Þjóðviljinn - 03.06.1987, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 03.06.1987, Blaðsíða 13
anm ÖRFRÉTTIR —— Friðarverðlaunahafi Nóbels og þekktur rithöfundur af gyðingaættum, Elie Wiesel, bar í gær vitni í réttarhöldunum í máli „slátrarans frá Lyon“, Klaus Bar- bie. Wiesel var barn að aldri flutt- ur í útrýmingarbúðir nasista í Buchenwald og Auschwitz þar sem öll ættmenni hans voru myrt. Hann sagði réttarhöldin hafa því hlutverki að gegna að rifja uþp atburðina fyrir 40 árum í því augnamiði að koma í veg fyrir að þeirendurtækju sig. Hann kvaðst bera fullt traust til fransks réttar- fars en hér væri meira í húfi og engir dómstólar gætu heimt hina dánu úr helju. Vígbúnaðarfræðingar sögðu í gær að sú krafa vestur- þýsku stjórnarinnar að fá að halda 72 Pershing 1-A kjarna- flaugum í eigin vopnabúri, þótt risaveldin semji um eyðingu sinna flauga, væri eingöngu sett fram til að bjarga andlitinu eftir allan busluganginn að undan- förnu. Kjarnaoddarnir væru í vörslu Bandaríkjamanna og ef sambandsstjórnin fengi umráð yfir þeim þá væri Vestur- Þýskaland þar með komið í hóp kjarnavelda. Slíkt hefði ekki svo mikið sem hvarflað að fyrri stjórn- um og Sovétmenn myndu aldrei fallast á það. ERLENDAR FRÉTTIR Afvopnunarmál Fyrstu drög í Genf Samninganefndir risaveldanna hafa settsamanfrumdrög að samkomulagi um eyðingu meðaldrœgra kjarnaflauga. Ennerþó ágreiningur umýms mikilsverð atriði Að sögn aðalsamningamanns Sovétmanna á afvopnunarr- áðstefnu stórveldanna í Genf, Al- exis Obukhofs, hafa nefndir Bandaríkjanna og Sovétríkjanna nú sett saman frumdrög að samn- ingi um eyðingu allra meðal- drægra kjarnaflauga sinna úr Evrópu. Hann bætti því hinsvegar við að enn væru mörg ljón í vegi fyrir samkomulagi og „fjarlægja þyrfti margar neðanmálsgreinar úr drögunum“. Þær fjalla væntan- lega um fyrirvara hvors aðila um sig. Þetta kvað vera í fyrsta sinni frá því þessi lota afvopnunarvið- ræðna hófst í mars í hittifyrra að risaveldin vinna út frá sömu drögum. Obukhof sagði að vinnu við frágang draganna hefði verið lokið í fyrradag en fyrr á þessu ári lögðu bæði stórveldin fram eigin samkomulagsdrög. Þótt fjölmörg ágreiningsatriði séu enn í hinu nýja plaggi þá kvaðst Obukhof vongóður um að á þeim finnist lausn innan skamms. Hann sagði stjórn sína ákveðna sem aldrei fyrr í því að samningur um eyðingu meðal- og skammdrægra kjarnaflauga yrði fullfrágenginn í haust og undirrit- aður af leiðtogum stórveldanna. Af helstu ágreiningsefnum nefndi hann þann ásetning Bandaríkjamanna að breyta kjarnaflaugunum í annarskonar vopn í stað þess að eyða þeim. Sovétmenn hafa sjálfir sagt að Gorbatsjof og Reagan. Skrifa þeir undir samkomulag í haust? sínar 100 meðalflaugar ætli þeir sé hægt að skjóta þeim á Vestur- að staðsetja í Asíu hvaðan hvorki Evrópu né Bandaríkin. -ks. Sri Lanka/Indland Breskt kærustupar fékk ekki notið ástarsælunnar sem skyldi á árum síðari heimsstyrjaldar en unnustinn lét aldrei undir höfuð leggjast að hringja í sína heittelskuðu. Á sama tíma á sama degi beið hún i sama símklefanum eftir því að hann slægi á þráðinn. Þau eru nú langgift heiðurshjón og nýlega komu starfsmenn breska símafé- lagsins í heimsókn og færðu þeim að gjöf þennan sama aldna símklefa og þökkuðu fyrir traust viðskipti fyrir fjörutíu árum. Flugkappinn vesturþýski sem á dögunum lenti flugvél sinni á Rauða torginu í Moskvu var ekki einn í ráðum um glæfraflugið. Þetta fullyrti yfir- maður sovésku fréttastofunnar APN, Valentin Falin, í viðtali í gær. Hann sagði ýmsar stað- reyndir hafa komið upp úr kafinu sem flæktu málið og gerði það örðugt viöfangs. Elton John segir að raddstyrkur sinn sé ekki svipur hjá sjón eftir heilmikla skurðaðgerð sem nýlega var framkvæmd á hálsi hans og því hafi hann tekið ákvörðun um að syngja ekki par í heilt ár. En þá muni hann hefja upp raust svo um muni og fara í tónleikaferð vítt og breitt um byggð ból. Þögul kvikmynd frá árinu 1916 fannst nýverið í pappakassa í Osló. Þetta er eina eintakið sem varðveist hefur af kvikmyndinni „Vængir" eftir sænska kvikmyndahöfundinn Mauritz Stiller. Frumeintakið eyðilagðist í eldsvoða í Svíþjóð árið 1941. Stiller er meðal annars frægur fyrir að hafa dobblað Grétu nokkra Garbó með sér til Hollywood á þriðja áratugnum þar sem hún átti eftir að verða mikið glansnúmer. Hann lést árið 1928. Taugastríð út af hjálpargögnum Óvíst hvort indverska stjórnin gerir ídag út vopnlausanflota með hjálpargögn Yfirvöld á Sri Lanka eru bál- reið útí indversku ríkisstjórn- ina fyrir að ætla að senda hjálp- argögn til