Þjóðviljinn - 06.10.1987, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 06.10.1987, Blaðsíða 10
ERLENDAR FRETTIR Filippseyjar Hægrimenn myndablokk Salvador Laurel ogJuan Ponce Enrile taka höndum saman ogfáfyrrum liðsmenn Mark- osar til liðs við sig. Obein áskorun á herinn um að steypa Aquino af stóli? r Ymsir hópar hægrimanna hafa tekið höndum saman í and- stöðu sinni við ríkisstjórn Coraz- ons Aquinos á Filippseyjum og ætla að vera í startholunum segi hún af sér af fúsum og frjálsum vilja eða nauðug viljug. Þetta var haft eftir heimilda- mönnum í röðum hægri sinnaðra stjórnaraandstæðinga í gær. Þeir stóðu á því fastar en fótunum að Salvador Laurel, varaforseti og fyrrum utanríkisráðherra, og Juan Ponce Enrile, fyrrum varn- armálaráðherra, hefðu náð samkomulagi um að mynda ó- formlegt bandalag gegn forsetan- um. Ekki væri loku fyrir það skotið að með í samkrulli þessu væru ýmsir stjórnmálamenn er fyrrum hefðu verið handgengnir Ferdinand Markosi. Laurel myndi vera leiðtogi samfylkingar þessarar þar eð hann er sá maður er taka myndi við embætti Aqu- inos ef hún færi frá völdum. Aquino sjálf hefur ítrekað lýst því yfir í viðtölum að undanförnu að þvf fari fjarri að hún hyggist hætta. Og fæstir stjórnmálaskýr- enda telja sig koma auga á annan kost í filippeyskum stjórn-málum en nú-verandi stjórn. Blaðafulltrúi forsetans, Teo- doro Benigno, gerði lítið úr bralli hægri manna á fundi með frétta- mönnum í gær og kallaði það hreina „skýjaglópsku." „Þeim er frjálst að láta sig dreyma og fyrst þeir eru að því á annað borð er skiljanlegt að þá dreymi háleita drauma um frægð og frama.“ Bandaríska vikuritið „News- week“ birti nýlega niðurstöðu skoðanakönnunar er gerð var á eyjunum fyrir skemmstu. Sam- kvæmt henni geta þeir Laurel og Enríle ekki gert sér miklar vonir um að hefjast til valda í frjálsum kosningum. 74 af hundraði kjós- enda styðja Aquino og myndu halda áfram að styðja hana þótt herinn rifi völdin í sínar hendur. Það kemur fáum á óvart að Enrile og Laurel ákveði að snúa bökum saman í baráttunni fyrir æðstu metorðum, flestir telja að Laurel hafi yfirgefið ríkisstjórn- ina gagngert í því augnamiði að taka við forystu fyrir hægri- Sjúkrahúsið Egilsstöðum Hjúkrunarfræðingar Bráövantar í 2 stöður hjúkrunarfræðinga frá og með 1. nóvember eða eftir samkomulagi. Upplýsingar um kaup og kjör gefur hjúkrunarfor- stjóri í síma 97-11631/97-11400 frá 8-16. -------ALÞÝÐUBANDALAGHE)------------------- Alþýðubandalagið Kjósarsýslu Félagsfundi aflýst Félagsfundi sem halda átti í Hlégarði í dag, þriðjudaginn 6. október, hefur verið aflýst. Stjórnin Alþýðubandalagið Reykjavík Félagsfundur ABR boðar til félagsfundar fimmtudaginn 15. október kl. 20.30 að Hverf- isgötu 105. Fundarefni: 1) Kosning 100 fulltrúa og 100 varafulltrúa á Landsfund Alþýðubandalagsins. 2) Almenn stjórnmálaumræða. ATH: Tillaga uppstillinganefndar mun liggja frammi á skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 frá og með mánudeginum 12. okt. Aðrar uppástungur undirritaðar af tillögumönnum skulu berast skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105 frá og með mánudeginum 12. okt. Aðrar uppástungur undirritaðar af tillögu- mönnum skulu berast skrifstofu ABR fyrir kl. 20.30 miðvikudaginn 14. okt. Ef til kosningar kemur verða aðalmenn og varamenn kjörnir í einu lagi með einföldu vægi allra atkvæða. Munið að greiða félagsgjöldin Stjórn ABR Alþýðubandalagið í Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldinn fimmtudaginn 8. október kl. 20.30 í Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf 2) Breyting- ar á starfsreglum Bæjarmálaráðs 3) Kosning fulltrúa í Kjördæmisráð 4) Kosning fulltrúa á Landsfund AB. 5) (SLENSK FRAMTlÐ - OKKAR FRAMLAG - Ólafur Ragnar Grímsson fjallar um stöðuna í stjórnmálunum og hlutverk AB Ólafur Ragnar Félagar fjölmennið Stjórnin Salvador Laurel lýsir því yfir að hann hafi sagt skilið við ríkisstjórn Corazons Aquinos í fyrra mánuði. Nú hefur hann bundið trúss sitt við Enrile og fyrrum áhangendur Markosar. mönnum enda bar hann því við er hann yfirgaf Aquino að hún tæki alltof mjúkum höndum á skæru- liðum kommúnista. Heimildir herma að markmið þeirra félaga sé tvíþætt. Annar- svegar vilja þeir samræma að- gerðir hægrifylkingarinnar fyrir sveitastjórnarkosningar