Þjóðviljinn - 10.06.1987, Page 13
ERLENPAR FRETTIR________________
Feneyjafundurinn
Hafnbann og hryðjuverk
Á fundi leiðtoga iðnríkjanna sjö voru ígœr samþykktar tvcer ályktanir, um
verndun olíuskipa sem sigla um Persaflóa og samræmdar aðgerðirgegn
hermdarverkamönnum
Kjarnaverið í Tjernóbýl skömmu eftir að tekist hafði að ráða niður-
lögum elda. Flokksforkólfar gerðu sig seka um forkastanleg vinnu-
brögð.
Sovétríkin
Hrikalegar
yfirsjónir
Blaðamaðurflettir ofan afvanrœkslu ogsér-
gœsku úkraínskra embœttismanna í kjölfar
Tjernóbýlhörmunganna ífyrra. Sendu eigin
börn á hvíldarheimili á Krím en greindu ekki
almenningi frá því hve alvarlegt ástandið var
ÖRFRÉTTIR
Grænlendingar
eignuðust nýja landsstjórn í gær
þegar félagar Siumutflokks og
Ataqatigiitflokks luku endurreisn
stjórnarinnar sem hrökklaðist frá
völdum í mars vegna ágreinings
um nýjar radarstöðvar Banda-
ríkjamanna. Jonathan Motzfeldt,
formaður Siumut, verður áfram
forystumaður landsstjórnarinnar.
Austurþýska
lögreglan
slóst í'gær í sex klukkustundir við
um 4000 ungmenni nærri so-
véska sendiráðinu í Austur-
Berlín. Mótmælendur hrópuðu
hástöfum: „Burt með múrinn!" og
„Gorbatsjof, Gorbatsjof!" Þetta
var þriðja daginn í röð að skarst í
odda með lögreglu og ungu fólki í
austurhelft borgarinnar og voru
átökin í gær mun harðari en dag-
ana á undan. Að sögn sjónar-
votta voru um 50 andófsmenn
handteknir.
Útfararstjóri
nokkur í Bandaríkjunum, kona
hans og sonur voru handtekin á
dögunum og gefið að sök að hafa
um nokkurt skeið ástundað all
sérkennilega varahlutaverslun.
Jerry og Laurieannae Sconce,
ásamt syni sínum Davíð, viður-
kenndu í gær að hafa þénað dá-
góðan skilding á því að selja
rannsóknastofum hina ýmsu lík-
amshluta af látnu fólki sem þeim
hafði verið falið að búa til greftr-
unar eða brenna í líkbrennsluofni
í eigu fjölskyldufyrirtækisins.
Einkum kváðu hjörtu, heilar og
lungu hafa gefið vel í aðra hönd.
Á föstudag
munu fulltrúar á Stórþinginu í
Osló greiða atkvæði um van-
traust á minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins. Það eru flokk-
arnir sem aðild áttu að síðustu
ríkisstjórn er leggja til að stjórnin
verði felld, Hægriflokkurinn, Mið-
flokkurinn og Kristilegi þjóðar-
flokkurinn. Stjórn þeirra var einn-
ig minnihlutastjórn og hafa nor-
skir pólitíkusar átt í mestu
brösum með að mynda starf-
hæfa stjórn sökum þess að sam-
kvæmt stjórnarskrá frænda vorra
má aðeins kjósa til þings á fjög-
urra ára fresti, sama hvað á dyn-
ur.
Forseta-
frambjóðendur
í Frakklandi eiga að fara í eyðni-
próf. Eða svo finnst að minnsta
kosti nýgaullistaþingmanninum
Jacques Godfrain. Hann reit ný-
lega innanríkisráðherra landsins
bréf og stakk upp á því að þeir
hverra hugur stæði til æðsta
embættis ríkisins myndu látnir
þreyta þesskonar próf. Kjörtíma-
bil forseta er sjö ár og því „er mikil
hætta á því að forseti með eyðni-
veiru í kroppinum við embættis-
töku deyi í embætti. Því hlýtur
það að vera réttur kjósenda að fá
vitneskju um þetta atriði", stóð
meðal annars í bréfinu góöa.
Fimm rottur
á mann búa í brasilísku iðnborg-
inni Sao Paulo. Þetta kemur fram
í viðtali við heilbrigðisfulltrúa þar í
borg. Að vísu er þeim misjafnlega
skipt á milli manna eftir aura-
ráðum hvers og eins og langflest
kvikindanna hafast við í fátækra-
hverfum. íbúar Sao Paulo eru nú
um átta miljónir og því mun láta
nærri að rotturnar séu um 40 milj-
ónir talsins.
