Þjóðviljinn - 05.07.1987, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 05.07.1987, Blaðsíða 19
SKÁK Enginn vinnur skák á því að gefa hana Einn skákviðburðurinn rekur annan. Skákáhugamenn fylgdust af athygli með mótinu í Moskvu þar sem þeir Jóhann Hjartarson og Margeir Péturs- son tefldu fyrir íslands hönd þg í nýbyrjuðum mánuði fara fram mót sem án efa eiga eftir þð halda mönnum við efnið. Skákþing Norðurlanda hefst |13. júlí í Færeyjum, Jóhann Hjartarson teflir á millisvæða- mótinu í Szirak í Ungverja- landi sem hefst 17. júlí og þeir Þröstur Þórhallsson og ný- þakaður heimsmeistari sveina, Hannes HlífarStef- ánsson, teflaá heimsmeistaramóti unglinga, ákipuðu skákmönnum yngri én 20 ára, í Manila á Filipps- eyjum. í Moskvu luku þeir Jóhann og Margeir keppni fyrir viku. Jó- hann náði ágætum árangri, hlaut IVi vinning af 13 mögulegum og lenti í 3.-5. sæti, en Margeir hlaut 5 Vz vinning og lenti í 11. sæti. Mótið var í 12. styrkleikaflokki en í slíkum mótum er stór- meistaraárangur uppá 8 vinn- inga. Lokaniðurstaðan varð ann- ars þessi: 1. Gurevic 8Vi v. 2. Romanishin 8 v. 3.-5. Jóhann Hjartarson, Malanjúk og Dol- matov IVi v. hver. 6. Lerner 7 v. 7.-8. Razuvajev og Lputian 6V2 v. hvor. 9.-10. Benjamín (Bandar.) og Geller 6. v. hvor. 11. Margeir Pétursson 5‘/2 v. 12.-13. Vasjúkov og Hodgson (Englandi) 5 v. hvor 14. Ioneschu (Rúmcníu) 4'/2 v. (Sovétmaður eða íslendingur nema annað sé tekið fram.) Mótið var eitt fjölmargra sem tengd eru minningu Októberbylt- ingarinnar. Sérstaklega eftirtekt- arvert var hversu styrkleika- og stigamunur keppenda var lítill og kom það greinilega fram í úrslit- unum, fjölmörgum skákum lauk með j afntefli þó alls ekki væri það fyrir skort á baráttuvilja, þvert á móti er að sjá á mótsskrá að hart hefur verið barist og þar má finna ágætar maraþonskákir. Margeir Pétursson tefldi lengstu skák mótsins, 130 leiki við Rasuvajev sem klúðraði hagstæðu drottn- ingarendatafli peði yfir og varð að gefast upp seint og um síðir. Razuvajev tefldi raunar aðra eins skák sem varð 123 leikir, en hún vannst. Jóhann tefldi frísklega enda nokkuð um liðið frá því hann tók síðast þátt í skákmóti. Margeiri voru hinsvegar mislagðar hend- ur, hann var um of kreddufastur í byrjanavali. Frammistaða hans getur þó talist sómasamleg miðað við hversu sterkt mótið var. Af vinningsskákum þeirra félaga sem urðu alls fimm var sigurskák Jóhanns einna best. Jóhann vann að auki Benjamin og Hodgson. Benjamin teygði sig of langt í jafnteflisstöðu en Hodgson mun hafa haft öðrum hnöppum að hneppa einmitt á því augnabliki er Jóhann lék unninni stöðu nið- ur í jafntefli: Hodgson - Jóhann Jóhann lék síðast 46. - Bd4-c3 sem er afar ónákvæmur leikur og við það gafst Hodgson upp! Rannsóknir á stöðunni leiða í ljós að með 47. Rb5! heldur hvítur jafntefli án teljandi erfiðleika. Verður aldrei nógsamlega brýnt fyrir mönnum að gefast ekki upp þótt á móti blási. Ég hef horft upp á menn leggja upp laupana þegar síst skyldi