gæti
endurtekið sig og ef slys verða á
kjarnorkukafbát á fiskislóð og
hrygningarstöðvum væri kippt
stoðum undan lífsafkomu okkar.
Halldór Laxness
85 ára
afmælisdagskrá
í Þjóðleikhúsinu
í dag 23. apríl
kl. 14.00
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, flytur
ávarp.
Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur við undirleik Önnu
Guðnýjar Guðmundsdóttur þrjú lög við Ijóð
Halldórs Laxness.
Herdís Þorvaldsdóttir les kafla úr Hinu Ijósa
mani.
Matthías Johannessen flytur ávarp
Kristinn Sigmundsson syngur við undirleik Jón-
asar Ingimundarsonar fjögur lög við Ijóð Lax-
ness.
Sigurður Pálsson flytur kveðju frá Rithöfundas-
ambandi íslands.
Kafli úr Úu, leikgerð Kristnihalds undir Jökli.
Gísli Halldórsson, Jón Sigurbjörnsson og Jak-
ob Þór Einarsson flytja undir leikstjórn Sveins
Einarssonar.
Kynnir: Sveinn Einarsson.
Aðgangur ókeypis
Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra.
Opið bréf
til Guðmnar Helgadóttur
Kristín Ástgeirsdóttir skrifar
Aldrei hefði ég trúað því að
óreyndu að Guðrún Helgadóttir
ætti eftir að grípa til jafn óvand-
aðra meðala í kosningabarátt-
unni og raun ber vitni. í DV birt-
ist í gær (21. apríl) auglýsing frá
þeim Olgu Guðrúnu, Alfheiði og
Guðrúnu Helgadóttur. Mér var
sagt að auglýsing þessi hefði birst
áður, en hana hafði ekki borið
fyrir mín augu fyrr en í gær. í
þeim texta sem Guðrún lætur frá
sér fara segir hún frá því að
'Kvennalistinn hafi ekki viljað
styðja frumvarp hennar um emb-
ætti umboðsmanns barna, en að
Kvennalistinn geri sér svo lítið
fyrir og steli málinu í stefnuskrá
sinni nú. Guðrún ætti að vita bet-
ur. í stefnuskrá Kvennalistans
fyri borgarstjórnarkosningamar
sl. vor settum við fram hugmynd-
ina um bamamálsvara sem gæta
ætti hagsmuna barna gagnvart
foreldmm og „kerfinu“. Mér vit-
anlega hafði þessi hugmynd
aldrei áður verið sett fram af pól-
itískum samtökum hér á landi, en
slíkur málsvari barna er til á
a.m.k. sumum Norðurlanda.
Okkur hafði ekki gefist tími til að
leggja málið fram þegar fmm-
varp Guðrúnar leit dagsins ljós.
Það hefði ekki staðið á þingkon-
um Kvennalistans að flytja málið
með Guðrúnu ef það hefði verið
þannig úr garði gert að fallið
hefði að okkar hugmyndum. En
því miður - Kvennalistinn hafði
margt við fmmvarpið að athuga,
þar á meðal valdssvið umboðs-
mannsins og það atriði að hann
átti að vera skipaður af ráðherra
og settur inn í dómsmálaráðu-
neytið. Þama er á ferð það sem
ég vil kalla kerfíshugsun og við
efumst um að starfsmaður dóms-
málaráðuneytisins myndi reynast
bömum sá málsvari sem þau
þurfa á að halda, embættismaður
án valds og með sjö manna ráð
sér við hlið. Við hefðum viljað
fara aðrar leiðir, en auðvitað
hefðum við stutt málíð þó að það
gangi ekki nógu langt að okkar
dómi.
Guðrún, það er rakalaus
þvættingur að við séum búnar að
stela málinu frá þér. Við vomm
fyrstar til, en það skiptir auðvitað
engu máli. Aðalatriðið er að mál-
ið komist í höfn börnum þessa
lands til góðs.
Að lokum þetta. Guðrún mín,
hefurðu ekkert annað að segja
þínum kjósendum en hvað við
Kvennalistakonur séum ómerki-
legar? Hvar er þinn málstaður?
Hvar er þín stefna? Skyldi skýr-
ingarinnar á fylgistapi Alþýðu-
bandalagsins (skv. skoðanakönn-
unum) vera að leita til málflutn-
ings af því tagi sem auglýsing ykk-
ar þriggja vitnar um? Svari nú
hver fyrir sig.
Krlstfn Ástgelrsdóttir er f
efsta sætl Kvennalistans (
Suöurlandskjördæmi.
10 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN i Fimmtudagur 23. aprfl 1987