Þjóðviljinn - 01.07.1987, Page 5
Þeir urðu öllu mannalegri þessir Víkingar þegar skipið nálgaðist Vestmanna-
eyjar.
Skin og
skúrir á
Tomma-
mótinu
Fjölmennasta mótið tilþessa. Um 700 manns í
heimsókn í Vestmannaeyjum. Allirsamtaka
um að láta mótið heppnast vel
Það orð hefur löngum farið af
Eyjamönnum að þeir séu duglegir
og framtakssamir og láti sér ekki
allt fyrir brjósti brenna ef því er
að skipta. Þannig hugsa eflaust
margir eftir heimkomuna frá
Vestmannaeyjum þar sem fjöl-
margar fjölskyldur af fasta
landinu áttu þess kost að fylgjast
með 4. Tommamótinu. Mótið er
knattspyrnumót fyrir yngsta
aldurshópinn þ.e. 6-10 ára og
koma krakkarnir af öllu landinu
ásamt fararstjórum og foreldrum
sem kjósa að fylgjast með börn-
um sínum og styðja þau af öllum
mætti.
Einstök samkoma
Einhver mótsgestur lét þau orð
falla að sennilega væri þetta
stærsta samkoma sinnar tegundar
ekki aðeins á öllu landinu heldur
þó víðar væri leitað. í nágranna-
löndum okkar er nefnilega víða
bannað að láta krakka á þessum
aldri keppa í fótbolta. En eins og
allir vita þá eru krakkarnir alltaf
að keppa hvar sem er. Úti á plani,
uppi á velli, inní garði og hvers
vegna má ekki skipuleggja heil-
mikið ævintýri fyrir stóran hóp
þeirra með svona samkomu eins
og þessari í Vestmannaeyjum?
A íslandi er litið á keppni sem
sjálfsagðan hlut og flestir taka
þátt til þess að standa sig en aðrir
láta sér það nægja að vera með
sem er ekki síður mikilvægt. Þessi
mikla samkoma í Eyjum bauð
lflca upp á fleira en fótbolta. Ann-
að væri ekki hægt. Mótshaldarar
gera sér nefnilega grein fyrir því
að mikilvægt er að láta krakkana
alltaf hafa eitthvað fyrir stafni.
Út í Eyjar
Átján hópar (25-30 manna)
víðs vegar af landinu söfnuðust
saman við lendingarstað Herjólfs
í Þorlákshöfn á miðvikudegi í síð-
ustu viku. Það var því handa-
gangur í öskjunni þegar um 450
krakkar eða hátt í 600 manns með
öllu fylgdarliði voru komnir um
borð í skipið.
Margir höfðu á orði að það
væri óþarfa áhætta að troða
öllum þessum fjölda í skipið.
Reglur um hámarksfjölda far-
þega um borð segja að einungis
360 manns megi taka í einni ferð.
Sjóferðin gekk vel þó fjölmargir
yrðu að láta sér það nægja að
Þrengslin voru mikil (Herjólfi en Stjömustríð á sjónvarpsskjánum hélt mörgum
uppteknum alla lelðína.
Týrarar fóru fyrir skrúðgöngunni frá Barnaskólanum niður á Hásteinsvöll og
gerðu það með glæslbrag.
standa uppréttir allan tímann og
ffla þá tilfinningu í botn að vera
eins og sfld í tunnu. Fararstjórar
og foreldrar höfðu í nógu að snú-
ast þó gott væri í sjóinn. Sumir
urðu aðvitað veikir eins og alltaf
þegar þeir átta sig á því þeir eru
ekkert annað en landkrabbar
sem eiga heima uppi á þurru
landi.
Kóngur og prinsar
Krökkunum fannst siglingin
heldur löng og það lyftist því
brúnin á þeim þegar hið fyrir-
heitna land litla fótboltamanns-
ins, Heimaey, reis úr hafi. Þegar
nær dró Eyjum flykktist skarinn
fram á dekkið og í innsiglingunni
í höfnina var hver einasta sála
uppi við. Eftirvænting og til-
hlökkun skein úr hverju andliti
og sjóveikin var löngu gleymd.
Þennan sama dag voru sænsku
konungshjónin í heimsókn í
Vestmannaeyjum og allir vita
hversu góðar móttökur þau fengu
þar. En þeim hefur örugglega
ekki verið fagnað með táknrænni
„fallbyssuskothríð" eins og litlu
fótboltamönnunum sem komu til
Eyja þennan dag.
Glœsileg
setningarhátíð
Eftir að hóparnir höfðu komið
sér fyrir í Barnaskólanum og hver
þeirra gert eina skólastofu að
herbúðum sínum, fóru krakkarn-
ir að svipast um og kanna um-
hverfið undir stjórn síns farar-
stjóra. Þegar allir höfðu snætt
hina gómsætu Tommaborgara
var farið í skrúðgöngu frá skólan-
um niður á Hásteinsvöll. Þar var
mótið sett með glæsibrag.
Skrúðgangan var glæsileg at-
höfn þar sem krakkarnir gengu í
fallegum röðum prýdd búningi
síns félags með fána og nafni
fremst í hópnum. Þeir öftustu í
röðinni heyrðu ekkert í lúðra-
blæstrinum sem var fremst í
göngunni. Þvílík var halarófan
sem sniglaðist í gegnum götur
bæjarins.
Hvellhettusprengjurnar
glumdu í Hánni og endurköstuð-
ust yfir þátttakendur svo þeir
vissu ekki hvaðan á þá stóð veðr-
ið þegar formaður íþróttafélags
Týs hafði sett 4. Tommamótið.
Þá sýndu eldgleypar listir sínar og
töframaðurinn með boltann, Ro-
bert Walters, gerði allt sem hugs-
m
Vandað
Traust
Varanlegt
Framararnir dúðuðu sig í teppin á þilfari Herjólfs enda ástæðulaust að mæta
kaldur til leiks.
Mlðvikudagur 1. júlf 1987 ÞJÓÐVIUINN - SlÐA 5
ASKRIFTARSIMI62 18 80