Þjóðviljinn - 30.05.1987, Síða 15
ÍÞRÓTHR
Kynnt verður nám í upplýsingatækni á fram-
haldsskólastigi í íslenska skólakerfinu, hjá
einkaskólum og þekktum skólum erlendis.
Er þú ert...
• að taka ákvörðun um námsbraut
eða framtíðarstarf
• að huga að framhaldsnámi hér-
lendis eða erlendis
• áhugamaður um tölvur
• að dragast aftur úr í starfi vegna
tæknibreytinga
• huga að endurmenntun starfs-
manna....þá átt þú erindi á þessa
kynningu
Þessir aðilar taka þátt í kynningunni:
Fjölbrautaskólinn í Garöabæ, Fjölbrautaskólinn við
Ármúla, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Flensborgar-
skólinn í Hafnarfirði, Kvennaskólinn í Reykjavík,
Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn í Kópa-
vogi, Menntaskólinn við Sund, Menntaskólinn í
Reykjavík, Framhaldsskóladeild menntamálaráðu-
neytis, Háskóli íslands, Endurmenntun H.Í., Iðn-
skólinn í Reykjavík, Iðntæknistofnun íslands, Kennar-
aháskóli (slands, Námsgagnastofnun, Tækniskóli ís-
lands, Verzlunarskóli íslands, aðilar úr námi í EDB
skólanum í Odense og University of London, Stjórn-
unarfélag íslands, Tölvufræðslan hf.
Kynningin er haldin í Verzlunarskóla ís-
lands Ofanleiti.
Hún er öllum opin og aðgangur ókeypis.
I tengslum við kynninguna verður haldin ráðstefna á
sama stað um tölvumenntun fyrir íslenskt atvinnulíf.
Hefst hún kl. 13.00.
NOTAÐU ÞETTA
EINSTAKA TÆKIFÆRI.
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG
ÍSLANDS
VILTU VITA
UMTÖLVUNÁM?
KYNNING Á TÖLV JNÁMI
MÁNUDAG
1. JÚNÍ KL. 16-18
ALLT FRÁ NÁMSKEIÐUM
TIL HÁSKÓLANÁMS.
Qunnar Skúlason fagnar öðru marki KR-inga. FH-ingar ekki yfir sig hrifnir af atburðinum. Mynd:/
l.deild
Fjömgt í Frostaskjóli
Það var góður dagur hjá KR-
ingum í gær. Sannfærandi sigur
gegn FH á mjög góðum velli í
besta knattspyrnuveðri.
KR-ingar kunna greinilega vel
við sig í Frostaskjóli og þeir voru
allan tíman sterkari aðilinn og
með smá heppni hefði sigurinn
getað verið stærri.
KR-ingar áttu fyrstu færi
leiksins. Guðmundur Magnússon
og Pétur Pétursson áttu báðir góð
skot sem Halldór Halldórsson
varði. En FH-ingar áttu einnig
sín færi. Ólafur Kristjánsson
skallaði yfir Pál Ólafsson, en Þor-
steinn Guðjónsson bjargaði á
línu.
Um miðjan síðari hálfleik voru
KR-ingar nálægt því að ná foryst-
unni. Andri Marteinsson tók þá
aukaspyrnu og Pétur kom á fullri
ferð, en fastur skalli hans fram-
hjá. Stuttu síðar kom svo fyrsta
markið. Willum Þórsson renndi
þá boltanum á Guðmund sem
skoraði af öryggi með góðu skoti.
Mínútu síðar kom annað mark-
ið. Pétur lék þá laglega inní
teiginn og lagði boltann fyrir
Gunnar Skúlason. Hann gaf sér
góðan tíma áður en hann af-
greiddi hann yfir Halldór í mark-
inu. Skömmu síðar fékk Pétur
gott tækifæri en hann fékk bolt-
ann á markteig, en Halldór varði
skot hans.
Síðari hálfleikurin var ekki
jafn skemmtilegur og sá fyrri.
Leikurinn var meira á miðjunni
en bæði lið áttu þó hættuleg færi.
