Þjóðviljinn - 30.05.1987, Page 4
LEIÐARI
Kjamoriaihætlan
Fræðimenn greinir víst á um það hvort núverandi forði
kjarnorkutóla í vopnabúrum stórveldanna geti eytt mannlífi
á jörðinni ellefu sinnum eða þrettán sinnum. Okkur hinum
dauðlegu má vera nokk sama um hina tölulegu niður-
stöðu, en okkur má ekki vera sama um sífellda margföldun
þessara vopna og sífellt hættulegri tæknisigra við hönnun
þeirra og tilbúning.
Fréttir berast vestan frá Bandaríkjunum um að þar séu í
smíðum ný kjarnavopn, svo fullkomin að rætt er um þau
sem þriðju kynslóð kjarnavopna, á eftir fyrstu sprengjun-
um sem byggðust á klofningi frumeinda og þeim sem síðar
komu og byggðust á samruna frumeinda. Nýju vopnin sem
nú er verið að hanna og reyna eru auðvitað eðlisskyld
hinum gömlu, en taka þeim langt fram um markvísi og
nákvæmni og flest þeirra eru ætluð til notkunar í geimnum,
annaðhvort gegn skotmörkum þar eða á jörðu niðri.
Á meðal þeirra sem þegar hafa verið gerðar með tilraun-
ir f fyrstu gerð sinni er einskonar riffilsprengja kennd við
eldgjafann Prómeþevs, lítil kjarnorkusprengja sem þeytir
frá sér kúlum í ákveðna stefnu og á að eyða geimskeytum
andstæðingsins. Annað tól í smíðum er sprengja heitin
eftir Excalibur, sverði Artúrs konungs. í þeirri sprengju er
reynt að virkja röntgengeisla sem til verða við spren-
ginguna og nota þá til að magna upp leysigeisla sem með
gríðarlegum krafti er beint að skotmarkinu.
Þá er rætt um sprengjur sem einkum gefi frá sér örbyl-
gjur sem gætu eyðilagt rafleiðslur, til dæmis í tölvunetum,
á stóru svæði, enn aðrar sprengjur eru til þess ætlaðar að
beinast að mjög smáum svæðum, til dæmis Kremlarhverf-
inu einu saman.
Lærisveinar töframannsins fara sumsé sínu fram vest-
anhafs, og sjálfsagt er ýmislegt á seyði líka í
rannsóknastöðvum Sovétmanna.
Þessar nýju gerðir af kjarnavopnum eru einkar varhuga-
verðar. Þær eru vissulega „betri“ en hinar gömlu, en sjálf
nákvæmni þeirra og markvísi eykur hættuna á að herstjór-
arnir gripi til þeirra. Þær minnka á ákveðinn hátt muninn á
hefðbundnum vopnabúnaði og kjarnorkuvopnum, og gefa
þeim mönnum undir fótinn sem halda að hægt sé að heyja
svokallað takmarkað kjarnorkustríð. Þær auka líkur á að
gripið verði til kjarnorkuvopna í staðbundnum átökum, á
milli risaveldanna sjálfra eða hinna smærri ríkja.
Það er viðurkennt af opinberri hálfu í Bandaríkjunum að
rannsóknir og tilraunir við þessa þriðju kynslóð kjarnorku-
vopna tengist stjörnustríðsáætlun Washington-
stjórnarinnar, þótt sú áætlun eigi í orði kveðnu ekki að
byggja á kjarnorku.
Það er líka komið í Ijós að vinna við þessi nýju vopn er
helsta ástæða þess að Bandaríkjastjórn hefur hvað eftir
annað hafnað tilboðum Moskvumanna um gagnkvæmt
bann við tilraunum með kjarnorkuvopn, jafnvel þótt í So-
vétríkjunum hafi verið gert hálfs annars árs hlé á tilraunun-
um, jafnvel þótt sýnt sé, meðal annars vegna frumkvæðis
þjóðarleiðtoganna sex, að eftirlit með að slíkt bann sé
haldið er fyllilega raunhæft.
