Þjóðviljinn - 27.08.1987, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 27.08.1987, Blaðsíða 10
Kennarar Laugageröisskóla á Snæfellsnesi vantar kenn- ara til almennrar kennslu. Upplýsingar veita Haukur Sveinbjörnsson í síma 93-56627 og Höskuldur Goöi í síma 93-56600 eöa 93-56601. Frá Grunnskóla Njarðvíkur Enn vantar einn kennara viö Grunnskóla Njarð- víkur. Óskað er eftir kennara í raungreinum en annaö kemur þó til greina. Upplýsingar veitir Gylfi Guömundsson, skólastjóri í síma 92-14380 (hs.) eða 92-14399 (vs.). Skólanefnd nlÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Eftirtalin námskeið verða haldin á næst- unni hjá Iðntæknistofnun: Fræðslumiðstöð iðnaðarins: Námskeið fyrir ræstingafólk. Námskeiðið er ætlaö þeim sem hafa meö höndum eftirlit meö almennri ræstingu þar sem ekki er krafist sér- stakrar hreingerningar til sótthreinsunar. Málmtæknideild Suðunámskeið, notkun duftfylltra víra. Notk- unarsvið, kostir og gallar. Afköst, fjárhagsleg atriði. Flokkun suöuvíra og helstu eiginleikar. Verklegar æfingar og sýnikennsla. Tölvustýrðar vélar og framleiðsla í málmiðn- aði. Kynningarnámskeiö um tölvustýrðar málmvinnsluvélar. Hvaö eru tölvustýrðar vélar? Hvernig er unniö meö þessum vélum? Hvaö er tölvustýrð framleiösla? Hvaö er tölvuvædd hönnun? Leiðbeinendur eru reiöubúnir aö halda námskeiöið víös vegar um landið eftir samkomu- lagi. Raftæknideild Örtölvutækni II. Forritun, framhaldsnámskeiö. Smalamál. Skipanamengi í APX 8088. Minniss- kipting (segments), rof (interrupt). 40 kennslu- stundir. Örtölvutækni III. Vélbúnaður. Inn/út tengingar. Stjórnvistunar- og gagnalínur. Minnisrásir, RAM, ROM og EPROM. Tengslarásir 8255, 8251 og 8253. 40 kennslustundir. Rekstartæknideild Stofnun og rekstur fyrirtækja. Ætlaö konum. Haldiö á kvöldin og fyrir hádegi á laugardegi. Námskeiðinu er ætlaö aö auka skilnings þátttak- enda á því, hvað atvinnurekstur útheimtir, hvað þarf að athuga og hvaö þarf aö varast. Stofnun og rekstur fyrirtækja. (Fyrir alla). Vöruþróun. Kl. 8.30-12.30. Námskeiðið er ætl- að stjórnendum er bera ábyrgð á: framkvæmda- stjórn, hönnun og þróun, framleiðslustjórn, hönnun og þróun, framleiðslustjórn og markaðs- málum. Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðntæknistofnunar, nema annað sé tekiö fram. Nánari upplýsingar og innritun hjá stofnuninni í síma (91)68-7000, Fræöslumiðstöö iðnaðarins í síma (91)68-7440 og Verkstjórnarfræðslunni í síma (91)68-7009. Geymið auglýsinguna! Á þingi kínverska kommúnistaflokksins sem hefst eftirtvo mánuði verðurtekin ákvörðun um efnahagsstefnu næstu ára. Kína Atök um efnahagsstefnu Tveim mánuðum áðuren þing kommúnistaflokksins hefstgeisar barátta innan hans milli manna er vilja halda áfram á braut efnahagslegrar nýsköpunar og andstœðingaþeirra sem kenna nýbreytninni um miklar verðhœkkanir, efnahagslegt misrétti og sinnuleysi um hugsjónir Eftir tvo mánuði verður þing kínverska kommúnistaflokks- ins sett í Peking, hið fyrsta um fimm ára skeið. Þar verða teknar ákvarðanir um mótun efnahags- stefnu næstu ára og jafnvel ára- tuga þannig að ekki er ofsögum sagt af mikilvægi samkundunnar. Deng Xiaoping hefur marg- ítrekað að útilokað sé að lands- menn víki af braut efnahags- legrar nýsköpúnar sem verið hef- ur hans ær og kýr umliðin ár. Á dögunum sagði hann að ekki kæmi annað til greina en eldri menn vikju úr sessi fyrir ungum eldsálum á þinginu og blandast engum hugur um að skeyti þessu var beint að andstæðingum stefnu hans innan flokksins. En gamlingjarnir hyggjast ekki leggja árar í bát og ætla að reyna að bregða fæti fyrir Deng og fylg- ismenn hans á þinginu. Þeir eru sagðir njóta umtalsverðs stuðn- ings í flokknum, einkum meðal félaga úti á landsbyggðinni, og eru ósparir á gagnrýni á ýmsar skuggahliðar nýsköpunarstefn- unnar, svo sem ört vaxandi