Þjóðviljinn - 03.06.1987, Side 12
ERLENPAR FRÉTTIR
Kína
Umbótamenn f lýta sér hægt
Kínverjar hafa slegið áfrest umfangsmikilli nýsköpun íefnahagsmálum. íhaldsmönnum
vex ásmegin en hafa fátt til efnahagsmála að leggja
Engu að síður hafa orðið mikl-
ar breytingar í kínversku efna-
hagslífi frá því Deng tók í
taumana. Velmegun hefur aukist
og Kínverjar hafa á síðustu árum
aukið kornframleiðslu sína mjög
og selja nú verulegt magn úr landi
ár hvert.
Snemma í fyrra voru ráðamenn
svo upp með sér af árangrinum að
þeir sömdu áætlanir um stór
stökk fram á við á þessu ári. Með-
al nýmæla átti að verða gagnger
endurskoðun verðlagningarkerf-
isins sem þykir næsta úrelt.
En við lok síðasta árs fór að
halla undan fæti í efnahagsmálum
Vonir Kínverja standa til að land þeirra verði í tölu mestu iðnvelda um alda-
mótin. Eigi sá draumur að rætast þurfa að stórstígar framtarir að eiga sér stað í
efnahagsmálum á næstunni.
og í janúar kom til átaka náms-
manna og lögreglu með þeim af-
°-
Bygging K á
Landspítalalóð
Tilboð óskast í innanhússfrágang á hluta bygg-
ingar K á Landspítalalóð í Reykjavík. Húsið, sem
er fjórar hæðir, auk (Dakhæðar, er nú uppsteypt
með ísettum og glerjuðum gluggum og fullfrá-
gengið að utan.
Stærð hússins er 19.060 m3 og heildargólfflötur
um 4.600 m2.
Verkið felur í sér fullnaðarfrágang á tveimur
neðstu hæðum hússins, innrétting og lagnir, ein-
angrun og múrhúðun útveggja tveggja efri hæð-
anna með ofnakerfi og fullnaðarfrágang á þak-
hæð sem lagnarými. Auk þess uppsteypu á
lagnastokk og loftinntaki.
Verkinu á að skila í tvennu lagi, svæði A, sem
skilgreint er nánar í útboðsgögnum, skal skila
fullgerðu og lögnum að því svæði, eigi síðar en 1.
maí 1988, en verkinu öllu fulllokið 1. september
1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borg-
artúni 7, Rvk, gegn 30.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 7.
júlí n.k., kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
Frá Grunnskólanum
á Hellissantíi
Kennara vantar í eftirtaldar stöður:
Einn kennara í yngri barna kennslu og einn kenn-
ara til að kenna tónmennt í Grunnskólanum og
við Tónlistarskólann.
Boðið er upp á húsnæði gegn lágri leigu og mun
flutningsstyrkur verða veittur.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 93-6618 eða
93-6682.
leiðingum að flokksformaðurinn
Hu Yaobang hrökklaðist úr emb-
ætti. íhaldsmenn komu fram úr
skúmaskotum og töluðu digur-
barkalega um að „borgaralegt
frjálslyndi“ tröllriði þjóðlífinu.
Hinum metnaðarfullu nýsköpun-
arplönum var snarlega stungið
undir stól og verða ekki ofarlega
á baugi fyrr en á flokksráðstefnu
síðla í ár.
Samt sem áður verður gerð til-
raun með nýmæli í rekstri fyrir-
tækja á næstunni. Þau eru á þá
lund að fyrirtækin semja við ríkis-
stjórnina um að framleiða ákveð-
ið magn vöru en jafnskjótt og
staðið hefur verið við samninginn
er firmum gefið sjálfdæmi um
sölu umframafurða. Og þau fá
haldið ágóðanum.
„Þetta eru ósköp meinleysis-
legar breytingar,“ sagði kín-
verskur umbótamaður í Peking,
„en róttæk nýsköpun er ekki
hyggileg einsog andrúmsloftið er
nú á toppnum."
í mars viðurkenndu ráðamenn
að halli hefði verið á fjárlögum í
fyrra og sú yrði einnig raunin í ár.
