Þjóðviljinn - 26.09.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.09.1987, Blaðsíða 3
ÖRFRÉTTIRi Margrét Þórðardóttir startsmaður Vita- og hafnamála- skrifstofunnar hlaut 1. verðlaun í samkeppni sem fyrirtækið Mar- ska á Skagaströnd stóð fyrir um besta sjárvarréttinn 1987. Hún hlaut einnig verðlaun fyrir tvo aðra fiskrétti en alls voru 10 réttir verðlaunaðir. Þjóðarátak í umferðaröryggi á að hefjast í byrjun næsta árs. Til að vinna að undirbúningi þess hefur Jón Sig- urðsson dómsmálaráðherra skipað nefnd. EiðurGuðnason er formaður nefndarinnar en aðrir í nefndinni eru Böðvar Böðvars- son lögreglustjóri Kristfn Þorkels- dóttir auglýsingateiknari Ólafur B. Thors forstjóri Salome Þork- elsdóttir alþingismaður Valgarð Briem hæstaréttariögmaður og Valgerður Sverrisdóttir alþingis- maður. Með þeim starfa Ólafur W. Stefánsson skrifstofustjóri og Ólafur H. Þórðarson fram- kvæmdastjóri Umferðarráðs. Frakklandsfarar þurfa að fá vegabréfsáritun áður en lagt er af stað. Nú hefur franska sendiráðið ákveðið að opna skrifstofu að Austurstræti 6, 2. hæð, til að gefa út vegabréfs- áritanir. Skrifstofan verðuropnuð nk. mánudag. Afgreiðslutími verðurfrá 8:30-12 og 13:30-17. Sími skrifstofunnar er 624025. Doktorsvörn fer fram í dag laugardag við læknadeild Háskóla (slands. Það er Stefán Skaftason læknir sem ver doktorsritgerð s(na um eyrnaskurðlækningar á íslandi 1970 til 1980. Andmælendur verða prófessor Otto Meurman frá Aabo Universitet og dr. med. Ole Bentzen, yfirlæknir frá Árós- um. Prófessor Davíð Davlðsson stjórnar athöfninni. Lánskjara- vísitalan hefur hækkað um 1.07% frá s(ð- asta mánuði, en á ársgrundvelli eru það um 13,6%. Á stðustu tólf mánuðum hefur lánskjaravísital- an hækkað um 19,1%. Félag eldrí borgara ( Reykjavík og nágrenni heldur félagsfund á þriðjudaginn í Goð- heimum, Sigtúni 3 þar sem rætt verður um húsnæðismál aldr- aðra. Adda Bára Sigfúsdóttir hef- ur framsögu á fundinum sem hefst kl. 20.30. , Bjargey Ólafsdóttir Stafholti 16 á Akureyri verður átt- ræð á morgun sunnudag. FRÉTTIR Heimilishjálp Astandið mjög alvarlegt Sjúkrahúsin geta ekki útskrifað fólk vegna manneklu hjá Heimilis- hjálp. Stefanía Úlfarsdóttir: Mjög dýrtfyrirþjóðfélagið. JónínaPét- ursdóttir: Allt að hálfs árs bið eftir heimilishjálp „Ástandið er mjög aivarlegt og það fer versnandi,“ sagði Stefan- ía Úlfarsdóttir, félagsráðgjafi á Borgarspítalanum, um það ástand sem hefur skapast á sjúkrahúsinu vegna mannekiu hjá Heimilishjálpinni. Einsog fram hefur komið í Þjóðviljanum eru um 200 manns á biðlista hiá Heimilishjálp Reykjavíkur. Astandið er þó enn alvarlegra þegar tekið er tillit til þess að á sjúkrahúsunum dvelst fjöldi manns vegna þess að enga heimilishjálp er að fá. Stefanía sagði að á Borgarspít- alanum væri töluverður hópur sem hægt væri að útskrifa ef ein- hverja heimilishjálp væri að fá. Sagði hún að vegna þessa þyrftu sjúklingar að vera á göngum og í skotum, auk þess sem ekki væri hægt að taka við öllum sjúk- lingum þar sem allt væri fullt. „Það er mjög dýrt fyrir þjóðfé- lagið að hafa fólk á sjúkrahúsum, sem með hjálp gæti dvalið heima hjá sér.