Þjóðviljinn - 03.06.1987, Qupperneq 15
ÍÞRÓTHR
Synt í Þýskalandi
íslenska unglingalandsliðið í
sundi er nú á leiðinni til Þýska-
lands, nánar tiltekið Bremerha-
ven.
Þar taka ísiendingar þátt í
aldursflokkamóti er kallast,,
Kogge der Seestadt Bremerha-
ven“.
Keppt er um farandbikar sem
sænska sundfélagið SC Kristian-
sand hefur tvisvar unnið og sigri
þeir nú vinna þeir hann til eignar.
Að sjálfsögðu munu íslendingar
gera sitt besta til að koma í veg
fyrir það.
Keppendur íslands eru.
Björg Jónsdóttir, UMFN
Ævar Örn Jónsson, UMFN
Brynja Árnadóttir, UMFN
Arnar Birgisson, KR
Elísabet Kristjánsdóttir, UMFS
Eyjólfur Jóhannesson, ÍA
Kristjana Þorvaldsdóttir, ÍA
Alda Viktorsdóttir, ÍA
Elín Sigurðardóttir, fA
Lóa Birgisdóttir, Ægi
Sindri Valdimarsson, Ægi
Davíð Jónsson, Ægi
Kári Pálmason, Ægi
Jón Valur Jónsson, UMSB
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, UMSB
Svavar Þór Guðmundsson, Óðni
Birna Björnsdóttir, Óðni
Kristján B. Arnarson, Vestra
Sunddeild Bolungarvíkur
tekur einnig þátt í þessari keppni
með 16 keppendur.
Þjálfarar eru Auðunn Eiríks-
son og Hafliði Halldórsson.
-ibe
fslensku keppendurnir sem fara til Bremerhaven.
Miðvikudagur 3. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Punktar úr
2.umferð
Alls léku 7 leikmenn í fyrsta
skipti í 1. deild í leikjum 2. um-
ferðarinnar um heigina. Það voru
KA-mennirnir Arnar Bragason,
Jóhannes Valgeirsson og Arni
Hermannsson, Skagamennirnir
Guðmundur Matthíasson og Har-
aldur Ingólfsson, Skarphéðinn
ívarsson, Völsungi, og Rúnar
Kristinsson, KR.
Jón Oddsson lék sinn fyrsta 1.
deildarleik með nýju félagi,
Fram. Hann hefur áður leikið
með Breiðabliki, ÍBÍ og KR í 1.
deild.
Þrír skoruðu sitt fyrsta 1.
deildarmark, þeir Guðmundur
Magnússon, KR, Freyr Braga-
son, ÍBK, og Tryggvi Gunnars-
son, KA.
Viðar Þorkelsson skoraði sitt
fyrsta 1. deildarmark í 5 ár, eða
frá 1982, þegar hann jafnaði fyrir
Fram á Akranesi. Það var jafn-
framt 950. mark Fram í deilda-
keppninni frá upphafi.
Heimir Guðmundsson hefur
skorað bæði mörk ÍA í 1. deild til
þessa en hafði aldrei áður skorað
í deildinni.
Jón Grétar Jónsson skoraði
1050. mark Valsmanna í 1. deild
frá upphafi þegar hann skoraði
fyrsta mark leiksins gegn ÍBK.
Pétur Ormslev, Fram, og Ian
Fleming, FH, hafa fengið 2 gul
spjöld hvor í fyrstu 2 umferðun-
um. Fjögur spjöld þýða leikbann
þannig að þeir eru þegar hálfnað-
ir með kvótann.
KA, ÍBK og Valur eru prúð-
ustu lið 1. deildar til þessa. Hvert
þeirra hefur aðeins fengið á sig
eitt gult spjald í fyrstu tveimur
leikjunum. Völsungur, Víðir og
Þór eru með 2 gul hvert, ÍA og
Fram 3 en FH og KR hafa fengið
4 gul spjöld hvort.
Þór beið í fyrsta skipti lægri
hlut fyrir Völsungi í deildakepp-
ninni. Liðin höfðu áður mæst 8
sinnum í 2. deild, Þór hafði unnið
5 leiki en 3 endað með jafntefli.
Víðismönnum hefur enn ekki
tekist að skora mark hjá KA í
deildaleik. í 2. deild 1983 vann
KA 1-0 og síðan varð jafntefli,
0-0, og nú vann KA 1-0 í Garðin-
um. -VS
Viðar Þorkelsson skoraði sitt fyrsta
mark í fimm ár á laugardag.
Evrópukeppni
Stefnt að sigri
Leikið gegn A-Þjóðverjum í kvöld
Það er að duga eða drepast í
kvöld þegar íslendingar mæta
Austur-Þjóðverjum í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu. Austur-
Þjóðverjar eru vissulega með
sterkt lið en ef íslenska liðið
leikur eins og það best getur má
búast við spennandi leik.