Umræða um afvopnunarmál hefur nokkra hríð beinst að
kjarnorkuflaugunum (Evrópu, og menn vona enn að risa-
veldin nái saman um fækkun eða útrýmingu ákveðinna
tegunda kjarnavopna í álfunni. Slíkt skref væri hinsvegar
lítils virði nema um leið verði komið í veg fyrir fjölgun
annarra kjarnavopna. Fréttir af hinum nýju vopnum í
Bandaríkjunum benda því miður til þess að ráðamenn þar í
landi séu ekki á neinum afvopnunarbuxum, þótt til
skamms tíma kunni að vera þægilegt að benda almenningi
á einhvern afvopnunarárangur.
Það er rétt að minna á að í samhljóða þingsályktun frá
eykst
23. maí 1985 markaði alþingi íslenska stefnu gegn smíöi
vopna einsog þeirra sem nú eru reynd í Nevadaeyðimörk-
inni. í ályktuninni beinir þingið því til ríkisstjórnarinnar „að
styðja og stuðla að allsherjarbanni við tilraunum, fram-
leiðslu og uppsetningu kjarnavopna undir traustu eftirliti,
svo og stöðvun á framleiðslu kjarnakleyfra efna í hernað-
arskyni".
Fróðlegt væri að vita hvernig ríkisstjórnin hefurframfylgt
þessari íslensku stefnu.
Eymd Þorsteins
Þorsteinn Pálsson hefur nú gefist upp við að mynda
ríkisstjórn. Hann hélt umboði forseta til þess frá 14. maí til
gærdagsins, 29. maí, og gekk hvorki né rak. Hann boðaði
til formlegra viðræðna um stjórnarmyndun fimmtudaginn
21. maí, en vinnubrögðin voru þannig að þingflokkarnir þrír
fóru fyrst til þess að leysa ágreiningsmál sín að kvöldi
miðvikudagsins 27. maí. Strax og á reyndi slitnaði uppúr
þeim viðræðum. Þorsteinn hefur nú sagt forseta að hann
ætli ekki að vera að lengur.
Á þessum tilgangslausa hálfa mánuði hefur Þorsteinn
Pálsson enn rýrt traust sitt sem stjórnmálaforingja, og
gangur mála í viðræðunum og bakvið tjöldin bendir til að
Sjálfstæðisflokkurinn sé í raun forystulaus, þráttfyrir að
skapstór og baldinn keppinautur Þorsteins um flokksvöld-
in hafi tekið með sér fjórðung liðsmanna í önnur pólitísk
héruð.
Þorsteinn Pálsson gerir rétt í því að biðjast undan því
frumkvæði sem forseti fól honum fyrir rúmum tveimur
vikum. -m
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltatjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fréttaatjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjömsson, IngunnÁsdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, ólafurGíslason,
Ragnar Karlsson, Sigurður Á. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta-og prófarKaleatur: ElíasMar, HildurFinnsdóttir.
Ljósmyndarar: EinarÓlason, SigurðurMarHalldórsson.
Útlltatelknarar: Sævar Guöbjömsson, Garöar Sigvaldason.
Framkvæmdaatjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlfstofustjórl: Jóhannes Harðarson.
Skrífatofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýaingaatjórl: Sigríður Hanna Sigurbjömsdóttir.
Auglýslngar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guðmunda Kristins-
dóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, SigríðurKristjánsdóttir.
Húsmóðir: Soffía Björgúlfsdóttir.
Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbrelðslu- og afgreiðslustjórl: Hörður Oddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Krístín Pótursdóttir.
Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjömsson.
lltkeyrsla, afgreiðsla, ritstjóm:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýslngar: Síðumúla 6, aímar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasólu: 55 kr.
Helgarblöð:60kr.
Áskriftarverð á mánuði: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. maí 1987