Þjóðviljinn - 27.06.1987, Blaðsíða 9
Ráðhús í Reykjavík
Hin þriðjuverðlaunatillagan. Mjúkar bogalínur og húsið byggt beint út í vatnið þannig að ekki verður gengið meðfram því
sunnan megin nema inni í glerskála sem umlykur kringluna.
n 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. júni 1987
Laugardagur 27. júní 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Tillaga Guðmundar Jónssonar fékk önnur verðlaun. Blátt fjallið rís upp úr miðju húsinu, tignarlegt mótvægi við tum
Norræna hússins í Vatnsmýrinni.
Tillaga no. 7 eftir Sigurð Einarsson var ein af fjórum tillögum sem keypt var. Þorvaldur segir þessa tillögu minna á þýskt
sveitaþorp. Hér eru fjöldamörg form sett saman þannig að byggingin brotnar upp í minni einingar
fjall þar sem borgarstjórnarsalur-
inn er. Höfundurinn gerir ráð
fyrir að fjallið sé klætt með sama
efni og er á tuminum á Norræna
húsinu og myndi mótvægi í þá
átt.“
Fjölbreytilegar
hugmyndir
Aðra 3. verðlaunatillöguna, en
tvær tillögur fengu þau verðlaun,
þeirra Hróbjarts Hróbjartssonar,
Richhards Ólafs Briem, Sigríðar
Sigþórsdóttur og Sigurðar Björg-
úlfssonar segir Þorvaldur hafa
góða lausn á götuhorninu, húsið
sé inndregið á skemmtilegan hátt
frá götunum þannig að það standi
frjálst, og bogalínur byggingar-
innar geri hana netta í umhverf-
inu.
Hina, sem er eftir Hörð Harð-
arson, segir Þorvaldur heldur háa
og umfangsmikla en glæsilega og
samspil vatns og húss skemmti-
lega leyst. í þessari tillögu rennur
vatn í vinkil í gegnum húsið og
drýpur niður veggina inni, mikið
gler skapar Ijósspil í húsinu. Þor-
valdur segir þessa tillögu jafnvel
minna örlítið á Pompidousafnið í
París.
Þær fjórar tillögur að auki sem
keyptar vom hafa einnig margt til
síns ágætis en tilganginn með inn-
kaupum á tillögum segir Þorvald-
ur vera annars vegar að veita
viðurkenningu fyrir vel unna til-
lögu og hins vegar að úr þeim sé
hægt að nýta úrlausnir á einstök-
um atriðum ef vill í samráði við
arkitekta. „í heildina tekið eru
allar tillögurnar sem bárust á-
kaflega vandaðar og vel unnar,
og starf dómnefndarinnar því
feikilega erfitt. Ég gæti trúað að
þegar allt er talið hafi hátt í tvö
hundruð manns unnið að þessum
Rætt við Þorvald S. Þorvaldsson
um samkeppni um ráðhús
Reykjavíkur og tillögurnar sem
bárust í keppnina skoðaðar
Nýverið voru kunngjörð úrslit í
samkeppni Reykjavíkurborg-
arum ráðhús Reykjavíkurvið
norðvesturhorn Tjarnarinnar
og í tilefni af því sett upp sýn-
ing á tillögum sem bárust í
samkeppnina í andyri nýja
Borgarleikhússins. Af þeim
38 tillögum sem bárust í
keppnina voru fjórar verð-
launaðar en auk þess voru
aðrar fjórar keyptar og í þriðja
lagi fengu enn fjórar tillögur
viðurkenninguna „athyglis-
verðtillaga".
Þjóðviljanum þótti við hæfi að
kynna ofurlítið nokkrar þeirra til-
lagna sem bárust og því báðum
við Porvald S. Þorvaldsson for-
stöðumann borgarskipulags
Reykjavíkur og dómnefndar-
mann að ganga með okkur um
sýninguna og segja frá sam-
keppninni og nokkrum af þeim
tillögum sem bárust.
Stefnur
í húsagerðarllst
„Það er langt síðan hugmynd
um ráðhús við tjörnina kom til
umræðu fyrst. 1955 er síðan gerð
um það samþykkt í bæjarstjórn
Reykjavíkur og 1967 liggja fyrir
teikningar,“ segir Þorvaldur og
sýnir okkur Iíkanið af þeim en
það er líka á sýningunni. „Seinna
var fallið frá þessari hugmynd
enda er húsið allt of stórt til að
falla inn í tjarnarmyndina. í þess-
ari samkeppni núna var lögð
mikil áhersla á að ráðhúsið falli
vel að umhverfinu og það þýðir
að húsið má ekki vera mjög stórt
eða yfirþyrmandi.
í þeim tillögum sem bárust í
keppnina má segja að komi fram
allar heistu stefnur í húsagerðar-
list sem hafa verið áberandi und-
anfarið, bæði austan og vestan-
hafs. Þær segja að svokallaður
postmódernismi hafi verið ríkj-
andi upp á síðkastið og má hér sjá
ýmis afbrigði af honum. En þátt-
taka í svona samkeppni er geysi-
lega mikilvæg, bæði sem endur-
menntun og til að fylgjast með
því sem er að gerast í húsagerðar-
list. Þegar þetta stór samkeppni
er haldin og menn gefa sér tíma til
að skoða þær tillögur sem koma
fram má oftar en ekki sjá þess
merki síðar í húsagerð."