Leikurinn gegn Austur-
Þjóðverjum í kvöld er 9. lands-
leikur þjóðanna. Við stöndum
reyndar ekki mjög vel í þeim
samanburði. Austur-Þjóðverjar
hafa sigrað í 6 viðureignum, einu
sinn höfum við gert jafntefli og
Sund
einu sinni sigrað. Það var á
Laugardalsvelli fyrir tæplega tólf
árum. Nánar tiltekið 5.júní 1975.
Þá unnum við frækilegan sigur,
2-1. Árinu áður höfðum við af-
rekað á ná jafntefli á útivelli og
þá þóttu Austur-Þjóðverjar með
bestu knattspynuþjóðum heims.
Voru t.d. eina þjóðin sem lagði
Vestur-Þjóðverja að velli þegar
þeir urðu heimsmeistarar 1974.
Einn af íslendingunum sem
leika á morgun, lékjíennan leik
fyrir 12 árum. Sá er Asgeir Sigur-
vinsson og hann skoraði síðara
mark íslands.
Markatalan úr þessum átta
leikjum er 5-15, Austur-
Þjóðverjum í vil. Þrfr af leikjun-
um voru á útivelli.
íslenska landsliðið í kvöld er
líklega eins sterkt og það getur
orðið. Allir lykilmennirnir eru
með, en inní hópinn koma Lárus
Guðmundsson og Pétur Arn-
þórsson í stað Sigurðar Grétars-
sonar og Péturs Ormslev.
Líklega má segja að Sovét-
menn séu nokkuð öruggir með
sigur í riðlinum. Þeir hafa aðeins
tapað einu stigi, gegn íslandi, og
aðeins fengið á sig eitt mark,
mark Arnórs Guðjohnsen.
Staöan í 3.riöli Evrópukeppninnar:
Sovétrikin...........4 3 1 0 9-1 7
A-Þýskaland..........4 1 2 1 2-2 4
Frakkland............4 1 2 1 2-2 4
Island...............4 0 2 2 1-5 2
Noregur..............2 0 110-41
Leikurinn verður á Laugardal-
svelli og hefst kl. 20. Ástæða er til
að hvetja alla til að mæta á völ-
linn og hvetja landsliðið sem hef-
ur sýnt að það hefur tvímælalaust
getu á við stóru þjóðirnar. -Ibe
Þótt þeir eigi fyrir höndum erfiðan leik gegn Austur-Þjóðverjum í dag, er skopskynið í Imí hjá landsliðsmönnunum. Hér
bregða þeir Sigurður Jónsson og Friðrik Friðriksson á leik, á æfingu í gær. Mynd:E.ÓI
09
þetta
líka...
Svíinn
Sven Göran Eriksson, sem nýlega
sagði af sér sem þjálfari Roma, hefur
nú tekið við liði Fiorentina I l.deild.
Selcuk Yula
heitir tyrkneskur knattspyrnumaður
sem nú er atvinnulaus. Hann var á
tveggja ára samningi hjá Blau Weiss
Berlin, en var rekinn I gær. Forráða-
menn BW Berlin sögðu að hann hefði
mætt frekar stopult á æfingar undan-
farnar vikur. Yula hefur skorað tvö
mörk fyrir BW Berlin.
John Sillet
var í dag gerður að framkvæmda-.
stjóra Coventry. Hann var áður þjálf-
ari og hyggur nú á breytingar. „Við
hefðum getað sigrað I 1 .deildinni ef
við hefðu nýtt tækifæri okkar betur,"
sagði hann í gær. „Nú munum við
kaupa sterka leiikmenn og á næsta
ári verðum við I einu af toppsætun-
um. Þess má til gamans geta að sigur
I bikarkeppninni nú fyrir skömmu var
fyrsti titill Coventry I 104 ára sögu
félagsins.
Elton John
er einnig mjög bjartsýnn á næsta
keppnistímabil. „Við erum nú meðal
tíu bestu liða I deildinni og innan
skamms verðum við meðal þriggja
bestu." Hann sagði einnig að sér litist
vel á nýja framkvæmdastjóra Wat-
ford, David Basset. Watford er ný-
komið úr keppnisferð í Kína þar sem
þeir sigruðu landsliðið, 2-0.
Þau eru flókin
fjölskyldumálin hjá Robert Maxwell,
blaðakóngnum breska. Hann hefur
nú tekið við sem formaður Derby af
syni sínum lan. En samkvæmt regl-
um breska knattspyrnusambandsins
má hann ekki sitja í stjórn tveggja
félaga og sagði því af sér sem for-
maður Oxford. Það var annar sonur
hans, Kevin, sem tók stöðu hans þar.
Frakkar
hyggja nú á breytingar í landsliði sínu
í knattspyrnu. „Nú þegar Platini er
hættur verðum við að fá fleiri yngri
menn í liðið,“ sagði Henri Michel
franski landsliðsþjálfarinn. Philippe
Fargeon, sem hefur komið mjög á
óvart, leikur sinn fyrsta landsleik
gegn Norðmönnum. Jean Tigana
hefur verið talinn líklegur sem fyrirliði
liðsins.