Þjóðviljinn - 21.07.1987, Blaðsíða 1
Fundað í dag
Langreyðarkvótinn w
kláraður
Fundir Halldórs Ásgrímssonar
og sendinefndar hans við banda-
riska embættismenn í viðskipta-
ráðuneytinu um hvalamálið hefj-
ast í dag en í gær var enn óljóst um
fyrirkomulag eða fundafjölda.
Sendinefndin kom til Washing-
ton á laugardagskvöld en Halldór
sólarhring síðar.
Búið er að veiða allar 80 lang-
reyðamar sem koma átti á land í
Hvalfirði þetta sumarið, en engin
sandreyður hefur enn veiðst.
Sandreyðarkvótinn er 40 dýr.
Hvalveiðunum var formlega hætt
um miðnætti á sunnudagskvöld
og fer eftir Washington-viðræð-
unum hvenær og hvort hafist
verður handa á ný. -m
Eg vona að til kaupmáttarrýrn-
unar þurfi ekki að koma, en
svigrúmið er víða orðið býsna
þröngt, sagði Gunnar J. Friðriks-
son formaður Vinnuvcitenda-
sambandsins vegna nýrrar spár
Þjóðhagsstofnunar þar sem spáð
er versnandi efnahagshorfum á
næsta ári. Jafnframt er þar dreg-
ið í efa að áætlaðar aðhaldsað-
gerðir ríkisstjórnarinnar nái til-
ætluðum árangri.
Gunnar sagði að ef kaupmátt-
ur launa ætti að haldast yrði að
halda skynsamlega á málum
þannig að verðbólgan færi ekki
uppúr öllu valdi. Iþví fælist að
halda yrði raunverulegum launa-
hækkunum í skefjum enda væri
t.d. svigrúmið í fiskvinnslunni og
samkeppnisiðnaðinum mjög lítið
til launahækkana. Þá sagði
Gunnar að áherslu yrði að leggja
á aukinn sparnað. „Ef fólk notar
aukinn kaupmátt í eyðslu þá er
hætt við því að það verði erfitt að
viðhalda kaupmættinum.
En ef spamaður eykst þannig
að viðskiptahallinn verði enginn
að ráði þá gætu horfurnar verið
bjartari."
„Það er ljóst að í spá Þjóðhags-
stofnunar er gert ráð fýrir s<un-
drætti. Það er hins vegar ekkert
óvenjulegt að fá slíkan spádóm
frá Þjóðhagsstofnun þegar að
viðræður um nýja kjarasamninga
eru að hefjast. Stofnunin hefur
verið iðin við að spá svörtu þegar
að samningaviðræður hafa verið í
uppsiglingu,“ sagði Ásmundur
Stefánsson forseti ASÍ um spá
Þjóðhagsstofnunar. -K.OI.
Þriðjudagur 21. júlí 1987 156. tölublað 52. örgangur
Þjóðhagsstofnu n
Spáð í samningana
Ásmundur Stefánsson: Þjóðhagsstofnun iðin við að spá svörtu þegar samn-
ingaviðrœður eru í uppsiglingu. GunnarJ. Friðriksson: Vonaaðtil
kaupmáttarrýrnunar þurfi ekki að koma. Svigrúmið víða þröngt
Efnahagsaðgerðirnar
Horfið frá
vaxtahækkun
Ég vil sem minnst ræða þau
mál, en það er rétt það er verið að
íhuga möguleikann, sagði Jón
Baldvin Hannibalsson fjármála-
ráðherra aðspurður um það
hvort líkur væru á að fallið yrði
frá vaxtahækkun á ríkisskulda-
bréfum.
Eins og kunnugt er frestaði
ríkisstjórnin ákvörðun um vaxta-
hækkun af ríkisskuldabréfum
vegna óvissu um afleiðingarnar á
fjármagnsmarkaðnum. Verði
horfið frá vaxtahækkununum, er
fyrirsjáanlegt að ríkisstjómin
verði að auka hlut erlendrar lán-
töku í fjármögnun ríkissjóðshall-
ans og jafnvel einnig grípa til
aukinnar seðlaprentunar. Þessar
aðgerðir em hins vegar líklegar
til að auka enn á þenslu. Þá hefur
ríkisstjómin þann möguleika að
skylda banka til að kaupa ríkis-
víxla fyrir ákveðna upphæð.
