Þjóðviljinn - 30.05.1987, Blaðsíða 1
Stjórnarmyndun
Laugardagur 30. maí 1987 114. tölublað 52. órgangur
;».........—.—. .
Framsókn vill DBS-stjóm
t Porsteinn skilaði afsér í gær, búist við aðforseti hinkri við í umboðsmálum. Framsókn líst ekki á krata, viljastjórn með
hœgriflokkunum undirforystu Steingríms. Sjálfstœðismenn þverir. Fjögurra flokka stjórn reynd nœst?
Pingflokksfundur Framsókn-
armanna komst að þeirri
niðurstöðu að krefjast skýrra
svara af Sjálfstæðisflokknum um
hugsanlega samstjórn þessara
flokka með Borgaraflokknum í
samræmi við yfirlýsingar Alberts
Guðmundssonar og félaga í fyrri
viku. Viðbrögð Sjálfstæðis-
manna einkennast af tregðu, og
staðan í stjórnarmyndunarmál-
um er mjög óljós.
Þorsteinn Pálsson skilaði í gær
af sér stjórnarmyndunarumboði
sínu eftir rúman hálfan mánuð.
Hann sagði á blaðamannafundi í
gær að Sjálfstæðismönnum hefði
fundist sennilegasti kosturinn
stjórn með Alþýðuflokki og
Framsókn eftir slit viðræðna við
Kvennalista, en eftir að hafa rætt
við Steingrím Hermannsson væri
mat sitt að í Framsóknarflokki
væri ekki nægur áhugi til að reyna
slíkt nú.
Þorsteinn neitaði því að hann
hefði á umboðstíma sínum tafið
fyrir myndun nýrrar stjórnar, það
hefði verið reynt til þrautar, og
rangt væri að „henda frá sér um-
boðinu einsog heitri kartöflu".
Gert er ráð fyrir að forseti
hinkri við áður en annar
stjórnmálaforingi fær umboðið,
bíði svars Sjálfstæðismanna við
DBS-kosti, og kynni sér líkur á
stjórn Framsóknar, Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks.
Metingur Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks um forsætis-
ráðherrastólinn stendur í bili í
vegi beggja þessara kosta, og
Framsóknarmenn ætla sér að
bíða áður en rætt er við krata.
Náist ekki samkomulag nú um
aðra hvora þessara þriggja-
flokkastjóma er sennilegast að
forsetinn afhendi næsta manni
umboð með þeim skilningi að
fjögurraflokkakostir séu næstir á
dagskrá, og þá einkum samstjórn
annarra en hægriflokkanna
tveggja. Bæði Kvennalisti og Al-
þýðubandalag em tilbúin í slíkar
viðræður, og kynni forsetinn að
meta þetta þannig að eðlilegast
væri að Kvennalisti hefði frum-
kvæði að slíkri stjórn.
Hugsanlegt er að Jón Baldvin
Hannibalsson leggi þetta beinlín-
is til við forsetann, og reyni að
nota fjögurraflokkaviðræður til
að nálgast Framsókn í sameigin-
legri andstöðu við Kvennó og
Allaballa. Að slíkum viðræðum
loknum án árangurs kynni að
standa betur í ból ABD-stjórnar
en nú, og þríflokkarnir gætu bet-
ur varið þátttöku sína í slíkri
stjórn, með því að aðrar hafi ekki
verið í augsýn og hörð stjórnar-
kreppa yfirvofandi.
Ítalía
Beraði brjóstin
Kvcnréttindakonan ástarlífs-
leikkonan og þingframbjóð-
andi Róttækka flokksins, Uona
Staller, lék óvæntum leik i kosn-
ingabaráttunni sem nú er í al-
gleymingi á Italíu.
Frambjóðandinn tók sér stöðu
frammi fyrir þinghúsinu í Róm.
íklædd örþunnu, bleiku afmors -
dressi og umkringd laganna vörð-
um hélt fröken Staller yndislega
framboðsræðu um gildi ástarinn-
ar í mannlegu félagi. Til að færa
áheyrendum heim sanninn um að
hugur fylgdi máli svipti hún hvað
eftir annað blússunni frá bljúgum
barmi sínum og sýndi viðstödd-
um hvað undir bjó.
Frambjóðandinn hagaði orð-
um sínum á þessa lund: „Meira
klám kemur á jafnvægi í sálinni,
greiðir kúgun náðarhöggið, eyðir
ofbeldi og skapar róttækni. Lengi
lifi ástin! Lengi lifi lífið!“
Framboð Staller hefur vakið
mikla athygli á Ítalíu og sýnist sitt
hverjum einsog gengur. Hinn
aldni bragðarefur Giulio Andre-
otti var inntur álits. Hann sagði
allt í himnalagi þótt fröken Stall-
er tæki sæti á þingi. Svo fremi hún
væri ekki að hátta í tíma og ó-
tíma. -ks.
Utvarpsráð hefur afráðið að
tveir þættir um friðarmál,
verði fluttir í útvarpinu, eftir að
hafa lagt bann við flutningi þeirra
um páskaleytið. Þættirnir eru í
umsjá Þorsteins Helgasonar,
sagnfræðings, en dagskrárdeild
bað hann um að annast gerð
þeirra.
- Útvarpsráð stöðvaði útsend-
ingu þáttanna, eftir að það var
búið að vinna þá. Dagskrár-
deildin fékk í raun engar viðhlít-
andi skýringar fyrir því að meiri-
hluti útvarpsráðs afréð að koma í
veg fyrir útsendingu, þessara
þátta, sagði Margrét Oddsdóttir
á dagskrárdeild Ríkisútvarpsins.
Útvarpsráð hefur nú fallist á að
leyfa útsendingu þáttanna og
verða þeir á dagskrá Ríkisút-
varpsins, 1. og 8. júní.
- Við útskýrðum fyrir útvarps-
ráði um hvað þættir Þorsteins
fjölluðu og ákvað útvarpsráð þá
að setja þá á dagskrá, sagði Mar-
grét Oddsdóttir.
Rafiðnaðarmenn
Þokast í
samkomu-
lagsátt
Rafiðnaðarmenn hjá Ríkisút-
varpinu og ríkisspítölunum byrj-
uðu verkfall á miðnætti í fyrra-
kvöld. í allan gærdag voru fundir
hjá sáttasemjara og stóðu þeir
enn þegar blaðið fór í prentun.
Að sögn Elísabetar Olafsdótt-
ur, sem sér um fundi sáttasemj-
ara, þar sem hann er staddur er-
lendis, hafði verulega þokast í
samkomulagsátt, en búist var við
að fundir stæðu langt fram á nótt.
-Sáf
Fjöldi krakka var saman kominn fyrir framan nýja
útvarpshúsiö viö Efstaleiti í gærmorgun rétt fyrir
hádegi til aö berja augun og hlusta á ísraelsku
söngvarana og háöfuglana Avi Kustnir og Natan
Datner flytja framlag Israel í Eurovision-söngva-
keppninni, sem fram fór á dögunum. Vöktu þeir
mikla hrifningu viöstaddra meö söng sínum og
látbragöi. Létu þeir öllum illum látum, hoppuöu
og tóku heljarstökk og fengu mikiö klapp fyrir. Á
eftir þeim lék hljómsveitin Grafík nokkur lög.
Útvarpsráð
Ritskoðun á Ríkisútvarpi
Útvarpsráð ritkoðar dagskrá. Kom í vegfyrir að þœttir umfriðarmál yrðufluttir
um páskana. Dagskrárdeild tókst að tala umfyrir ráðinu. Þœttirnir á dagskrá í
júní