Þjóðviljinn - 17.06.1987, Side 2
F-S PURNINGIN
Hvað ætlar þú að gera á
þjóðhátíðardaginn?
Þorsteinn G. Bjarnason
Ekkert sérstakt. Fer kannski í
bæinn.
Erla Stefánsdóttir
Ég ætla að vera heima og fara
með börnunum í bæinn og taka
þátt í hátíðarhöldunum.
Dagný Dögg Franklínsdótt-
ir
Ég ætla að fara í bæinn og ganga
um og skoða fólkið og kaupa mér
eitthvað gott.
Gísli Elíasson
Ég ætla að halda upp á daginn
upp í sófa með kaffibolla við
hendina. Ef veðrið verður gott fer
ég í bæinn eins og aðrir.
Svanhildur Harðardóttir
Ég ætla niður í bæ um daginn en í
Höllina um kvöldið og skemmta
mér vel.
FRETTIR
Kúffiskurinn
Góð mið í Faxaflóa
Anna og Villi Magg að tilraunaveiðum á kúffiski. Ágæt veiðisvæði hafa fundist á Faxaflóa
Við erum að þreifa okkur
áfram hér í Faxaflóanum og
það er óhætt að segja að þetta
lofar góðu. Það er útlit fyrir að
það sé jafnvel meiri kúffiskur í
Faxaflóa en í Breiðafirði, sagði
Ólafur Einarsson, forstöðumað-
ur Hafrannsóknastofnunar í Ól-
afsvík, þar sem hann var staddur
um borð í Önnu SH frá Stykkis-
hólmi á Garðsjó í gær. Annan er
að tilraunaveiðum á kúffiski.
Tilraunaveiðar á kúffiski eru
nú stundaðar á tveimur skipum,
sem bæði eru útbúin vatnsþrýsti-
plóg, Önnu SH og Villa Magg frá
Súgandafirði. Rannsóknir á kúf-
fiskstofninum hafa fram til þessa
aðallega beinst að Breiðafirði, en
nú að undanförnu hefur Annan
verið á Faxaflóa og aflað ágæt-
lega á ýmsum svæðum.
Ólafur sagði bestu svæðin hafa
gefið um 2,5 tonn af kúffiski á 4
mínútum, sem telst vera mjög
góður afli.
Hann sagðist búast við að þess-
ar tilraunaveiðar yrðu stundaðar
út þennan mánuð, en að því
loknu munu þeir Hrafnkell
Eiríksson fiskifræðingur, sem er í
leiðangri á Villa Magg, bera sam-
an bækur sínar og er þá niður-
staðna að vænta úr rannsóknum
síðustu vikna.
-gg
Sigurður Blöndal skógræktarstjóri plantar fyrstu trjáplöntunni í væntanlegt skógarsvæði BYKO í Biskupstungum. Guðmundur H. Jónsson stjórnarfor-
maður fyrirtækisins lengst t.v.
BYKO
Timbursala í trjárækt
Byggingarvöruverslun Kópavogs minnist25 ára afmælis síns meðþvíað
gróðursetja 4000 tré austur í Biskupstungum. Kópavogsbæfœrðar 25 aspir í
gær
Byggingavöruverslun Kópa-
vogs minnist 25 ára afmælis
síns um þessar mundir með miklu
átaki í trjárækt. Um sl. helgi fóru
starfsmenn fyrirtækisins austur
að Drumboddsstöðum í Biskup-
stungum og plöntuðu þar um
4000 plöntum. Jörðina sem er 330
hektarar að stærð keypti BYKO
sl. haust en ætlunin er að nýta
hana til skógræktar og útivistar
fyrir starfsmenn fyrirtækisins.
Sigurður Blöndal skógræktar-
stjóri var með í afmælisferðinni
og plantaði hann út fyrstu greni-
hríslunni. Sveitarstjórnarmenn í
Tungunum mættu einnig á stað-
inn með 25 aspir.
í gær afhenti BYKO síðan
bæjaryfirvöldum í Kópavogi 25
aspir sem voru gróðursettar við
innganginn að íþróttavellinum
við Fífuhvammsveg.
-*g-
Hafnarfjörður
Sorphaugunum lokað
Sorp frá Hafnarfirði, Garðabœ og Bessastaðahreppifluttáhaugana í Gufunesi
frá næstu mánaðamótum
essir sorphaugar eru allt of
nálægt byggðinni í Hafnar-
firði og því er mjög ánægjulegt að
ákveðið hefur verið að loka þeim.
Sorphaugarnir í Gufunesi munu
taka við sorpi úr þessum byggð-
arlögum þar til sameiginleg lausn
á sorpeyðingarvanda höfuðborg-
arsvæðisins hcfur fundist, sagði
Guðmundur Einarsson heilbrigð-
isfulltrúi í Hafnarfirði í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Sorp úr Hafnarfirði, Garðabæ
og Bessastaðahreppi hefur fram
til þessa verið losað á sorp-
haugunum við Krýsuvíkurveg
fyrir ofan Hamranes en sá staður
hefur þótt afar óheppilegur og
hefur nú verið ákveðið að loka
sorphaugunum þar 1. júlí n.k.
Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu hafa stofnað fyrirtækið
sorpeyðing hf. og er því ætlað að
finna sameiginlegum sorp-
haugum heppilegan stað.
Múlalundur
Færa út
kvíamar
100 manns á launaskrá
hjá Múlalundi. Langir
biðlistar. Hafa hug á að
stœkka við sig
Við höfum hug á að stækka við
okkur og erum að leita að við-
bótarhúsnæði undir starfsemina.
Það er orðið heldur þröngt um
okkur hérna, sagði Steinar Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Múla-
lunds, í samtali við Þjóðviljann ■
gær.
Múlalundur er sem kunnugt er
verndaður vinnustaður fyrir fatl-
aða og eru að sögn Steinars um
100 manns á launaskrá þar. Aðal-
lega er um að ræða hlutastörf.
Yfirleitt eru langir biðlistar
eftir plássi á Múlalundi og því
orðið brýnt að færa út kvíarnar,
en enn er óljóst hvenær af því
verður eða hvar.
-gg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. júní 1987