“ Félagsráðgjafar á Landspítal- anum hafa rætt þetta mál við fél- agsmálaráðherra og á fimmtudag er ráðgerður fundur félagsráð- gjafa út af málinu. Jónína Pétursdóttir, forstöðu- kona Heimilishjálpar, sagði við Þjóðviljann að það gæti verið allt að hálfs árs bið fyrir fólk að fá heimilishjálp. Sagði hún þetta mismunandi eftir bæjarhlutum en ástandið væri einna verst í Vesturbænum. Þeir sem þurfa hinsvegar dag- lega aðstoð fá hana yfirleitt eftir stutta bið. Það er einkum fólk sem þarf ræstingu einusinni í viku, sem verður að bíða. „Ræstingarnar eru okkur þungar í skauti. Það er erfitt að fá konur til að taka þetta að sér fyrir þessi laun. Við bendum því þeim sem þurfa á hjálpinni að halda og aðstandendum þeirra á að reyna að útvega sjálft fólk til að ræsta, en við greiðum svo fyrir ræsti- nguna. Það eru oft barnabörn sem taka þetta að sér.“ -Sáf Yflr 20 fóstrunemar frá Finnlandi hafa verið á ferð hérlendis undanfarna daga og kynnt sér land og þjóð og stöðu dagvistarmála. Nemarnir sem eru frá Jakobsstad litu við á skóladagheimilinu í Laugarnesi í gærmorgun þar sem Sig. smellti þessari mynd af þeim. Hátún Aðgengi fyrir alla Sjálfsbjargarmerki seld á morgun „Aðgengi fyrir alla“ er kjörorð helgarinnar hjá Sjálfsbjörg - landssambandi fatlaðra. Á sunnudag verður árlegur mer- kjasöludagur sambandsins, en í dag verður opið hús í húsnæði Sjálfsbjargar að Hátúni 12. Dagskráin í Hátúni hefst klukkan tvö og hálftíma síðar verður farið í fyrstu skoðunar- ferðina um húsið. Þær verða síð- an endurteknar á hálftíma fresti. Jóhanna Þórhallsdóttir syngur við undirleik Svönu Víkingsdótt- ur, og þau Gísli og Herdís leggja sitt til stemmningar. -m Vesturlandsvegur Allar úrbætur stranda á ríkinu íbúar Mosfellsbœjar: Krefjastfyrirbyggjandi aðgerða. Aukin slysatíðni á veginum. Páll Guðjónsson bœjarstjóri: Höfum reyntað ýta við ríkinu án árangurs. Lögreglan íHafnarfirði: Nauðsynlegtað fœraveginn niðurfyrir bœinn. RögnvaldurJónsson hjá Vegagerðinni: Framkvœmdir ekki á dagskrá Norðurland Fyrsta uppboð á þriðjudag Fiskmarkaður Norðurlands á Akureyri sem var stofnsettur í vor var formlega opnaður í gær. Búist er við að fyrsta uppboðið á markaðnum, sem er fjarskipta- markaður, fari fram á þriðjudag- inn. 10 fiskvinnslustöðvar á Norð- urlandi, allt frá Sauðárkróki til Þórshafnar, eru tengdar tölvuk- erfi markaðarins. Ekkert er því til fyrirstöðu að aðilar utan Norð- urlands geti tengst uppboðsnet- inu. Fiskseljendur verða að til- kynna afla fyrir hádegi eigi hann að vera í boði samdægurs. Kaup- endur geta séð að tölvuskermi hvaða afli er f boði og boðið í hann þar til kl. 15.00 en þá verður lokað fyrir öll boð. Markaðurinn tekur 3% í sölulaun af brúttó- söluandvirði aflans. Stjórnarformaður Fiskmark- aðarins á Akureyri er Gunnar Arason og framkvæmdastjóri Sigurður P. Sigmundsson. -Ig. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina að færa Vestur- landsveginn, niður fyrir hann. En við höfum eftir fremsta megni reynt að ýta við rfkinu um að gerðar verði viðeigandi ráðstaf- anir til að auka öryggi á veginum þar sem hann liggur í gegnum bæ- inn, en án árangurs hingað til, sagði Páll Guffjónsson, bæjar- stjóri í Mosfellsbæ. Mikil óánægja ríkir meðal íbúa Mosfellsbæjar yfir sívaxandi um- ferðarþunga og auknum hrað- akstri á Vesturlandsveginum þar sem hann liggur í gegnum bæinn. Vilja íbúarnir að öryggi gangandi sem akandi vegfarenda verði aukið með fyrirbyggjandi að- gerðum og þá ekki síst í ljósi þeirrar staðreyndar að nú með stuttu millibili síðsumars hafa orðið þar þrjú banaslys í umferð- inni. En menn greinir á um það hvað beri að gera. Bæjaryfirvöld vísa á ríkið, þar sem vegurinn er ríkis- vegur, um nauðsynlegar úrbætur. Þá vilja sumir að vegurinn verði færður niður fyrir bæinn, eins og Garðar Kristjánsson, varðstjóri hjá Hafnarfjarðarlögreglunni tjáði Þjóðviljanum, þegar hann var spurður álits á því hvað þyrfti að gera til að auka öryggi vegfar- enda á þessum vegarspotta sem liggur í gegnum bæinn. Sagði Garðar að menn yrðu að gera sér grein fyrir því að á síðustu misser- um hefði orðið algjör sprenging í bflaeign landsmanna og einnig hitt að umferðarhraðinn hefði aukist gífurlega, þrátt fyrir við- leitni lögreglunnar til að sporna gegn því. Rögnvaldur Jónsson, umdæm- isverkfræðingur Vegagerðarinn- ar á Reykjanesi, segir að ekkert fé sé á fjárlögum Vegagerðarinn- ar til framkvæmda á Vesturlands- veginum í ár. En hann sagði að nauðsynlegt væri að gera undir- göng undir veginn, þar sem sí- felld umferð skólabarna væri yfir hann. Ennfremur þyrfti jafnvel að setja upp umferðarljós til að dempa niður hraðann á veginum. En engar framkvæmdir á vegin- um væru á dagskrá Vegagerðar- innar, þrátt fyrir tilmæli bæjarins um framkvæmdir. Það er því ljóst að engar fram- kvæmdir verða á Vesturlands- veginum í bráð, þrátt fyrir tíð slys á honum og auknar kröfur íbú- anna um nauðsynlegar úrbætur á honum, til aukins öryggis fyrir vegfarendur. grh Miðstjórn AB: Rætt um lagabreytmgar Stungin út stefnan sem leggja á fyrir landsfundinn í nóvember. Kvennafundur í gœrkvöldi Núverandi miðstjórn Alþýðu- bandalagsins kemur saman til síns síðasta fundar kl. 10 i dag og stendur hann fram á sunnudag. A fundinum verður fjallað um hug- myndir Varmalandsnefndar og teknir fyrir ýmsir punktar úr skýrslu atvinnu- og efnahags- málanefndar en um sum atriði hennar hafa menn ekki verið sammála. Að sögn Kristjáns Valdimars- sonar skrifstofustjóra Alþýðu- bandalagsins er búist við góðri þátttöku. Hann vildi benda mönnum á að hafa með sér skýrslu atvinnu- og efnahags- málanefndarinnar. Reiknað er með að allur morg- unninn fari í umræður um tillögur Varmalandsnefndarinnar. Hún mun leggja fram tillögur um hverjar helstu málefnaáherslur flokksins eiga að vera og hug- myndir um lagabreytingar sem lagðar verða fyrir landsfund. Eftir hádegi verður miðstjórn skipt í starfshópa og verður þá rætt um efnahags- og atvinnumál- in. Frést hefur að þær konur, sem miðstjórnina skipa, hafi hist til skrafs og ráðagerða í gærkvöldi en ekki er vitað hvað þar fór fram. -óp Laugardagur 26. september 1987 J»JÓÐVIUINN - S(ÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.