jafnvel í gjörunnum stöðum. Þetta eru yf- irleitt fremur seinheppnir skák- menn. Þekkt er viðureign þar sem teflendur gáfu skákina sam- tímis, annar vegna vonlausrar stöðu, hinn hafði slæm samviska nagað inn að hjartarótum; þegar mótstöðumaðurinn gekk örna sinna tók vinur vor aftur leik, sem gerbreytti stöðunni. Réttmæti þess sem Benóný kvað upp úr með hér um árið, að enginn vinn- ur skák á því að gefa hana, er óhrekjanlegt. Með sigri yfir Lerner í síðustu umferð í skák sem fylgir hér hefði Jóhann getað fagnað enn hærra sæti. Þá var heppnin honum ekki hliðholl í fyrstu umferð er yfir- burðastaða gegn Oleg Romanis- hin fór fyrir lítið. Reyndist það eina tapskák Jóhanns. HELGI ÓLAFSSON En hér kemur skákin úr síðustu umferð. Lerner er illa að sér í tískuafbrigði sjötta áratugarins sem Andrei Sokolov dustaði ryk- ið af í einvíginu við Jusupov á síðasta ári. Jóhann hafði haft af því nokkra reynslu í skák gegn Robert Byme á Reykjavíkur- mótinu 1982. Eftir örfáa leiki er Sovétmaðurinn kominn á vonar- völ, en hann verst klókindalega og vinningurinn reynist torsóttur. Vendipunkturinn er í 32. leik þegar Jóhann víxlar leikjum og verður að sætta sig við skiptan hlut átta leikjum síðar: Moskva 1987 Konstany Lerner Jóhann Hjartarson Nimzoindversk vöm 1. d4-Rf6 6. Rf3-c5 2. c4-e6 7. 0-0-Rc6 3. Rc3-BM 8. a3-Bxc3 4. e3-0-0 9. bxc3-Dc7 5. Bd3-d5 10. Dc2 (Fræðibækurnar mæla með 10. cxd5 exd5 11. Rh4 Re7 12. g3 með flókinni stöðubaráttu.) 10... Ra5 11. cxd5-exd5 12. Re5 (Ónákvæmni og nú þegar hrifsar svartur til sín frumkvæðið. Ridd- arinn er alveg úti á þekju á e5 enda hrekst hann þaðan fljót- lega. Betra er 12. Rd2 með u.þ.b. jöfnum möguleikum.) 12. .. c4 13. Be2-Re4! 14. Ha2-f6 15. Rf3-Rd6 16. a4-Bf5 17. Ddl-Re4 (Strategía svarts hefur heppn- ast fullkomlega en það em ýmis ljón á veginum við úrvinnsluna eins og í Ijós kemur.) 18. Bb2-Rb3 19. Rh4-Be6 20. f3 (Til greina kom 20. Bg4 með hugmyndinni 20. - f5 21. Bh3 o.s.frv. Beta er 20. - rd7 því svartur hagnast mjög á upp- skiptum á biskupum.) 20. .. Red2 21. Hel-g5 (Riddaratilfærslan gefur svört- um kost á að vinna lið. Það er spursmál hvort svartur hefði bet- ur treyst á stöðuyfirburði sína með hægfara aðgerðum. í raun og veru er þetta spurning um skákstíl. Jóhann spillir varla fyrir vinningsmöguleikum sínum með því að hirða skiptamuninn.) 22. Ba3-He8 27. Bcl-h3 23. Hxd2-Rxd2 28. g3-Dg6 24. Dxd2-gxh4 29. Df4-dxe4 25. e4-Dg7 30. fxe4-Bd5! 26. Bfl-b6 (Svartur hefur ávaxtað sitt pund vel og eftir þennan öfluga Ieik hljóta varnir hvíts að riðlast.) 31. He3-Hxe4 32. Dd6!? (Skákin er skrýtin skepna. Það er auðvelt að eyðileggja gott dagsverk með smæstu mistökum. Einmit á þessu augnabliki gerð- ust einkennilegir atburðir. Jó- hann hafði séð þessa stöðu fyrir og réttilega talið svartan til vinn- ings eftir hinn einfalda leik. 32. - Bf7. En þegar staðan kom upp á borðinu beit hann sig fast í að 32. - Df7 hefði verið hugmyndin, en þá á hvítur hið öfluga svar 33. Bxc4! sem gerbreytir gangi mála. Niðurstaðan varð því allt annar leikur.) 