Þjóðviljinn - 17.06.1987, Qupperneq 4
LEIÐARI
handa lýðveldinu
Þríhjól
Það er 17. júní, þjóðhátíðardagur Islendinga og 43
ára afmæli lýðveldisins.
Á þessum afmælisdegi eru forystumenn Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og leifanna af Sjálfstæðis-
flokknum að smíða nýjan farkost handa lýðveldinu;
það er þríhjól, sem á að leysa af hólmi gamla tvíhjólið
sem Framsókn og Sjálfstæðismenn halda nú ekki
jafnvægi á lengur.
Hugvitsmaðurinn á bakvið þríhjólið er Jón Baldvin
Hannibalsson sem sá sér leik á borði að loknum
kosningum og býðst nú til að fylla þau stöðugildi sem
losnuðu á stjórnarheimilinu þegar þeir Albert Guð-
mundsson og Stefán Valgeirsson fóru úr vistinni
sendandi sínum fyrri húsbændum tóninn.
Jón Baldvin segir sjálfur að til þessa hafi verk-
stjórnin við smíðarnar farist sér vel úr hendi. Ekki er
ástæða til að rengja það, enda hefur hugvitsmaður-
inn forðast að strjúka stjórnarherrunum, þeim
Steingrími og Þorsteini, andhæris með því að impra
á vinstrimennsku eða jafnaðartali. Hins vegar hefur
hann óhjákvæmilega neyðst til að minnast á það
feimnismál sem fjárlagagatið er og hallann á ríkis-
sjóði, sem eins og fleira hefur einhvern veginn
smogið úr annars öruggum greipum Þorsteins Páls-
sonar.
Hagfræðinganefnd hefur nú það verk með hönd-
um að stinga upp á fjáröflunarleiðum til að rétta af
hallann. Og þessi nefnd hefur að sjálfsögðu stungið
upp á ýmsum snjöllum hugmyndum eins og að skatt-
leggja krítarkort, en á þann máta væri meðal annars
hægt að skattleggja matvöruinnkaup heimilanna.
Ennfremur er í ráði að leggja nýjan skatt á bíla,
sömuleiðis bensín og jafnvel almennan orkuskatt.
Síðan er rætt um að kría út nokkrar fjárhæðir til
viðbótar með því að fækka undanþágum frá sölu-
skatti og innheimta nýja skatta af tölvum, farsímum
og lögfræðiþjónustu. Hækkun á kjarnfóðurskatti
gæti líka leitt til þess að meira seldist af kindakjöti,
þannig að svínakjöt og kjúklingar yrðu aftur hátíða-
matur hjá venjulegu fólki.
Allt eru þetta hugkvæmar leiðir til fjáröflunar til
bráðabirgða meðan verið er að bjarga þjóðarbúinu
út úr þeim glundroða sem fjármálastjórn Sjálfstæðis-
flokksins hefur leitt okkur í á mesta góðæristímabili í
sögu lýðveldisins. Þessar aðgerðir verða væntan-
lega látnar duga fyrst í stað, ef þeim Jóni Baldvin,
Þorsteini og Steingrími tekst að setjast upp á þríhjól-
ið, uns tækifæri gefst að afhjúpa leynivopnið sem
öllu á að bjarga: Virðisaukaskattinn, sem auk ann-
arra ófyrirsjáanlegra aukaverkana mun hækka mat-
vöru um svo sem 20% á einu bretti.
Hinar raunverulegu aðgerðir sem þjóðarbúið þarf
á að halda verða látnar eiga sig meðan þremenning-
arnir æfa jafnvægiskúnstir á þríhjólinu. Enn um sinn
verður skotið á frest því réttlætismáli að stokka upp
skattalöggjöfina með það fyrir augum að þeir borgi'
megnið af sköttunum sem ráðskast með megnið af
fjármagninu.
Reyndar er þó enn ekki fullvíst að þremenningun-
um takist að klambra saman þríhjólinu enda sjá þeir
allir þann ókost við smíðisgripinn, að enda þótt á
honum eigi að vera þrjú hjól er ekki gert ráð fyrir
nema einu stýri og um það vilja þeir allir halda,
Steingrímur sem er vanur að stýra, Þorsteinn sem er
formaður leifanna af stóra flokknum og Jón Baldvin
sem er hugvitsmaðurinn.
