Þjóðviljinn - 16.08.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 16.08.1987, Blaðsíða 16
POPPSÍÐAN Dead Kennedys hafa löngum verið umdeildir og nú vilja sumir senda þá í svartholiö. Þeir láta ekki deigan síga: Gáfu út safnplötu með þessari táknrænu mynd á: Maður keflaður með gaddavír! Dead Kennedys bannaðir Plaköt geta komið mönnum í steininn! Eins og ég hef áður rakið hér á þessari síðu er mikil tilhneiging meðal ákveðinna hópa í Banda- nkjunum til þess að hindra tón- listarmenn í að koma list sinni á framfæri. Nýjasta fórnarlambið er hljómsveitin Dead Kennedys en hún ásamt fleirum á yfir höfði sér dóm til fangelsisvistar allt að einu ári og háar fjársektir vegna plakats sem fylgdi með plötu þeirra „Frankenchrist“ og þykir hafa siðspillandi áhrif á fólk - undir 16 ára aldri! Jello Biafra fyrrum söngvari sveitarinnar hefur haldið því fram að hér sé um prófmál að ræða og ráðist hafi verið að Dead Kennedys vegna þess að þeir dreifi efni sínu gegnum óháðan útgefanda og hafi því ekki yfir þeim fjármunum að ráða sem stórfyrirtækin hafa. „Ástæðan fyrir því að þeir réðust gegn okk- ur en ekki Ozzy Osbourne er sú að CBS hefur næga peninga en við ekki,“ sagði hann í nýlegu blaðaviðtali. Hann sagði enn- fremur: „Það er of mikið af of- beldi og klámi í rokkinu, en það er líka of mikið af því í Rambo- myndunum og eiginlega öllu sem sýnt er í sjónvarpinu, t.d. fréttum og auglýsingum. Hvort veldur fleiri sjálfsmorðum barna og ung- linga í Bandaríkjunum: Ozzy Os- boume eða auglýsingar frá hern- um? Ég er líka Bandaríkjamaður og ég læt enga pólitíkusa segja mér hvað það er sem ég má hlusta á og hvað ekki.“ það er líka afar einkennilegt að P.M.R.C. hefur ekkert sagt um Country og West- ern tónlist, í ljósi þess að frú Tipper Gore er kona Albert Gore, sem er öldungadeildar- þingmaður fyrir Nashville Tenn- esee og hefur jafnframt boðið sig fram sem forsetaefni Demókrata í næstu kosningum (Tipper Gore er ein helsta baráttukona P.M.R.C.). Því er hér við að bæta að Dead Kennedys hafa sent frá sér plötu með öllum smá- skífum sínum og fleira efni til stuðnings baráttu sinni og nefnist hún „Give Me Convenience or Give Me Death". Það er óhætt að mæla með þessari skífu við alla gamla og nýja D.K. aðdáendur, og fyrir þá sem vilja hafa rokkið sitt hrátt og óritskoðað er óhætt að segja að sjaldan hafi gefist jafn gott tækifæri til að styðja góðan málstað. Dead Kennedys eru þó ekki þeir einu sem orðið hafa fyrir barðinu á P.M.R.C., því banda- ríska þungarokksveitin W.A.S.P. hefur höfðað mál á hendur P.M.R.C. fyrir að hafa notað texta sveitarinnar án leyfis og mynd sem var utan á smáskíf- unni ,Animal - F.ck like A Beast". Segjast þeir ætla að gefa Tipper Gore tvo kosti, annað hvort að biðjast opinberlega af- sökunar í sjónvarpi eða greiða 50.000 dollara til einhverrar söfnunar - er renni örugglega ekki í kosningasjóð manns henn- ar! Þeir segja það afar einkenni- legt að á sama tíma og P.M.R.C. fari hamförum sé Albert Gore að bjóða sig fram og segja að það sé skömm fyrir bandarískt lýðræði hve frelsi listamannsins til að koma hugmyndum sínum á fram- færi sé í mikilli hættu. Geyser og fleira íslenskt Nú fyrir nokkrum vikum kom út í Bandaríkjunum safnplatan Geyser og er á henni að finna efni eftir marga af okkar þekktari listamönnum og þó einkum þá sem tengdir hafa verið Gramm útgáfunni. Óhætt er að mæla með þessari plötu sérstaklega vegna þess að margt af því efni sem á henni er fæst ekki með öðrum hætti. Einnig eru á plötunni 2 ný lög sem gefa henni enn meira gildi. Bubbi Morthens hefur líka ný- lega sent frá sér nýtt lag með MX 21 og nefnist það „Skapar fegurð- in hamingjuna?" Varla þarf að hafa um það fleiri orð enda gæði Bubba löngu viðurkennd. Loks hefur Strax nú gefið út sína seinni smáskífu erlendis og eru á henni lögin „Keep It Up“ sem landsmenn ættu að þekkja betur undir nafninu „Segðu mér satt“ og „Black and White“. Jennifer Warnes - Famous Blue Raincoat Það er óhætt að mæla hjartan- lega með þessari plötu fyrir þá sem ánægju hafa af tónlist þar sem yfirbragðið er rólegt, og ljúf- ir tónar eru í fyrirrúmi. Það er heldur ekki verra að öll lögin eru prýdd textum Leonard Cohen og hann á líka stóran þátt í