sem fram fara í janúar næstkomandi. Hinsvegar þykjast þeir ætla að vera til taks ef stjórn Aquinos fer frá völdum af einhverjum or- sökum. „Ástandið í landinu er slíkt að Cory gæti sagt af sér eða verið neydd til að segja af sér af öflum sem ekki starfa í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar," sagði ónefndur hægrimaður í gær og læðist sá grunur að lesanda að hann sé beinlínis að fara þess á leit við óánægða soldáta að þeir hefji Enrile og Laurel til valda. -ks. Norður-Irland Alin upp við ofbeldi / / A Norður-Irlandi eru hryðjuverk börnum og ungmennum nánast daglegt brauð en engu að síður hafafœstþeirra beðið varanlegt tjón á sálu sinni Börn og unglingar á Norður-írlandi eru um skör fram ógagnrýnin á viðhorf foreldra sinna að mati Cairns. Engu að síður kemst hann að þeirri niðurstöðu að traust fjölskyldubönd bjargi þeim frá alvarlegri sálsýki. Hundruð barna á Norður- írlandi hafa orðið sjónarvott- ar að því að vopnaðir menn réð- ust inná heimili þeirra og skutu fjölskylduföðurinn til bana. Börn hafa horft á kennara sína myrta í miðri kennslustund. Barn í móð- urkviði varð fyrir kúlu en komst lífs af og fæddist fyrir tímann. Fæstir unglinga átta sig á því hvernig Iífi íbúar Belfast lifðu áður en breskir hermenn fóru að þramma um göturnar, gráir fyrir járnum, og félagar írska lýðveld- ishersins (IRA) tóku að vega að þeim úr launsátri ellegar sprengja bflasprengjur vítt og breitt til að hrekja þá burt á ný. Hvernig hefur heilli kynslóð barna sem aldrei hefur kynnst friði og ekkert þekkir nema borg- arastríð er kostað hefur 2,600 manns lífið tekist að laga sig að aðstæðum? Hvaða áhrif hafa þessar aðstæður haft á sálarlíf þeirra og þroska? Maður er nefndur dr. Ed Ca- irns, sálfræðikennari við Ulster háskóla. Hann hefur nýskeð rannsakað félagssálfræðileg áhrif 18 ára borgarastríðs á líf alþýðu manna á Norður-írlandi en eink- um beint sjónum að börnum og unglingum í Belfastborg. Alitsgerð hans ber heitið „í víglínunni." Öllum á óvart kemst hann að þeirri niðurstöðu að börn og unglingar í borginni séu hreint ekki þunglyndari en jafn- aldrar þeirra erlendis og að þau séu ótrúlega lífsglöð þrátt fyrir stöðugar hremmingar í umhverf- inu. „Mikill meirihluti ungmenna á Norður-írlandi hefur Iifað við ótta og ofbeldi án þess að bíða tjón á sálu sinni.“ Ályktanir Cairns er snoðlíkar niðurstöðum sem gerðar voru á sálarlífi breskra barna þegar síðari heimsstyrjöld var í al- gleymingi. Hann segir að börnin hafi lært að „lifa eðlilegu lífi undir óeðlilegum kringumstæðum“ með því að brynja sig gegn áhrif- um ofbeldisins. Cairns fullyrðir að mjög sterk fjölskyldubönd beggja hópa, mótmælenda og kaþólikka, ráði úrslitum um að börnin haldi and- legu jafnvægi og geti aðlagað sig ástandinu. Börn og unglingar á Norður-írlandi séu íhaldssamari í siðferðilegum efnum en gangi og gerist um jafnaldra þeirra er- lendis. Þau séu jafnvel um skör fram ógagnrýnin á viðhorf for- eldra sinna í pólitískum og trúar- legum efnum og myndi sér sjald- an skoðanir sem gangi í berhögg við álit ættmenna sinna. Átök stríðandi fylkinga á Norður-írlandi verða ekki ein- göngu hermönnum og skærulið- um að fjörtjóni. Ólánssöm börn lenda gjarna í eldlínu skotmanna eða eiga leið fram hjá bifreiðum sem skyndilega springa í tætlur. Þótt fjölmiðlar greini iðulega í smáatriðum frá mannvígum í landinu, tölu fallinna og trú þeirra, þá tókst Cairns ekki að verða sér úti um áreiðanleg gögn um tölu barna sem orðið hafa fórnarlömb borgarastríðsins. En hann telur að minnsta kosti 150 börn, 14 ára og yngri, hafa beðið bana af þessum sökum á árunum 1969-1983. En þrátt fyrir allt er niðurstaða Cairns um sálarástand norður- írskra barna átakanleg. Þau ná að halda sér í andlegu jafnvægi með því að herða sig, verða ónæm fyrir þjáningum annarra, og með því að hata með öðrum, hvort heldur það eru foreldrar ellegar trúsystkin og jafnaldrar. Og ang- istin er ætíð skammt undan. Ósj- aldan berst tilkynning á borð við þessa í útvarpi: „Maður var skotinn til bana rétt í þessu á leið frá vinnu í Belfast. Nánar sagt frá þessu síðar.“ Og sú hugsun þýtur um huga þúsunda barna í borg- inni: „Var það pabbi minn?“ -ks. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 6. október 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.