Þjóðviljinn - 27.08.1987, Page 2
—SPURNINGIN-
Teluröu að laun í verk-
smiðjum hér á landi séu
slík að þau freisti erlends
vinnuafls?
Pétur M. Birgisson, vinnur í
vélsmiðju:
Það held ég varla. Samanburður
á launum sem maður hefur séð
er okkur í óhag.
Leifur Þorbjarnarson, bók-
bindari:
Nei, það held ég ekki. Þau eru
ekki það há.
Margrét Óskarsdóttir, ritari:
Ég held þau séu ekki þaö há. Ég
mundi ekki lifa af jDeim launum,
en það er kannski betra en að
ganga um atvinnulaus.
Margrét Sæmundsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri:
Nei, það held ég ekki. Ég tel að
fólk sækist heldur ekki eftir veðri
og öðru slíku á íslandi.
Hildur Lilja Jónsdóttir, af-
greiðslustúlka
Já, örugglega. Pottþétt alveg.
Launin eru það góð.
FRÉTTIR
Greiðslukortin
Kostnað á notendur
Skoðanakönnun Neytendasamtakanna sýnir að mikill meirihluti vill að notendur beri kostnað
afgreiðslukortum. Greiðslukortafyrirtœkin fá Skáís til að segja könnunina ómarktæka
Við vísum áliti Skáís alfarið á
bug. Við erum í könnun okk-
ar bara að benda á staðreynd lífs-
ins en það er greinilegt á áliti Ská-
ís fyrir hverja þeir eru að vinna,“
sagði Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna um
það álit Skáís, sem unnið var fyrir
greiðslukortafyrirtækin, að
greiðslukortakönnun Neytenda-
samtakanna væri stórlega gölluð
og ekki marktæk.
Könnunin var gerð sl. vor og
varúrtakið 1161 maður, valinn úr
símaskránni. Annarsvegar var at-
hugað hversu algeng notkun
greiðslukorta væri og var niður-
staðan sú að 57,5% heimila not-
uðu greiðslukort, þar af notuðu
mörg heimilanna fleiri en eitt
kort.
í annan stað var spurt hver ætti
að bera kostnað af notkun kort-
anna og var niðurstaðan sú að
86% töldu að notandi ætti að
bera kostnaðinn. 96% þeirra sem
Torf
Torfhleðsla í
Vatnsmýrinni
Tryggvi Gunnar
Hansen:
Torfhleðslulist
norrœnna manna lifir
hvergi nema á íslandi
Um næstu helgi verður gengist
fyrir námskeiði í þeirri fornu
list að hlaða veggi úr torfl, í
Vatnsmýrinni í Reykjavík. Þar
verður kennt að stinga og rista
klömbru og streng og hlaða úr
þeim veggi með sama hætti og
tíðkast hefur frá landnámstíð á
íslandi.
Það er Tryggvi Gunnar Han-
sen torfhleðslumeistari sem
stendur fyrir námskeiðinu, og
segir hann hleðslulistina vera sér-
íslenskt fyrirbæri sem eigi sér
ekki hliðstæðu í byggingarlist
annarra þjóða, þótt hún hafi ver-
ið tíðkuð í nágrannalöndunum á
miðöldum.
Tryggvi Gunnar segir að með
undirstöðuþekkingu á grundvall-
aratriðum torfhleðslunnar geti
menn leikið sér að því að hlaða
sér eigin bæ í gömlum stíl, auk
þess sem torfhleðslan sé tilvalin í
garðhleðslur í skrúðgörðum.
Námskeiðið í Vatnsmýrinni
hefst kl. 10 á laugardag og stend-
ur til kl. 18 með matarhléi á milli
kl. 13 og 14. Námskeiðið verður á
sama tíma á sunnudag. Torf-
skurðurinn fer fram á milli Nor-
ræna hússins og gamla Tívolí-
portsins, og er hægt að aka frá
Umferðarmiðstöðinni niður
gamla Vatnsmýrarveginn.
Mönnum er ráðlagt að hafa með
sér stígvél, stunguspaða og
regnföt til vara. Nánari upplýs-
ingar í síma 75428 á kvöldin.-ólg
ekki nota kort töldu að notand-
inn ætti að bera kostnaðinn og
81,2% þeirra sem nota kort töldu
að notendur ættu að bera kostn-
aðinn.
Það er einmitt þessi liður sem
Skáís telur ekki marktækan.
Segja þeir að spurningin hafi ver-
ið leiðandi, en hún hljóðaði svo:
„Notkun greiðslukorta hefur í för
með sér talsverðan kostnað.
Hver á að greiða þann kostnað:
a) leggist á vöruverð, b) notandi
kortsins.