32. .. Df5? 33. Bxh3! (Nú bjargar Lerner sér.) 33. .. Dg5 34. Bg2-Hae8 35. h4-Df5 36. g4-De6 (Alls ekki 36. - Dxg4?? 37. Hg3! og hvítur vinnur.) 37. Dxe6-H8xe6 38. Bxe4-Hxe4 39. Hxe4-Bxe4 40. Bf4 - Jafntefli. Millisvœðamótið í Szirak Þann 17. júlí hefst í Szirak í Ungverjalandi eitt þriggja milli- svæðamótanna í skák. Jóhann Hjartarson vann sér réttindi til að taka þátt í þessu móti á svæðam- ótinu í Gausdal í ársbyrjun. Keppendur verða 18 talsins og fjórir þeirra komast beint áfram á áskorendamót og síðan fjórir ef- stu þaðan í útsláttareinvfgi um réttinn til að skora á heimsmeist- arann. í Szirak tefla eftirfarandi skákmenn: Ljubojevic (Júgúsla- víu), Portisch (Ungverjalandi), Andersson (Svíþjóð), Beljavskí (Sovétrfkjunum), Nunn (Eng- landi), Christiansen (Bandaríkj- unum), Benjamin (Bandríkjun- um), Jóhann Hjartarson, Salov (Sovétríkjunum), Adorjan (Ung- verjalandi), Marin (Rúmeniu), Bouaziz (Túnis), Allen (Kanada), Velimirovic (Júgóslavíu), Fiear (Englandi), Milos (Brasilíu), De Villa Garcia (Spáni), og Totoro- vic (Mónakó). Aðstoðarmaðúr Jóhanns verður Elvar Guð- mundsson. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN Nemar óskast í línumannsnám hjá Póst- og símanálastofnuninni Þessi námsbraut er ætluð þeim er starfa við símalagnir, tengingar og uppsetningar á síma- kerfum og við viðhald og viðgerðir á símatækium o.fl. Námið tekur 15 mánuði, bæði bóklegt nám og verkleg starfsþjálfun. Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnskólap- rófi. Umsóknir, ásamt heilbrigðisvottorði, sakavott- orði og prófskírteini eða staðfestu Ijósriti af því, skulu haf borist Póst- og símaskólanum fyrir 1. ágúst 1987. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Póst- og sím- askólanum, Sölvhólsgötu 11, Reykjavík, hjá dyr- avörðum Landssímahúss og Múlastöðvar og ennfremur á póst- og símstöðvum. Nánari upplýsingar eru veittar í Póst- og síma- skólanum, síma 91-26000. Skólastjóri Útboð Skálmarfjörður 1987 ''//V/Æ m Styrklng Vestfjarðavegar um Skálmarfjörð og frá- r gangur nýbgglngar t Vattarflrði. Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Helstu magntölur: Skering 1.000 m3, neðra burð- arlag 11.300 m3, mölburður 9,6 km, frágangur og jöfnun 35.000 mz. Verki skal lokið eigi síðar en 30. september 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísa- firði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 6. júlí 1987. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 20. júlí 1987. Vegamálastjóri Útboð X''/M \ f Siglufjarðarvegur, Gangnamunni - Ristarhlíð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 700 m, skeringar 7,100 m3, burðarlag 420 m3. Verki skal lokið 1. október 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 6. júlí 1987. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 20. júlí 1987. Vegamálastjóri Opið laugardag kl. 7-16 Laugalæk 2 — S: 686511 *

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.