Þjóðviljinn - 27.08.1987, Síða 11

Þjóðviljinn - 27.08.1987, Síða 11
ERLENDAR FRÉTTIR Kanslannn í Bonn Flaugafóm með skilyrðum Helmut Kohl býðst til að eyða 72 Pershing-IA flaugum Vestur- Þjóðverja, semjist um eyðingu meðalflauga í Genf Helmut Kohl, kanslari sam- bandsstjórnarinnar í Bonn, sagði í gær að stjórn sín vildi ekki vera dragbítur á sögulega samn- inga risaveldanna um eyðingu allra meðaldrægra kjarnflauga úr heiminum og því byðist hún til að eyða 72 Pershing-IA flaugum sínum ef samkomulag tækist. Alkunna er að Sovétmenn hafa ítrekað sagt tilvist vesturþýsku flauganna helsta ljón á vegi samninga stórveldanna. En Bandaríkjamenn hafa svarað því til að þær væru eign Þjóðverja og því hefðu þeir ekki umboð til að semja um þær. Kohl sagðist áfram um að stór- veldin næðu samningum áður en forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum á næsta ári. „Ef Sovétmenn og Bandaríkjamenn ná samningi um eyðingu hverrar einu og einustu meðaldrægra kjarnflauga...munum við ekki endurnýja flaugar okkar heldur eyða þeim.“ Hann kvað stjórn sína þó setja þrjú skilyrði. í fyrsta lagi yrði að vera strangt ákvæði um eftirlit með efndum í samningnum. í öðru lagi yrði samningur að vera staðfestur af báðum aðilum áður en þýsku flaugunum yrði eytt. í þriðja lagi yrðu risaveldin að koma sér saman um nákvæma tímaáætlun fyrir eyðingu flauga sinna. Kohl sagði Bandaríkjamenn hafa verið látna vita áður en hann greindi frá tillögunni en engu að síður kváðu ónefndir bandarískir embættismenn tilboðið hafa komið sér í opna skjöldu. Þeir sögðu að þótt ákvörðun stjórnar- innar í Bonn yki líkurnar á samn- ingi stórveldanna þá veikti hún samningsstöðu Bandaríkja- manna í Genf! Sovétmenn virtust heldur ekki vera í sjöunda himni yfir tilboði Kohls. í yfirlýsingu frá frétta- stofunni Tass er rætt um að eyðingu þýsku flauganna væru sett of mörg skilyrði og bersýni- legt væri að sambandsstjórnin vildi búa svo um hnútana að fólk teldi Sovétmenn standa í vegi fyrir samningum í Genf en ekki hana sjálfa! -ks. Filippseyjar Verkföll gegn verðhækkunum Flutningaverkamenn lögðu niður vinnu ígœr vegna verðhækkana á bensíni. Víða kom til átaka mótmœlenda og lögreglu Ríkisstjórn Corazons Aquinos ákvað á dögunum að hækka verð á bensíni um 20 af hundraði og virðist það ætla að draga dilk á eftir sér. I gær lögðu flutninga- verkamenn niður vinnu og segjast ekki taka aftur til starfa fyrr en Suður-Afríka Tilboði hafnað Yfirgnæfandi meirihluti þeirra 300 þúsund blakkra náma- manna sem eru í verkfalli í Suður- Afríku hafnaði í gær tilboði námaeigenda til lausnar vinnu- deilunni. Tilboðið höfðu námaeigendur lagt fram á fundi sínum og for- ystumanna Landssambands námamanna í fyrradag. í því var ekki gert ráð fyrir kauphækkun en ýms hlunnindi boðin svo sem hækkun líftryggingar og rýmkun orlofsréttar. Að sögn Cyrils Ramaphosa, leiðtoga námamanna, fannst mönnum ekki koma til greina að halda til vinnu eftir sautján daga verkfall án þess að hafa knúið fram neina launahækkun. „Því mun verkfallinu ekki verða aflýst fyrr en gengið hefur verið að kröfum okkar.