Þjóðviljinn - 16.08.1987, Síða 9
Móloferii gegn smit-
berum kynsjúkdóma
Þaö hefur færst mjög í vöxt í
Bandaríkjunum á undanförn-
um misserum að þeir sem
hafa smitast af herpes, væg-
um en ólæknandi kynsjúk-
dómi, hafastefntfyrrverandi
eiginmanni eða ástmanni -
oftasteru það konursem
kæra. Fyrir að þeir hafi vitað
af sjúkdómnum en ekki sagt
rekkjunaut sínum frá honum.
Herpes er mjög útbreiddur
orðinn og er talið að um tuttugu
miljónir Bandaríkjamanna megi
þola einhver óþægindi hans
vegna.
Talið er að dómur sem ekki alls
fyrir löngu féll í New York muni
hafa veruleg áhrif sem fordæmi í
slíkum málum. Kona á sextugs-
aldri stefndi fyrrverandi eigin-
manni sínum fyrir að ganga með
herpes og láta hana ekki vita -
með fyrirsjáanlegum afleiðing-
um. Þau hjón voru gift í þrjátíu ár <
áður en þau skildu árið 1984 og
nú krefst eiginkonan skaðabóta
upp á 2,5 miljónir dollara. En
eins og fyrri daginn fara slík
málaferli fyrst af stað í þeim höp-
um samfélagsins þar sem um háar
fjárhæðir getur verið að tefla -
eiginmaðurinn var reyndar
eigandi stöndugs fyrirtækis.
Níutíu miljónir,
hundrað miljónir
Annað mál sem blöð hafa gert
sér mikinn mat úr varðar ákæru
ungrar konu og sellóleikara,
Lindu Feldman, á hendur sex-
tugum söngvara, Tony Bennett.
Linda Feldman heimtar níutíu
miljónir dollara í skaðabætur
fyrir að söngvarinn smitaði hana
meðan á stóð átta mánaða sam-
bandi þeirra árið 1985. Hún segir
að eftir að hún varð vör við
krankleika þennan hafi Tony
Bennett sagt sem svo: „Ég hefi
gengið með þetta árum saman.
Maður venst þessu. Þetta er bar-
asta aðferð guðs við að láta kyn-
lífið hvfla sig." Tony Bennett hef-
ur hinsvegar lagt fram læknisvott-
orð um að hann sé ekki haldinn
herpes og hefur nú gagnstefnt
Lindu Feldman um 100 miljón
dollara skaðabætur fyrir æru-
meiðingar.
f sumum tilvikum hefur trygg-
ingafélag sökudólgsins orðið að
taka að sér greiðslu skaðabóta.
Tryggingafélögin eru ekkert
hrifin af því að lenda í beðmálum
þessum og eru að koma sér út úr
þeim með breytingum á trygging-
asamningum.
Og eyðni líka
Herpesmálaferlin geta og
dregið dilk á eftir sér að því er
varðar þá er smitast af eyðni. Þar
gerast málaferli þó öllu flóknari
vegna þess, að mjög langur tími
(að meðaltali fjögur ár) líða frá
því að menn taka veiruna skelfi-
legu og þar til sjúkdómurinn gerir
varf við sig í alvöru. Meðan herp-
es grassérar á tveim vikum eða
jafnvel skemmri tíma.
Eitt slíkt mál er orðið talsverð-
ur blaðamatur. Marc nokkur
Christian hefur stefnt dánarbúi
fyrrum elskhuga síns, leikarans
Rocks Hudsons, um ellefu milj-
ónir dollara fyrir að leikarinn sál-
ugi hafi ekki sagt honum frá því
að hann gengi með eyðni. Hann
hefur sjálfur ekki fengið einkenni
eyðni, ekki enn að minnsta kosti,
en hann kveðst þurfa að bæta sér
það upp að hann lifi í stöðugum
ótta við sjúkdóminn.
áb tók saman.
ísafjarðar-
kaupstaður
Laus er til umsóknar staða félagsmálastjóra hjá
ísafjarðarkaupstað. Æskileg menntun félags-
fræði, félagsráðgjöf eða sambærileg menntun.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður og bæjar-
stjórinn á ísafirði á bæjarskrifstofunum, Austur-
vegi 2, Isafirði eða í síma 94-3722.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst nk.
