Þjóðviljinn - 26.09.1987, Side 1

Þjóðviljinn - 26.09.1987, Side 1
Laugardagur 26. september 1987 213. tölublað 52. örgangur Launanefndin Fullar verðbætur Launanefnd ASÍ, VSÍog VMS ekki sammála um úrskurð sinn. Ákvörðun umfullarverðbœtur tekin með oddaatkvœðifulltrúaASÍ. Ásmundur Stefánsson: Verðbœturnar eru bein afleiðing afvanefndum ríkisvalds ogvinnuveitenda. Þórarinn V. Þórarinsson: Leiðirtil aukinnar verðbólgu og rýrnandi kaupmáttar Frá og með 1. október næstkomandi hækka laun um 7,23%. Frá sama tíma verða lág- markslaun á mánuði fyrir fullt starf hjá ófaglærðum 29.975 krónur, en hjá faglærðum 39.396 krónur. Launanefndin, sem í áttu sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi ís- lands, Vinnuveitendasambandi íslands og Vinnumálasambandi samvinnufélaganna var ekki sam- mála í úrskurði sínum, sem birtur var í gær, og var ákvörðunin um fullar verðbætur á laun tekin með oddaatkvæði fulltrúa Alþýðu- sambands íslands. „Við töldum það skyldu launanefndarinnar að verja kaupmátt þeirra sem ekki hafa notið Iaunaskriðs og bæta þá um- framhækkun verðlags sem orðið hefur. En brýnt er að hafa það í huga að þessar verðbætur eru af- leiðing af því að hvorki ríkisvald- ið né vinnuveitendur hafa staðið við loforð sín frá desembersamn- ingnum í fyrra.“ „Ef genginu verður haldið föstu og ríkisvaldið sýnir aðhald í ríkis- og peningamálum þá hef ég miklu fremur trú á því að verð- bólga fari minnkandi fremur en að þessar launahækkanir muni leiða til aukinnar verðbólgu," sagði Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands íslands. Að sögn Þóraríns V. Þóraríns- sonar, framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands íslands mun þessi rúmlega 7% hækkun launa leiða til enn frekari verð- bólgu á næstu mánuðum og grafa, undan fastgengisstefnunni. Enn-: fremur muni launahækkunin nú' torvelda gerð kjarasamninga sem miði að stöðugleika og jöfnuði í launaþróun. Reynslan sýni að vaxandi verðbólga leiði óhjá- kvæmilega til rýrnandi kaupmátt- ar fyrr en síðar. Þá fengu opinberir starfsmenn einnig launaglaðning í gær þegar launanefnd fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja úr- skurðaði að laun þeirra samninga er falla undir nefndina skuli hækka um 5,65% þann 1. októ- ber næstkomandi. Þessi hækkun launa er tilkomin vegna hækkunar framfærsluvísi- tölu umfram það sem samningar gerðu ráð fyrir, þannig að laun hækka samtals um 7,23% hjá þeim, sem ella hefðu hækkað um 1,5%. -grh, Þjóðviljinn Ó, Flosi! Stjórnleysi og sól- kjarnabrauð undanfari válegra tíðinda Mikill harmur er kveðinn að lesendum Þjóðviljans og starfsmönnum: Flosi skrifar í dag síðasta Vikuskammt sinn í Sunnudagsblaðið. Flosi hefur skemmt, frætt og prédikað í bundnu máli og lausu í helgarblaði Þjóðviljans í ein sex- tán ár, segist nú vera að ljúka fjórða kjörtímabili sínu og hefur ákveðið að gefa ekki kost á því að gefa kost á sér áfram. Þessa ákvörðun tók helsti dálkapenni landsins eftir örlagar- íka atburði í bakaríi vestur á Mel- um um daginn, og má um þá fræðast í síðasta vikusk- ammtinum - „af kveðju" - í Sunnudagsblaðinu. Stjórnleysi og sólkjarnabrauð aldrei þrífist! Þjóðviljinn þakkar Flosa sam- fylgd og skemmtun og vonast til að þráðurinn verði tekinn upp aftur þótt síðar verði. Ritstj. Borgaraflokkurinn Framboð gegn Davíð Júlíus talinn öruggur varaformaður Borgaraflokkurinn ætlar að bjóða fram í næstu sveita- stjórnarkosningum