Borgir
munu á næstu árum éta upp
helming jarðarbúa að sögn
skýrsluhöfunda á vegum Sam-
einuðu þjóðanna. Nú búa um
tveir miljarðar manna í borgum
en að 25 árum liðnum mun rúm-
lega helmingur af þeim 6,7 milj-
örðum sem þá sníglast um móð-
ur jörð búa í borgum.
Isíðasta hefti sovéska ungherj-
amálgagnsins Yunost (Æska)
er ítarleg grein eftir úkraínskan
blaðamann, Júrí Shcherbak að
nafni, þar sem hann fer ofaní
saumana á viðbrögðum og at-
höfnum embættismanna á fyrstu
klukkustundum og dögum eftir
kjarnorkuslysið í Tjernóbýl þann
26. aprfl á síðasta ári. Hann full-
yrðir að sú ákvörðun ráðamanna
að láta sem ekkert hefði gerst
hefði stefnt lífí og heilsu mörg
þúsund manna í hættu að
nauðsynjalausu. Ennfremur upp-
lýsir hann að slökkviliðsmenn,
læknar og tæknimenn hafí fengið
alls ófullnægjandi upplýsingar
um hve mikið geislaútstreymið
væri og sáralítið hefði verið til af
hlífðarfötum þeim til handa.
Shcherbak aflaði sér þorra
upplýsinga sinna með því að ræða
við fyrrum íbúa smáþorpsins
Pripyat þar sem starfsmenn
kjarnorkuversins höfðust við
ásamt fjölskyldum sínum. Einnig
segir hann að sér hafi borist bréf
frá fyrrum starfsmönnum Tjern-
óbýlversins sem krefðust þess að
„glæpsamleg vanræksla" hátt-
settra flokksforkólfa og embætt-
ismanna í Pripyat og Kiev yrði
gerð almenningi heyrinkunn.
í bréfinu fullyrða starfsmenn-
irnir að þeir hafi strax gert sér
grein fyrir því hve geislaút-
streymið var mikið og einhverjir
þeirra hringdu í skrifstofu al-
mannavarna í Pripyat til að
grennslast fyrir um það hví í ósk-
öpunum börnum væri ekki
meinað að leika sér utandyra.
Þeir fengu svör á borð við þetta:
„Það kemur ykkur ekkert við.
Akvörðun verður tekin í Mos-
kvu.“
En þar með var sagan ekki full-
sögð: „Það var ekki fyrr en
seinna, þann 7. maí, að það
spurðist út að börn allra flokks-
forkólfanna hefðu í snatri verið
flutt burt af hættusvæðinu...til
Krím þar sem börn „hinna út-
völdu“ dvöldu á hressingar-
heimilum.“
Brottflutningur fólks frá Pripy-
at, sem er í aðeins fimm kíló-
metra fjarlægð frá Tjernóbýl,
hófst ekki fyrr en 36 klukkust-
undum eftir slysið. Shcherbak
fullyrðir að flokksforingjar hafi
komið saman til fundar í þorpinu
að morgni 26. apríl og eftir fund-
arhöld hafi það boð verið látið
ganga að fólk skyldi sinna störf-
um sínum og láta sem ekkert
hefði í skorist.
Næstæðsti yfirmaður flokks-
deildarinnar í Kiev og nágrenni,
Malomuzh að nafni, gaf fyrirmæli
um að áfram skyldi kennt í
skólum, verslunum yrði haldið
opnum og að engum hjónavíg-
slum skyldi slegið á frest. Og kom
fyrir ekíci þótt fólk benti honum á
kjarnaverið sem stóð í ljósum
logum örskammt í burtu.
Valentin Belokon er læknir og
var búsettur í Pripyat. Snemma
dags þann 26. apríl var hann boð-
aður að verinu og gat hann ekki
skilið orðsendinguna á annan veg
en þann að fáeinir starfsmenn
hefðu brennst lítilsháttar.
„Það voru engir geigerteljarar
á staðnum," upplýsir hann
Shcherbak, „og okkur var tjáð að
nóg væri af gasgrímum og hlífð-
arfötum en svo reyndist ekki
vera. Enginn hafði slíkan útbún-
að.“ Hann bætti því við að dyrnar
að sjúkraherbergi versins hefðu
verið harðlæstar.
