Þjóðviljinn - 27.08.1987, Side 3

Þjóðviljinn - 27.08.1987, Side 3
ÖRFRÉTTIR Listasafn ísiands vantar forstöðumann og fimm manns hafa áhuga á starfanum. Það eru þau Aðalsteinn Ingólfs- son listfræðingur, Bera Nordal listfræðingur, Einar Hákonarson myndlistarmaður og Ólafur Kvar- an listfræðingur. Umsókarfrestur rann út 25. ágúst sl. Epal hefur tekið í notkun nýtt verslun- arhúsnæði að Faxafeni 7 í Reykjavík. Verslunin kemst nú loksins í eigið húsnæði eftir að hafa verið starfrækt í áratug. í ti- lefni þessara tímamóta verður kynntur nýr sófi, sem einn kunn- asti hönnuður Dana, Ole Kortzau, hefur teiknaö fyrir Epal. Sófinn er framleiddur hér á landi en ætlaður til sölu utan lands sem innan. Sala á sófanum er þegar hafin í Danmörku, Fær- eyjum og Vestur-Þýskalandi. Hönnuðurinn verður viðstaddur opnun Epal-hússins í dag. Hönnun Nýtt tímarit um húsgögn og innréttingar hefur hafið göngu sína. Ritstjóri blaðsins er Kjartan Jónsson, innanhússarkitekt. Tímaritiðer84 bls., áglanspappír og litprentað að hluta. ( þessu fyrsta tölublaði er fjallað um Memphis línuna í húsgögnum, fjallað um skandinavíska listmunasýningu, sem nýlega lauk á Kjarvalsstöðum, viðtal er við listafólkið og hjónin Koggu og Magnús Kjartansson. Trausti Valsson færir rök að því að ís- lensk hönnun til forna eigi sér rót í býzantískum tíma, auk þess sem hann ritar grein um nýjar eldhús- hugmyndir. Meðal annars efnis má nefna grein um lýsingu. Ritið kostar 195 krónur. Hjúkrunarfélag íslands flytur á morgun í nýtt húsnæði að Suðurlandsbraut 22. í tilefni af því verður móttaka fyrir félags- menn og gesti í nýju húsakynn- unum og hefst hún kl. 16. Við það tækifæri verður vígt bókasafn og lesstofa félagsins, sem tileinkað er frú Sigríði Eiríksdóttur, móður Vigdísar Finnbogadóttur, forseta (slands, en Sigríður varformaður Hjúkrunarfélagsins í 36 ár. Gítartónleikar verða í kvöld í Bústaðakirkju og hetjast þeir kl. 20.30. Þaö er spænski gítarsnillingurinn José Luis González, sem flytur verk eftir Sor, Tarrega, Ponce, Grandos, Albeniz o.fl. González hefur gefið út fjölda hljómplatna og haldið tónleika víða um heim, auk þess sem hann hefur stjórn- að alþjóðlegum gítarnám- skeiðum. Hann er staddur hér á landi á vegum Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar, þar sem hann heldur námskeið. Refurinn rauði nefnist ný spennusaga sem Svart á hvítu hefur sent frá sér í Regnbogabókaflokknum. Þetta er fjórða kiljan í flokknum og er hún eftir Kanadamanninn Ant- hony Hyde. Þetta er fyrsta bók höfundar og sló hún rækilega í gegn þegar hún kom út. Bókin var lengi á metsölulistum víða um heim og hefur alls verið þýdd á sautján tungumál. Bókin er um 320 blaðsíður að lengd. _______________ FREITIR______________________________ Grjótaþorp ,Nýjum ketti‘ mótmælt Bygginganefnd og borgarskipulagi send mótmæli íbúa í Grjótaþorpi vegnafyrirhugaðs stórhýsis SHog Tryggingamiðstöðvarinnar á lóð Fjalakattarins Ibúar í Grjótaþorpinu, sem búa í nágrenni fyrirhugaðs stórhýs- is SH og Tryggingamiðstöðvar- innar á lóð Fjalakattarins hafa mótmælt byggingunni við borg- arskipulag og