aðþrengdra tamílskra borgara á Jafínaskaga. í gær gáfu þau flugher og flota fyrirmæli um að „verja lögsögu Iandsins“ ef Indverjar gera alvöru úr þeirri ætlan sinni að senda óvopnaðan fiota með lyf og matvæli. Háttsettur embættismaður stjórnvalda var að því spurður hvort ráðist yrði á skipin en hann svaraði því til að um það hefði hann ekki hugmynd. Indverjar hafa lýst því yfir að þeir ætli að senda vistirnar í dag hvað sem tauti og rauli. Um er að ræða tuttugu smáskip sem myndu sigla undir fána Rauða krossins. Blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar skoraði í gær á ráðamenn í Kól- ombó að íhuga betur afstöðu sína og láta flotann óáreittan. Skekturnar voru í gær bundnar við bryggjur hafnarinnar í smá- bænum Rameshwaran á Suður- Indlandi. Eigendur þeirra stóðu þá enn í deilum við stjórnina í Nýju-Delhi um leigugjaldið. Farmurinn væntanlegi barst jafnt og þétt frá höfuðborginni en 90 blaðamenn, átta læknar og fá- einir stjórnarerindrekar, sem eiga að fá að fara með, biðu átekta. Engar fréttir bárust í gær at átökum stjórnarhers Sri Lanka og Frelsistígra Tamfla en snemma um morguninn myrtu hryðjuverkamenn, sem grunaðir eru um að vera af tamílskum ætt- um, 33 menn um 200 mflur frá höfuðborginni. Höfðu þeir það eitt til saka unnið að vera á röng- um stað á röngum tíma. 29 hinna myrtu voru búddamunkar. -ks. Líbanon Karami syrgður Menn mótmœltu morðiforsœtisráðherrans með því að leggja niður vinnu vítt og breitt um Líbanon ígœr. Gemayel forseti útnefnir arftaka Karamis Múgur og margmenni kom á heimili Karamis heitins for- sætisráðherra í gær til að votta hinum látna hinstu virðingu sína en nárinn hvflir þar á viðhafnar- börum. A morgun verður Kar- ami jarðsunginn og fer útförin fram á vegum hins opinbera. Syrgjendur tóku sér víða frí frá vinnu í gær, skrifstofur og versl- anir voru lokaðar og kennsla lá niðri í skólum. Fánar voru dregn- ir í hálfa stöng og samúðarskeyti streymdu að hvaðanæva úr heiminum. Innanríkisráðherrann Abda- llah Rassi, sem komst lífs af er sprengjan sprakk í þyrlunni, sagðist hafa setið öndvert Karami og að hann hefði samstundis beð- ið bana. Hann sagði að vítisvél- inni hefði verið komið fyrir í þyrl- unni á herflugvelli áður en hún flaug norður til að sækja þá fé- laga. Hann vildi ekki leiða getum að því hverjir stæðu á bak við tilræðið en herflugvöllur þessi kvað vera á áhrifasvæði kristinna manna. Ýmsir hafa haldið því fram að Amin Gemayel forseti hafi gefið fyrirskipun um morðið vegna ósættis þeirra Karamis frá því í vor er sá síðarnefndi sagði af sér forsætisráðherraembætti. Hann hefur vísað því algerlega á bug og í gær skipaði hann nýjan forsætisráðherra. Sá heitir Salim Hoss og gegndi stöðu vinnu- og menntamálaráðherra í ráðuneyti Karamis. Hann er Súnní-múslimi einsog forverinn og er enginn ný- græðingur í starfi því hann var forsætisráðherra á árunum 1976- 1980. Hann kveðst ætla að feta í fót- spor Karamis og reyna að binda enda á ófremdarástandið í landinu með samningum. Hann lýsti því ennfremur yfir að hann myndi aðeins sitja í embætti til bráðabirgða uns „alvarlegar samningaviðræður hæfust... til að leysa landið úr efnahagslegri og pólitískri sjálfheldu.“ -ks. Aðalheimild: Reuter Miðvikudagur 3. júní ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 PÓST- OG SfMAMÁLASTOFNUNIN ÓSKAR AÐ RÁÐA Loftskeytamann/símritara/ritsímaritara til starfa í Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar veröa veittar hjá stöövar- stjóra Pósts og síma í Vestmannaeyjum. Aðalfundur Aðalfundur Útgáfufélags Þjóðviljans veröur haldinn fimmtudaginn 18. júní nk. aö Hverfis- götu 105. Fundarefni: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin Eiginkona mín og móðir okkar Hildigunnur Einarsdóttir Bjarkarstíg 3 verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 4. júnl kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hennar, láti Krabbameinsfélag Akureyrar eða Tón- listarskólann á Akureyri njóta þess. Steinar Þorsteinsson Þór Steinarsson Guðrún Silja Steinarsdóttir Þórdís Steinarsdótt'ir Eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og mágur Gísli Sighvatsson Birkihvammi 13, Kópavogi sem lést miðvikudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Lang- holtskirkju í Reykjavík föstudaginn 5. júní kl. 13.30. Ólöf Helga Þór Gunnar Sveinn Elín Ágústsdóttir Sighvatur Bjarnason Kristín Sighvatsd. Lynch Charles Lynch Bjarni Sighvatsson Aurora Friðriksdóttir Viktor Sighvatsson Ásgeir Sighvatsson Elín Sighvatsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.