Ólafur Kristjánsson tók auka-
spyrnu fyrir FH við vítateig, en
Páll Ólafsson varði snilldarlega.
Hinum megin varð Halldór að
taka fram sparihanskana er hann
varði glæsilega skalla frá Pétri.
En KR-ingar voru ekki búnir
að segja sitt síðasta orð. Pétur átti
góða sendingu á Björn Rafnsson
sem var kominn innfyrir og
skoraði af öryggi.
Á siðustu mínútum leiksins
varði Halldór svo glæsilega
þrumuskot frá Willum.
KR-ingar voru mun sprækari
og framlínan mjög öflug. Andri
og Pétur náðu vel saman og vörn-
in var sterk. Þorsteinn Guðjóns-
son var mjög öruggur í vörninni
og sama má segja um aðra KR-
inga.
FH-ingar voru hinsvegar frek-
ar þungir og komust ekki nógu
vel inní leikinn.
-Ibe
Knattspyrna
Knattspymuskólar
Nú þegar knattspyrnuvertíðin er
hafinn, byrja knattspyrnuskólarnir
hjá þeim yngri. Flest félögin eru með
slíka kennslu.
KR-ingar starfrækja kanttspyrnu-
skóla eins og undanfarin ár. Skóla-
stjóri þar er Sigurður Helgason og
honum til aðstoðar Óskar Porvalds-
son. Þá munu þeir Gordon Lee og
Pétur Pétursson leiðbeina þátttak-
endum annað slagið.
Þátttakendum er skipt í fjóra
flokka eftir aldri og fyrsta námskeiðið
hefst 1. júni. Innrritun fer fram í síma
27181 eða á skrifstofu knattspyrnu-
deildarinnar.
Þróttarar verða með sinn skóla á
grassvæði félagsins við Holtaveg. Þar
er Guðjón Ingi Eiríksson skólastjóri
og mun hann leggja aðaláherslu á
léttar og skemmtilegar æfingar.
Skráning fer fram í síma 82817 og
17915.
Leiknismenn verða einnig með
knattspyrnuskóla og er sá á svæði fé-
lagsins við Fellaskóla. Sigurbjartur Á
Guðmundsson er skólastjóri, en
einnig munu ýmsar kempur s.s Pétur
Pétursson ofl. koma í heimsókn.
ÍK verður að sjálfsögðu með
knattspyrnuskóla eins og undanfarin
ár. Fyrsta námskeiðið hefst 1. júni og
skráning fer fram í síma 44368, eftir
kl. 20.
Stjarnan og íþrótta- og tómstund-
aráð Garðabæjar verða í sameiningu
með kanttspyrnuskóla í Garðabæ.
Þar koma landsliðsmenn og atvinnu-
menn í heimsókn og margt verður til
gamans gert.
Innritun fer fram í Garðalundi 1.
júní frá 10-15.
KR-FH 3-0 (2-0) ***
KR-völlur 29. maí
Dómari: Magnús Jónatansson *
Áhorfendur:1800
1- 0 Guðmundur Magnússon (36.mín),
2- 0 Gunnar Skúlason (37,mín), 3-0
Björn Rafnsson (85.mín)
Stjörnur KR:
Pétur Pétursson *
Andri Marteinsson *
Þorsteinn Guðjónsson *
Willum Þór Þórsson *
Stjörnur FH
Halldór Halldórsson *
Magnús Pálsson *
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Kennarar
Egilsstaðaskóla vantar 4 góða kennara til að
kenna m.a. handmennt, raungreinar og stærð-
fræði, dönsku, íslensku og yngri börnum.
Á staðnum er svo til allt sem hugurinn girnist
nema Þjóðleikhús og Sinfóníuhljómsveit.
Við útvegum ódýrt húsnæði og veitum ýmsa aðra
fyrirgreiðslu.
Upplýsingar veita skólastjóri og yfirkennari í síma
97-1146 frá kl. 10-12 virka daga og á kvöldin í
síma 97-1632.
Skólanefnd
«