Þjóðviljinn - 27.06.1987, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
_SPURNINGIN_
Keyrirðu í bílbelti og með
ökuljós?
Sveinn Ingason,
rennismiður:
Ég nota bílbeltin alltaf þegar ég
keyri úti á vegum og þegar ég
kem til Reykjavíkur, mérfinnst ég
ekki öruggur annars. Ljósin hef
ég alltaf á utanbæjar.
Kristín Pálsdóttir,
húsmóðir:
Ég spenni alltaf beltin, hvert sem
ég fer á bílnum, ég bara get ekki
keyrt Öðruvísi. Það er hins vegar
upp og ofan hvort ég er með Ijós-
in á.
Sigurður Jónsson,
bóndi:
Ég nota bílbeltin allt of lítið. Það er
sjálfsagt ágætt að nota þau, en
ég er alfarið á móti því að skylda
fólk til þess. En ég er að reyna að
venja mig á að nota Ijósin meira.
Lllja Arnardóttir,
hjúkrunarfræðingur:
Eg er alltaf með beltin, hef vanið
mig á það og það var ekki erfitt.
Ljósin nota ég hins vegar aðal-
lega á veturna og þegar aðstæð-
ur gefa tilefni til þess.
Helga Sigurðardóttir,
húsmóðir:
Ég geri nú ekki mikið af því að aka
með beltin, það er þá aðallega úti
á vegum. Én ég ek alltaf með full
Ijós.
Prestastefna íslands
Hjónabandið í hættu
Aðalumrœðuefni Prestastefnunnar: Hjónabandið íþjóðfélagi nútímans. Flutt voruþrjú
framsöguerindi um efnið og síðan skiptust prestar landsins í níu umrœðuhópa þar sem
samskipti manna og hjónabandið voru reifuð og rœdd. 1985 voruframkvœmdar 1252
hjónavígslur. Á sama ári voru skilnaðir543
Aðalefni Prestastefnu íslands,
sem haldin var í Borgarnesi í
vikunni og lauk í gær var Hjóna-
bandiö íþjóðfélagi nútímans. Þrjú
framsöguerindi voru flutt um
hjónabandið og síðan skiptust
prestar landsins í níu umræðu-
hópa þar sem efnið var rætt frá
ýmsum hliðum. Framsöguerindi
fluttu dr. Bjarni Sigurðsson um
félags-og lagalegar hliðar hjóna-
bandsins, sr. Arni Pálsson um
kirkju- og trúarlega þætti hjóna-
bandsins og sr. Sólveig Guð-
mundsdóttir um framtíð þess í nú-
tíma þjóðfélagi.
Að sögn sr. Bernharðs Guð-
mundssonar, blaðafulltrúa Þjóð-
kirkjunnar, heppnaðist Presta-
stefnan mjög vel og var það sam-
dóma álit þátttakenda að um-
ræðan um hjónabandið væri
mjög þörf í okkar samtíma þar
sem þróunin væri því miður í þá
átt að spyrna þyrfti við fótum ef
hjónabandið ætti að halda sinni
reisn í samfélagi nútímans; að því
væri sótt frá öllum hliðum í dag.
Nefndi Bernharður sem dæmi að
á árinu 1985 hefðu 1252 hjóna-
vígslur verið framkvæmdar en á
sama ári hefðu skilnaðir orðið
543, sem væri hættuleg þróun og
stefndi hjónabandinu sem horns-
teini þjóðfélagsins í hættu.
grh
Pólarlax
Jóhartn Geirsson
stöðvarstjóri: Vaxandi
áhugi erlendra aðila á
seiðum héðan
„Hann er byrjaður að stökkva
úti í Straumsvíkinni,“ sagði Jó-
hann Geirsson stöðvarstjóri hjá
Pólarlaxi þegar Þjóðviljinn for-
vitnaðist um það í gær hvort haf-
beitarlaxinn væri farinn að
ganga.
„Við höfum ekki fengið neitt
ennþá, en ég giska á að þeir fyrstu
skili sér á morgun,“ sagði Jó-
hann.
