Þjóðviljinn - 22.07.1987, Síða 1

Þjóðviljinn - 22.07.1987, Síða 1
Miðvikudagur 22. júlí 1987 157. tölublað 52. árgangur Vextir Jóhanna andvíg hækkun Jóhanna Sigurðardóttir: Aðrar leiðir en hœkkun vaxta af spariskírteinum verðifarnar að hiýtur að verða skoðað hvort það sé rétt að fara þá leið að hækka vexti af spariskír- teinum ríkissjóðs. Sú leið til fjármögnunar ríkissjóðshallans er neyðarúrræði og það þarf að reyna að finna aðrar leiðir. Það er hins vegar ríkisstjórnin sem tekur ákvörðun um leiðina en ekki ég ein, sagði Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra, en allar líkur eru á að hækkun vaxta af spariskírteinum ríkis- sjóðs hafl áhrif til hækkunar vaxta af húsnæðislánum. í lögum um Húsnæðisstofnun er gert ráð fyrir að stofnunin semji við lífeyrissjóðina til tveggja ára í senn, en vegna óvissu um vaxtahækkanir á al- mennum fjármagnsmarkaði, munu lífeyrissjóðirnir, að sögn Hrafns Magnússonar fram- kvæmdastjóra SAL, óska eftir endurskoðun á samkomulaginu. Hrafn sagði að forsendurnar sem gengið hefði verið út frá þegar að samkomulagið var gert væru brostnar, en þá var gert ráð fyrir því að vextir á almennum fjár- magnsmarkaði myndu lækka. Húsnæðisstofnun hefur tekið ián frá Iífeyrissjóðunum á 6 1/2% vöxtum og lánað út með niður- greiddum vöxtum, eða 3,5%. Hækki vextir af spariskírteinum ríkissjóðs um 1-2% eins og rætt hefur verið um, er ljóst að líf- eyrissjóðirnir munu hækka sína vexti til Húsnæðisstofnunar. Mestar líkur eru á að sú hækkun muni leiða til hækkunar vaxta af húsnæðislánum, því svigrúmið til aukinnar niðurgreiðslu úr ríkis- sjóði og fjármögnun af eigin fé Húsnæðisstofnunar er lítið. Sé gert ráð fyrir 2% hækkun vaxta mun greiðslubyrði lántakenda aukast um 30%. Ákvörðun um vaxtamál ríkis- skuldabréfa verður væntanlega tekin á næsta ríkisstjórnarfundi sem verður næsta þriðjudag en fundur sem átti að vera í gær féll niður. Ljóst er að ríkisstjórnin mun eiga í miklum erfiðleikum með að ná samkomulagi um þá leið sem farin verður, en Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra hefur gefið til kynna að verið sé að íhuga möguleikann á því að fella vaxtahækkanir alfarið niður. Ólíklegt er þó að sú leiðin verði ofaná en fyrirsjáanlegt er að á næsta ríkisstjórnarfundi muni Jóhanna Sigurðardóttir leggja alla áherslu á að leitað verði annarra leiða til fjármögn- unar ríkissjóðshallans en með hækkun vaxta af spariskírteinum ríkissjóðs. - K.Ól. Náttúra Surtsey kólnar Fita Allí jafhhollt Rannsóknir benda til að plöntu- olíur séu manninum engu hliðhollari en dýrafíta, og raunar hvortveggja fítan jafnholl eða óholl, -óæskileg sé fyrst og fremst ofneysla tiltekinnar fæðutegund- ar. „Með öðrum orðum: allt er hollt í hófí og óhollt í óhófí,“ eins- og Ólafur Sigurðsson matvæla- fræðingur segir í grein í Þjóðvilj- anum f dag. Mettuð fita og kólesteról úr dýrafitu geta sem kunnugt er valdið hjarta- og æðasjúkdóm- um, en nýlegar rannsóknir benda til að ofneysla plöntufitu sé ekki síður skaðleg. „Það hlýtur því að teljast vafa- söm hegðan,“ segir Ólafur, „þeg- ar auglýsendur hefja herferðir með fullyrðingum um prósentu- tölur og holla fitu annarsvegar og óholla fitu hinsvegar, eins og önnur sé hættuleg einstaklingn- um en hin ekki.“ Sjá síðu 5 Blaut lending í Sursey. Eftir siglingu frá Heimaey með Sóma, báti Slysavarnafélagsins var síðasti spölurinn farinn í litlum gúmmibát. F.v. Bjami, Sveinn Jakobsson leiðangursstjóri og Jóhann Helgason toga bátinn upp f sandinn, meðan Helga Túlinfus stendur í viðbragðsstellingu í flæðarmálinu. A leið í land eru Ingvar f glæsilegu stökki frá borði, AnnaLísa serr.virðist hafamisstfótannaog lestina rekur Vilhjálmur Knudsen, kvikmyndatökumaður. Mynd: Arný Erla Sveinbjörnsdóttir. Níu manna leiðangur fór fyrir skömmu á vegum Jarð - fræðafélags íslands í stutta könn - unarferð í Surtsey undir forystu Sveins Jakobssonar, jarðfræð- ings. Ferðin var farin til að kanna aðstæður í Surtsey, en reglu- bundnar skoðunarferðir eru fam- ar í eyna til að fylgj ast meðal ann- ars með framvindu gróðurs í eynni, auk þess sem hiti er mæld- ur reglulega. Meðal þess sem markvert var í þessari stuttu ferð Jarðfræðafé - lagsins voru einmitt hitamæhng- arnar, en í fyrra mældist mesti hiti. Þetta mun stafa af því að innskot úr iðrum jarðar fara kólnandi en þessi mikli hiti mæl- ist vegna áhrifa þeirra. -ÖS Stór dagur í skákinni í gær, sigur á fjölmörgum vigstöðv- um íslenskra skákamanna er- lendis en hæst ber heimsmeistar- atitil Héðins Steingrímssonar í móti 10-12 ára í Puerto Rico, en hann vann í gær síðustu skák sína gegn Venesúela-manni og stóð uppi sigurvegari með 9 vinninga af 10 mögulegum. Héðinn er fæddur 1975, og hef- ur áður unnið sér Norðurlanda- meistaratitla í sínum flokki og staðið sig vel bæði á skólaskák- mótum og í almennri keppni. Hann er sonur Steingríms Bald- urssonar prófessors og Fríðu Ás- björnsdóttur, sem fylgdi syni sín- um utan. -m Héðinn vann í síðustu umferðinni Hvalaviðrœðurnar Aftur í dag Verjast allra frétta Viðræður íslenskra og banda- rískra stjórnvalda um hval- veiðar íslendinga hófust í Was- hington kl. 9 í gærmorgun að staðartíma, og verður haldið áfram á sama tíma í dag. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra átti viðræður við aðstoðar- ráðherrann Edward Derwinsky síðdegis I gær, en auk þess rædd- ust vísindamenn við. Árni Kolbeinsson ráðuneytis- stjóri í sjávarútvegsráðuneyting og einn íslensku nefndarmann- anna varðist allra frétta af við- ræðunum í gær. Ámi sagði þessar viðræður hafa verið hreinskilnar, en vildi ekki tjá sig um efni þeirra. -gg Skák Héðinn heimsmeistari

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.