Þjóðviljinn - 26.09.1987, Síða 2
—SPURNINGIN-
Koma niöurstööur skoð-
anakönnunar um viðhorf
fólks til hersetunnar þér á
óvart? (50,5 % meö,
49,5% á móti her)
Gunnar V. Friðriksen:
Nei, ekki með hliðsjón af því sem á
undan er gengið í samskiptum ríkj-
anna. Ég hef verið NATOsinni en eftir
það sem gerst hefur í hvalamálinu
finnst mér ástæöa til að endurskoða
þessi mál.
Bjarni V. Sigurðsson:
Ekkert frekar. Ég bjóst alltaf við að
mjótt væri á munum. Ég tel hvalamál-
ið ekkert afgerandi í þeim efnum
heldur almennt viðhorf fólks til her-
setu hér.
Guðbjörg Guðmundsdóttir:
Nei. Og ég tel hvalamálið vera
aukaatriði hjá fólki þegar það tekur
afstöðu til hersins.
Guttormur Einarsson:
Ekki sérstaklega. Hvalamálið hefur
mikið að segja en einnig aukin og
fjölbreytt fjölmiðlun sem upplýsir fólk
betur en áður um falið valdabrölt stór-
veldanna innan friðhelgi smáríkja.
Allt fær þetta fólk til að efast um til-
gang hersins.
Björg Eiríksdóttir:
Nei. Það á ekki að vera her á ís-
landi.
FRÉTTIR
Neskaupstaður
Stórgjöf til bæjarins
Sigrún Sigmundsdóttir gafbænum hús sitt og brœðra sinnfyrirsafnahús Neskaupstaðar
Neskaupstað var færð höfðing-
leg gjöf í síðustu viku er Sig-
rún Sigmundsdóttir færði bæn-
um að gjöf húseignina að Mið-
stræti 1 í Neskaupstað. Húsið er
gjöf Sigrúnar og bræðra hennar
tveggja,sem nú eru látnir, Jó-
hanns og Inga. í gjafabréfí setja
systkinin þau skilyrði að húsið
verði notað sem safnahús Nes-
kaupstaðar og að steinasafn Jó-
hanns svo og skóvinnustofa Sig-
mundar Stefánssonar föður
þeirra verði áfram varðveitt í
húsinu.
Pessi höfðinglega gjöf var af-
hent á sérstökum hátíðarfundi
bæjarstjórnar Neskaupstaðar
miðvikudaginn 16. september sl.
Ásgeir Magnússon bæjarstjóri
veitti gjöfinni viðtöku úr hendi
Sigrúnar og Kristinn V. Jóhanns-
son flutti gefendum þakkarávarp
og rakti sögu hússins. í máli Kri-
stins kom m.a. fram að þessi
fundur bæjarstjórnar væri sá 946.
frá upphafi og þessi stórkostlega
gjöf væri einsdæmi í þeirri sögu.
Kristinn sagði ljúft að verða við
skilyrðum gefenda, enda væri
húsið sérstaklega vel í sveit sett til
að þjóna sem safnahús. Lóð þess
er stór og liggur að skrúðgarði
bæjarins svo að þar skapast marg-
ir möguleikar. Hann sagðist hafa
orð fróðra manna fyrir því að
steinasafn Jóhanns Sigmunds-
sonar væri eitt hið merkilegasta á
landinu og áhugavert væri að
Ásgeir Magnússon bæjarstjóri þakkar Sigrúnu fyrir höfðinglega gjöf á hátíðarfundi bæjarstjórnar. Á innfelldu myndinni er
hús Sigrúnar. Mynd - hb.
varðveita skóvinnustofuna, sem
rekin hefði verið í húsinu í tæp 80
ár. Fyrst af Sigmundi Stefánssyni
en síðan af Valgeiri syni hans
með aðstoð systkina sinna. Bæ-
jarstjórn samþykkti síðan sam-
hljóða tillögu sem felur safna-
nefnd bæjarins að gera nú þegar
drög að nýtingu hússins.
Húsið að Miðstræti 1 ertveggja
hæða hús og var reist af hjónun-
um Sigmundi Stefánssyni og Stef-
aníu Arnadóttur á árunum 1906
og 1907.
