Þjóðviljinn - 27.06.1987, Blaðsíða 11
_ ÖRFRÉTTIR hn
Mein Kampf
eftir Adolf Hitler kemur út á he-
bresku innan tíðar. Kennari einn í
ísrael sem kominn er á eftirlaun,
Dan Yaron, hefur annast þýðing-
una, en eins og kunnugt er varð
höfundurinn fyrir margt annað
frægari en ritstörf um sína daga.
Yaron segist hafa þýtt bókina af
greiðasemi við námsmenn og
sagnfræðinga sem kynna sér
sögu nasismans. Ekki kveöst
hann hafa notið mikils stuðnings
fyrir vikið meðal landa sinna,
heldur hafi margir orðið til að
sýna honum fullan fjandskap fyrir
þetta þýðingarstúss.
Karl Bretaprins
á í vændum vandaðan skófatn-
að. Verða skórnir sniðnir úr
hreindýraskinnum sem legið
hafa á hafsbotni í rúmlega tvö-
hundruð ár, en betra efni til þess
arna getur ekki. Skinnin voru um
borð ( danska farinu Karínu af
Flensborg, en skipið sem var á
leið frá Pétursborg til Genúu með
farminn fórst við Cornwall árið
1786. Karl Bretaprins er jafn-
framt greifi af Cornwall, og því er
hann löglegur eigandi skinn-
anna. Hreindýraskinn hafa
löngum þótt eitthvert vandaðasta
og besta hráefni sem völ er á til
skógerðar, og eru fyrir bragðið
afar eftirsótt.
Sovéskir rithöfundar
og blaðamenn ættu að skrifa
meira um líf venjulegs fólks í
Bandaríkjunum, segir ( síðasta
tölublaði vikuritsins Nedelya.
Segir í greininni að sovétborgar-
arfái nóg að lesa um atvinnuleysi
og glæpi í Bandaríkjunum, en
minna fari fyrir fréttum af hvers-
dagslegum atburðum. Við vitum
sáralítið um venjulega Banda-
ríkjamenn.
Allt í bál og brand
Borgir landsins loguðu í átökum milli mótmœlenda og óeirðalögreglu ígœrkveldi.
Kim Young-Sam handtekinn og Kim Dae-Jung settur í stofufangelsi á ný
ERLENDAR FRETTIR
Suður-Kórea
Námsmaður dreginn á brott af „óðum slagsmálahundum" Chuns forseta.
Snemma í gærmorgun
streymdu lögregluþjónar f
massavís að heimili Kims Dae-
Jungs og slógu hring um hýbýli
hans. Það var engum blöðum um
það að flctta; hann var á ný kom-
inn í stofufangelsi eftir 31 klukk-
ustundar frelsi.
Seinna um daginn var félagi
hans og vopnabróðir, Kim
Young-Sam, tekinn höndum af
sveinum Chuns forseta þar sem
hann var á leið til að taka þátt í
mikilli mótmælagöngu gegn ger-
ræði stjórnvalda. Honum var
ekið vítt og breitt um höfuðborg-
ina Seoul í lögreglubifreið áður
en honum var varpað út. Með
slæm meiðsl á handlegg.
Mótmælin fóru í fyrstu
friðsamlega fram en þegar húm-
aði að kveldi fór allt í bál og
brand. Mótmælendur slógust við
kylfusveina Chuns um alla Seoul
og beittu grjóti og heimatilbún-
um bensínsprengjum gegn tára-
gasi og bareflum andstæðingsins.
Gífurlegur mannfjöldi tók þátt
í átökunum og var það mjög
fjölskrúðugt lið enda námsmenn
ekki það margir í Suður-Kóreu
að sú kenning lögregluyfirvalda
fái staðist að þeir hafi verið í yfir-
gnæfandi meirihluta.
