Þjóðviljinn - 30.05.1987, Qupperneq 7
Námskeið í samtalstækni
Að kunna
að hlusta
Guðrún Friðgeirsdóttirfélags-
fræðingur hefur verið leið-
beinandi á námskeiðum í
samtalstækni og ráðgjöf sem
haldin hafa verið í ýmsum
stofnunum svo sem skólum
og heilbrigðisstofnunum.
Hafa þessi námskeið verið
mjög vinsæl og vel sóttog
báðum við Guðrúnu því um að
segja okkur svolítið frá því í
hverju þessi námskeið eru
fólgin.
„Petta eru mismunandi löng
námskeið," sagði Guðrún, „sum
eru ekki nema 20 kennslustundir
og eru þá haldin yfir helgi en
önnur eru mun lengri og þá er
ráðgjöf yfirleitt tekin með inn í
námskeiðsefnið.
En svona námskeið byggjast í
raun og veru á því að kenna fólki
að hlusta. Öll samskipti fólks
grundvallast á því hversu vel fólk
kann að hlusta og setja sig í spor
annarra, vegna þess að þannig
kemur í ljós hversu vel þú þekkir
sjálfan þig og hve mikla virðingu
þú berð fyrir öðrum. Námskeiðin
byrja á því að láta fólk kynnast,
mynda traust meðal þátttakenda
og síðan byggjast þau á því að
fólk reynir að kynnast sjálfu sér,
lærir að þekkja sjálft sig, við-
brögð sín og tilfinningar. Þetta
gerum við með því að prófa okk-
ur áfram í ýmis konar hlutverka-
leikj um, þar sem stór þáttur er að
hlusta á aðra segja frá sjálfum sér
og síðan umorða hinir frásögnina
yfir í sín eigin orð. Þá kemur
mjög skýrt í ljós hversu vel fólk
þekkir sjálft sig. Annar þáttur er
að rifja upp sína fyrstu bernsku-
minningu. Það hafa verið settar
fram kenningar um að fyrsta
bernskuminning fólks eigi stóran
þátt í mótun lífstfls einstaklings-
ins, og að fyrsta bernskuminning-
in geti sagt mikið um lífsviðhorf
fólks, hvernig það leysir vanda-
mál, hvernig viðhorf það hefur til
hins kynsins og svo framvegis.
Það er til dæmis áberandi í
heilbrigðisstéttunum hve fyrsta
bernskuminning margra einstak-
linga þar tengist dauða, veikind-
um eða slysum.
Allt þetta gefur tilefni til sjálfs-
skoðunar og athugunar einstakl-
ingsins á sínum eigin lífsviðhorf-
um. Þannig lærir fólk að meta
það hvernig lífsviðhorf þess
endurspeglast í samskiptum þess
við aðra einstaklinga og umhverf-
ið. Það mikilvægasta í öllum sam-
skiptum er að kunna að hlusta og
taka við þeim boðum sem liggja í
því sem sagt er við mann.“
Hvernig er þessum námskeið-
um tekið?
„Þau eru alltaf að verða meira
og meira viðurkennd innan stofn-
ana, það er orðið viðurkennt nú
orðið innan heilbrigðisstéttanna
að andleg aðhlynning er mjög
nauðsynleg til að lækning beri ár-
angur og innstilling hjúkrunar-
fræðinga hefur breyst mjög á
síðari árum, meira finnst mér en
meðal kennara. Það er þó oft
brotalöm á og sjúklingar eru
stundum allt að því settir í hlut-
verk hálfvitans. Nemendum
finnst þeir oft vera settir neðar en
kennarinn og þeim líður þá ekki
vel innan skólastofnunarinnar.
Það er talað við þá á lítillækkandi
hátt og þeir ekki teknir góðir og
gildir. Þetta er vegna þess að það
er ekki hlustað á þá og þau boð
sem þeir senda. Oft er talað um
að nemendur eigi að bera virð-
ingu fyrir kennara sínum en
auðvitað á þetta að vera mun
meira gagnkvæmt en oft vill vera.
Það eiga allir, sama á hvaða
aldri þeir eru, erfitt með að sætta
sig við að vera lítillækkaðir og
það leiðir ekki til neins að lítil-
lækka annað fólk, það næst ekk-
ert samband milli manna þegar
það er gert. Rannsóknir erlendis
hafa sýnt að samband milli kenn-
ara og nemanda hefur oft úrslita-
áhrif á að árangur náist í námi og
það hefur mikið að segja fyrir
kennara að komast að nemand-
anum og geta styrkt hæfileika
þeirra og þar með námsárangur.
En því miður eru skólarnir komn-
ir fremur stutt hvað þetta varðar
og hafa ekki nýtt sér þá þekkingu
sem nú er komin fram um gildi
opinna mannlegra samskipta.
