Þjóðviljinn - 27.08.1987, Blaðsíða 7
Fóstrur - starfsfólk
Okkur í Ægisborg vantar fóstrur og starfsfólk til
starfa nú þegar. Upplýsingar gefur forstöðumað-
ur í síma 14810.
merkilegra en flest þau gömlu
hús, sem enn standa í Reykjavík.
Af þessum ástæðum var baráttan
fyrir björgun og varðveislu Fjala-
kattarins vonlítil frá upphafi:
þetta hús var of merkilegt til að
hugsjó'namennirnir hefðu nokk-
urn tíma fallist á að láta undan,
og hefðu þeir kannske gripið til
örþrifaráða að næturlagi ef þeir
hefðu séð fram á að einhverjar
viðgerðir kynnu að vera í bígerð.
Þeir hefðu jafnvel farið í herferð
gegn húsinu á jarðýtum.
Erfitt er að sjá hvað þessum
hugsjónamönnum gengur til,
enda er sannfæring þeirra um
réttmæti hugsjónarinnar svo
sterk í dýpstu skúmaskotum sál-
artetursins, að þeir telja það ekki
ómaksins vert að skýra mál sitt
með neinum skynsamlegum rök-
um. Er einna helst að þeir reyni
að snúa því við með því að láta þá
sem reyna að sporna á móti líta út
sem e.k. árásaraðila. En þegar á
það er litið að þessum mönnum
virðist sama um það hvaða af-
skræmi eru byggð í stað þeirra
húsa sem rifin eru - og svo dunda
þeir við það í frístundum sínum
að gera áætlanir um að fylla upp
Tjörnina - virðist einna helst að
markmið þeirra sé eyðileggingin
eyðileggingarinnar vegna. Nú
velur hver sér fyrirmynd til að
líkja eftir og ke'ppa við eftir sínu
eigin lunderni: heljarmennið Jón
Páll er búinn að skáka Gretti
Ásmundarsyni og á Herkúles
einn ósigraðan, og skyldi borgar-
stjóri þá á sama hátt ætla að líkja
eftir Herostratosi frá Ephesos,
sem vann sér það til óbrotlegrar
frægðar að brenna hof Artemisar
í borginni, eitt af sjö furðuverk-
um fornaldarinnar? Nema á bak
við þessa hugsjón séu einhver
undarleg og dulin trúarbrögð,
sem hvetji áhangendurna til að
eyðileggja gömul hús, - líkt og
þegar kristindómurinn æsti menn
í fornöld til að brjóta lágmyndir á
grískum hofum með hamri.
í landi þar sem svo lítið er eftir
af hugsjónum að maður skyldi
halda að þær hafi verið veiddar í
vísindaskyni, er það vissulega
lofsvert að enn skuli vera til harð-
ir hugsjónamenn sem svífast
einskis og telja hugsjónir sínar
Það vakti undrun margra og
gremju í síðasta mánuði, þeg-
ar það spurðist út, að einhverjir
vandræðamenn hefðu farið í
skjóli nætur inn á lóð í miðbæn-
um, þar sem fornleifagröftur stóð
yfir, og eyðilagt merkar forn-
minjar, gamlan hleðsluvegg sem
ekki var búið að rannsaka og
mæla. En þótt undarlegt megi
virðast, rifjaðist það samt ekki
upp fyrir neinum við þetta tæki-
færi, að þetta var ekki fyrsta
skemmdarverkið á staðnum: á
þessari sömu lóð höfðu
spellvirkjar og misyndismenn
nefnilega áður eyðilagt heilt hús,
sem var enn dýrmætara minnis-
merki um fornan tíma en einn
hleðsluveggur, sem sé Fjalakött-
inn.
Nú er það létt verk og löður-
mannlegt að velta um nokkrum
steinum, sparka upp gamla gólf-
skán eða ryðja niður einum vegg,
og bera víst fáir á móti því að slíkt
gæti maður gert í einhvers konar
ölæðisrugli, eins og dæmi eru um
í miðbænum. En það er sýnu
meira verk að leggja í rústir heilt
stórhýsi, þótt í því séu fornir
viðir: til að skekja það af grunni
þarf meira en titurvillu eða
brennivínsberserksgang, jafnvel
af hæstu stærðargráðu. Það þarf
sem sé aðstoð fjölmargra og ein-
beittra manna.
Ólíklegt er að það komi nokk-
urn tíma í ljós hverjir ollu
skemmdarverkunum á forn-
leifunum í júlí, en hina sem stóðu
fyrir því að Fjalakötturinn var rif-
inn er auðvelt að benda á. Hér er
sem sé um að ræða vissan hóp
hugsjónamanna, sem risið hafa
upp í höfuðstaðnum á síðustu
tímum, og líta á það sem heilaga
köllun sína að rífa og eyðileggja
öll gömul hús sem fyrirfinnast í
Reykjavík. Er þeim alveg sérlega
uppsigað við hús ef þau eru falleg
og vel byggð, svo maður tali nú
ekki um það ef þau hafa eitthvert
sérstakt menningarlegt gildi.