Aðspurður um seiðasölu sagði
Jóhann að þeir hjá Pólarlaxi væru
búnir að selja sín seiði, um
140.000 talsins. Mest í smáslump-
um, en þó hefði Hafeldi í Ólafs-
vík keypt mikið af seiðum.
Jóhann var spurður hvort
áhugi erlendra aðila á seiðum
héðan færi vaxandi, og sagði
hann svo vera. „Eftirspurnin er-
lendis frá hefur glæðst, enda
stefnum við inn á þann markað,“
sagði hann.
HS
Ágúst Hafberg: Með sýningunni viljum við fyrst og fremst kynna fjölbreytileika sænskra vara á íslandi. Mynd: Ari.
Sœnska vörusýningin
Bjór og bílarí Scaniahúsinu
Pappírsinnflutningurfrá Svíþjóð vegurþyngst. Því næst bílar og vélar
Idag er síðasti dagur sænsku
vörusýningarinnar í Scania-
húsinu við Skógarhlíð, en að sögn
Ágústs Hafberg framkvæmda-
stjóra Scaniaumboðsins hefur að-
sóknin að sýningunni verið með
ágætum.
„Með sýningunni erum við
fyrst og fremst að sýna þá vöru-
breidd sem hér á landi er í sæn-
skum vörum“, sagði Ágúst um
sýninguna.
Á sýningunni, sem var sett á fót
í tilefni af komu sænsku konungs-
hjónanna, kennir margra grasa.
Þarna ber fyrir augu bíla, vélar,
pappír, kristal og léttan bjór svo
eitthvað sé nefnt. „Konungur
hafði sérstaklega orð á því, að
hann hafði ekki gert sér grein
fyrir því hversu fjölbreytilegt
sænskt vöruúrval væri hér á
landi,“ sagði Ágúst, en konungs-
hjónin voru viðstödd opnun sýn-
ingarinnar á þriðjudag.
Að sögn Ágústs er uppistaðan í
innflutningi frá Svíþjóð að mestu
pappír og trévörur ýmisskonar og
því næst bflar og vélar.
Laxinn
að skila
Neytendasamtökin
Vilja reglur um auglýsingar
Samkeppnin á auglýsingamarkaðnum harðnar. Sífellt áleitnari og skrumkenndari
Neytendasamtökn hafa skorað
á stjórnvöld að setja nú þegar
reglur um auglýsingar í útvarpi, í
því skyni að vernda neytendur
fyrir óeðlilegum truflunum á
þeim dagskrárliðum, sem þeir
hafa kosið að fylgjast með. Einnig
verði óbeinar auglýsingar bann-
aðar. Þessum reglum verði einnig
ætlað að stuðla að því að auglýs-
ingar séu upplýsandi og veiti
sanna mynd af þeim vörum og
þjónustu sem í boði eru.
í samþykkt samtakanna segir
m.a. að í kjölfar nýrra útvarps-
laga hafi hljóðvarps- og sjón-
varpsrásum fjölgað um meira en
helming. Samkeppni um auglýs-
ingar hafi að sama skapi harðnað
og samfara því orðið mjög óæski-
leg þróun í birtingu hljóðvarps-
og sjónvarpsauglýsinga. „Þær
gerast sífellt áleitnari bg skrum-
kenndari ásamt því að dagskrár-
liðir eru slitnir sundur með birt-
ingu auglýsinga. Jafnframt hafa
óbeinar auglýsingar aukist og síf-
ellt verður erfiðara fyrir neytend-
ur að átta sig á hvað er auglýsing
og hvað eðlilegar upplýsingar.
Neytendasamtökin leggja
áherslu á að auglýsingar séu upp-
lýsandi og lausar við skrum.
Ég hefði helst viljað borð nálægt
eldhúsinnganginum, þarsem heyrast
uppþvottahljóð og köll, og helst við
gluggannútað umferöargötunni.
r^rv \
Komið Hvar?!
með mér. J
ir ?/ Bara
til öryggis.
Hann lætur mig aldrei fá
borðið sem ég bið um.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 27. júní 1987