Þjóðviljinn - 06.10.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.10.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 DJÓÐVILIIN Þriðjudagur 6. október 1987 221. tölublað 52. órgangur Þjónusta íþínaþágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Suðurnes Snúum vöm í sókn Stofnun nýs útgerðarfélags í burðarliðnum. Stefnt að 100 milljónum króna íhlutafé. Logi Þormóðsson: Reynum að halda bátum og kvótum áfram á Suðurnesjum Markmið og tilgangur með stofnun nýs útgerðarfélags hér á Suðurnesjum er að reyna að sporna við þeirri þróun að héðan séu seld fískiskip, togarar og kvótar úr byggðarlaginu, sagði Logi Þormóðsson, stjórnarfor- rnaður Fiskmarkaðs Suðurnesja. Verulegur skriður er nú kom- inn á undirbúning stofnunar stórs útgerðarfélags á Suðurnesjum sem ætlunin er að geri út nokkra báta og selji afla sinn í gegnum fiskmarkað. Stefnt er að því að safna saman hlutafé allt að 100 milljónum króna. Að sögn Loga Þormóðssonar hefur hlutafjáröfnunin gengið allvel og margir lýst yfir miklum áhuga á að vera með í stofnun fyrirtækisins, sem miðar að því að snúa vörn í sókn í fiskveiðimálum kjördæmisins. Undirbúningsfundur fyrir stofnun fyrirtækisins verður 18. október næstkomandi, ef að lík- um lætur. Þingmenn kjördæmis- ins hafa tekið hugmyndinni afar vel, enda veitir ekki af miklum stuðningi við stofnun fyrirtækis- ins því nú þegar eru fjórir bátar til sölu á Suðurnesjum, með kvóta, en með tilkomu þessa útgerðarfé- lags er þess að vænta að hægt verði að halda þeim innan Suður- nesja. -grh Mannleg mistök „Orsök sprengingarinnar í Járn- blendiverksmiðjunni síðdegis á laugardaginn var röð tilviljana og mannleg mistök,“ sagði Gunn- laugur Hjörleifsson, deildarstjóri hjá Járnblendinu á Grundar- tanga. 900 stiga heitum málmi var hellt í ker með vatni í og orsakaði það kröftuga sprengingu sem rauf stór stykki úr verksmiðju- húsinu. Mikil mildi var að engin slys urðu á mönnum. Ellefu menn voru við vinnu á Grundartanga þegar sprengingin varð. Tveir menn voru við vinnu nálægt þeim stað þar sem ósköpin dundu yfir en þá sakaði ekki. grh Fiskmarkaðir Samræmdur uppboðsb'mi Við funduðum um helgina og komumst að þeirri niður- stöðu að samræma uppboðstíma beggja markaðanna til hagsbóta fyrir fískkaupendur sem margir hverjir skipta við báða markað- ina. Uppboðstíminn verður því eftirleiðis þannig að Faxamark- aður opnar klukkan 7.30 á mor- gnana og við klukkan 9.00, sagði Einar Sveinsson, framkvæmda- stjóri Fiskmarkaðarins í Hafnar- fírði. Nokkurrar óánægju hafði gætt að undanförnu meðal fiskkaup- enda vegna þess hve skammur tími væri oft til stefnu að ná í báða fiskmarkaðina vegna þess hve uppboðstímar þeirra voru með skömmu millibili, Að sögn Einars var í samkomulaginu tekið tillit til um- ferðarþungans á morgnana, þeg- ar tímasetningin var ákveðin. Betra þótti að byrja uppboðin á Faxamarkaðinum og beina síðan umferðinni suður eftir á móti um- ferðinni, þar sem mun greiðara er þá að keyra suður í Hafnarfjörð heldur en að keyra til Reykjavík- ur. Einnig var tekið með í dæmið að Fiskmarkaðurinn í Hafnar- firði er oft á tíðum með meiri afla til sölu en Faxamarkaðurinn og því þótti henta vel að láta hann byrja og sá hafnfirski kæmi síðan á eftir. ~8r*1 Ólafsvíkurskák Fljúgandi start hjá Björgvin Sjöunda alþjóðaskákmót landsbyggðarinnar stendur nú yfir í Olafsvík, og var önnur um- ferð tefld í gærkvöldi. Það sætir mestum tíðindum í upphafi móts- ins að ungur Njarðvíkingur, Björgvin Jónsson, hefur fengið fljúgandi start; hann vann Karl Þorsteins í gærkvöldi og á hartnær unna biðskák gegn Jóni L. Árnasyni úr fyrstu umferð. Titilhafar á mótinu eru þrír. Auk þeirra tveggja sem Björgvin hefur leikið svo grátt teflir Sævar Bjarnason á mótinu. Að loknum tveimur umferðum eru Daninn Danielson og Þröstur Þórhallsson efstir með 1,5 