Þjóðviljinn - 30.05.1987, Blaðsíða 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Félagsfundur
Alþýöubandalagið í Kjósarsýslu boðar til almenns félagsfundar mánudag-
inn 1. júní í Hlégarði kl. 20.30.
Efstu menn G-listans, Geir Gunnarsson og Ólafur Ragnar Grímsson mæta
á fundinn. Fundarefni: Niðurstöður kosninganna og hvaða lærdóm má
draga af þeim.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin
Frá Skrifstofu Alþýðubandalagsins
Sumartími
í sumar er skrifstofa AB opin frá kl. 9-16 alla virka daga. Síminn er 17500.
Alþýðubandalagið í Reykjavík er með opna skrifstofu á Hverfisgötu 105
frá kl. 10-12 alla virka daga.
Alþýðubandalagið Akureyri
Aðalfundur
verður haldinn í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18, fimmtudaginn 4. júní kl.
20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Allir félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur verður í bæjarmálaráði laugardaginn 30. maí kl. 10 í Skálanum,
Strandgötu 41.
Dagskrá: 1) Bæjarmálin 2) Starfið í sumar 3) Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
Alþýðubandalagið
Utanríkismálahópur
Fundur verður í málefnahóp um utanríkismál Alþýðubandalagsins í Flokks-
miðstöðinni Hverfisgötu 105, mánudaginn 1. júní kl. 20.30. Dagskrá: Verk-
efnin framundan. Allir velkomnir.
G-listinn Reykjanesi
Listaverkahappdrættið
Vinningstölur í Listaverkahappdrætti G-listans á Reykjanesi. Upp komu
eftirtaldar tölur í þessari röð: 1) 6074 2) 5134 3) 11849 4) 7215 5) 4804 6)
3452 7)4425 8)10745 9)3051 10)5111 11)11386 12)1061 13)507614)
11360 15) 10011 16) 7169 17) 9021 18) 11575 19) 7727 20) 4691.
Vinningshafar hafi samband við skrifstofu Alþýðubandalagsins í Kópa-
vogi, sími 41746 sem fyrst. .. . , , ,,
Alþyðubandalagið Reykjanesi
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Kosningahappdrætti ABR
Drætti í kosningahappdrættinu hefur verið frestað til 1. júní. Þeir sem enn
eiqa eftir að gera skil eru beðnir að gera það hið fyrsta.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur 1. deildar
Áfram veginn. Umræðan er hafin. Við félagar í 1. deild höldum aðalfund
deildarinnar þriðjudaginn 2. júní kl. 20.30 að Túngötu 43.
Við kjósum okkur stjórn og kjósum í flokksráð. Síðan verða umræöur um
stöðu flokksins í nútíð og framtíð. Stjórnin.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur 4. deildar
Áfram veginn. Umræðan er hafin. Við félagar í 4. deild höldum aðalfund
deildarinnar mánudaginn 1. júní kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Við kjósum okkur stjórn og kjósum í flokksráð. Síðan verðar umræður um
stöðu flokksins í nútíð og framtíð. Stjórnin.
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur ABR
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn
11. júní n.k. í Miðgarði, Hverfisgötu 105 og hefst kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Dagskrá nánar auglýst síðar.
Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Fundur um bæjarmálin
ABK heldur fund um bæjarmálin mánudaginnn 1. júní klukkan 20.30 í
Þinghóli. Mætum öll. Stjórnin
Alþýðubandalagið Borgarnesi og nærsveitum
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 5. júní kl. 20.30 í Röðli.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) önnur mál. Félagar eru hvattir
til að mæta. Stj<Jm(n
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 1. júní kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Dag-
skrá: 1) Bæjarstjórnarfundur þriðjudaginn 2. júní. 2) Önnur mál.
Stjórnin
ÍÞRÓTTIR
1. deild
Fyrstu stig Völsungs
Völsungar fengu sín fyrstu stig í
1. deild og það gegn Þór á útivelli.