„Þrátt fyrir að notendum sé
bent á að þeir hafi fjárhagslegan
ávinning af því að þetta leggist á
vöruverð taldi meirihluti þeirra
að þeir ættu sjálfir að bera kostn-
aðinn. Réttlætiskennd íslendinga
virðist vera þetta mikil,“ sagði
Jóhannes.
Jóhannes sagði að það hefði
komið fram hjá Gunnari Snorra-
syni, fyrrverandi formanni
Kaupmannasamtakanna, í út-
varpinu sl. sunnudag, að verslan-
ir væru búnar að velta þessu að
mestu út í verðlagið.,, Ég vil taka
sterkar til orða, það er ekki nokk-
ur vafi á að þetta er komið út í
verðlagið."
Engar reglur eru til um þetta en
Jóhannes sagðist efast um að það
skilaði sér í lægra vöruverði, þó
notendum yrði gert að greiða
kostnaðinn. „Fyrst löggjafinn
hefur sofnað teljum við að versl-
anir eigi að taka upp staðgreiðs-
luafslátt sem nemur kostnaði af
greiðslukortaviðskiptum. Nokk-
ar verslanir hafa tekið upp þetta
fyrirkomulag og sýnir það best að
þessum kostnaðarauka hefur ver-
ið velt út í verðlagið." -Sáf
Lárus Zophoníasson, bókavörður á Amtsbókasalninu á Akureyri: „Síðustu ár hefur útlánum á bókum farið fækkandi
og svo virðist sem unglingar á aldrinum 15-20 ára hafi ekki skilað sér hingað inn til okkar í sama mæli og áður." Mynd:
Ari.
Amtsbókasafnið á Akureyri
160 ára afmæli
Lárus Zophoníasson bókavörður: Safnið stofnað 1827afþáverandi
amtmanni norðan og austan, Grími Jónssyni
Við erum svo hlédrægir hér í
Amtsbókasafninu á Akureyri
að við höfum ekkert verið að flíka
þeirri staðreynd að safnið er 160
ára á þessu ári, til að skyggja ekki
á afmæli Akureyrarkaupstaðar,
en hann verður sem kunnugt er
125 ára næstkomandi laugardag,
29. ágúst“, segir Lárus Zophon-
íasson, bókavörður á Amtsbókas-
afninu á Akureyri.
Að sögn Lárusar var Amt-
bókasafnið stofnað 1827 af Grími
Jónssyni, þáverandi amtmanni
norðan og austan. Þegar amtið
var lagt niður 1904 tók Akur-
eyrarbær við öllum gögnum þess
og bókakosti, með þeim skilyrð-
um þó að allir íbúar gamla
amtsins ættu greiðan aðgang að
því, „en mér segir svo hugur um
að íbúar til dæmis á Seyðisfirði
hafi nú ekki lagt hart að sér að
nálgast bækur þess, þó svo að
þeir hafi rétt til þess,“ segir Lár-
us.
Amtsbókasafnið var síðan á
hinum ýmsu stöðum á Akureyri
þangað til bæjarstjórnin sam-
þykkti á fundi sínum í tengslum
við 100 ára afmæli bæjarins 1962
að veita fé til byggingar núver-
andi Amtsbókasafns, sem stend-
ur við Brekkugötu 17 þar í bæ. Er
það hið fegursta hús, rúmir 1000
fermetrarað stærð. Var flutt í það
haustíð 1968.
„Undanfarin ár hefur alltaf
verið stígandi í útlánum bóka á
vegum bókasafnsins þangað til
fyrir þremur árum að tók að halla
undan fæti í þeim efnum. 1984
voru útlánin komin niður í 118
þúsund bækur. Á þessum árum
hefur komið í ljós að unglingar á
aldrinum 15-20 ára hafa ekki
skilað sér inn í safnið, en þeir eru
ansi stór hópur lesenda. Enginn
einhlít skýring er til á þessum
samdrætti í útlánum, en tvennt
getur komið til: Annarsvegar að
bókin hafi orðið undir í sam-
keppninni við myndböndin um
frítíma unglinganna og svo hins-
vegar að skýringarinnar sé að
leita í því að skólabókasöfnin í
bænum hafi hreinlega tekið við
þeirri þjónustu sem Amtsbóka-
safnið hafði við unglingana, sem
er skýring sem okkur fellur mun
betur en sú fyrri, því þá les unga
fólkið ennþá bækur, sem er fyrir
öllu, þó svo að það notfæri sér
ekki í sama mæli og áður þjón-
ustu Amtsbókasafnsins," sagði
Lárus Zophoníasson bókavörð-
ur.
grh
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 27. ágúst 1987