Þjóðviljinn - 14.06.1987, Qupperneq 8
SJÓMANNADAGURINN
Á hátíöarfundi stjórnar
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins 2. júní síðastliðinn af-
henti Guðjón A. Kristjánsson
Ingólfi Stefánssyni heiðurs-
skjal, en hann varframkvæmda-
stjóri sambandsins frá 1966 til
1985 eða í 19 ár.
kveðna endurmenntun og þar
inni eru meðal annars tungum-
álanám, tölvukennsla, öryggis-
fræðsla og margt margt annað. í
þrjú ár höfum við farið fram á
það við menntamálaráðuneytið
að í þessi mál yrði skipaður
endurmenntunarstjóri í verk-
menntadeild ráðuneytisins sem
sæi um aila endurmenntun sjó-
manna. f þessu sambandi erum
við ekki að tala um nýjan skóla,
heldur að á einum stað væri hægt
að ganga að því vísu hvar best
væri að fá þá menntun sem við-
komandi óskar eftir. Því allsstað-
ar í kringum okkur er verið að
halda hin ýmsu námskeið í hinu
og þessu og hefði endur-
menntunarstjórinn heildaryfir-
sýn yfir það hvað væri að gerast í
endurmenntunarnámskeiðum
hér og þar og gefið ráðleggingar
um hvar best væri að leita fanga.
En það verður að segjast eins og
er að undirtektir menntamála-
ráðherra við óskum okkar og
annarra hagsmunaaðila í sjóm-
annastéttinni, hafa ekki verið á
þá lund sem við hefðum kosið.
Hann hefur lýst áhuga á tillögum
okkar en ekki viljað fallast á hug-
mynd okkar um endur-
menntunarstjóra. En með því að
koma endurmenntuninni af stað
þá vita menn betur um það hvað
og hvar skórinn kreppir mest að
og kippt því í liðinn."
Veistu um dæmi þess að menn
sitji uppi með rándýr tœki án þess
að kunna full skil á þeim?
„Þar sem ég þekki best til á
fiskiskipaflotanum eru menn
með í brúnni hjá sér mörg rándýr
og fullkomin tæki sem þeir nýta
ekki til fullnustu, einungis vegna
þess að þeim hefur ekki verið
kennt að nota þau í botn. En með
endurmenntunarnámskeiðum er
hægt að koma í veg fyrir þetta,
með því að kenna mönnum
hvernig nota eigi þessi tæki, og þá
er ég að tala um tölvur og fleira í
þeim dúr. Menn vita upp og ofan
hvernig á að nota þau, en fullnað-
arvitneskja um hvernig þau vinna
og hvernig þau nýtast best, er
ekki fyrir hendi. Á þessu þarf að
gera bragarbót og við teljum að
með endurmenntunarnámskeið-
um sé hægt að ná settu marki.“
Mó lœra af
kvótanum
Snúum okkur nú að fiskveiði-
stefnunni. Endurskoðun hennar
verður vœntanlega fyrsta verkefni
komandi alþingis í haust. Hvað
finnst þér um hana og hvað má af
henni lœra?
„Það má læra ýmislegt af kvót-
akerftnu og þeirri stefnu sem
fylgt hefur verið frá 1984. Alveg
eins og það mátti læra af skrap-
dagakerfinu á sínum tíma. Hins
vegar eru ákveðnir þættir í kvót-
akerfinu sem mér finnst alveg
nauðsyniegt að breyta. En áður
en menn fara að tala um fisk-
veiðistefnu þá þurfa þeir að skilja
á milii stærðar skipastólsins sem
er eitt og fiskveiðistefnu sem er
annað. Eins og málum er komið í
dag sé ég ekki mikla þörf á
aukningu í skipaflotanum. Það
þarf að endurnýja þessi skip og
við þurfum að vera opnir fyrir því
að leyfa mönnum, sem vilja
endurnýja sín skip, að gera það.
Taka inn nýjustu tækni á hverjum
tíma og ekki setja þær reglur né
hömlur á að nýjasta tækni sé látin
víkja fyrir einhverjum stærðart-
akmöricunum í byggingu skipa.
Reglur mega ekki vera þannig
að stækkun skipa, stærðarhlutfall
þeirra megi ekki breytast nema
eitthvað ákveðið og það sé alveg
neglt niður, burtséð frá nýjung-
um. Það má ekki hamla jáeim.
Tökum sem dæmi menn sem vilja
veiða kúfisk eða gulllax. Það má
að sjálfsögðu smíða til þess sér-
stök skip, sem eru í þessum verk-
efnum, ef menn finna rekstrar-
grundvöll fyrir þessháttar útgerð.