Síðustu tvö ár hafa viðskipti við
útlönd verið rekin með tapi, út-
gjöld ríkisins farið úr böndum og
Iaun hækkað um skör fram.
Þessar hrakfarir hafa, sem fyrr
segir, verið vatn á myllu gamalla
vopnabræðra Maós formanns
sem enn úir og grúir af í kerfinu.
Þeir tóku frumkvæðið í pólitísk-
un efnum, hleypt var af stokkun-
um herferð gegn „borgaralegum
þankagangi" og „vestrænni úr-
kynjun“ og ýmsum úr þeirra
röðum hefur verið gert hátt undir
höfði í fjölmiðlum ríkisins. Ekki
er gott að átta sig nákvæmlega á
hve sterk staða þeirra er en það
hlýtur að verða þeim til
minnkunar að hafa engar raun-
hæfar tillögur fram að færa til
lausnar efnahagsvandanum né til
uppstokkunar á kerfi sem öllum
þorra landsmanna ber saman um
að þurfi að færa í betra horf.
Nýsköpunarstefnan hefur haft
ýmsar hliðarverkanir sem komið
hafa við kaunin á alþýðu manna.
Þeirra helst er verðbólgan. f síð-
asta mánuði kvartaði Zhao Ziy-
ang forsætisráðherra og flokks-
formaður undan því að fjölmiðlar
Deng Xiaoping með vini sínum og
skjólstæðingi, Hu Yaobang, sem vék
úr embætti formanns Kommúnistafl-
okksins í janúar. Arftaka hans og for-
sætisráðherrann Zhao Ziyang sjáum
við á innfelldu myndinni.
fjölluðu um nýsköpunina á of
áróðurskenndan hátt en létu
undir höfuð leggjast að skýra
hana út. Hann gaf jþeim fyrirmæli
um að fjalla um hana á hlutlægan
hátt, draga ekkert undan sem
vera kynni óþægilegt og færa
fólki heim sanninn um nauðsyn
hennar.
Einn helsti hagfræðingur Kín-
verja reit grein í Dagblað alþýð-
unnar í síðustu viku og vék að
þessum vanda. „Það hefur valdið
kurr meðal fólks að fá ekki við-
hlítandi skýringar á verðhækkun-
um. Þótt róttækar umbætur í
efnahagsmálum valdi ætíð óvissu
og séu nokkuð áhættusamar þá
hefur það sýnt sig hvarvetna að
þær skila árangri og bæta kjör al-
mennings.
En í löndum þar sem
stjórnvöld halda að sér höndum
og ríghalda í gamlar hagkreddur
er vöruframboð fáskrúðugt,
markaðsmál í ólestri og
skömmtunarkerfi gjarna við
lýði.“ Þessum orðum er næsta
augljóslega beint að Kína Maós
og ýmsum Austur-Evrópuríkj-
um, svo sem Rúmeníu.
Kínverja hefur dreymt stóra
drauma um að land þeirra komist
í hóp öflugustu iðnríkja eigi síðar
en við upphaf næstu aldar. Opin
umræða og efnahagslegar stað-
reyndir á síðustu átta árum hafa
hinsvegar komið þeim niður á
jörðina og fært þeim heim sann-
inn um að Kína er fátækt land.
Eigi draumurinn nokkurn tíma
að rætast þurfa að verða stórstíg-
ar framfarir í efnahagsmálum á
næstu árum.
-ks.
12 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 3. júní 1987
Tvennt veldur því að umfangs-
mikilli efnahagslegri ný-
sköpun, sem koma átti til fram-
kvæmda í ár, hefur verið frestað
og bíður betri tíma í Kína. Lands-
menn glíma nú við efnahagserfið-
leika sem sett hafa strik í
reikninginn og íhaldsmenn hafa
fært sig upp á skaftið innan
Kommúnistaflokksins síðan kom
til stúdentaóeirða í janúar en þeir
gjalda varhuga við allri tilrauna-
mennsku í efnahagsmálum. Að
vísu leggja þeir fátt til málanna til
Iausnar aðsteðjandi vanda en
engu að síður nota þeir áhrif sín
til þess að hægja á framkvæmd
nýsköpunarinnar sem Deng Xiao-
ping átti frumkvæði að árið 1978.
Aðalheimild: REUTER