Sætur sigur fyrir Húsvíkinga.
Leikurinn var þó ekki mikið
fyrir augað. Mikill hliðarvindur
og knattspyrnan heldur stór-
karlaleg.
Húsvíkingar áttu nokkur góð
færi. Hörður Benónýsson komst
einn innfyrir á 12. mínútu, en
Baldvin varði. Þórsarar áttu
einnig góð færi. Hlynur Birgisson
átti skalla yfir eftir langt innkast
frá Júlíusi Tryggvasyni. Hlynur
komst svo aftur í gott færi á 31.
mínútu en inn vildi boltinn ekki.
Halldór Áskelsson var svo ekki
langt frá því að skora á 42. mín-
útu en skot hans strauk stöngina,
utanverða.
Þegar 10 sekúndur voru til loka
fyrir hálfleiks kom mark Völs-
unga. Kristján Olgeirsson lék
upp kantinn og gaf fyrir á Hörður
Benónýsson sem skoraði með
skalla í tómt markið.
í síðari hálfleik lá meira á Völs-
ungum, en þeir áttu þó sín færi.
Kristján Olgeirsson komst einn í
gegn en Einar Arason bjargaði á
línu. Hörður komst svo einn í
gegn en Baldvin náði boltanum.
Hörður komst svo einn í gegn á
80. mínútu en var of seinn.
Síðustu mínúturnar sóttu Þórs-
arar stíft. Guðmundur Valur Sig-
urðsson komst í dauðafæri en
skallaði yfir og Kristján Krist-
jánsson komst í gott færi en var of
seinn að skjóta. Halldór Áskels-
son átti svo tvö góð færi á loka-
mínútunum. Fyrst átti hann
skalla yfir og svo skot frá mark-
teig sem Þorfinnur Hjaltason
varði vel.
Þessi sigur kom nokkuð á
óvart. Flestir hafa búist við Þórs-
urum sterkum á heimavelli, en
sigur Völsunga kom fyrst og
fremst af mikilli baráttu.
-HK/Akureyri
Þór-Völsungur 0-1 (0-1) **
Akureyrarvöllur 29. mal
Áhorfendur:1325
Dómari:Friögeir Hallgrimsson **
0-1 Hörður Benónýsson (45.mín)
Stjörnur Þórs:
Árni Stetánsson *
Stjörnur Völsungs:
Kristján Olgeirsson *
Sveinn Freysson *
Birgir Skúlason *
l.deild
Tryggvi kominn í gang
Skoraði sitt fyrsta mark gegn Víði
Tryggvi Gunnarsson, marka-
kóngur í 2. deild í fyrra, er nú
kominn í gang. Hann skoraði sitt
fyrsta mark þegar KA sigraði
Víði 0-1 í Garðinum.
Leikurinn var frekar lítið
spennandi og fá marktækifæri.
Leikur liðanna einkenndist af
baráttu og lítið um falleg spil.
Það var aðeins eitt hættulegt
færi í fyrri hálfleik og afskaplega
undarlegt að úr því yrði ekki
mark. Tryggvi komst einn í gegn,
en Gísli Heiðarsson hálfvarði
skot hans. Boltinn barst aftur úr
til Tryggva sem nú skaut í stöng.
Þaðan barst boltinn til Hinriks
Þórhallssonar sem á ótrúlegan
hátt tókst að koma boltanum yfir
af stuttu færi fyrir framan opið
mark.
Fyrri hálfleikurinn var að
mestu á miðjunni og fátt um fína
drætti. Síðari hálfleikurinn var á
svipuðum nótum.
Guðjón Guðmundsson átti
góða sendingu á Björgvin Björg-
vinsson sem skallaði yfir í góðu
færi.
Það var svo á 75. mínútu að
Tryggvi skoraði sigurmarkið.
Það var einfalt, hornspyrna og
Tryggvi stökk hæst og skallaði í
mark Víðismanna.