Táragasskýin voru hvarvetna
svo þykk að menn komu með
naumindum auga á nefbroddinn
á sér og berserksgangur rann
skjótt á lögreglumenn sem
spörkuðu, börðu og gripu hvern
þann sem í vegi þeirra varð. Það
er til marks um fjölda andófs-
manna að fljótlega réðu kylfu-
sveinarnir ekki neitt við neitt en
þeir voru að minnsta kosti 20 000
í miðborginni einni.
Hið sama var uppi á teningnum
í öðrum borgum. í suðurborginni
Pusan efndu um 10 000 manns til
mótmæla og í Kwangju áttu tveir
tugir þúsunda manna í höggi við
lögreglu.
Allsstaðar fleygðu lögreglu-
menn táragassprengjum út og
suður af minnsta tilefni. Fólk héll
vasaklútum að vitum sér eða kom
sér inní hús meðan mökkurinn
var þéttastur. Það er til marks um
áreiðanleika „upplýsinga" serr
yfirvöld láta frá sér fara að þau
skuli halda því fram að „lögregl-
an hafi forðast í lengstu lög a£
nota táragas en í örfáum tilfelluir
hafi það verið óhjákvæmilegt.“
Þegar átökum linnti seint í gær-
kveldi áttu fréttamenn fund mec
Kim Young-Sam. Hann kvaf
mótmælin hafa heppnast mec
ágætum því hundruð þúsunda al
mennra borgara hefðu hlýtt kall
og tekið undir kröfur stjórnar
andstöðunnar um lýðræði oj
frjálsar kosningar.
„Ég hef að undanförnu lag
hart að baráttufélögum mínum
námsmönnum og almennurr
borgurum, að grípa ekki til of
beldis. En í kvöld áttu þeir ekk
annars úrkosta en að verja hend
ur sínar þegar þessu óði
siagsmálahundar réðust á þá.“
-ks
Mannréttindasamtök í Argentínu
í lagi að myrða,
sértu dáti!
Hart veitst að Alfonsin forseta fyrir að gefa
borðalögðum morðingjum og kvölurum upp
sakir
Stefna Raouls Alfonsins forseta
í mannréttindamálum dó
drottni sínum á dögunum þegar í
gildi gengu lög sem gefa glæpa-
mönnum úr röðum hersins upp
sakir, mönnum sem gerðust sekir
um hryðjuverk á tímum „skítuga
stríðsins“ á valdaskeiði hersins
1976-1982.
Mannréttindasamtök í Argent-
ínu segja stjórnvöld hafa varpað
öllum siðferðilegum verðmætum
fyrir róða með setningu laganna
en samkvæmt þeim nægir það eitt
til sýknunar að dáti geti sýnt fram
á með rökum að hann hafi farið
að fyrirmælum hærra setts for-
ingja þegar hann gekk í skrokk á
fanga. Því eru lögin nefnd „vegna
fyrirmæla“ lögin.
Hinn heimsþekkti argentínski
rithöfundur, Emesto Sabato, er
formaður óháðrar nefndar sem
farið hefur ítarlega ofan í
saumana á blóði drifnum valda-
ferli herforingjanna. Skýrsia
nefndarinnar kom nýlega fyrir al-
menningssjónir og er þar rakin
óhugnanleg saga morða, pynd-
inga og mannrána.
Sabato verður þungur á brún
þegar talið berst að „vegna fyrir-
mæla“ lögunum. „Manni sem
hnuplar handtösku eða seðla-
veski er umsvifalaust og án misk-
unnar varpað í myrkraklefa en
menn sem kvelja náungann eru
friðhelgir! Mér finnst afar sorg-
legt að siðferðiskennd stjórn-
valda skuli vera jafn lítilfjörleg og
raun ber vitni.
í yfirlýsingu Mannréttindaráðs
Argentínu er tekið dýpra í árinni.
„Nú er kominn til sögunnar nýr
hópur manna sem nýtur löghelg-
aðra forréttinda: Menn sem geta
myrt og pyndað einsog hugurinn
girnist en sæta ekki refsingu
sökum þess að þeir skarta ein-
kennisbúningi."
