Þjóðviljinn - 03.06.1987, Page 5

Þjóðviljinn - 03.06.1987, Page 5
enn Ódysseifur þraukar Maria Lexa sýnir í Kramhúsinu Ódysseifur myndskreyttur Maria Lexa er bandarísk kona búsett í Árósum og rekur þar leikhús sem hún kallar Dreka- leikhúsið. Hún er hingað komin til að halda námskeið í látbragði og spuna en gaf landanum einnig kost á að kynnast list sinni í all- langri „myndskreytingu" sem hún hefur samið um Ödysseifs- kviðu ásamt Bernard Colin og flytur ein með margvfslegri tækni. SVERRIR HÓLMARSSON í upphafi sýningar birtist okkur gyðjan Kalýpsó, sú sem lengst hélt Ódysseifi föngnum, í allmikilli stærð eins og gyðju sæmir. Hún kynnir ýmis þemu verksins, togstreitu milli goð- magna og mannlegra afla, brott- för og heimkomu. Þvínæst skiptir leikkonan snöggt um gervi og birtist nú sem Helena fagra með fas og gervi kvikmyndadísar og segir okkur frá Trójustríðinu og tildrögum þess að Ódysseifur hraktist fram og aftur um Mið- jarðarhafið í heil tíu ár áður en hann komst heim úr þeirri styrj- öld - og hafði þá verið að heiman heila tvo áratugi. Þvínæst víkur sögunni að þessum hrakningum og brugðið er upp myndum af því að Násíka fann Ódysseif nakinn á ströndinni, af viðureign hans við risann Polyfemos, af því er norn- in Kirka breytti með fjölkynngi mönnumÓdysseifs í svín, af ferð hans niður til Hadesar. Síðan vík- ur sögu að Penelópu, sagt er frá viðskiptum hennar við biðlana, kænsku hennar og ástarþrá er innilega og fallega lýst. Þá kemur þáttur af endurkomu Ódysseifs er hann hittir á ný svínahirðinn og fóstru sína, fellir biðlana og sam- einast að lokum Penelópu í fal- lega erótísku atriði. Til þess að segja þessa löngu og flóknu sögu beitir Maria Lexa margvíslegum meðulum og að- ferðum - látbragsleik, raddbeit- ingu, brúðuleik af ýmsu tagi, skuggamyndum, frásagnarlist. Allt eru þetta gamalkunnar að- ferðir en hún fléttar þær einkar skemmtilega saman og virðist hafaorðiðfyrirallmiklumáhrifum af þeim aðferðum sögu- skemmtunar sem hafa rutt sér . nokkuð til rúms undanfarið og eigaræturað rekja til frásagnar- listar ólæsra samfélaga. Maria Lexa er afskaplega snjallur flytj- andi og hefur alla tækni á valdi Heimferð Ódysseifs sem tók heil tíu ár og mikla hrakninga lýsir Maria Lexa af listfengi og magnaðri raddbeitingu. sínu, en það var kannski radd- beiting hennar sem mesta hrifn- ingu vakti, hvernig hún brá sér úr einu hlutverki í annað áreynslu- laust fyrir tilstilli raddarinnar. Víða varð sýningin fögur og áh- rifamikil, tií dæmis í skugga- myndaatriðinu og svo í endur - fundum ódysseifs og fóstrunnar. Það sem helst mætti finna að þessari sýningu er textinn sem mér þótti óþarflega orðmargur á köflum og ganga of langt í útskýr- ingum og málalengingum sem truflaði gang sögunnar og verk- aði stundum eins og væri verið að tala niður fyrir sig. Þessar frá- bæru sögur Hómers hafa ekki enst í þrjú þúsund ár að ástæðu- lausu heldur vegna þess að þær eru með bestu sögum sem búnar hafa verið til. Það er hins vegar ekki lengur hægt að ganga út frá því að áhorfendur þekki þessar sögur og bakgrunn þeirra og þess vegna er víst nauðsynlegt að hafa töluverðar skýringar í kringum svona