verð- bólgu, misskiptingu veraldlegra gæða og skort á hugsjónaeldmóði og fórnfýsi í samfélaginu. Það sem stendur þeim helst fyrir þrifum er að þeir setja ekki fram neinn valkost í efnahagsmálun- um annan en afturhvarf til mið- stýringarinnar sem leitt hafði Kínverja í miklar efnahagsó- göngur. Valdabaráttunnar sjást fá merki í fjölmiðlum landsins en þó birtist fyrr í þessum mánuði grein í Dagblaði bænda þar sem dregin er upp mynd af hinum dæmigerða flokksleiðtoga í sveitahéraði einsog hann kemur ritstjórum blaðsins fyrir sjónir. „Að hans mati hefur nýsköp- unin leitt til glundroða í efna- hagslífi landsins og óhóflegra verðhækkana á nauðsynja- vörum. Hann telur að aukið ríki- dæmi fáeinna hafi orsakað stétt- askiptingu og að aukin neyslu- hyggja hafi komið í stað stéttam- eðvitundar og siðferðilegrar og samfélagslegrar ábyrgðartilfinn- ingar. Blaðið fullyrðir að þessir gam- aldags flokksfélagar ýki ávallt mikilvægi samvinnu í héruðum sínum í skýrslum til miðstjórnar flokksins en gerðu lítið úr ein- staklingsframtaki. „Þeir sækja gjarna fátækar fjölskyldur heim en sneiða hjá dyrum betur stæðra." Afleiðingin er sú, að mati blaðsins, að einkaframtaks- menn fyllast ótta um að flokkur- inn söðli um og hverfi aftur til eldri stefnu og selja hlutabréf sín. Ritstjórar Dagblaðs bænda telja þessa menn og „vinstri- mennsku" þeirra dragbít á kín- versku efnahagslífi og vitna í orð Dengs um að „vinstriöfgar“ hafi tafið alla þróun í Kína í rúm tutt- ugu ár frá 1957-1978. En nú vill svo til að félagar þessir hafa mikið til síns máls. Verð á nauðsynjum hefur hækk- að meira það sem af er þessu ári en nokkru sinni áður í sögu al- þýðulýðveldisins og stjórnin neyddist á sunnudaginn var til að setja á verðstöðvun og tók jafn- framt ákvörðun um að stórauka niðurgreiðslur. Nýsköpunin hefur valdið því að hópur kaupahéðna og um- svifameiri bænda þénar um 10-20 sinnum meira en gengur og gerist meðal almennings. Nú eru verkamenn ekki lengur hvattir til dáða með því að höfða til föðurlandsástar og fórnfýsi í þágu samfélagsins heldur er hin- um yngri og dugmeiri greitt hærra kaup en gamlingjum og letingj- um og er þá talið einu mega gilda hver sé þörf hvers og eins. Dagblað bænda hjó enn í sama knérunn í fyrradag. Að vísu var það viðurkennt að nýsköpunar- stefnan hefði ýmsar skuggahliðar en á því hamrað að „vissir fé- lagar“ bentu ekki á neinn fýsi- legan valkost og ef horfið væri aftur til stefnunnar sem ríkti fyrir árið 1978 þá þýddi það ekkert annað en að „allir yrðu fátækir á ný-“ Andstæðingar nýmælanna benda á fleira sem þeim finnst miður fara en launamisrétti og verðhækkanir. Þeir segja marg- víslega spillingu vera fylgifisk valddreifingar í efnahagsmálum og, það sem enn verra er, að ráðamenn í Peking hafi ekki lengur neina stjórn á efna- hagsmálunum. Þeir hafi fært mjög mikið vald í hendur verk- smiðjustjóra og héraðsstjórna sem skelli skollaeyrum við fyrir- mælum frá höfuðborginni. Og ríkisstjórnin verði að láta sér það lynda. Dæmi um þetta mun vera að valdhafar í Peking hafa ítrek- að skipað framkvæmdastjórum ríkisfyrirtækja að stemma stigu við bónusgreiðslum en í stað þess hafa þær stóraukist uppá síðkast- ið. En þrátt fyrir allt er ekki talið að Deng og félagar þurfi að óttast það að verða ofurliði bornir á flokksþinginu. Þeir hamra á því að það sem miður fer nú í efna- hagslífinu sé tímabundið og ekki annað en vaxtarverkir samfélags í mótun. Ennfremur benda þeir óspart á, einsog fyrr er getið, að gagnrýnendur þeirra hafa ekki upp á neitt að bjóða sem hönd á festir. Það sé í sjálfu sér gott og blessað að höfða til föðurlands- ástar og hugsjónaeldmóðs en reynslan hafi sýnt að það seðji ekki hungur nokkurs manns. -ks. 10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 27. ágúst 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.