Þjóðviljinn - 27.06.1987, Blaðsíða 1
0
Hvalveiðiráðið
Umhveifissiimar
samræma aðgerðir
Tillaga Ástrala samþykkt með miklum meirihluta. Umhverfissamtök
funduðu ígœr. Hefja strax aðgerðir vestanhafs
-Sáf
Um 20 ^ umhverfisverndar- hagslegar aðgerðir föstum tökum yrði beitt gegn Islendingum ef við á fiskafurðum frá þjóðum sem
samtök víða að úr heiminum og vinna að því í Bandaríkjunum létum ekki af veiðunum næsta virða að vettugi verndun dýrateg-
funduðu í Bournemouth í gær og að Packard-Magnuson lögunum sumar. Þau lög banna innflutning unda í hafinu.
samþykktu áskorun til íslensku
þjóðarinnar um að hún hvetti is-
lensk stjórnvöld til að fylgja sam-
þykktum Aljýóða hvalveiðiráðs-
ins. Hætti Islendingar ekki vís-
indahvalveiðum sínum tafarlaust
á að hefja aðgerðir vestanhafs,
sem eiga að beinast að fiskmark-
aði okkar þar.
Tillaga Ástrala um áskorun til
þeirra þjóða sem stunda hval-
veiðar í visindaskyni, að þær
hætti þeim strax, var samþykkt
með töluvert meiri mun en tillaga
Bandaríkjamanna. 19 þjóðir
voru samþykkar tillögunni en að-
eins fjórar á móti, Islendingar,
Chile, Japan og Sovétríkin. Níu
þjóðir sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Þótt tillaga Ástrala sé bara
áskorun túlka menn það sem svo
að verði ekki orðið við þeirri
áskorun muni þær þjóðir sem að
tillögunni stóðu beita íslendinga
þvingunum.
Umhverfisverndarsamtökin
ákváðu í gær að hefja áróðursher-
ferð í Bandaríkjunum gegn því að
Bandaríkjamenn keyptu íslensk-
ar, norskar og færeyskar vörur ef
þessar þjóðir létu ekki af hval-
veiðum strax. Á fundi samtak-
anna var samþykkt að taka efna-
ísafjörður
Bæjarstjórnin
gegn
BM Vallá
„Við höfum nokkrar áhyggjur
yfir því að BM Vallá ætli að setja
upp steypustöð í Bolungarvík til
skamms tíma og keppa þannig við
heimamenn,“ sagði Haraldur
Haraldsson, bæjarstjóri á ísa-
fírði, en bæjarstjórnin hefur sam-
þykkt einróma ályktun, þar sem
fyrirhuguð starfræksla steypu-
stöðvar BM Vallá á Bolunarvík í
sumar er hörmuð.
í ályktun bæjarstjórnar ísafj-
arðarkaupstaðar segir m.a. að sú
ákvörðun bæjarstjórnar Bolung-
arvíkur að heimila BM Vallá að
setja tímabundið upp steypustöð
í bænum, skjóti skökku við áður
yfirlýstan vilja sveitarfélaganna
við ísafjarðardjúp að sveitarfé-
lögunum beri að standa saman að
uppbyggingu atvinnulífs og þjón-
ustu á svæðinu.
„Það er því mikið áfall að verk-
taki úr Reykjavík skuli fá heimild
til að fleyta rjómann á kostnað
heimaaðila."
-RK
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins hófst I gærkvöldi, en fundurinn mun vara alla helgina. Reikna má með að líf verði
f tuskunum á fundinum, en meðal þess sem rætt verður um eru skýrslur „sexmenninganna" og skýringar á óförum
flokksins í kosningunum í vor og um stefnu og starfshætti Alþýðubandalagsins. Mynd Sig.
Stjórnarmyndun
Alþýðubandalagið
Róiðá
ný mið
A Iþýðubandalagsfélagar
á Norðurlandi borga at-
kvæðaveiðarnar með
fiskveiðum
Kosningabarátta kostar sitt og
fjárhagur stjórnmálaflokka er yf-
irleitt ekki upp á marga físka að
atkvæðaveiðum loknum.
Alþýðubandalagsmenn á
Norðurlandi eystra eru á sama
báti og aðrir hvað þetta snertir,
en hyggjast bæta upp tapið af at-
kvæðaveiðunum með því að róa á
fiskimið nyrðra.
Félagamir hyggjast taka sig til
einhvern tíma í júlí og róa hver
sem betur getur á þeim bátum
sem tiltækir eru og í eigu stuðn-
ingsmanna, en afraksturinn verð-
ur síðan notaður til þess að borga
reikninga og hressa upp á fjár-
haginn.
Frá þessu var skýrt í Norður-
landi í vikunni, en þar fer engum
sögum af kvóta allaballa í kjör-
dæminu. ~Sg
Eyðni
Þrírí
viðbót
Alls 32 íslendingar sýktir
Á síðustu þrem mánuðum hafa
þrír bæst í hóp þeirra sem vitað er
um að sýktir eru af eyðni og eru
þeir nú alls 32. Tveir þeirra sýktu
eru hommar en sá þriðji hefur
notað sprautur við fíkniefna-
neyslu.
Landlæknisembættið gefur út
tölur um sýkta einstaklinga á
þriggja mánaða fresti, en síðustu
tölur birtust í mars s.l. Guðjón
Magnússon aðstoðarlandlæknir
sagði að veiran í tveim einstakl-
inganna, hommynum, hefði upp-
götvast þegar þeir leituðu lækn-
inga vegna sjúkdómseinkenna,
en veiran hjá fíkniefnaneytand-
anum fannst við reglubundna
mótefnamælingu þegar hann
lagðist inn á stofnun vegna
neyslunnar.
Um 4-500 manns hafa nú þegar
verið mótefnamældir, að blóð-
gjöfum frátöldum, en mánaðar-
lega berast um 4-500 sýni til rann-
sóknar.
- K.ÓI.
Bamingur fram yfir helgi
Deilt um ráðherraskipti, forystu, húsnœðismál
Enn er óljóst hvort þríflokkarn-
ir ná saman um stjórn eða
hvemig fer um forystu eða ráð-
herraskipti í slíkri stjórn.
Flokkarnir munu orðnir nokk-
uð sammála um tekjuöflun næstu
misseri með bifreiðaskatti, hert-
um söluskatti og kjarnfóðurs-
gjaldi meðal annars, en enn er
tekist á um húsnæðismál, og hafa
Alþýðuflokksmenn ekki komist
lengra hjá Sjálfstæðismönnum
um kaupleigumál en sem nemur
40-50 íbúðum.
Ráðherrar og ráðuneyti eru
enn deilumál flokkanna, og yirð-
ist yfirlýsing Þorsteins í fyrradag
um að hann gæfi forsætið frá sér
ekki hafa reynst sú lausn sem bú-
ist var við þarsem í staðinn eru
gerðar miklar kröfur til gildra
ráðuneyta.
Þótt verið sé að semja málefn-
asamning nýrrar stjórnar er tilurð
hennar enn svo óljós að bæði Al-
þýðuflokksmenn og Framsókn-
armenn hafa aðra kosti í bak-
höndinni, og spurðust Alþýðu-
flokksþingmenn til dæmis fyrir
um það síðari hluta viku hvernig
Alþýðubandalagið tæki í stuðn-
ing við hugsanlega minnihluta-
stjórn krata og Framsóknar.
-m
Laugardagur 27. júní 1987 136. tölublað 52. örgangur