Þjóðviljinn - 10.06.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 10.06.1987, Qupperneq 15
FRÉTTIR Elsa Stefánsdóttir og Anna Einarsdóttir í galleríinu nýja. Nýr sýningarsalur Gallerí í bókabúð An þess mikið beri á er nýr sýn- ingarsalur, Hafnargallerí, að opna með sölusýningu á verkum sjö ungra myndlistarmanna. Sal- urinn, vistlegur og bjartur, er á annarri hæð Bókaverslunar Snæ- bjarnar, sem Mál og menning yfirtók fyrir ári. Fyrst í stað verður sá háttur hafður á, að í salnum verður skipt um listaverk, hvort heldur væru málverk, grafík, keramík eða skúlptúr, í hverri viku. Semsagt: engar sýningaropnanir með boðskortum og hátíðleik. Og hef- ur þó enginn útilokað þann möguleika að halda megi einka- sýningu í slíkum sal. En fyrst í stað er þetta gallerí ekki síst til orðið vegna þeirra sem eru að byrja í myndlist og hafa enn ekki unnið sér nafn. Og fólk getur skoðað fleiri verk en þau sem hanga uppi hverju sinni. Og kannski verður kaffi á könn- unni. Anna Einarsdóttir er fram- kvæmdastjóri Bókaverslunar Snæbjarnar og Elsa Stefánsdóttir sér um rekstur Hafnargallerís - þær hugðu gott til þess að vinna saman að því að sem bestir straumar færu á milli myndverka á annarri hæð og bóka á fyrstu hæð Bókaverslunar Snæbjarnar við Hafnarstræti. -áb Salmonella Aðvönin til neytenda Neytendasamtökin vara við hœttunni á salmon- ellusýkingu í kjúklinga- og svínakjöti Neytendasamtökin hafa gefið út sérstaka aðvörun til fólks vegna hættunnar á salmonellus- ýkingu í kjúklinga- og svínakjöti. Tilefnið er hin alvarlega sýking sem kom upp í Búðardal fyrir nokkru og segja samtökin hana hafa varpað nýju Ijósi á vandamál í kjötframleiðslu og heilbrigðis- eftirliti. Samtökin minna á upplýsingar frá Hollustuvernd þess efnis að reikna megi með salmonellugerl- um í áðurnefndum kjöttegundum og ef neytendur gæti sín ekki muni salmonellusýkingar verða algengari hér á landi. Bent er á að salmonellugerlar fjölga sér ekki og eru ekki veru- lega hættulegir ef hitastigið er undir 10 gráðum og drepast ef hitastig fer yfir sjötíu gráður Pað er því mikilvægt að sjóða þessar kjöttegundir vel og gæta fyllstu varúðar við meðhöndlun þeirra. -«g Verðlagsstofnun Dyrtíö á Suðuiiandi Vöruverð almennthœrra en á höfuðborgarsvœðinu. Hœsta verð hjá KR á Hvolsvelli og hjá KS í Vík Vöruverð er að jafnaði hærra í verslunum á Suðurlandi en á höfuðborgarsvæðinu og mestur er munurinn ef meðalverð á Suð- urlandi er borið saman við með- alverð í stórmörkuðum á höfuð- borgarsvæðinu. Petta er meginniðurstaða verð- könnunar Verðlagsstofnunar sem gerð var í maí. Könnunin náði til fjölda vörutegunda í 17 matvöruverslunum á Suðurlandi; í Þorlákshöfn, Hveragerði, á Eyrarbakka, á Stokkseyri, Sel- fossi, Flúðum, í Þykkvabæ, á Hellu, Hvolsvelli, í Vík og á Kirkjubæjarklaustri. Á sama tíma var gerð könnun í matvöru- verslunum á höfuðborgarsvæð- inu. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar var vöruverð í Höfn hf. Selfossi, Vöruhúsi KÁ Selfossi og útibúum KÁ á Stokks- eyri og Eyrarbakka að jafnaði lægra en í öðrum verslunum. Hæst var verðið hins vegar í Kaupfélagi Rangæinga á Hvols- velli og Kaupfélagi Skaftfellinga í Vfk. -gg ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Hita- veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í eftirfar- andi húsgögn fyrir vinnubúðir Nesjavallavirkjun- ar. Um er að ræða: Stóla: stálgrindar- skrifstofustólar og kollar. Borð: Skrifborð, sófaborð, mötuneytisborð og borð. Hornsófar: Hornsófar m/ 2 stk. stólum og hornsófi. Minnistöflur, ruslaföturog hreingerningarvagnar. Ofangreind húsgögn skulu afhendast á tímabil- inu 26. júní til 1. febrúar n.k. Um skiptingu milli bjóðenda verður ekki að ræða. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 16. júní n.k., kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 f|f Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Byggingadeildar óskar eftir tilboðum í frágang leiksvæðis við Jakasel. Um er að ræða jarðvegs- skipti fyrir beð og malarsvæði, gróðursetningu, gerð girðinga og sandkassa. Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 5.000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 18. júní n.k. kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Ql Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborar f.h. Vatns- veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í bruna- hana. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudag- inn 15. júlí n.k., kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. Gatn- amálastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í málun á stöðumælareitum í Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Frí- kirkjuvegi 3, Reykajvík. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 18. júní n.k., kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800 Vinningstölurnar 6. júní 1987. Heildarvinningsupphæð: 4.510.126,- 1. vinningur var kr. 2.262.648,-, og skiptist á milli 3ja vinningshafa, kr. 754.216,- á mann. 2. vinningur var kr. 676.090,- og skiptist hann á 410 vinn- ingshafa, kr. 1.649,- á mann. 3. vinningur var kr. 1.571.338,- og skiptist á 10.073 vinn- ingshafa, sem fá 156 krónur hver. Upplýsingasími: 685111. Mi&vikudagur 10. júni 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.