Vonandi hefst 44. ár lýðveldisins ekki á ferðalagi á
slíku farartæki, því samanborið við þetta þríhjól eru
fjórhjólin skárri.
— Þráinn
KUPPT OG SKORIÐ
Ormahersing
til atlögu
við bændur
örmahersingin
í gær birtist dularfull frétt í Tím-
anum. Hálf baksíðan var lögð
undir ítarlega frétt um heiftarlega
innrás grasmaðks í kartöflugarða
í Þykkvabænum sem hefði eytt
öllu „grœnu niður í svörð á
margra hektara svœði". í kjölfar-
ið voru svo lagði margir dálksent-
imetrar undir nákvæma lýsingu á
hátterni þessa vágests og voveif-
legum afleiðingum hans fyrir ís-
lenskan landbúnað. Sérstaklega
er eftirtektarverð sú áhersla sem
lögð er á hversu mjög innrás orm-
anna hafi komið heimildamanni
blaðsins í opna skjöldu.
„Pað veit enginn afhverjuþetta
hefurskeð, - af hverju þetta hefur
orðið að faraldri núna,” segir
heimildamaður blaðsins ísmeygi-
lega og gefur ýmislegt í skyn sem
ekki er þorandi að hafa eftir í
blaði eins og Tímanum meðan
viðkvæmar viðræður um
stjórnarmyndun standa yfir.
Palle Pedersen
Bændur vita hins vegar hvað til
þeirra friðar heyrir. Það þarf
nefnilega ekki mörg dúsín af há-
skólagráðum til að skilja að ein-
hvers staðar liggja hundar grafnir
þegar virðulegasta málgagn ís-
lenskrar fjósamennsku fer að tala
um kartöfluát grasmaðka.
Annað eins ævarugl hefur
nefnilega ekki heyrst frá því einn
helsti falsspámaður líffræðinnar
var á dögum; félagi Lýsenkó sem
var sérlegur líffræðingur Stalíns
og breytti einni tegund í aðra á
meðan dauðlegir sváfu.
í uppslætti Tímans um maðka-
veituna í görðum framsóknar-
manna er því greinilega fólginn
annar og dýpri boðskapur. Það er
til að mynda sláandi hversu lýsing
Tímans á innrás grasmaðksins í
kartöflugarða framsóknaralþýð-
unnar er keimlík atlögu Alþýðu-
flokksins að meyjarsæng Fram-
sóknarflokksins í yfirstandandi
viðræðum um stjórnarmyndun.
Flest bendir því til að „fréttin”
um ormahersinguna sé eins kon-
ar viðvörun á dulmáli frá þeim
forystumönnum Framsóknar,
sem ekki vilja mynda ríkisstjórn
með krötum, til þjóðhollra
bænda um að vera nú vel á verði.
Líklegast er talið að það sé Páll
Pétursson frá Höllustöðum sem
fyrir hönd andófsmanna hafi les-
ið blaðamanni Tímans fyrir
ormafréttina. En Páli er við fátt
jafn illa og krata almennt, nema
ef vera skyldi Jón Baldvin einan
og sér. Það stafar af því að Páli er
ekki enn runnin reiðin frá því Jón
uppnefndi hann „Palle Pedersen
fra Hallested" í sjónvarpinu. En
það hefur loðað við hann síðan og
er gjarnan haft fyrir brandara í
opinberum veislum.