bygginganefnd, á þeirri forsendu að hún brjóti í flestum atriðum í bága við tillðgu að skipulagi Kvosarinnar, sem er til umfjöllunar hjá borginni. í bréfi sem íbúar Bröttugötu 6 sendu borgarskipulagi og bygg- inganefnd segir: „Því viljum við fyrst og fremst mótmæla vegna mikilla breytinga sem verða á umhverfi okkar og lífsskilyrðum með tilkomu þessarar byggingar. Umferð bfla mun aukast verulega í gegnum hverfið til óþæginda og trafala fyrir íbúana, en hverfið er fyrst og fremst íbúðahverfi. Vesturgafl fyrirhugað hússins, sem nær upp að efstu hæð Morg- unblaðshallarinnar, skyggir á birtu til okkar og heftir útsýni frá okkur til austurs. Húsið er of hátt og of nálægt okkar húsi. Vegna þessa agnúa mun hús okkar falla í verði með tilkomu nýja kattar- ins.“ í bréfinu er einnig bent á að eðlilegt sé að bíða með umfjöllun um bygginguna í nefndum borg- arinnar þar til staðfest skipulag Loðnuverðið Bottinn til yfimefndar Enn hefur loðnuverð ekki verið ákveðið. Á fundi Verð- lagsráðs sjávarútvegsins í fyrra- dag afréðu deiluaðilar, - fulltrú- ar fiskimjölsverksmiðja og sjó- manna og útvegsmanna, að vísa þrætunni til yfirnefndar. Að sögn Sveins Finnssonar hjá Verðlagsráði sjávarútvegsins,. þótti mönnum einsýnt að réttast væri að vfsa deilunni til yfirnefn- dar þar sem mikið bæri enn í milli og samkomulag væri ekki í sjón- máli um nýtt loðnuverð. Sveinn sagði að fyrsti fundur yfimefndar yrði haidinn f dag. - Það er erfitt að segja til um það hve lengi yfirnefndin verður að fjalla um málið áður en hún á- kveður nýtt loðnuverð. Stundum hefur nefndin verið fljót að á- kveða verðið, en á öðrum tímum hefur það tekið óratíma. Það fer allt eftir því hvernig málin æxlast. Ég á ekki von á því að verðið verði ákveðið í þessari viku. Meira get ég ekki sagt, sagði Sveinn Finnsson. Fegrunarnefnd ísafjarðar hef- ur nýlega veitt viðurkenningu þeim sem fram úr þóttu skara að þessu sinni um frágang á lóðum og görðum. Fyrir valinu urðu eigendur tveggja einbýlishúsa, íbúar eins fjölbýlishúss og eitt fyr- irtæki. Það er nefnilega víðar guð en í Görðum. Það eru víðar fegrun- arnefndir en á höfuðborgarsvæð- inu. Og víðar er viðurkenning veitt fyrir umhverfisfegrun en þar. Eins og t.d. á ísafirði, en þar hefur fegrunarnefnd starfað ó- slitið síðan 1982. liggur fyrir. Þá er bent á að sam- kvæmt Kvosarskipulaginu eigi að rísa þarna tvö hús, annað við Að- alstræti en hitt við Bröttugötu og að Bröttugötuhúsið eigi að vera í samræmi við þá byggð sem er um- hverfis það. í stað þess er nú fyrirhugað að reisa eitt stórt hús á lóðinni sem ekki er í neinu sam- ræmi við byggðina. Einnig er bent á að húsið sé að minnsta kosti þriðjungi stærra en ráðgert var samkvæmt skipulag- inghaldið hefur gengið mjög vel. Ég hcld að þátttakend- urnir séu ánægðir, enda hefur allt gengið samkvæmt skipulaginu, sagði Víðir Kristjánsson, deildar- stjóri hollustuháttadeildar Vinnueftirlitsins, en þessa dagana stendur yfír á Hótel Sögu sam- norrænt þing um vinnuumhverf- ismál. Þetta er í 36. skipti sem þingið Þeir sem viðurkenningu fengu nú eru þessir: Kristín J. Jónsdóttir og Gunnar