Félagsmálastjórinn á ísafirði
Rekstrarstjóri
Staða forstöðumanns stjórnunarsviðs (rekstrar-
stjóra) við embætti ríkisskattstjóra er hér með
auglýst laus til umsóknar. Meðal verkefna eru
fjármál, starfsmannamál og almenn skipulags-
mál. Háskólamenntun er áskilin og æskilegt er
að umsækjandi hafi nokkra reynslu í stjórnunar-
störfum.
Umsóknir, þar sem fram koma upplýsingar um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist ríkisskatt-
stjóra, Skúlagötu 57, 150 Reykjavík.
Ríkisskattstjóri
Staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra
óskar eftir að ráða starfsmenn í eftir-
greindar stöður:
1. Stöðu fulltrúa við fræðslu- og upplýsinga-
störf.
2. Stöðu lögfræðings.
3. Stöðu kerfisfræðings/tölvunarfræðings.
Um er að ræða áhugaverð störf sem gera veru-
legar kröfur til skipulegra vinnubragða við fram-
kvæmd staðgreiðslu opinberra gjalda.
Frekari upplýsingar veitir Skúli Eggert Þórðar-
son, forstöðumaður staðgreiðsludeildar, í síma
623300.
Umsóknir, þar sem fram koma upplýsingar um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist stað-
greiðsludeild ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,
Reykjavík.
Ríkisskattstjóri
Maður sem
enginn viil hafa
Guömundur G. Þórarins-
son, sá sami og einusinni
vann hjá Þýsk-íslenska, er af-
skaplega ánægður þessa
dagana. Sakadómur Reykja-
víkur komst nefnilega að því
fyrir nokkru að æra Guð-
mundar er um það bil 100
þúsund króna virðL sem var
mun hærri upphæo en Guð-
mundur hafði haldið áður.
Þetta jákvæða mat borgar-
dóms hefur orðið til þess að
þingmanninum hleypur kapp í
kinn og er nú farinn í heilagt
stríð gegn íslenskum blaða-
mönnum. í DV um daginn
sagðist hann mundu beita sér
gegn blaðamönnum á þingi,
enda hafi hann heyrt þá sögu
„að í stétt blaðamanna hefðu
þyrpst menn sem hvergi
fengju vinnu annars staðar,
ekkert gætu og enginn vildi
hafa. Blaðamenn vildu þeir
vera vegna þess að til þess
þyrfti enga menntun og þar
bæru þeir enga ábyrgð á því
sem þeir gerðu en gætu vegið
úr launsátri að ýmsum
mönnum í þjóðfélaginu."
Helgarpósturinn spurði Guð-
mund G. útí þetta í viðtali,
hvort þetta væri ekki atvinnu-
rógur eða níð, en Guðmundur
svaraði með því að hann sé
bara að segja að hann hafi
heyrt þessa sögu.
Skrítið. Sú saga hefur ein-
mitt heyrst alveg nýlega að í
hóp þingmanna hafi þyrpst
menn sem hvergi fá vinnu
annarstaðar, nema þá hjá
vafasömum innflutningsfyrir-
tækjum, menn sem ekkert
geta og enginn vill hafa. Þing-
menn vilji þeir vera vegna
þess að til þess þarf enga
menntun og þar beri menn
enga ábyrgð á því sem þeir
gera en geta vegið leynt og
Ijóst að ýmsum mönnum í
samfélaginu. Þessi saga er
örugglega röng. Hún á að
minnsta kosti ekki við um kjör-
dæmin utan Reykjavíkur og
hún á ekki við um þingmenn
úr öðrum flokkum en
Framsókn.B
ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Sunnudagur 16.
n.k. verður farin 3ja vikna ferð
til Grikklands.
Norðurhlutinn, sem verður skoðaður að þessu
sinni, er frábrugðinn suðurlandinu að mörgu
leyti og býður upp á annarskonar tækifæri til að
kynnast Grikklandi.
Undir traustri fararstjórn Kristjáns Arnasonar
háskólakennara kynnumst við og skoðum m.a.
Ferdaskritstotan
faiandi
Vesturgötu 5. Reykjavík
® 62 24 20