um allt land, ef marka má ræðu Alberts Guð- mundssonar, væntanlegs for- manns flokksins, á „Borgara- fundi“ í fyrrakvöld, og þar með gegn Davíð Oddssyni og öðrum Sjálfstæðismönnum í Rcykjavík. Fyrsti landsfundur flokksins hófst í gærmorgun að viðstöddum um 400 flokksfélögum, og er ætl- unin að móta þar stefnu f veiga- miklum málaflokkum og kjósa flokknum stjórn. Fullvíst er talið að Albert Guð- mundsson verði formaður flokks- ins síðdegis í dag, og Júlíus Sólnes Reykjanesþingmaður er enn- fremur talinn nær öruggur um kosningu í varaformannsstöðu eftir stuðningsyfirlýsingu frá Al- bert, en hinir frambjóðendurnir til varaformanns, Benedikt Bogason verkfræðingur og Ás- geir Flannes Eiríksson verslunar- maður með meiru njóta þó um- talsverðs stuðnings. Að auki verður kjörinn ritari og sjö meðstjórnendur auk átta sjálfkjörinna kjördæmisráðsfor- manna. Landsfundinum lýkur annað kvöld. -m Polanski mættur. I gær kom síðasti gestur Kvikmyndahátíðarinnar til landsins, síðasti en ekki sísti: Roman Polanski, einn af frægustu kvik- myndaleikstjórum samtímans. Polanski er á myndinni að tékka inn á Hótel Sögu í samfylgd Sigurðar Sverris Pálssonar. Tvær af myndum hans verða sýndar í Laugarásbíói næstu daga. „Tess“ frá '79 og „Hnífurinn í vatninu", fyrsta langa mynd leikstjórans frá 1962. Leikstjórinn verður viðstaddur sýningu hinnar fyrrnefndu í dag klukkan 13.30. Smárahvammur Undirritun aðeins eftir Flytji SÍS höfuðstöðvar íSmárahvamm greiðirfyrirtœkið öll aðstöðugjöld til Kópavogs, einnig afSundahöfn og annarri starfsemi í Reykjavík. Davíð hefur ekkert að bjóða. Salan á Sölvhólsgötuþokast að samkomulagi Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir að Sambandið flytji höfuðstöðvar sínar til Kópavogs. Segja hcimildir Þjóðviljans að búið sé að ganga frá kaupsamn- ingi á Smárahvammslandinu og ekkert eftir nema að undirrita þann samning. Þegar höfuðstöðvarnar flytjast til Kópavogs mun Sambandið greiða öll sín aðstöðugjöld til Kópavogskaupstaðar, einnig af aðstöðu sinni við Sundahöfn í Reykjavík, og af annarri starf- semi sem verður á vegum SÍS í Reykjavík. Samkvæmt lögum eiga fyrirtæki að greiða öll að- stöðugjöld sín til þess sveitarfé- lags þar sem höfuðstöðvarnar eru staðsettar. Þannig greiða Hag- kaup í Njarðvíkum aðstöðugjöld til Reykjavíkur. „Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé albesta landið á höfuð- borgarsvæðinu, sem okkur stend- ur til boða,“ sagði maður í efstu lögum Sambandsins. Sagði hann að allir samningar í sambandi við landamálið hefðu gengið snurðu- lítið fyrir sig.“ Guðjón B. Ólafsson og Davíð Oddsson hafa rætt sín á milli þessi mál og hafa áformað annan fund en Davíð hefur ekki haft neitt að bjóða sem er sambærilegt við Smárahvamminn, auk þess sem Sambandið grætur það ekki að yfirgefa borg Davíðs. „Því er ekki að neita að pólit- ískum yfirvöldum í borginni hef- ur oft fundist fjósaþefur af okkur. Það verða allir þreyttir á leik ef ekki er farið eftir leikreglum, hinsvegar hefur Sambandið ekki efni á því að láta ergelsi hafa áhrif á svona stóra ákvörðun. Málið er einfaldlega það að Smára- hvammur er langbesta landið á svæðinu.“ Sambandið hefur nú fengið frest til að svara tilboði ríkisins í húseignina við Sölvhólsgötu. Fulltrúar beggja aðila hafa hist og skipst á skoðunum um verð- mætamat á húsinu og hefur þok- ast í samkomulagsátt.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.