P. Ólafsson, Engavegi 11, fyrir mikla alúð og nákvæmni við ræktun garðsins síns. Kristinn J. Jónsson og Ólafía Aradóttir, Brautarholti 13, fyrir fallegan og vel skipulagðan garð. íbúar fjölbýlishússins Fjarðar- strœti55, fyrir góðan frágang húss og lóðar. Vélsmiðjan Þór, fyrir snyrti- legan frágang á lóð fyrirtækisins. -mhg stillögunni, þá gerði skipulagið ráð fyrir íbúðum á öllum hæðum hússins við Bröttugötu og einnig á efstu hæðum hússins við Aðal- stræti, enda eitt af takmörkum skipulagsins að fjölga íbúum •' miðbænum. Samkvæmt teikning- um fyrirhugaðrar byggingar er ekki gert ráð fyrir nema í mesta lagi einni íbúð í öllu húsinu. Að lokum er bent á að sam- kvæmt skipulagstillögunni eigi Aðalstræti að vera vistgata en er haldið, og eins og fram hefur komið í blaðinu er það nú háð í annað sinn á íslandi. Þátttakend- ur eru á þriðja hundrað, og þar af eru yfir 180 erlendir gestir. Breskum gestafyrirlesara, J.A.D. Anderson, var boðið á þingið sem hófst með erindi hans um bakverki, en þeir hrjá margan manninn við vinnu. Að sögn Víð- is er nú í gangi könnun á vegum Vinnueftirlitsins og beinist hún að ástandinu hér hjá okkur á þessu sviði, og er sjónum beint að frystihúsavinnu. Niðurstaðna er að vænta á næsta ári. Á þinginu eru haldnir sam- eiginlegir fyrirlestrar í bland við aðra minni, og eru þá þrír í gangi samhliða. Fjallað er um mismun- andi efni, og velja þátttakendur fyrirhugað er að hafa a.m.k. 26 bflastæði í húsinu og á að beina þessari umferð í gegnum íbúðar- hverfið og inn á vistgötuna. Segir að þar sem Brattagata sé þröng gata verði erfitt fyrir gangandi mann að mæta þessari umferð, að ekki sé talað um fógangandi með barnavagn. Bygginganefnd kemur saman til fundar í dag og er búist við að erindi íbúa Grjótaþorps komi til afgreiðslu á fundinum. -Sáf sér fyrirlestra eftir áhugasviðum. Þingið hófst í fyrradag, og var fundað allan þann dag. í gær voru fyrirlestrar til hádegis, en seinnipartinn var frí. Farið var í ferðalag til Krísuvíkur og Grindavíkur með viðkomu við Bláa lónið og fjölmenntu erlendu gestirnir í þá ferð. f dag, á loka- degi þingsins, verður meðal ann- ars panelumræða um reykingar á vinnustöðum og þann óskunda sem þær gera reyklausa liðinu. Farið verður ofan í saumana á reglugerðum sem að þessu máli lúta á Norðurlöndunum. BSRB á fulltrúa á þinginu, en ekki önnur félög innan verka- lýðshreyfingarinnar. Þá eiga nokkur fyrirtæki fulltrúa. HS Flmmtudagur 27. ágúst 1987! ÞJÓÐVILJINN ~ SÍÐA 3 Alþýðubandalagiö í Reykjavík Hvalfjarðarferðinni sem fara átti á sunnudaginn 30. ágúst, hefur af óviðráðanlegum ástæðum verið frestað um tæpa viku, til laugardagsins 5. sept- ember. Ferðin verður enn skemmtilegri fyrir bragðið, skráið ykk- ur í síma 17500. Ferðanefnd -rk ísafjörður Smiðja fær verðlaun „TfREKVENTA 6LfGjvAfiE Víðir Kristjánsson á sæti í undirbúningsnefndinni, og hefur mest mætt á honum að skipuleggja þinghaldið á (slandi Mynd: Sig. Vinnuvernd Bakið er höfuðverkur Samnorrœntþing um vinnuumhverfismálstendur nú yfir á Hótel Sögu. Þátttakendur á þriðja hundrað

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.