“ -ks. ákvörðun stjórnarinnar hefur verið hnekkt. Víða skarst í odda milli lögregl- usveita og mótmælenda. í höfuð- borginni Manila særðust sex manns, þar af fjórir hættulega, eftir að lögreglumenn hófu skot- hríð á hóp fólks sem kastað hafði grjóti í þá og hindrað umferð. Um 120 manns voru handtekin í Manila og Cebu, næststærstu borg landsins, eftir átök. Aquino hafði boðist til að hafa hækkunina örlítið minni en því boði var hafnað af leiðtogum flutningamanna. Sögðu þeir verð vörunnar engu að síður verða óviðráðanlegt þorra félaga. Nokkur öflug hagsmuna- samtök lýstu yfir stuðningi við verkfallsmenn, þar á meðal ýms samtök námsmanna og smá- bænda. Sögðu leiðtogar þeirra að þeir myndu slást í för með flutn- ingaverkamönnum þegar þeir flykkjast hópum saman til for- setahallarinnar í dag. Forsetinn sjálfur vildi lítið láta hafa eftir sér um verkfallið en sagði þó að hún reyndi af fremsta megni að gæta sanngirni og „ég verð bara að reyna að útskýra fyrir almenningi að hækkanirnar eru nauðsynlegar." -ks. Brasilía Stjama Pixote vegin Pilturinn sem fór með aðal- hlutverkið í brasilísku kvik- myndinni Pixote var í gær skotinn til bana af lögreglumönnum í Sao Paulo. Ramos da Silva hlaut heimsfrægð fyrir túikun sína á ungum götustrák sem ráfar um völundarhús glæpa og vændis í skuggahverfum Sao Paulo. Kvik- myndin var gerð árið 1980 og var höfundarverk Hectors Babenc- os. Að sögn lögregluyfirvalda var Silva í hópi manna sem reyndu að rænastórverslun. Þegar lögreglu- þjónar komu á vettvang kom til skotbardaga og féll Silva við ann- an mann. Silva var þrettán ára gamall þegar hann lék í kvikmyndinni og hafði hann verið valinn úr hópi 1,300 umsækjenda. Hann var fæddur og uppalinn í fátækra- hverfum Sao Paulo og átti níu systkyni. Um skeið virtist framtíð hans björt en leiktilboðin létu á sér standa og þar kom að örbirgðin knúði hann til að feta í fótspor söguhetjunnar í Pixote. -ks. FJÖLBRAUTASKÓUNN BREIÐHOLTI Austurbergi5 109Reykjavík ísland sími756 00 Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Dagskóli F.B. verður settur í Bústaðakirkju mán- udaginn 31. ágúst kl. 10.00 árdegis. Nýnemar eiga að koma í skólasetninguna. Allir nemendur dagskólans fá afhentar stundaskrár þriðjudaginn 1. september kl. 13.00 - 16.00 og eiga þá að greiða skólagjöld, sem eru á haustönn 1987, kr. 2.000.- auk efnis- gjalda í verklegum áföngum. Kennarar F.B. eru boðaðir á almennan kennar- afund þriðjudaginn 1. september kl. 9.00 árdegis. Kennsla hefst fimmtudaginn 3. september kl. skv. stundaskrá. Skólameistari PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða verkamenn við lagningu jarðsíma úti á landi. Nánari upplýsingar verða veittar í síma 91- 26000. Auglýsing Til innflytjenda og flugfélaga er annast vöruflutninga. Ráðuneytið vekur athygli á að hinn 1. september n.k. fellur úr gildi heimild til lækkunar flutnings- kostnaðar í tollverði vara sem fluttar eru hingað til lands með flugi. Fjármálaráðuneytið 26. ágúst 1987. REYKJKHKURBORG Jtau&vi St&dun. Staða forstöðumanns manntalsskrifstofu Staða forstöðumanns manntalsskrifstofu Reykjavíkurborgar er laus til umsóknar. Nánari upplýsingar um starfið gefur Gunnar Eydal skrif- stofustjóri, Austurstræti 16. Umsóknum sé skilað til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, fyrir 4. sept- ember n.k. á eyðublöðum sem þar fást. Starfsfólk Við óskum eftir starfsfólki til vinnu á dagheimilinu Steinahlíð sem er 26 barna heimili. Við erum í fallegu gömlu húsi með stórum garði. Upplýsingar í síma 33280. Flmmtudagur 27. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.