sýningu. Það er til baga fyrir sýninguna og leiðir hugann að því hvers vegna skólakerfi okkar hefur brugðist jafn ger- santlega og það hefur gert því hlutverki að koma hornsteinum vestrænnar menningar, svo sem eins og Hómer og Biblíunni, áleiðis til þjóðarinnar. Höfum við ekki einblínt um of á eigin bókmenntaarf? Sverrir Hólmarsson Hallgrímskirkja Kirkjulistahátíð um hvítasunnuna Fyrsta hátíð sinnar tegundar hér. Fimm aðaltónleikar og fernir hádegistónleikar, leikhús og myndlist. Óratórían Jesúpassía með um 200 flytjendum Dagana 6. -13. júní verður haldin mikil kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju. Er þetta í fyrstaskipti sem slík hátíð er haldin og eru tildrög hennar stórauknir möguleikar til list- astarfsemi í kjölfar vígslu kirkj- unnar og ákveðinn vilji for- ráðamanna Hallgrímskirkju til að nýta þá í þágu listarinnar. Framkvæmd hátíðarinnar er í höndum Listvinafélags Hall- grímskirkju og Mótettukórs Hallgrímskirkju. Á hátíðinni verða haldnir 9 tón- leikar, fimm aðaltónleikar og fernir hádegistónleikar. í tón- leikahaldinu ber hæst flutning Jesúpassíunnar eftir þýska tón- skáldið Oskar Gottlieb Blarr, en þar verða samtals nærri 200 flytj- endur, - 6 einsöngvarar, Kór Ne- anderkirkjunnar í Dusseldorf, Skólakór Kársness, málmblásar- ar úr Lúðrasveitinni Svaninum og Sinfóníuhljómsveit íslands full- skipuð. Texti verksins er tekinn úr ritum Gamla testamentisins og guðspjöllunum, svo og ljóðum eftir núlifandi ljóðskáld og er að mestu á hebresku, en stefjaefnið er sótt í forna tónlistarhefð Gyð- inga og kristinna manna. Fyrsti þátturinn lýsir innreiðinni í Jerú- salem, annar þátturinn gerist í Getsemanegarðinum og sá þriðji lýsir krossfestingunni. Mótettukórinn verður með tvenna tónleika á hátíðinni með Miðvlkudagur tveim ólíkum efnisskrám, Manu- ela Wiesler heldur einleikstón- leika og Björn Steinar Sólbergs- son frá Akureyri heldur orgeltón- leika. Einnig verða daglegir há- degistónleikar og hátíðaguðs- þjónusta á hvítasunnudag. Tónlistin er þó ekki það eina sem boðið er upp á á kirkjulista- hátíðinni því Leikhúsið í kirkj- unni verður með sérstaka auka- sýningu á leikritinu um Kaj Munk föstudaginn 12. júní og Snorri Sveinn Fiðriksson opnar myndlistarsýningu í forkirkjunni. Þar sýnir hann vatnslitamyndir sem hann gerði við 4 passíusálma fyrir lestur þeirra í sjónvarp á síð- ast liðinni föstu. -ing I. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Hádegisleikhúsið Tvær aukasýningar Vegna mikillar eftirspurnar mun Alþýöuleikhúsiö hafa tvær aukasýningar á leikritinu Eru tígrisdýr í Kongó? sem sýnt hefur verið í hádeginu í veitingahúsinu í Kvosinni undanfarið við góðar undir- tektir. Verða aukasýningarnar áföstudag og laugardag. Eru tígrisdýr í Kongó? fjallar um tvo rithöfunda sem hafa feng- ið það verkefni að skrifa gaman- leik um eyðni. Málið vefst fyrir þeim og kemst ekki á skrið fyrr en þeir taka það til bragðs að setja sjálfa sig í spor fórnarlambanna og taka þá umræðurnar oft kostu- lega stefnu. Leikstjóri er Inga Bjarnason en með hlutverkin fara Viðar Eggertsson og Harald G. Har- alds.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.