En í þessum almennu botnfisk-
veiðum, sé ég ekki mikla viðbóta-
rþörf.
Samkeppni
í veiðum
Þá stöndum við frammi fyrir
þeirri spurningu hvernig getum
við endurnýjað í stéttinni fyrst
ekki má bæta við fleiri skipum á
hefðbundnar veiðar. Hvernig
nýir menn geta komið inn í út-
gerð. Það verður ekki gert nema
með samkeppni. Þetta þýðir það
að þú verður að setja inn í fisk-
veiðistjórnunina, hvernig svo
sem þú útfærir hana, hvort sem
hún er útfærð á skip eða í heild,
þá verður að vera í henni hvati.
Þannig að þeir sem best gera þeir
ganga áfram á kostnað þeirra sem
minnsta geta. Það er alveg óhjá-
kvæmilegt. Inn í veiðarnar verð-
ur að setja samkeppni að þeir
menn og útgerðir sem ganga illa,
kannski í eitt, tvö, þrjú ár í röð,
detti hreinlega út, og aðrir betri
menn geti þá tekið við.
Því segi ég, og það er mín
skoðun, að við verðum að skilja á
milli í kvótakerfinu; að við
megum ekki láta afla fylgja skipi
og ekki láta afla fylgja vinnslu.
Ekkl verðmœti fyrr
en búið er
að veiða hann
Afli í sjó er bara fiskur í sjónum
og verður ekki afli fyrr en búið er
að veiða hann og fórna til þess
mannskap, skipi, veiðarfærum og
vinnu. Fyrr er hann ekki verð-
mæti. Þegar menn eru komnir að
þessari niðurstöðu þá held ég að
menn séu búnir að slá á það að
enginn sem á skip og ekki stendur
sig í veiðum og í sínum rekstri,
hann heldur ekki sínu skipi ára-
tugum saman út á það að selja
fisk sem hann hefur engan áhuga
á né kraft til að nýta. Hann dettur
út og aðrir koma inn í staðinn. Þá
ertu kominn með stjórntæki sem
ekki kallar á stækkun flotans.
Þá þarf að setja á heildartak-
mörkun á veiði á hverju ári. Að
vísu verður alltaf einhver
sveigjanleiki að vera fyrir hendi
því afkoman í þessari atvinnu-
grein er mjög óviss. Sveigjanleiki
um 10-15% til eða frá, í afla-
mörkum. Við þurfum að stjórna
fiskveiðunum með heildarkvót-
um, sem síðan eru takmarkaðir
með tegundum, tegundasam-
setningu á afla, því mér finnst
tegundasamsetning í takmörkun
ganga vel upp hjá togaraflotan-
um. Hann nýtir aðrar tegundir en
þorsk. Ef við hefðum ekki togar-
aflotann myndum við nýta aðrar
tegundir illa og sumar alls ekki.
Til dæmis grálúðu og karfa. Þetta
segir manni að á togaraflotann
þarf að setja einhvern heildar-
topp á þorskveiðina. Síðan að
leyfa mönnum að keppa sín á
milli.
Við erum að tala um 300 þús-
und tonna ársafla, 150 þúsund á
togaraflotann og 150 þúsund
tonn á bátaflotann. Helmings-
skipti þar á milli. Þá er meðaltalið
í togaraflotanum ekki nema 1500
tonn miðað við 100 skip. En það
þarf að líta líka á stærð skipa og
afköst þeirra. Ég held að það ætti
að gera það þannig að það ætti að
vera heildarstjórnun. Að
heildarflotinn mætti gera þetta
innan þess ramma og aó menn tai
eitthvert meðaltal, sem bundið
yrði í stærðum og tekið tillit til
aðstæðna, eins og þær hafa verið
síðustu 10 árin. Það er hægt að
finna eitthvert hlutfall, hvernig
menn hafa veitt, og setja síðan
upp kerfi þar sem menn fá í fyrsta
lagi úthlutað beint, síðan úthlut-
að eftir sinni reynslu. Þegar það
er fundið þá er hægt að segja við
viðkomandi að hann geti veitt
umfram ef hann geti það. Það
þýðir hins vegar að þeir sem geta
veitt umfram úthlutun, ganga á
þá pem verr gera. Og það er allt í
lagi. Þá endurnýjast í útgerðinni
og einnig í skipstjórastéttinni.