Tjörn og fjall
Þorvaldur fer með okkur að
líkaninu þar sem verðlaunatillaga
þeirra Margrétar Harðardóttur
og Steve Christer er. „Að mínu
mati er þessi hugmynd tímamóta-
verk,“ segir Þorvaldur. „Það eru
margar mjög vel gerðar hug-
myndir í þessari tillögu og sem
allra mest gert til þess að fólk
skynji húsið sem hluta af tjörn-
inni. Vatnið leikur grundvallar-
hlutverk og það má segja að hús-
ið standi úti í og ofan í tjörninni.“
Þorvaldur útskýrir hvemig
höfundar tillögunnar hafa hugsað
sér að gólfið í aðalhúsinu sé
nokkru lægra en vatnsborðið í
tjöminni þannig að þeir sem inni
em horfi beint út á vatnsborðið.
Einnig hvemig vatnið bæði skilur
að húsin tvö tengir þau saman og
hvemig höfundamir tengja ráð-
húsið og hornið framan við Iðnó
með brú sem liggur í lítinn boga
út yfir tjörnina.
„Þessi tillaga gerir ráð fyrir því
að borgarstjórnarsalurinn sé í
minna húsinu sem stendur
norðan megin. Aðeins tvær af til-
lögunum setja sal borgarstjórnar
norðan megin. Grunnhugmynd
flestra tillagnanna gerir ráð fyrir
eins konar vinkilhúsi Vonarstræt-
is og Tjamargötumegin þar sem
öll aðalskrifstofustarfsemi færi
fram, og láta salinn snúa út að
tjöminni. En þessar tvær tillögur
setja þetta fram á hinn veginn
þannig að fólkið sem vinnur í hús-
inu alla daga hefur útsýnið yfir
tjarnarsvæðið."
Við göngum að tillögu no. 3
eftir Guðmund Jónsson en sú til-
laga hlaut 2. verðlaun og Þor-
valdur segir þessa tillögu einnig
mjög skemmtilega. „Húsið sjálft
er ákaflega einfallt að allri gerð
en innan í því miðju rís stórt blátt
Tillaga no. 19 fékk önnur af tvennum þriðju verðlaunum. Glerbyggingar utan um húsið gera mögulegt að horfa sums
staðar alveg í gegnum húsið og mynda mikið Ijósspil inni í húsinu.
V
' »•: i
Þorvaldur S. Þorvaldsson forstöðumaður borgarskipulags og einn dómnefndarmanna við líkanið af fyrstuverðlaunatillögu Margrétar Harðardóttur og Steve Christer. A myndinni sést vel hvernig ráðhúsið skiptist í tvö
hús sem byggjast út í tjömina þannig að hornið við Vonarstræti og Tjarnargötu verður að tjörn. Á efri myndinni sést byggingin úr suðri. Súlunaröð eftir húsinu endilöngu gengur út í vatnið.
tillögum og teikningarnar eru
upp til hópa með afbrigðum
glæsilegar.“
Aðspurður um hvað taki nú við
segir Þorvaldur að ef ákveðið
verði að nota verðlaunatillöguna
sem hann geri allt eins ráð fyrir,
muni fljótlega verða hafist handa
við að byggja ráðhúsið. „Það stóð
til að gera við tjamarbakkana í
sumar því að þeir em allir að
hrynja eins og glögglega má sjá,
en því var frestað þar til þessi
samkeppni væri afstaðin vegna
þess að ráð var fyrir gert að í til-
lögunum fælist að einhverju leyti
frágangur norðurbakka tjarnar-
innar. Margar tillögurnar sýna
líka þetta svæði fullfrágengið í
samræmi við húsin á báðum
hornunum. Það hefði því verið
skaði ef búið hefði verið að gera
mikið við tjarnarbakkann sem
hefði kannske síðan verið í hróp-
andi ósamræmi við þá teikningu
sem ráðhúsið verður byggt eftir.
Það er gert ráð fyrir að ráðhús-
ið verði byggt í einum áfanga eftir
að verkið er hafið á annað borð.
Svæðið hér er svo viðkvæmt að
það má ekki teygja bygginguna
yfir of langan tíma og eins og er er
reiknað með að byggingin taki
um tvö ár. Byrjað verður að gera
bflastæðin sem eiga að vera undir
húsinu og þá þarf að loka af horn-
ið og tæma það á meðan og slíkt
verk verður að taka sem allra
stystan tíma hér í hjarta borgar-
innar."
„En ég hef enga trú á öðru en
að jafnvel þótt einhverjum þyki
þessi tillaga óvenjuleg og jafnvel
skrýtin núna, þá muni hún fara
vel í umhverfinu, ef eftir henni a
verður byggt, og borgarbúar
verða stoltir af ráðhúsi sínu þegar
fram líða stundir,“ sagði Þorvald-
ur að lokum.
-ing
Likan af gömlu ráðhústillögunni fyrir norðurenda tjamarinnar. Hér var gert ráð fyrir að Iðnó og Iðnaðarmannahúsið yrði
rifið og borgarleikhús yrði í enda lægri hluta byggingarinnar. Megum við ekki þakka forsjóninni?
Hús úti
í miðri
tjörn