Þjóðviljinn - 10.06.1987, Page 2
Ester Pálmadóttir,
snigill:
Þaö þarf aö gera varúðarráð-
stafanir hér eins og annarsstað-
ar. Við getum aldrei verið fyrir-
fram viss hvort og hvenær þess-
ar varúðarráðstafanir koma í
góðar þarfir.
—SPURNINGIN-
Hvernig líst þér á þann
viðbúnað sem lögreglan
viðhefur fyrir ráðherra-
fund NATO?
Arnar Österby,
snigill:
Ég hef svo lítið fylgst með
þessu tilstandi. Ég held þó að
það sé ekki þörf á mjög miklum
varúðarráðstöfunum.
Einar Helgason:
Mér sýnist ekki vanþörf á öllu
þessu tilstandi. Það sýnir
reynslan erlendis frá þegar slíkir
höfðingjar sem þessir hittast.
Hildur Harðardóttir,
fiskvinnslumaður:
Nei, ég tel að það þurfi ekki
mikilla varúðarráðstafana við.
Jónína Lárusdóttir,
verslunarstjóri:
Það er sjálfsagt að gera miklar
varúðarráðstafanir fyrir fundi
eins og þennan. ísland er komið í
sviðsljósið eftir fund leiðtoganna
síðasta haust og það er aldrei að
vita nema hryðjuverkamenn
hugsi sér gott til glóðarinnar hér á
landi.
FRÉTTIR
Hvítasunnuhelgin
Tugir ölvaöra ökumanna
Allir sluppu lifandi úr umferðinni, en nokkuð varð um um-
ferðarslys. Tugir missaprófið vegna ölvunar og hraðaaksturs
Fjölmörg umferðarslys urðu
um helgina eins og venja er um
slíkar umferðarhelgar, en bana-
slys urðu engin í umferðinni. Þá
voru tugir ökumanna teknir fyrir
ölvun við akstur og nokkrir fyrir
of hraðan akstur.
Þúsundir landsmanna lögðust
út um helgina og umferð var
mikil á vegum. Lögreglan í
Reykjavík átti náðuga helgi, en
kollegar hennar víða annars stað-
ar á landinu stóðu í ströngu.
Mikill fjöldi fólks safnaðist
saman í Borgarfirði, á Geirsár-
bökkum og í Húsafelli. Ölvun var
mikil og umgengnin ekki til fyrir-
myndar að sögn lögreglu, en fátt
var um alvarleg slys. Þó urðu tvö
ungmenni fyrir því í Húsafells-
skógi að drukkinn ökumaður
jeppabifreiðar brá sér utanvegar
og ók yfir þau, þannig að piltur-
inn hlaut opið fótbrot af og var
fluttur til Reykjavíkur. Stúlkan
meiddist minna.
Lögreglan í Borgarnesi stóð 24
ökumenn að ölvunarakstri, en
fátt var um alvarleg umferðar-
slys.
Matthías Einarsson lögreglu-
varðstjóri á Akureyri sagði í gær
að talsvert hefði verið um um-
ferðarslys. Á föstudagskvöldið
var ekið á tvo vegfarendur á Ak-
ureyri og slasaðist annar þeirra
alvarlega, hlaut höfuðkúpubrot
og hryggbrot.
Bíll ók út af veginum við
Gljúfragil á Grenivíkurvegi í
fyrradag og var ökumaðurinn
fluttur á sjúkrahús. Þá varð um-
ferðarslys við Hlíðarbæ á mánu-
daginn. Fólksbíll og létt bifhjól
óku þá saman og slasaðist öku-
maður bifhjólsins mikið.
Lögreglan á Akureyri tók 5
ökumenn fyrir ölvun við akstur
um helgina.
Eiríkur Hallgrímsson lögreglu-
varðstjóri á Selfossi sagði lögreg- en þó var bíl velt á Þingvöllum í þann. Alls tók lögreglan á Sel-
luna þar hafa átt fremur rólega fyrradag. Ökumaðurinn var fossi 11 ölvaða ökumenn um
helgi, þrátt fyrir mikla umferð, grunaður um ölvun við aksturínn helgina. _gg
Menningarverðmœti
íslenska
ríkið fær
Nonnasafn
Igær færði Haraldur Hannesson
hagfræðingur og fjölskylda
hans íslenska ríkinu bóka- og
skjalasafn Nonna, séra Jóns
Sveinssonar, að gjöf frá Jesúíta-
reglunni í Köln við afhendingar-
athöfn í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu.
Allt frá stríðslokum hefur Har-
aldur Hannesson hagfræðingur
ferðast um og safnað gögnum úr
eigu Nonna. Gerði hann þetta að
undirlagi Jóhannesar Gunnars-
sonar biskups og yfirmanns ka-
þólsku kirkjunnar á íslandi. Var
ákveðið að leita eftif samþykki
Jesúítareglunnar í Köln en séra
Jón var Jesúíti og dvaldist lengst
af í klaustri meðal þeirra. Yfir-
maður reglunnar, Provincial Alf-
ons Höfer SJ tók þessari mála-
leitan vel og samþykkti að
Nonnasafn skyldi ævinlega varð-
veitt á íslandi. í bóka- og
skjalasafni séra Jóns eru milli tvö
og þrjú þúsund titlar, bækur,
handrit og persónuleg skjöl.
Haraldur Hannesson sýnir tveim nunnum kínversku útgáfuna af Nonna oa
Manna. (Mynd E.ÓI.)
Anna Margrét Jónsdóttir var bæði kjörin ungfrú Reykjavík og ungfrú ísland á
mánudagskvöldið í veitingahúsinu Broadway. Á myndinni fær hún sigurkoss á
kinn frá Arna Harðarsyni, unnusta sínum. Mynd E.ÓI.
A ustfjarðarmótið
Spennandi
lokaumferðir
Sjö umferðum af níu er nú lokið
á Austfjarðamótinu í skák og
er keppnin jöfn og spennandi.
Finninn Antti Pyhálá er í efsta
sæti með fimm og hálfan vinning í
A-riðli, en næst koma Anna Aks-
harumova og Þröstur Árnason
með fimm vinninga. Sævar
Bjarnason og Róbert Harðarson
eru næstir með fjóra vinninga.
Teflt er í tveim riðlum og mið-
ast skiptingin milli þeirra við 2000
Elóstig. Anna var með fullt hús
vinninga eftir fimm umferðir, en
töp í næstu tveimur settu strik í
reikninginn hjá henni og spennu í
mótið. Áttunda umferðin var
tefld í gærkvöldi og lágu úrslit
ekki fyrir þegar blaðið fór í prent-
un. Lokaumferðin verður svo
háð í dag.
Nýbakaður heimsmeistari ung-
linga í skák, Hannes Hlífar Stef-
ánsson, er meðal keppenda á
mótinu en hefur ekki átt láni að
fagna. Hann hefur aðeins hlotið
þrjá vinninga í sjö fyrstu umferð-
unum.
Teflt er í Valaskjálf á Egils-
stöðum og að sögn mótsstjóra,
Ottós Jónssonar, er aðstaðan góð
til tafliðkana. Aðsókn áhorfenda
hefur enda verið allgóð.
HS
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 10. júní 1987