Margir segja að skólarnir séu lok-
uð stofnun og að skólastjórar hafi
geysilega mikil völd. Það er í
sjálfu sér rétt að þeir geta haft
það og ef kennari upplifir ekki
lýðræðisleg og opin vinnubrögð á
kennarastofunni þá getur hann
engan veginn gengið inn í bekk
og verið lýðræðislegur, einlægur
eða opinn þar.
Fyrirtæki aftur á móti hafa
mörg hver gripið þetta tveim
höndum og halda svona nám-
skeið reglubundið, enda sjá þau
hagnaðinn sem það felur í sér að
fólki líði vel á vinnustað. Það af-
kastar meiru og ber fyrirtækið
fyrir brjósti sér og eykur þannig
viðskiptin. Inn í svona námskeið
eru líka tekin fyrir tengsl á vinnu-
stað því það hefur komið fram í
könnunum að fólk setur fjöl-
skylduna og tengsl innan hennar
númer eitt en strax á eftir koma
tengsl og félagsskapur á vinnu-
stað sem í mjög mörgum tilfellum
telst jafn mikilvægur og launin.“
Hvernig kemur ráðgjöf inn í þessi
námskeið í samtalstækni?
„Ráðgjöf má ekki vera einhver
sérfræðingur sem leysir vanda-
mál, heldur eitthvað sem hjálpar
einstaklingnum til að skilja sjálf-
an sig og aðra, glöggva sig á vand-
amálum eða erfiðleikum og
hjálpa sér þannig sjálfur. Það
hefur orðið áherslubreyting frá
ráðgjöf fyrir einstaklinga yfir á
Það er ekki hægt að leysa vandamál fyrir fólk en það er hægt að aðstoða fólk
við að leysa vandamálin sjálft. Og hvort sem vandamál eru einstaklingsbundin
eða bundin hóp eða stofnun þá er fyrsta atriðið alltaf að hjálpa fólki til að auka
samskiptamöguleika sína.
hóp upp á síðkastið og er það vel.
Það er ekki nóg að skoða ein-
staklinginn eingöngu heldur
verður líka að skoða það félags-
lega kerfi sem hann lifir í, fjöl-
skylduna, skólana og aðrar stofn-
anir. Það sem stendur mörgum
stofnunum fyrir þrifum er skortur
á opnum samskiptum innan
þeirra, það skapar til dæmis oft
vandamál hvernig ákvarðanir eru
teknar, það er að segja ofan frá
eingöngu og jafnvel á bak við
tjöldin. Málin eru oft ekki rædd
og því fólki sem ákvarðanirnar
koma við er ekki gefinn kostur á
að koma með sínar skoðanir og
hugmyndir. Þetta hefur í för með
sér að allt of margir einstaklingar
eru óvirkir af því að þeir fá ekki
tækifæri til að vera virkir þátttak-
endur. Veikleiki stjórnunar
innan stofnunar felst oft í því að
hún reynir lítið til að hafa áhrif á
að það fólk sem vinnur innan
stofnunarinnar vinni í raun og
veru að sameiginlegum mark-
miðum.
Annað atriði er að nú á dögum
virðist vera sterk tilhneiging til að
steypa alla í sama mót, allir eiga
að hafa staðlaða framkomu. Inn í
þetta kemur líka að í dag má fólk
ekki sýna tilfinningar, allt á að
byggjast á rökum. Þarna er verið
að afneita því að fólk er ólíkt og
með ákaflega mismunandi þarfir,
langanir og tilfinningalíf en það
vill nú samt verða þannig að til-
finningalífið ræður því hvernig
ákvarðanir eru teknar ekki síður
en rökin og þarna er strax komin
mótsögn.
Það má segja að því meiri sér-
hæfing sem verður innan samfé-
lagsins því meiri þörf er á sam-
vinnu og opnum samskiptum sem
gera ráð fyrir tilfinningalífi
manneskjunnar. Og jafnvel þar
sem unnið er í hópvinnu er allt of
algengt að einn eða tveir taki
völdin og þá er samvinnan ekki
fyrir hendi lengur því hinir verða
óvirkir og treysta sér ekki.
Stjórnandi í hópvinnu þarf að
skilja að hlutverk hans er ekki að
ráða heldur að aðstoða og
leiðbeina hópnum til að vinna
saman.
Það er í rauninni alveg sama á
hvaða sviðum samfélagsins mað-
ur ber niður, alls staðar rekur
maður sig á það að fólk kann ekki
nógu vel að hlusta hvert á annað
og þá ekki heldur að tala saman
svo hin innri merking orðanna
komist til skila.“
-ing
Guðrún Frið-
geirsdóttir:
Grundvallarat-
riði allra
opinna
samskipta
milli fólks er
að kunna að
hlusta
Laugardagur 30. maí 1987 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 7