í lok greinarinnar nefnir
Shcherbak helstu syndaselina á
nafn og hefur eftir núverandi yfir-
manni Tjernóbýlversins að rétt-
arhöld í máli þeirra muni hefjast í
næsta mánuði. -ks.
A sama tíma og spenna vex á
Persaflóa þinga ráðamenn
iðnríkjanna sjö sem ákafast í Fen-
eyjum og í gær ályktuðu þeir um
hugmyndir Bandaríkjastjórnar
um aukin hernaðarumsvif á
flóanum til verndar olíuskipum
sem sigla með farm sinn til Vest-
urlanda.
Þótt Reagan fengi ekki þeim
vilja sínum framgengt að ríkin
sendu sameiginlegan flota inná
flóann þá varð hann sér úti um
samþykki þeirra fyrir aðgerðum
eigin stjórnar.
Forsætisráðherra Ítalíu, Am-
intore Fanfani, las ályktanir
fundarins í heyranda hljóði um
nónbil í gær. Þar kemur fram að
leiðtogarnir fara fram á að Sam-
einuðu þjóðirnar hefjist handa af
fullum krafti við að reyna að
binda enda á styrjöld írana og
íraka sem geisað hefur í sjö ár og
síðan segir:
„Við teljum að hafa verði í
heiðri grundvallarregluna um
frjálsar siglingar um Persaflóa og
leggjum áherslu á að það verði
gert, enda mikið í húfi.
Það verður að tryggja olíu-
flutningaskipum sem og öðrum
flutningaskipum óhefta för um
Hormuzsund."
Hormuzsund liggur á milli íran
og Óman og hefur verið mikið í
fréttum að undanförnu vegna
hótana Persa um að auka árásir á
fraktskip sem eiga leið um sundið
og gagnhótana Bandaríkjastjórn-
ar um að gjalda líku líkt.
Þótt ályktun Feneyjafundarins
beri það með sér að bandamenn
Reagans hyggist ekki taka sér
vopn í hönd og fara í neina herför
með honum á Persaflóa þá voru
bandarískir embættismenn í sjö-
unda himni í gær. Einn tók svo
djúpt í árinni að segja málalyktir
mikinn sigur fyrir sína menn og
kvað ályktunina „yfirlýsingu sem
bæri vott um samhug og plægði
akurinn fyrir harðar aðgerðir,
svo sem hafnbann á íran.“
Hryðjuverk eru leiðtogunum
sjö ekki síður þyrnir í augum en
olíuskortur. Þeir komu sér saman
um mikið og gott samstarf í þeim
málum í gær.
í fyrsta sinni féllust þjóðhöfð-
ingjar ríkjanna sjö á að bregðast
við hermdarverkastarfsemi í einu
og öllu með sama hætti. Þeir ák-
váðu að láta ekki undir nokkrum
kringumstæðum undan kröfum
hryðjuverkamanna og þeirra sem
á bak við þá kynnu að standa.
Samstarfið á einkum að ná til að-
gerða gegn flugræningjum.
Ef einhverjar ríkisstjórnir
neita að framselja flugræningja
eða sækja þá til saka skal um-
svifalaust slíta öllum flugsam-
göngum við hlutaðeigandi ríki.
Um helgina var heimatilbún-
um handsprengjum varpað að
sendiráðum Breta og Banda-
ríkjamanna í Róm en engir slös-
uðust. Lögreglan er fullviss um
að tilræðin hafi verið gerð vegna
fundarins í Feneyjum.
Miðvikudagur 10. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
-ks.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Bygg-
ingadeildar, óskar eftir tilboðum í frágang
leiksvæðis við Klyfjasel. Um er að ræða jarð-
vegsskipti, fyri beð og malarsvæði, gróðursetn-
ingu, gerð girðinga og sandkassa.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn
23. júní n.k., kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sírni 25800
ffSi
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Borgar-
spítalans, óskar eftir tilboðum í tvö hreytanleg
röntgentæki fyrir röntgendeild spítalans. Tækin
verða notuð til myndatöku á gjörgæsludeild og
skurðstofum.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudag-
inn 15. júlí n.k., kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
Laus kennarastaða
við bændaskólann á Hvanneyri
Staða kennara í almennum búfræðum við
Bændaskólann á Hvanneyri er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist landbúnaðarráðuneytinu,
Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 1. júlí n.k.
9. júní 1987
Landbúnaðarráðuneytið