lagasmíð- unum. Fyrir þá sem ekki vita hver Leonard Cohen er, er rétt að geta þess að hann er ljóðskáld sem gefið hefur út nokkur ljóða sinna á plötu og nýtur þó nokkurrar hylli meðal þeirra sem eru um og yfir þrítugt (þó ekki fullyrt að hann eigi sér ekki yngri aðdáend- ur!). Þetta er í heild vel saman- settur gripur og það er ekkert sem bendir til annars en að þessi plata ætti að nýtast þeim vel sem frekar vilja rólegheit en rokk í harðari kantinum. Rogers Waters - Radio Kaos. Roger Waters - Radio Kaos Þessi fyrrum liðsmaður Pink Floyd er hér á ferðinni með sína aðra breiðskífu (sú fyrri var Pros And Cons of Hitch-hiking) og eins og við er að búast er fag- mennskan í fyrirrúmi. Hér er um að ræða plötu þar sem gengið er útfrá ákveðnu þema, sem eins og í fyrri verkum Waters er heimsstyrjöldin, friðurinn og ör- lög hins smáa eru í brennidepli. Þetta er að mínu áliti betri plata en sú fyrri þó að ekki sé um stór- breytingar að ræða. Fyrir þá sem unna góðu rokki og vönduðu er þetta því góð plata til eignar og fyrir alla Pink Floyd aðdáendur ætti hún að vera ómissandi. Platan er tileinkuð öllum þeim sem lent hafa röngu megin við frjálshyggjuna... Marillion - Clutching At Straws Breska sveitin Marillion hefur hægt og hægt verið að ná vinsæld- um hér heima sem og erlendis. Það er heldur ekki nema von að hægt hafi gengið, því tónlist þeirra er ekki beint það sem kalla mætti byltingargjörn. Hún er lík því sem Genesis var að gera fyrir 1980, og söngvari Marillion, Fish er líka á köflum alveg ótrúlega líkur Phil Collins. Að þessum orðum sögðum er líklega nokkuð ljóst til hverra þessi plata ætti einkum að höfða og ættu þeir að geta vel við unað. Séu menn hins vegar ekki hrifnir af því sem Gen- esis og fleiri álíka hafa verið að leika er betra að forðast Maril- lion. Status Quo á íslandi! Francis Rossi - gamla brýnið í sveiflu! Hann verður á heimavelli FH-inga þann 19. ágúst n.k. með Status Quo. Og þá er bara að vona að Status Quo gangi betur að spila rokk en FH-ingum gengur að spila fótbolta...! Fyrstu tónleikarnir í heimsreisu Miðvikudaginn 19. ágúst mun breska hljómsveitin Status Quo halda tónleika hér á landi, þá fyrstu sem þeir halda í heimsreisu sinni. Af þessum sökum ætla ég mér að rekja að hluta feril sveitarinnar, en hún hefur verið starfandi í rúm tuttugu ár. Status Quo hóf feril sinn árið 1962 og spilaði í upphafi aðeins lög eftir aðra. Þeir fóru þó fljót- lega að semja sitt eigið efni en með litlum árangri og það var ekki fyrr en árið 1970 sem hljóm- sveitinni tókst loks að finna þann stfl sem reynst hefur þeim vel alla tíð síðan. Þessi stfltegund sem nefnd hefur verið „boogie" bygg- ist á einföldum gripum og er ein- hverskonar blanda af R&B. Það var þó ekki fyrr en árið 1973 að sveitin sló í gegn í Bret- landi og þá fór platan „Piledri- ver“ í fyrsta sæti breska vinsæld- alistans. Gagnrýnendur voru þó ekki hrifnir af þessu fyrirbæri, sem var til að mynda kallað „hugsunalaust og vanskapað" og „Canned Heat fyrir þann sem hugsar ekki“. Þrátt fyrir þetta var almenningur yfir sig hrifinn og hljómsveitin hélt áfram að senda frá sér plötur og smáskífur sem einfaldlega seldust og seldust. Þegar Status Quo héldu upp á tvítugs afmælið 1982 höfðu þeir gefið út 23 smáskífur sem náðu langt á listum í Bretlandi og 11 breiðskífur sem einnig höfðu komist hátt á listunum. Álit gagnrýnenda hafði einnig smátt og smátt breyst til batnaðar og þeir höfðu verið teknir í sátt sem ein af þeim hljómsveitum sem halda alltaf áfram að gera það sama aftur og aftur og aftur. Hljómsveitin lagði reyndar niður störf fyrir nokkrum árum, en í fyrra hóf hún aftur störf. Það var eftir nokkurt streð þar sem Alan Lancaster (einn af stofnend- um sveitarinnar) taldi sig eiga nafnið, en því voru fyrrum fé- lagar hans ekki sammála og nú í næstu viku gefst okkur íslending- um loks kostur að sjá og heyra í þessari sveit. Eins og glöggir lesendur hafa líklega tekið eftir eru nú liðin 25 ár frá stofnun Status Quo og verð- ur það að teljast góður árangur í heimi poppsins, þar sem flestir lifa fyrir daginn í dag. SIGMUNDUR HALLDÓRSSON 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. ágúst 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.