Alfonsin var á sínum tíma
hlaðinn lofi um gervalla
heimsbyggðina þegar hann lýsti
því yfir að hryðjuverkamenn
herforingjastjórnarinnar yrðu
dregnir fyrir lög og rétt og látnir
sæta ábyrgð gerða sinna. Þegar
var hafist handa og fljótlega
kveðnir upp dómar í málum sjö
hershöfðingja en tveir þeirra,
Galtieri og Videla, höfðu um
skeið nefnt sig forseta Argentínu.
En fljótt fór kurr vaxandi með-
al lægra settra herforingja sem
kváðust aðeins hafa hlýtt skipun-
um yfirmanna og ekkert illt gert
að eigin frumkvæði. Því hlytu
þeir að vera stikkfri.
Gremja þeirra óx stig af stigi
uns uppúr sauð um páskana og til
uppreisnar kom í herbúðum
steinsnar frá höfuðborginni Bu-
enos Aires. Höfuðpaurarnir
kröfðust þess að hætt yrði þegar í
stað að rétta í málum kollega
sinna og þeim gefnar upp allar
sakir.
Engu er líkara en að Alfonsin
hafi óttast að herinn myndi rífa
völdin í sínar hendur ef hann
skellti skollaeyrum við kröfum
dátanna en svo mikið er víst að
hann söðlaði snarlega um, boð-
aði setningu laga um uppgjöf
Mæðurnar sem kenndar voru við Mayotorg I Buenos Aires halda á lofti myndum af fórnarlömbum herböðlanna.
Nú eru líf þeirra vegin og léttvæg fundin. Til haegri eru kampakátir argentínskir
liðsforingjar. Þú mátt myrða og pynda einsog þig lystir ef þú klæðist herskrúða!
saka sem gengu síðan í gildi sjö
vikum síðar.
Sem fyrr segir þurfa lægra sett-
ir foringjar í her og lögreglu ekk-
ert að óttast hafi þeir „aðeins"
myrt og kvalið fólk. En þeir eiga
sér ekki undankomu auðið ef þeir
hafa nauðgað konum, rænt börn-
um eða ruplað eigum fólks!!
Á undanförnum tveim vikum
hafa réttarþjónar verið önnum
kafnir við að strika út úr skrám
dómstóla nöfn 180 böðla c
mannræningja. Ennfremur ha
gengnir dómar verið ógildaðit
stórum stíl.
Aðstoðarmenntamálaráð-
herra Argentínu, Alfredo Brav
brást ókvæða við og sagði af s
þegar Miguel nokkur Etchec
latz, lögregluforingi á efti
launum, þrammaði út úr fange
á þriðjudaginn var eftir að ha
afplánað fáeina mánuði af þei
23 árum sem hann var fyrrum t
linn verðskulda.
Þegar „skítuga stríðið" sti
sem hæst hafði fundum þeii
borið saman í kjallaraholu í h<
uðborginni. „Það er Etchecoh
sem ber ábyrgð á þeim kvölc
sem ég leið í þá daga og mér
ómögulegt að láta sem mér star
á sama,“ segir Bravo.
En Étchecolatz er sem kc
drengur í kirkju í samanburði v
frægasta böðulinn sem löj
tryggja frið og frelsi. Alfrei
Astiz varð frægur að endemu
árið 1977 þegar uppvíst varð
það hafði verið hann sem pynta
og myrti sænska stúlku, Dagm
Hagelin að nafni, og tvær frans
ar nunnur.
Astiz kvað hafa verið eink
mikilvirkur glæpamaður og vii
ist fátt hafa látið sér fyrir brjó
brenna. Hann er enn liðsforinj
her Argentínu og mun aldi
verða gert að svara til saka fy
hryðjuverk sín.
Aðalheimild: REUTER
Laugardagur 27. júnl 1987 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA