Þjóðviljinn - 30.05.1987, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 30.05.1987, Blaðsíða 6
VIÐHORF Opið bréf til borgarverkftæðinys Sigurjón Pétursson skrifar í viðtali við þig, sem birtist í Þjóðviljanum s.I. fímmtudag kemur fram afstaða, sem ég tel nauðsynlegt að fá frekari skýr- ingar á. Þar sem hún kom í dag- blaði þá hef ég valið þá aðferð að skrifa þér opið bréf í þeirri von að fá svar með sama hætti. í viðtalinu vitnar blaðamaður- inn í samþykkt borgarráðs frá 1977 þar sem tilteknum starfs- mönnum er bannað að vinna hönnunarverkefni nema að fengnu skriflegu leyfi þínu, og jafnframt var samþykkt að þú skyldir gera borgarráði grein fyrir þeim undanþágum sem yrðu veittar a.m.k.tvisvará ári. Blaða- maðurinn benti á að engin skýrsla hafi verið gefin. Svar þitt er svohljóðandi orðrétt: „Það hefur enginn kallað eftir henni. Þar á meðal ekki Sigurjón Pétursson sem var höfundur þessarar tillögu á sínum tíma. Hann var I aðstöðu til að gera það a.m.k. í fjögur ár“. Undirstrikun mín). Þetta svar kallar á spurningar. Telur þú sem embættismaður að þeir einir séu í aðstöðu til að krefjast þess að þú fylgir sam- „Ber að líta svo á, aðþúfarirþvíaðeins eftir samþykktum borgarráðs að eftir því sé sérstaklega gengið ? “ þykktum, sem eru í meirihluta á hverjum tíma? Ber að líta svo á að þú farir því aðeins eftir samþykktum borg- arráðs að eftir því sé sérstaklega gengið? Þú sérð sérstaka ástæðu til að geta þess að ég hafi ekki gengið eftir því að yfirlit væri gefið. Ég skal fúslega játa, að augljóst er nú, að þörf er á sérstöku aðhaldi í þeim efnum og ég mun vissulega reyna að standa mig í stykkinu þar. Þú virðist hins vegar telja að á þér hvíli engin ábyrgð í þessum efnum því þegar blaðamaðurinn spyr þig síðar: „Þannig að þetta var ekki þín vömm að það gleymdist að skila henni“ (skýrsl- unni), þá svarar þú stutt og af- dráttarlaust: „Ekki aldeilis“. Það er ákaflega mikilvægt að vita með vissu hver afstaða þín er til samþykkta í borgarráði. Sér í lagi nú þegar borgarráð er nýbúið að gera samþykkt um aukið og hert eftirlit með þolhönnun bygg- inga. Einn liðurinn í tillögum minnihlutans sem samþykktur var í borgarráði hljóðar svo: „Byggingarnefnd verði reglu- lega gefin skýrsla um framvindu mála og borgarráði a.m.k. þrisv- ar sinnum á ári. Fyrsta yfirlit verði gefið fyrir 1. júlí n.k.“ Telur þú lfldegt að eftir þessari samþykkt verði farið eða á ég kannski að flytja tillögu um það seint í júní að ætlast sé til þess að farið verði eftir þessari sam- þykkt? Sennilega er skýrslan um þol- hönnun bygginga í Reykjavík og sú staðreynd að engin af þeim byggingum sem skoðaðar voru stóðust þær kröfur sem gerðar eru til styrks bygginga, eitthvert alvarlegasta mál sem upp hefur komið síðustu áratugi. Óll borg- arstjórnin hefur sameinast í til- lögum um úrbætur og það er ein- hugur um að koma þessum mál- um í lag þannig að ekki verði byggðar slysa- eða dauðagildrur í Reykjavík. Af skýrslunni má ráða að allmörg hús í Reykjavík verði því miður að flokkast sem slíkar gildrur. Borgarstjórn öll finnur til mikillar ábyrgðar vegna þess eins og viðbrögð sýna. Ég hafðieinnig gert mér vonir um að þú og starfs- menn þínir finndu einnig til ábyrgðar en það er vandi að lesa það út úr ívitnuðu viðtali. Sigurjón Pétursson Kennarar - fóstrur Hvammstangahreppur óskar eftir að ráða eftirtal- ið starfsfólk: Kennara við Grunnskólann einkum til kennslu í raungreinum og tölvufræði en annað kemur til greina. í skólanum eru um það bil 160 nemendur og er andinn meðal starfsfólks og nemenda góð- ur. Upplýsingar veitir Fleming Jessen skólastjóri í símum 95-1367 og 1368. Forstöðukonu við ieikskólann Fóstru við leikskólann Upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 95-1353. Hvammstangi er miðja vegu milli Fleykjavíkur og Akureyrar og er u.