Þjóðviljinn - 16.08.1987, Page 2

Þjóðviljinn - 16.08.1987, Page 2
FLOSI \iiku skammtur ◦f súpukúr Nú er hún komin meö mig í „súpukúr". Ég er svosem ekkert að segja aö henni gangi annað en gott eitt til, nei nei. En þó er þaö nú einhvernveginn svo að manni finnst aö þaö ætti að vera einhverjum takmörkunum háð hvaö á mann er lagt. Auðvitað hefur það lengi legið í loftinu að ég væri ekki lengur hár og grannur og vissulega er það mín stærsta sorg í lífinu að vera ekki ein- hvernveginn svona einsog Clint Eastwood í laginu. En þegar ég verð framúr hófi hnugginn yfir því að vera ekki langur og mjór, heldur stutt- ur og feitur, þá slævi ég oft mesta sársaukann með því að hugsa sem svo: - Eg er þó ekki sköllóttur, eða að norðan. Það dró semsagt til tíðinda milli rekkjuvoð- anna heima hjá mér í fyrragærmorgun, þegar konan mín hnippti óþyrmilega í mig fyrir allar aldir og skipaði mér að hlusta á morgunútvarp- ið. Þar var verið að segja frá því að hrotur væru ekki hrotur, heldur sjúkdómur, sjúkdómur sem stafaði af því að menn hefðu ekki „kjörholda- far“. - Hrotur, sagði sérfræðingurinn í útvarpinu, geta valdið kransæðasjúkdómum, krampa og köfnun. Sá sem hrýtur hvílist ekki og verður þess vegna taugaveiklaður og af taugaveiklun- inni geta hlotist alvarlegir magakvillar sem síðar leiða til krabba í maga og meltingarfærum og síðast til dauða. Og svo hélt útvarpssérfræðingurinn áfram: - Við hrotum er þjóðráð að fara í megrun, eða sofa með sérhannaðan tréþríhyrning á bakinu. Slíkur þríhyrningur er semsagt girtur á bakið á hrjótandanum áður en hann fer að sofa, með þeim afleiðingum að honum er fyrirmunað að sofa á bakinu og lífi hans er borgið. Nú fékk ég ótímabæran hjartslátt og hugsaði sem svo: - Allt frekar en megrun. Svo sagði ég: Getum við ekki fengið lánaðan klifberann sem hangir uppi á vegg hjá henni Halldóru frænku þinni? Halldóra frænka konunnar minnar er - ef ein- hver skyldi ekki vita það- afar þjóðleg og safnar antikmunum íslenskum. En einhvern veginn virtist mér konan fráhverf hugmyndinni og ætti þó ekki að vera nein frá- gangssök að sofa hjá manni með klifbera á bakinu ef um lífið er að tefla. Og nú kom það sem ég hafði raunar undir niðri óttast: - Ég ætla ekki að láta þig komast upp með að seigdrepa þig á einhverju fitusvalli. Þú léttir þig um tíu kíló, hættir að hrjóta, verður einsog manneskja í laginu og bjargar lífi þínu. Nú, ég get svosem ósköp vel skilið að konum sé annt um fyrirvinnuna á meðan hún lafir hérnamegin og getur talist vinnufær, svo ég sagði blíðlega: Þat var ok. í gær hófst svo súpukúrinn. Súpan sem er uppistaðan í súpukúrnum er mestanpart vatn sem undir engum kringum- stæðum má setja salt útí á meðan verið er að sjóða. Útí þetta ósalta vatn eru svo settir að- skiljanlegirkálhausar, púrrur, rætur, rófur, næp- ur og annað skepnufóður, jafnvel arfi, er mér nær að halda, og eru nöfnin á þessu grænmeti jafn mörg og tegundirnar eru margar. Þetta er svo semsagt soðið og svo er það væntanlega étið, án þess að saltkorn hafi komið í soðninguna. Ekki er það gott maður. Og auðvitað er það mergurinn málsins. Að hafa bara á boðstólum, fyrir þann sem þarf að hora, eitthvað sem hann kemur ekki niður, þó hann sé að verða hungurmorða. Það var semsagt við hádegisverðarborðið í gær, að ég sat með svona súpu fyrir framan mig og tók svo til orða: - Manstu, kona góð, hvernig var hérumbil komið fyrir Twiggy, þegar hún tók uppá því að fara í megrun. Hún var hérumbil dauð. Og þegar konan mín svaraði þessu ekki, heldur leit á mig einsog væri ég einhver afglapi, bætti ég við: - GrímurThomsen hafði alltaf helmingi þykk- ara smérlag á brauðinu sínu heldur en þykktin á brauðinu var. Enda var hann gott skáld. Þá svaraði hún, og mér fannst það allt annað en elskulegt: Þú heldur kannski að það sé ráðið að hest- húsa heilt smjörstykki á dag til að geta klambrað saman ferskeytlu. Ég hirti ekki um að svara þessu, en greip DV og fór að lesa grein undir yfirskriftinni: STÓLPÍPUFARALDURINN í þessari grein segir Katrín nokkur lík- amsræktarþjálfari og fegurðardrottning - ef marka má myndina af henni - frá því hvað un- aðslegt það sé að taka stólpípu og fasta með því. Og af því að ég er nú alltaf svo dæmalaust fyndinn og skemmtilegur heimahjá mér, sagði ég sem svo við konuna mína: - Nú þá getur sextíuogáttakynslóðin kannski farið að leggja frá sér hasspípuna og skipt um tegund. En hún svaraði engu og hélt áfram að borða súpuna með velþóknun. Svo ég hélt áfram að lesa Dagblaðið Vísi þar sem fegurðardrottning (slands segir að sér hafi aldrei liðið betur en þegar hún var að hreinsa sig út með aðstoð stólpípunnar, en dásemdunum lýsir líkamsræktarþjálfarinn þannig, orðrétt: - Þetta hreinsunarstarf segir til sín með eftirtöldum dæmigerðum einkennum við föstu: andfýlu, dökku þvagi, stöðugum og miklum niðurgangi úr ristlinum með hjálp stólpípu, útbrotum, miklum svita og slím- uppgangi. Og ég hugsaði sem svo: Það getur þá komið að því að fegurðardrottn- ingar hætti að vera girnilegar. Að minnsta kosti vildi ég ekki vakna hjá feg- urðardrottningu í svona megrun. En þetta sagði ég ekki upphátt þarna við mat- borðið heimahjá mér. „Gott og vel... Reynið að slappa af og svo reynum við þetta einu sinni í viöbót''

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.