- hb
Stóriðjurafmagn
Yfir lágmarkiö
Alusuisse hefurgreitt lágmarksverð fyrir rafmagn mest allan tímann
síðan nýi raforkusamningurinn vargerður. Raforkuverðið hefur
hækkað örlítið á þessu ári
Verðið hefur lengst af verið um
12,5 mills, en fer nú hækkandi
og verður 13,8 mills á þriðja árs-
fjórðungi í ár, sagði Halldór Jón-
atansson, forstjóri Landsvirkjun-
ar um raforkuverðið sem Alu-
suisse greiðir.
Það var í nóvember 1984 að
Sverrir Hermannsson, þáverandi
iðnaðarráðherra, kynnti nýjan
raforkusamning við Alusuisse.
Vinnueftirlitið og Iðntækni-
stofnun í samvinnu við dan-
ska vinnuumhverfíssjóðinn, efna
til námskeiðs um vinnuumhverfí
og öryggismál á vinnustöðum um
næstu mánaðamót.
Námskeiðið, sem er undir
stjórn danskra og íslenskra fag-
Sá samningur hljóðaði upp á að
raforkuverð færi aldrei undir 12,5
mills og aldrei yfir 18,5 mills. Var
Sverrir bjartsýnn á að raforku-
verðið yrði nær hámarki en lág-
marki. Reyndin hefur hinsvegar
verið önnur.
Meðalverð fyrir árið 1985 var
12,5 mills, og fyrir 1986, 12,6
mills. Á fyrsta ársfjórðungi í ár
var verðið 12,5 mills en var kom-
manna á sviði vinnuumhverfis og
öryggismála, er ætlað stjórnend-
um, verkstjórum, öryggisfulltrú-
um fyrirtækja og þeim sem ann-
ast innkaup og skipulagningu í
fyrirtækjum og stofnunum.
Á námskeiðinu verður m.a.
fjallað um skipulagningu öryggis-
ið í 13 mills á öðrum ársfjórðungi
og einsog áður sagði í 13,8 mills á
þriðja ársfjórðungi.
Halldór sagði að því væri spáð
að verð á áli verði rokkandi á
næsta ári, en raforkuverðið fer |
eftir því. Til lengri tíma litið er 1
því hinsvegar spáð, að sögn Hall-
dórs, að verð á áli fari smám sam-
an hækkandi.
mála, vinnuslys og helstu orsakir
þeirra, áhrif aðstæðna á vinnu-
stað á heilsu og líðan launþega og
hvernig vinnustaðir eigi að vera
búnir svo að velferð starfsmanna
verði best tryggð.
Kennslan fer fram í húsi Iðn-
tæknistofnunar að Keldnaholti.
-Fréttatilkynning
Frœðsluráð
Bréf Ragnars
Ragnar Júlíusson formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur hefur
óskað eftir því að Þjóðviljinn birti
eftirfarandi bréf sem hann sendi
Þorbirni Broddasyni vegna óskar
Þorbjarnar um fund í ráðinu þar
sem fjallað yrði um boðsferð 8
skólastjóra grunnskóla Reykja-
víkur til höfuðstöðva NATO í
Brússel á dögunum.
Reykjavík 23. september “87.
- Hefi í dag móttekið bréf þitt
dags. 22. sept. ‘87 með ósk um
fund í fræðsluráði Reykjavíkur.
Ég hafði, í samráði við fræðslu-
stjóra Reykjavíkurumdæmis,
ákveðið að halda fund í ráðinu
mánudaginn 5. október n.k.
Þar sem atburður sá er um er
fjallað í bréfi þínu er nú liðinn
fyrir nokkru má ætla að umræða
um hann megi, án skaða, bíða
þessa fundar, en þá verður erindi
þitt sett á dagskrá. Vona ég að þú
sért sáttur við þessa málsmeð-
ferð.
Með bestu kveðju
Ragnar Júlíusson
-Sáf
Öryggi vinnustaða
Fræðst um bætt vinnuumhverfi
Jón Baldvin sagði að ^ 0g afla tekna T
'mikilvægast væri að stoppa í með nýjum Lf
v uppí fjárlagagatið og A,
halda þenslunni í
skefjum. Til þess yrði
aðstöðva allar
íóeólííegar kauphækkamrý'
söluskatti /
og tekjuskattshækkun. C
Fjármálaráðherra... \
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. september 1987