Kostir þess nýja
og gamla
Varðandi bátaflotann þá er
þetta ekki svona tegundaskipt,
og auðvitað stöndum við frammi
fyrir þeirri spurningu líka í sam-
bandi við togaraflotann, þegar
hann er að nálgast hámark í
öllum tegundum. Þá áttu ekki
annað stjórntæki eftir en sóknar-
minnkun. Það er að segja að það
verður að setja einhverja sóknar-
dagastýringu. Og þá ertu kominn
með blandað kerfi: Úr núverandi
kvótakerfi og gamla skrapdaga-
kerfinu. Það eru nýttir kostir þess
sem fyrir var og þess sem er.
Þarna er líka komið kerfi sem
endurnýjast, kerfi þar sem
óveiddur fiskur er bara óveiddur
fiskur sem lifir á milli ára og er
úthlutað að hluta til aftur. 75% af
óveiddum fiski er til dæmis byrj-
að að úthluta aftur í september-
mánuði, hitt bara geymist.
í sambandi við bátaflotann
gengur svona tegundakerfi ekki
alveg upp. Þó held ég að það
megi alveg hugsa sér það að hluta
til. Þar held ég að sé líka hægt að
blanda saman sóknarstýringu,
aflastýringu og einhverri tegund-
astýringu. Það er að segja að ein-
hverjar tegundir eru frjálsar en
aðrar takmarkaðar. Síðan hafa
menn þetta marga daga til að
gera þessa hluti og þá geta þeir
annað hvort ráðið sínum afla á
þessum dögum og líka haldið
áfram ef þeir eiga eitthvað eftir.
Ef þeir eru hins vegar búnir að ná
aflanum, fá þeir ekki að halda
áfram, nema þá í öðrum tegund-
um þá daga sem þeir eiga eftir.
Það er nákvæmlega það sama
sem gerist núna. Menn stoppa
þegar öðruhvoru markinu er náð.
Dögunum eða aflanum. Þetta
held ég að sé heildarramminn í
því sem ég sé að eigi að vera í
stjórnun á fiskveiðum. Ég held
að við náum ekki skynsamlegum
árangri í framtíðinni nema að í
kerfinu sé samkeppni og ákveð-
inn endurnýjun. Kerfið þarf að
vera þannig uppbyggt að það
haldi nokkurnveginn uppi
ákveðnu aflamarki, en inni í því
sé líka töluvert frjálsræði.“
Tregða í kerfinu
Frá kvótanum og yfir í félags-
málastarfsemina. Hvernig gengur
togaraskipstjóranum að fást við
kerfið þegar hann rekur erindi
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins um lausn mála?
„Það getur gengið oft á tíðum
ansi hægt að koma málum í gegn-
um kerfið. Þá sögu verður að
segja eins og hún er. Almennt séð
þá virðist vera mikið tregðu-
lögmál ríkjandi í kerfinu. Maður
verður hvað mest var við þetta
þegar ákveðin mál virðast liggja á
hreinu, eftir mikla og markvissa
vinnu, stranda í kerfinu. Sérstak-
lega á þetta við alla ákvarðana-
töku. Og vissulega getur þessi
tregða í kerfinu tekið á taugarn-
ar. En hitt er líka til að ákveðin
nefndarstörf ganga mjög vel, og
ákvarðanatakan í kerfinu eftir
því. Þetta er upp og niður eins og
gengur.“
Fiskverðið
útí hött
Nú situr þú í Verðlagsráði sjáv-
arútvegsins sem þráttar dag frá
degi um nýtt fiskverð. Er þetta
fyrirkomulag ekki úr sér gengið?
„Hvað fiskverðið varðar þá
hefur það ekki haldið gildi sínu
hér innanlands í gegnum árin. í
dag er ástandið orðið þannig að
það verð fyrir fiskinn sem Verð-
lagsráð ákveður er komið út úr
öllu korti. í Verðlagsráðinu verð-
ur maður að vinna eftir þar til
settum reglum og við því er ekk-
ert að gera. En við, sjómenn og
útgerðarmenn, höfum lagt til að
fískverð verði gefið frjálst og
Verðjöfnunarsjóðurinn lagður
niður í samræmi við það. En í
þessu máli er við ramman reip að
draga sem eru stóru sölusam-
tökin, Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna og Sjávarafurðadeild
Sambandsins. Þau hafa staðið í
vegi fyrir því að fiskverðið verði
gefið frjálst og ég verð að segja
það að mér fínnst ansi mikil ein-
okunarlykt af þeirra starfsemi.“
Hef trú á
fiskmörkuðum
Hvað um nýstofnaða fiskmark-
aði? Hvernig líst þér á starfsemi
þeirra?
„Ég hef ekki trú á öðru en að
þeir lofi góðu. Að vísu veit maður
ekki hvað úr þeim verður, enn
sem komið er, þar sem þeir eru
rétt komnir á legg. Við vitum til
dæmis ekki hvað mikið verður
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. júní 1987