Það sem eftir var leiksins
reyndu Víðismenn hvað þeir gátu
til að jafan en ekki er hægt að
segja að þeir hafi komist verulega
nálægt því.
-Sóm/Suðurnesjum
Víðir-KA 0-1 (0-0) **
Garðsvöllur 29. maí
Dómari: Þorvarður Björnsson **
Áhoríendur 550
0-1 Tryggvi Gunnarsson (75.mln)
Stjörnur Víðls:
Daníel Einarsson *
Vilhjálmur Einarsson *
Stjörnur KA:
Tryggvi Gunnarsson *
Jón Sveinsson *
Handbolti
Leikið gegn Norðmönnum
íslenska landsliðið undir 21 ára
leikur á morgun gegn Norð-
mönnum um sæti í Heimsmeistar-
akeppninni í Júgósiavíu á des-
ember.
Þjóðirnar leika tvo leiki, þann
fyrri á morgun kl. 16.30 í Hafnar-
firði og hinn síðari í Noregi eftir
viku.
Möguleikar íslands eru þokka-
legir og okkur hefur gengið vel
gegn Norðmönnum. Landsliðs-
hópurinn er nokkuð sterkur og
því má búast við hörkuleik í firð-
inum.
íslenska liðið er skipað eftir-
töldum leikmönnum:
Markverðir:
Bergsveinn Bergsvinsson FH
Guðmundar A. Jónsson Fram
Hrafn Margeirsson ÍR
Útileikmenn
Bjarki Sigurðsson Víking
Árni Friðleifsson Viking
Héðinn Gilsson FH
Pétur Petersen FH
Hálfdán Þórðarson FH
Stefán Kristjánsson FH
Ólafur Gylfason ÍR
Sigurjón Sigurðsson
Konráð Olavsson KR
Skúli Gunnsteinsson Stjörnunni
Einar Einarsson Stjörnunni
Þjálfari er Viggó Sigurðsson.
-Ibe
Mjólkurbikarinn
Baslhjá
Víkingum
Víkingar áttu i nokkru basli
með Hauka f fyrstu umferð
Mjólkurbikarkeppninnar. Þeir
sigruðu þó 2-0 og eru því komnir í
2. umferð.
Það var Ögumdur Kristinsson
sem olli sínum gömlu félögum
vandræðum. Jóhanni Þorvarð-
arsyni og Trausta Ómarssyni
tókst þó að koma boltanum fram-
hjá honum.
Þá sigraði ÍR ÍK, 4-1. Leikur-
inn var markalaus allt þartil 20
mínútur voru til leiksloka. Þá
hófst markaregn, en ÍR-ingar
stóðu uppi sem sigurvegarar.
Halldór Halldórsson skoraði
tvö marka ÍR, Bragi Björnsson
og Björn Sverrisson eitt hvor.
Hörður Sigurðarson skoraði
mark ÍK.
Loks sigraði Víkverji Ármann
4-1.
-Ibe
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Nú ræktum við garðinn okkar
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík óskar eftir 100-200 m2 kartöflugarði. Nú
ræktum við garðinn okkar. Þeir sem geta gefið okkur upplýsingar eða leigt
okkur garð, láti vita í kvöld í síma 17500 eða á skrifstofutíma ABR.
Stjórnln
Mokum skít
Lykill að góðri sprettu er 1. flokks hrossatað á túnið, dreift af félagslegri
samstöðu. Ef þig vantar tað á túnið, hafðu samband í kvöld eftir kl. 20.00 í
síma 17500 og við komum sunnudaginn 31. maí með gott tað og dreifum
því gegn sanngjörnu verði.
ÆFR-lngar í „skítabissness”
Smíði kjarnorkusprengju
í kvöld kl. 20.30 verður smíðuð fyrsta íslenska kjarnorkusprengjan. Smíðin
fer fram að Hverfisgötu 105, R. Félagar, mætum öll.
Stjórn ÆFR
14 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN