Þjóðviljinn - 16.08.1987, Side 14

Þjóðviljinn - 16.08.1987, Side 14
Jón Samúelsson strœtisvagnabflstjóri lœtur af störfum eftir samfelldan akstur í 40 ór Sá sem ferðast hefur með leið 3 kvölds og morgna í sjö ár mætti vera meira en lítill rati ef hann þekkti ekki orðið vargnstjórana í sjón. En held- ur ekki meira því það er bann- að að tala við þá umfram ýtr- ustu nauðsyn þegar þeir sitja undir stýri og blaðamenn eru, einsog allirvita, löghlýðið fólk. Þegar svo var greint frá því hér í blaðinu fyrir nokkrum dögum að einn af vagnstjórunum á leið 3 væri að láta af störfum eftir 40 ára samfelldan akstur - og jafnframt birt af honum mynd þar sem hann stóð við „færleikinn” - þá kann- aðist ég óðar við manninn. Hann reyndist vera einn þeirra vagn- stjóra sem hafði séð til þess að ég kæmist með greiðu móti í vinnu og úr. Líklega er það næsta fátítt að menn endist svo lengi í eril- sömu starfi. Þessi þrautseigi maður heitir Jón og er Samúelsson. Og þegar Jón leit hér inn á blaðið skömmu eftir að hann var farinn að „eiga með sig sjálfur” greip blaðamað- ur tækifærið og lagði fyrir hann nokkrar spurningar sem var greiðlega svarað. Fœddur í Hanshúsi Jón Samúelsson varfyrstaðþví spurður hvort hann vœri borinn og barnfœddur Reykvíkingur. Ó-já, svaraði Jón, - ég er fædd- ur frostaveturinn 1918, raunar í apríl, í Hanshúsi sem svo var nefnt, hérna á Skólavörðuholt- inu. Og hér hef ég alið allan minn aldur. Hanshús var kennt við Hans heitinn póst. Faðir minn var það sem kallað var keyrari en það voru menn sem stunduðu akstur á hestvögnum. Slíkir menn voru eins konar „forfeður” vörubflstjóranna. Pabbi stundaði mikið akstur fyrir þá Hans póst og Gest í Reykjahlíð. Svo ók hann ís af tjörninni og í íshúsin. En ég naut föður míns ekki lengi við. Hann dó úr blóðeitrun þegar ég var fjögurra ára. Fékk einhverja skeinu á hálsinn og í hana komst eitrun. Þá var pensill- inið ekki komið til sögunnar. Hann var þá enn á góðum aldri, 35 ára. Já, þannig var nú það. Þetta var nú gangurinn - Og hvað tók þá við? Nú voru tryggingarnar ekki komnar til þess að létta undir með þeim sem urðu fyrir svona áföllum. - Heimilið sundraðist. Við vor- um þrír bræðurnir. Mamma basl- aði áfram með mig. Einar fór suður í Voga og Sveinn í Hafnar- fjörð. Þetta voru eiginlega hrepp- aflutningar. Einar var fæddur á Stóru-Vatnsleysu og var því flutt- ur á sína sveit. Ég byrjaði auðvitað strax og ég gat að reyna að létta undir með móður minni. Fór að bera út og selja blöð og var jafnframt sendi- sveinn. Þetta var nú gangurinn á þeim árum hjá krökkum sem voru líkt settir og ég. Auðvitað gaf þetta ekki mikið af sér en var þó betra en ekki og kom sér vel. Maður hafði varla tíma til að stunda nokkurt nám. Það var bara skyldunámið, frá 10-14 ára aldri minnir mig. Þegar svo að því kom að maður taldi sig upp úr því vaxinn að selja blöð þá var bara tekin sú vinna sem til féll og þar var nú ekki alltaf að miklu að hverfa, á árun- um fyrir stríðið. Eitt árið byggð- um við bræðurnir hús vestur á Nesi. Um skeið var ég til sjós, á snurvoð. Dálítið fékkst ég við að beita línu. Sömuleiðis að fletja fisk og salta. Maður hefur nú svo sem prófað sitt af hverju. Á gamla Ford - Hvenœr tókstu svo bílbróf? - Það tók ég árið 1941. En þá voru ekki til nein skírteini og ég fékk það ekki fyrr en 2. febrúar 1942. - Kom það sér ekki illa? - O-nei, ég gekk bara með mína pappíra í vasanum og þeir urðu ekki vefengdir þótt skírtein- ið vantaði. Þetta var nú ekki orð- ið eins strangt og nú, færri bílar, minni umferð og allt auðveldara. Svo keypti ég mér Ford- vörubfl árgerð 1931 og byrjaði að aka honum. Síðan kom herinn og ég ók fyrir hann því þá var næg atvinna fyrir vörubflstjóra. Þetta var nú svona alls konar snatt bæði hér í bænum og nágrenninu. Stundum var ég sendur með alls konar dót suður í Keflavík, á Pattersonsflugvöllinn sem svo var nefndur. Og svo voru það snúningar með verkstjórana sitt á hvað. Vörubflarnir þá voru nú engir stólpagripir, þetta eitt og hálft tonn. Síðar eignaðist ég svo annan vörubfl sem átti að bera tvö og hálft tonn. Á slíka bíla var stund- um hrúgað einum fjórum tonnum en þá hafði grindin í þeim verið styrkt. Meðal þess sem ég fékkst við var að flytja rauðamöl ofan úr Rauðhólum og niður á flugvöll. Þá fór hlassþunginn alveg eftir veðrinu. Það var ákveðið magn sett á bílinn og þegar mölin blotn- aði í rigningu þá var hlassið auðvitað miklu þyngra. Þegar svo herinn fór kom ansi mikil lægð í vinnuna hjá vörubíl- stjórum. Mátti heita að hún dytti alveg niður yfir veturinn. Ég seldi því vörubílinn og í framhaldi af því tók ég svo meira bílprófið svokallaða 1944. Það veitti mér réttindi til að aka leigubflum, rút- ubflum og svo til að kenna á bfl. En ég hafði engan áhuga á að stunda leigubílaakstur þótt mér stæði það til boða. Leið svo og beið að ég gekk bara með meiraprófsskírteinið í vasanum. Vertíð sem stóð í 40 dr - Hvencer byrjaðirðu svo hjá Strœtisvögnunum? - Ja, það var nú fyrir réttum 40 árum eins og þið sögðuð hjá Þjóðviljanum. Ég byrjaði þar árið 1947. Til að byrja með var ég á næturvakt sem m.a. var fólgin í því að þvo bflana, setja á þá olíu og búa þá þannig undir akstur næsta dag. Þannig byrjuðu allir bílstjórarnir. Og þannig gekk þetta í rúman mánuð áður en ég settist alfarið undir stýri, en hafði þó raunar gripið í aksturinn ef einhver vagnstjórinn var forfall- aður. - Hvar höfðuð þið aðstöðu fyrir vagnana þegar þeir voru ekki í akstri? - Hún var á Kirkjusandinum svo sem hún er enn og hefur alla tíð verið síðan borgin tók við rekstri strætisvagnanna, en það var að mig minnir 1944. - Síðan borgin tók við rekstrin- um segirðu, hverjir höfðu hann með höndum áður? - Það var hlutafélag sem nefndist Strætisvagnar Reykja- víkur hf. Það mun hafa varið stofnað af Ólafi Þorgrímssyni, Agli Vilhjálmssyni o.fl. Það var með vagnana á Snorrabraut 22, að mig minnir. Húsnæðið var svo „flott” að hægt var að aka bflun- um upp á loft. Þá voru vagnarnir geymdir inni á nóttunni en þeir voru nú líka ansi mikið færri og minni þá en nú. Það þyrfti ærið mikið húsrými til þess að geta hýst alla vagnana núna þegar þeir eru þá líka orðnir 12,5 m á lengd eins og sá sem ég var með nú síðast. - Og úr því að við erum að tala um vagnana, hafa ekki orðið miklar breytingar á þeim síðan þú byrjaðir aðrar en stækkunin? - Jú, mikil ósköp. Til að byrja með voru í notkun einar 10 teg- undir af vögnum. Það var fengið svo mikið af þeim frá hernum þegar hann fór. Það voru sífelld vandræði með að fá varahluti í allar þessar tegundir. Og ekki bætti það úr að á síðari hluta fimmta áratugarins var eiginlega allt skammtað. Það kom t.d. fyrir að hér í bænum fékkst ekki sement. Ég sótti t.d. einu sinni bflfarm af því vestur á Grundarf- jörð. Fékk það gegn því að flytja þangað vörur. Þannig gekk þetta til þar til farið var að leita tilboða í vagnana. Leiðir lengjast - Hvað voru leiðirnar margar þegar þú byrjaðir að aka? - Mig minnir að þær hafi verið sjö. Þá voru þrír bflstjórar á hverjum bfl og 6 tíma vaktir. Á sumum leiðum var farið mismun- andi langt í hverri ferð. Enda- stöðvar voru þá tvær og farið kannski á hálftíma fresti á hvora þeirra. Þá óku allir bflarnir frá og að Lækjartorgi en þegar þeim svo fjölgaði voru sumir úti við Kalk- ofnsveg. Þaðan fóru hraðferðirn- ar þegar þær voru teknar upp, t.d. Kleppur, Bústaðavegur, Austurbær-Vesturbær. Lengstu Ieiðirnar þegar ég byrjaði voru inn að Kleppi og Rafstöð. Þannig hélst þetta þar til leiðunum var breytt 1970. Eftir því sem bærinn hefur þanist út hefur þurft að bæta við ferðum nú síðast t.d. í Grafarvoginn. Dugar og dugar ekki - Er það ekki rétt að þú hafir alltaf ekið sömu leiðina frá upp- hafi? - Jú, en þess ber raunar að geta að ég byrja á því að aka frá Lækj- artorgi og út á Seltjarnarnes^ Sú „rúta” nefndist þá leið 2. Árið 1970 breyttist þetta þannig að far- ið var að aka frá Háaleiti og út á Seltjarnarnes og var það þá nefnd leið 3. Við breytinguna varð þetta lengsta leiðin, 20 km. Gert var ráð fyrir að hver vagn færi eina ferð á klst. Það gekk auðvit- að ekki og þá var tíminn lengdur í 1 klst. og fimmtán mínútur. Það ýmist dugar og dugar ekki því fyrir kemur, þegar umferðin er mest, að vagninn er 20-30 mínút- ur frá Hlemmi niður á Lækjar- torg. Það gjörbreyttist þegar far- ið var að aka Skúlagötuna. Síðan stenst tímaáætlunin. Meðan ekið var bara frá Lækjartorgi og út á Seltjarnarnes var aðeins einn vagn á þeirri leið en þegar farið var að aka upp á Háaleiti urðu þeir fimm. - Hvað með vinnutilhögun ykkar vagnstjóra, hefur hún tekið miklum breytingum? - Hún hefur nú í megindráttum verið með svipuðum hætti lengst af, síðan borgin tók við rekstrin- um. Það voru þá strax þrír vagnar á hverri leið en síðan hefur þeim fjölgað sem í gangi eru frá kl. 7 að morgni til kl. 7 að kvöldi í sam- 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. ágúst 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.