-K.ÓI.
Fimm og hálfs metra ritaskrá, og gefur þó engan veginn mynd af æviverkinu öllu. Þeir Sverrir Tómasson og örnólfur
Thorsson afhenda Jakobi Benediktssyni forskot á afmælisritið í afmælishófinu í gær. (Mynd: E.ÓI)
Skák
Þrisvar jafnt hjá Jóhanni
Teflir við Christiansen í dag í Szirák. Short, Speelman og Sax áfram í
Júgóslavíu
Jóhann Hjartarson teflir við
Bandaríkjamanninn Christi-
ansen í dag á millisvæðamótinu í
Szirák rétt utanvið Búdapest í
Ungverjalandi. í gær var frídag-
ur, en eftir þrjár umferðir er Jó-
hann í 7.-9. sæti með IVi vinning.
Jóhann hefur gert þrefalt jafn- .
tefli, fyrst við Ungverjann Port-
isch, síðan við Englendinginn
Nunn og loks við Velimirovic frá
Júgóslavíu. Efstir eru nú Nunn,
Salof (Sovét) og Christiansen
með 2Vi vinning, þá Ljubojevic
(Júgó), Milos (Brasilíu), og
Benjamin (Bandaríkjunum) með
2 vinninga, og síðan Jóhann,
Portisch og Marin (Rúmeníu).
Hinn öflugi Sovétmaður Beljav-
skí hefur orðið að fresta tveimur
skákum vegna veikinda og setur
það nokkurt strik í stöðumatið.
Mótið er 17 umferðir og lýkur
10. ágúst.
Þrír komast áfram úr hverju
þriggja millisvæðamóta í áskor-
endakeppnina. Eitt mótanna er
enn óhafið en mótinu í Subotica í
Júgóslavíu er lokið, og komust
þaðan áfram Englendingarnir
Short og Speelman ásamt Ung-
verjanum Sax. Tal og Ribli komu
næstir.
Auk þessara nýju taka þátt í
áskorendamótinu einvígismenn-
irnir frá síðustu lotu, þeir Tim-
man, Júsúpof og Sókólof, og að
auki eiga mótshaldendur í Kana-
da rétt á að senda mann, og verð-
ur það Kevin Spraggett.
-m
Bara rita-
skráin
hálfur sjötti
metri
Jakob Benediktsson
hylltur í gœr á áttrœðisaf-
mœli sínu. Afmælisritið
Lœrdómslistir vœntan-
legt síðar
Igær var Jakob Benediktsson
fræðimaður og fyrrum Orða-
bókarstjóri áttræður og í því til-
efni hylltu hann vinir og sam-
starfsmenn í hófl í félagsheimili
Skagflrðinga.
Þar bar meðal annars til tíð-
inda að umsjónarmenn Lær-
dómslista, afmælisrits sem
geymir ýmsar ritgerðir Jakobs,
tilkynntu um hefðbundinn drátt á
prentun, en afhentu afmælis-
barninu í sárabætur prentsátur
með ritaskrá Jakobs, og er skráin
hálfur sjötti metri á lengd og
geymir 578 heiti á bókum, útgáf-
um og ritgerðum Jakobs frá 1934
til okkar tíma.
Jakob sagði í þakkarávarpi
sínu að hann væri nú svo gamall
sem á grönum mætti sjá, en hefði
aldrei séð svona langan lista á
svona litlu priki. Af þessu mætti
ætla að hann hefði verið haldinn
óstjórnlegri skrifáráttu, en í raun
væri þetta flest ritað til að losa sig
við ágang annarra.
-m
íþróttir
KR-ingar í
efsta sæti
Mikil spenna er nú komin í
keppni í 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Valsmenn gerðu í gær
jafntefli gegn Vfði, 1-1 og hleypir
það miklu fjöri í deildina.
KR-ingar eru nú í efsta sæti
með 19 stig og hagstæðara mark-
ahlutfall en Valsmenn, sem eru
einnig með 19 stig. Þór er svo í 3.
sæti með 18 stig.
Sjá nánar fþróttir bls. 9-12.