Telja þeir réttlætanlegt að beita
hvaða ráðum sem er til að tortíma
slíkum húsum.
Eyðilegging Fjalakattarins var
upplagt verkefni fyrir hugsjóna-
menn þessa. Ekki var um að vill-
ast að þetta hús var óvenju fallegt
og glæsilegt og vel byggt á sínum
Bladburður
LAUS HVERFI NÚ ÞEGAR
Vantar
blaðbera
til sumar-
afleysinga
víðs vegar
um bæinn
Hafðu samband við okkur
Siðumula 6
0 68 13 33
fiEJ
tíma, og það var eitt af fáum
dæmum, sem eftir stóðu, um þau
stóru timburhús sem einkenndu
áður gamla bæinn í Reykjavík.
En auk þess var þar varðveittur í
sinni upphaflegu mynd elsti kvik-
myndasalurinn á íslandi og
kannske víðar, og við húsið tengd
mjög merkileg saga. Hvar sem
var erlendis hefði slíkt hús verið
friðað, það sett ofarlega á lista
yfir þær byggingar sem bæri með
öllum ráðum að varðveita í sinni
upphaflegu mynd: hefði það
kannske verið gert að safni eða
menningarmiðstöð af einhverju
tagi og haft mikið aðdráttarafl
fyrir ferðamenn og aðra. Það
hefði a.m.k. verið talið mun
ærði öllum rökum. En það verður
einnig að líta á þetta mál frá jarð-
bundnari sjónarmiðum og bera
fram eina spurningu: höfum við
efni á að láta slíka hugsjónamenn
leika lausum hala? Svarið hlýtur
að vera neikvætt. í bæ þar sem
sáralítið er eftir af fallegum
gömlum timburhúsum, og þau
eru auk þess eftirsótt til alls kyns
nota, er það beinlínis hagnýt
nauðsyn að halda niðurrifs-
hugsjónamönnum í skefjum með
öllum ráðum.
Það er erfitt, því að niðurrifs-
menn hafa sýnt að þeir hafa ráð
undir rifi hverju, og eru einkum
og sér í lagi snöggir í að stilla
mönnum upp frammi fyrir orðn-
um hlut. Sást það reyndar á svo-
lítið öðru sviði fyrir tæpu ári, þeg-
ar klókir hugsjónamenn af svip-
uðu tagi voru allt í einu búnir að
sundra einstöku innbúi úr
reykvískum embættismannabú-
stað frá 19. öld, sem þeir fyrir
slysni höfðu fengið ráðstöfunarr-
étt yfir, svona rétt til að sýna að
þeir ætluðu ekki að hlífa neinum
menningarverðmætum.
Til að slá þetta vopn úr hönd-
um hugsjónamanna með Hero-
Framkvæmdastjóri
Staða framkvæmdastjóra Búnaðarsambands
Suðurlands er laus til umsóknar. Umsóknarfrest-
ur er til 10. september 1987 og skal umsóknum
skilað til formanns Búnaðarsambands Suður-
lands, Ágústs Sigurðssonar, Birtingarholti, 801
Selfoss, sem jafnframt gefur frekari upplýsingar.
Stjórn Búnaðarsambands Suðurlands
Skóladagheimilið
Hagakot
Okkur vantar hressan starfsmann strax.
Upplýsingar gefur forstöðumaður, Steinunn í
síma 29270 og heimasíma 27683.
stratosar-duldir kraumandi í sál-
inni, er ekki nema ein leið fær, og
hún er einmitt sú að sætta sig alls
ekki við orðinn hlut. Mörg
ómetanleg hús hafa þegar verið
rifin og miðbærinn er eins og
hann hafi verið í höndum óvina-
hers, - eins og hann lítur út núna
virðist ekki lengur vanta annað
en náðarskotið. En það er engin
ástæða til að una því að hús eins
og Fjalakötturinn skuli hafa verið
eyðilögð, - en ýmis þau stein-
runnin öskur ljótleikans, sem
byggð hafa verið í miðbænum síð-
ustu áratugi, skuli standa um
aldur og ævi og dauð asfalt-
eyðimörk bílastæðanna breiða
sig út milli þeirra. Af gömlu hús-
unum eru til myndir, teikningar
og slíkt, og allar nauðsynlegar
upplýsingar fyrir hendi. Nær væri
því að fara að fordæmi þeirra
þjóða sem brugðu við skjótt í lok
heimsstyrjaldarinnar og endur-
reistu í sinni upphaflegu mynd
forn hús og jafnvel heil hverfi,
sem orðið höfðu eyðileggingar-
öflum að bráð. Það var eina svar-
ið við hugsjónamönnum niður-
rifsins sem dugði.
e.m.j.
Hugvekja um hugsjónamenn
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7