þ.b. 3ja klst. akstur í hvora áttina sem er. Staðurinn er þjónustumiðstöð fyrir V-Húnvetninga en með vaxandi útgerðarstarf- serni. Þar er ný heilsugæslustöð, hótel og sund- laug og nýlega hefur viðbygging við Grunn- skólann verið tekin í notkun. Á Hvammstanga búa nú tæplega 700 manns og hefur staðurinn vaxið ört síðustu ár. Félag járniðnaðarmanna Skemmtiferð 1987 fyrir eldri félagsmenn og maka þeirra verður farin laugardag og sunnudag 27. og 28. júní n.k. Farið verðurtil Hrútafjarðarog um Vatnsnes. Gist á Hótel Eddu — Reykjum. Lagt verður af stað frá Suðurlandsbraut 30 kl. 9.00 f.h. Þátttaka tilkynnist sem fyrst í síma 83011. Stjórn Félags járniðnaðarmanna MINNING Dagný Lára Jónasdóttir Fædd 1. apríl 1975 - Dáin 25. maí 1987 Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast œvinlega þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Og skín ei Ijúfast œvi þeirra yfir, sem ung á morgni lífsins staðar nemur, og eilíflega, óháð því sem kemur, í œsku sinnar tignu fegurð lifir? Sem sjálfur Drottinn mildum lófa lyki um lífsins perlu á gullnu augnabliki. (Tómas Guðmundsson) Með þessum línum kveðjum við litla vinkonu og þökkum af öilu hjarta árin, sem hún var í návist okkar. Hún hefur skilað því hlutverki, sem henni var ætlað í þessu lífi, og lifir nú á hærra tilverustigi. Jesú sagði: Ég lifi og þér munuð lifa. Við biðjum algóðan Guð að styrkja foreldra hennar og bræður og aðra ástvini í sorg þeirra. Minning hennar mun lifa. Gunna, Baldur og dætur Hún Dagný Lára besta vin- kona mín og bekkjasystir er dáin. Það er svo erfitt að trúa því, en Guð ræður. Ég veit að nú líður henni vel í faðmi Jesú á himnum. Ég sakna hennar mikið. Við vorum svo góðar vinkonur. Ég vil þá þakka henni fyrir allar okkar góðu stundir, sem við átt- um saman. Dagný Lára. Ég mun aldrei gleyma þér. Vaktu minn Jesú, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sáilin vaki, þá sofnar líf, sé hún œtíð í þinni hííf. Þín vinkona Elísabet Hún Dagný Lára er dáin. Þó svo að við hefðum fengið nokkra daga til að undirbúa okk- ur undir þessa fregn, þá erum við alltaf varbúin dauðanum, ekki síst þegar um svo unga stúlku er að ræða. Dagný Lára var ein af 26 nem- endum 5. bekkjar Grunnskólans í Stykkishólmi. Hún var einstak- lega dagfarsprúður nemandi, sem hafði ekki þörf fyrir að vekja á sér athygli. Samt sem áður viss- um við vel af henni, augu hennar sögðu mikið og hennar hlýja við- mót, sem við öll urðum vel að- njótandi. Dagný Lára var alltaf tilbúin að hjálpa, hver sem í hlut átti. glad.dist því mjög þegar hún eignaöist lítinn bróöur fynr t<epu ári. Einnig var hún mjög hænd aö dýrum og bauðst gjarnan til að gæta þeirra. Skólanum okkar hér í Stykkis- hólmi má líkja við stóra fjöl- skyldu, sem nú hefur verið höggvið í stórt skarð, á óvæntan og óvæginn hátt. Minningin um Dagnýju Láru mun lifa áfram meðal bekkjarfélaga, skólafé- laga, kennara og starfsfólks skólans. Höfum hljótt, hún á nú svo hœgt og rótt. Vertu sæl, vor Ijúfa lilja, litla stund vér hljótum skilja. Hvíl í Guði, góða nóttl Höfum hljótt! (Matthías Jochumsson) Við vottum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúð. Guð blessi minningu Dagnýjar Láru. Nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Stykkishólmi 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. maí 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.