vinn- inga, en takist Björgvin að vinna biðskákina gegn Jóni L. nær hann efsta sætinu. Teflt er í nýju, stórglæsilegu fé- lagsheimili í Olafsvík og að sögn skákstjórans, Torfa Stefáns- sonar, hafa heimamenn fiöl- mennt á mótið. HS Ólafur Ragnar Grímsson, séra Gunnar Kristjánsson, Romesh Chandra forseti Alþjóðlegu friðarhreyfingarsamtakanna ILF, og Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra, en hann ávarpaði fundinn. Nauðsynin á nýjum viðhorfum í alþjóðamálum var ofarlega á þaugi meðal þátttakenda í hringborðsumræðun- um um helgina. Mynd: Sig. Friðarhreyfingar Gegn heimspeki sbíðsins Við verðum að berjast gegn heimspeki stríðsins. Það er ekki nóg að ræða afvopnunartil- lögur og vilja eyða flugskeytum. Við verðum ekki síður að kljást við það hugarfar sem gerir stríðs- rekstur mögulegan, sagði Vítali Korotistsj, ritstjóri sovéska viku- ritsins Ogonjok, einn þátttakenda í hringborðsumræðum um Reykjavíkurfundinn fyrir ári og framvindu sambúðarmála síðan. Alþjóðlegu friðarhreyfinga- samtökin ILF stóðu fyrir hring- borðsumræðunum, og snerust umræður einkum um almenn- ingsálitið í heiminum og samn- inga stórveldanna, Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna, um af- vopnun. Steingrímur Hermannsson ut- anríkisráðherra ávarpaði fundinn og sagði að samkomulagið sem nú væri í augsýn um útrýmingu meðaldrægra kjarnorkuflauga væri risaskref í þá átt að stöðva vígbúnaðarkapphlaupið. Þátttakendur lögðu áherslu á að Reykjavíkurfundurinn fyrir ári hefði verið upphafið að því að ieita leiða til að fækka og útrýma kjarnorkuvopnum. „Reykjavík er orðin tákn um nýja framtíð,“ sagði hollenski þingmaðurinn ur um meðaldrægar kjarnaflaug- Frans J.F. Uyen. ar hafi verið umræðugrundvöllur Þátttakendur hringborðsum- hringborðsumræðnanna. „Samn- ræðnanna sameinuðust um að ingur þessi, sem allt bendir nú til senda Reagan og Gorbatsjof að þið munið undirrita fyrir hönd skeyti. í skeytinu segir meðal Bandaríkjanna og Sovétríkj- annars að hinn sögulegi samning- .anna, samræmist dýpstu tilfínn- ingum og viðleitni þjóða heims,“ segir þar. Þátttakendur voru frá 17 löndum í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku, Asíu og Afríku. Þá sóttu fundinn 35 fulltrúar ís- lenskra friðarhreyfínga. HS Föstudagskvöld Pakkaður miðbær Miðbærinn á föstudagskvöld- um er eins og á 17. júní, og þannig er það búið að vera um hverja helgi í allt sumar, sagði Vilborg Jónsdóttir, starfsmaður Útideildar, en mannsöfnuðurinn í miðbænum þótti með mesta móti síðastliðið föstudagskvöld. Unglingarnir koma seinna en áður tíðkaðist, yfirleitt ekki fyrr en um miðnætti, og blandast síð- an þeim sem koma af skemmtistöðunum. Mest er um 15 og 16 ára krakka, en annars eru þau frá 19 ára aldri og allt niður í 12 ára börn, sem aftur vekur spuminguna hvar foreldrar þeirra séu og hvað þeir séu að hugsa,“ sagði Vilborg. Aðspurð sagði Vilborg að starfsfólk Útideildar hefði áhyggjur af því hvernig krakk- arnir kæmu sér heiin. „Það er ekki nema þriðjungur þeirra sem fer heim með síðasta strætó, og hin þá flest á puttanum. Hluti þeirra kemur frá nágranna- sveitarfélögunum og eiga því um langan veg að fara til að komast heim. „Ástandið núna er svipað og það var ’82, en það ár urðu miklar umræður í Félagsmálaráði um hugsanlega kynferðismisnotkun á unglingum þegar þeir voru að puttast heim um miðjar nætur,“ sagði Vilborg. Útideild skrifaði Félagsmála- ráði bréf um miðjan september og vakti athygli á ástandinu í mið- bænum á föstudagskvöldum. í bréfinu segir meðal annars að það sem einkenni þessi kvöld séu mikil spenna í loftinu, drykkja, hávaði, slagsmál og flöskubrot. Þá bendir Útideild á að bæta þurfí tómstundaaðstöðu fyrir unglinga, og koma meðal annars til móts við þann hóp sem ekki sækir félgsmiðstöðvarnar. HS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.