Kratamaðkurinn
Páll Pétursson er eins og alþjóð
er kunnugt manna iðnastur við að
ferðast erlendis á hennar kostn-
að. Hann var því í einni af sínum
frægu utanlandsreisum þegar
Steingrímur lét fallerast af hinum
kratíska þokka og átti sér einskis
ills von. Heim kominn fann hann
hins vegar Framsókn á rúi og stúi
og allt í vitleysu. Steingrím kom-
inn hálfan upp í til Jóna Alþýðu-
flokksins og allt iðandi af krö-
tum. Eða eins og heimildamaður
maðkafréttarinnar segir í þessari
aðalfrétt Tímans:
„Þetta gerðist svo snöggt.. þeg-
ar ég kom í garðinn í fyrstu viku í
júní var allt komið upp og garður-
inn eðlilegur... en nœsta mánudag
sást þar ekki eitt einasta gras, allt
var sviðið niður í mold. ”
Skýringin var heldur ekki langt
undan: „Þegar ég svo gœtti betur
að þá iðaði allur garðurinn í
maðki. ”
Arfastykkið
Þarna er vesalings Palle fra
Hallested bersýnilega að útskýra
í örvæntingu sinni fyrir bændum
að hann hafi bara ekkert vitað
hvaðan á sig stóð veðrið þegar
hann kom heim úr reisunni. Allt
verið morandi af krötum. Hann
lætur þess jafnframt getið að enn
sé mikið í hættu, maðkarnir séu
„komnir inn í annað garðstykki
og arfastykki sem ekki var sett
niður í. ”
Kunnugir telja að með arfa-
stykkinu eigi heimildamaður
Tímans við Framsóknarfélagið í
Reykjavík.
Það er athyglisvert að í maðka-
boðskapnum er vikið með einkar
jákvæðum hætti að Jóni Helga-
syni fyrir hart andóf hans gegn
krötum. Þetta lætur Tíminn í ljós
með því að segja með sérstakri
velþóknun að í kjördæmi land-
búnaðarráðherra „hafi gras-
maðks ekki orðið vart þetta
sumarið, ” ekki einu sinni í
heimasveit ráðherrans sem þó
„eru þekkt grasmaðkssvœði” eins
og segir í fréttinni og bersýnilega
vísað til fyrri styrks Alþýðuflok-
ksins á þeim stöðum.
Úðunarherferðin
Páll frá Höllustöðum er hins
vegar maður karskur og lætur
ekki deigan síga. Eftir langa lýs-
ingu á aðförum maðksins og
hegðan hans í kartöflugörðunum
rekur hann upp mikið heróp til
bænda í dulmálsboðum sínum á
baksíðu Tímans og hvetur þá til
dáða. Á döfinni sé nú mikil úðun-
arherferð og með sé vonast til að
„takist að drepa meginherinn. ”
Þetta er bersýnilega yfirlýsing
um að nú megi kratar vara sig - og
nái andófsdeildin yfirhöndinni
undir forystu Páls virðist því ber-
sýnilega útséð með að Framsókn
eigi lengra tilhugalíf með sínum
fornu fjendum á höfuðbóli krata.
í lok fréttarinnar er svo lauflétt
hótun frá forystu andófsdeildar-
innar til annarra flokksmanna um
að flangs utan í krata muni ekki
endurtaka sig. Eða eins og hótað
er í lok hinnar makalausu maðka-
fréttar:
„...kartöflubœndur munu
fylgjast betur með gjörðum sínum
á þessum árstíma í framtíðinni!”
Það er eins og sagt var: Er ekki
best að hver rækti sinn garð?
-ÖS
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphéðinsson.
Fróttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, Ingunn Ásdísardóttir,
Kristín Ólafsdóttir, Kristófer Svavarsson, Logi Beramann Eiðsson
(íþróttir), Magnús H. Gíslason, MörðurÁrnason, ÓlafurGíslason,
Ragnar Karisson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Ásgrímsson, Vil-
borg Davíðsdóttir, Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrfta- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljó8myndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
IJtlitstelknarar: Sævar Guðbjörnsson, GarðarSigvaldason.
Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrtfstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
* Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Guðbergur Þorvaldsson.
Auglýsingastjórl: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýslngar: Baldur Jónasson, Olga Clausen, Guðmunda Kristins-
dóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríöur Kristjánsdóttir.
Husmóðlr: Soffía Björgúlfsdóttir.
Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu-og afgrelöslustjóri: HörðurOddfríðarson.
Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavfk, sfml 681333.
Auglý8lngar:Sfðumúla6,8fmar681331 og 681310.
Umbrot og setnlng: Prentsmiðja ÞJóðvlljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð: 60 kr.
Áskrlftarverð á mánuði: 550 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 17. júní 1987