Þjóðviljinn - 14.06.1987, Síða 3

Þjóðviljinn - 14.06.1987, Síða 3
Sverrir ræður Bárð Sverrir Hermannsson lætur ekki síga deigan í stööu- veitingum norðan fjalla. Fyrir skömmu réö hann í stööu skrifstofustjóra háskóla á Ak- ureyri, án þess að vitað sé til aö sú staða hafi verið auglýst. Sá sem hnossið hreppti var Bárður Halldórsson á Akur- eyri. En til fróðleiks má geta þess að á frægum fundi um fræðslustjóramálið, þar sem Sverrir var kafsigldur, var Bárður eini maðurinn sem tók upp hanskann fyrir Sverri...B Svart á hvítu í sjónmáli Gleðitíðindi fyrir áhugamenn um kvikmyndir og filmstjörn- ur: Um þessar mundir er verið að hleypa af stokkunum nýju tímariti sem fjalla mun um myndbönd og kvikmyndir. Sjónmái, en svo heitir blaðið, er að meirihluta í eigu Svarts á hvítu, en aðrir eigendur hlutafjár eru m.a. Helgi Hilm- arsson og Bjarni Þór Sig- urðsson. Bjarni er einmitt framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins en ritstjórar eru tveir ungir hæfileikamenn, Jón Egill Bergþórsson og Gunnar Hersveinn Sigursteinsson. Sjónmál verður svipað að formi til og glanstímaritin öll- sömul og ekkert til sparað. Fjallað verður um fjölda myndbanda í hverju blaði, sagt frá vaxtarbroddum is- lenskrar kvikmyndagerðar, birt viðtöl við stórstjörnur og fleira og fleira... Fyrsta tölu- blaðið er væntanlegt um næstu mánaðamót og síðan á tveggja mánaða millibili eftir það. - Af Svart á hvítu er það einnig að frétta að nú mun í undirbúningi handbók um myndbönd sem á boðstólum eru á markaðinum. Þarft fram- tak það. IAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Staöa forstööumanns viö leikskólann Árborg Hlaðbæ 17 er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón- arfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í síma 27277. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Aðalfundur Aðalfundur Útgáfufélags Þjóðviljans verður hald- inn fimmtudaginn 18. júní nk. að Hverfisgötu 105 kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin Kennarar Kennara vantar við Grenivíkurskóla. Meðal kennslugreina: líffræði og íþróttir. Frítt húsnæði í góðri íbúð. Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 96-33131 eða 96-33118. Ferð á Bendern um Sportveiðiblaðið vex og dafnar undir handleiðslu Gunnars Bender, en hann og félagi hans Snæbjörn Kristjánsson hafa drifið það upp. Síðasta tölublað er ný- komið út, fullt með litmyndum og veiðisögum og er nú upp- selt hjá útgefendum sam- kvæmt traustum heimildum. Þeir félagarnir, sem báðir eru þekktar aflaklær, hafa jafn- framt veitt fleira en fiska síð- asta árið því áskriftafjöldi blaðsins mun hafa tvöfaldast á árinu. En gróskan er mikil í veiði- blaðaútgáfunni. Veiðimaður- inn er nýútkominn út með fróðlegum greinum - sem þegar eru orðnar umdeildar í hópi veiðimanna - eftir þá fiskifræðinga Tuma Tómas- son og Jón Kristjánsson. Magnús Hreggviðsson hjá Frjálsu framtaki mun líka hafa í huga að hrista upp í veiði- blaði forlagsins. Á veiðum. Ritstjóri þess er hinn góð- kunni blaðamaður og rithöf- undur Steinar J. Lúðvíks- son, og í vikunni mun ritnefnd hafa hist til að ræða hvernig best sé að haga sér í keppn- inni við Sportveiðiblaðið, sem ennþá virðist hafa vinninginn vel umfram keppinautana.B Oddrún Vala Jónsdóttir og Guðrún Sesselja Clausen heita ágætar kunningjakonur á þrítugsaldri í Reykjavík. Sá Ijóður er á því kunningjaráði að feður þeirra áttust illt við fyrir tæpum 40 árum, Nató- daginn 30. mars 1949. Örn faðir Guðrúnar var þá í hvítlið- asveitunum fyrir utan alþing- ishúsið, en Jón Múli Árna- son faðir Oddrúnar einn mótmælenda, og mun Örn hafa ráðist að Jóni Múla með barefli á lofti. Slik atvik gleymast seint í Múla-kyninu, og þótti Oddrúnu og kunning- jum hennar bera vel í veiði í Keflavíkurgöngunni síðustu helgi. Guðrún Sesselja Clausen var orðin sumarmað- ur í löggunni og átti að standa vörð á Lækjartorgi í göngulok. Vinir Oddrúnar í Keflavíkurg- öngunni komu því þannig fyrir að Oddrún bar íslenska fán- ann í broddi fylkingar síðasta spölinn, og var mönuð til að hefja hann á loft þegar gangan mætti Guðrúnu lög- reglu og hefna í annan lið þótt seint væri. Svo brá hinsvegar við að þegarGuðrún lögreglu- maður sér Oddrúnu fánabera í fylkingarbrjósti á Lækjartorgi ber Guðrún hönd að lögreglu- húfunni og gerir honnör, - og þótti þá ekki lengur stætt á að reka Guðrúnu í gegn með flagginu. Telja menn að með þessum atburði hafi tekist sættir milli ættanna eftir 38 ár. Hinsvegar hafa enn ekki tek- ist sættir í herstöðvamálunum.. .■ Sögulegar ættasættir VÐ SENDUM ÍSLENSKUM SJÓMÖNNUM ÁRNAÐARÓSKIR í TILEFNI DAGSINS EIMSKIP * T SIMANUMER RIKISSKATTSTJORA Mánudaginn 15. júní n.k. verður tekið í notkun nýtt símanúmer hjá embættinu. Nýja símanúmerið er: 623300. RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.