Þjóðviljinn - 10.10.1987, Page 6
ALÞYÐU BAN DALAGIÐ
MINNING
Alþýðubandalagið Reykjavík
Félagsfundur
ABR boðar til félagsfundar fimmtudaginn 15. október kl. 20.30 að Hverf-
isgötu 105.
Fundarefni: 1) Kosning 100 fulltrúa og 100 varafulltrúa á Landsfund
Alþýðubandalagsins. 2) Almenn stjórnmálaumræða.
ATH: Tillaga uppstillinganefndar mun liggja frammi á skrifstofu ABR,
Hverfisgötu 105 frá og með mánudeginum 12. okt. Aðrar uppástungur
undirritaðaraf tillögumönnum skulu berast skrifstofu ABR, Hverfisgötu 105
frá og með mánudeginum 12. okt. Aðrar uppástungur undirritaðar af tillögu-
mönnum skulu berast skrifstofu ABR fyrir kl. 20.30 miðvikudaginn 14. okt.
Ef til kosningar kemur verða aðalmenn og varamenn kjörnir í einu lagi
með einföldu vægi allra atkvæða.
Munlð að greiða félagsgjöldin Stjórn ABR
Alþýðubandalagiö Seltjarnarnesi
Aðalfundur
Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi boðar til aðal-
fundar í Félagsheimilinu (niðri) fimmtudaginn 15.
október kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Skýrsla stjórnar. 2) Kosning nýrrar
stjórnar. 3) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð. 4) Kosn-
ing fulltrúa á Landsfund. 5) Ólafur Ragnar Grímsson
ræðir um stöðu stjórnmálanna í uþphafi þings.
Stjórnin
Ólafur Ragnar
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Hóraðsmanna verður haldinn í Sam-
kvæmispáfanum, þriðjudaginn 13. október kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Aðalfundarstörf.
2) Kosning fulltrúa á Landsfund.
3) Önnur mál.
Á boðstólum verður kaffi á hóflegu verði. Flokksmenn fjölmennið og takið
með ykkur nýja félaga. Stjórnin
Alþýðubandalagið í Garðabæ
Aðalfundur
Alþýðubandalagsfélagsins í Bessastaðahreppi og Garðabæ verður hald-
inn sunnudaginn 11. október kl. 9.30 árdegis í Safnaðarheimilinu Kirkju-
hvoli.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð.
3) Kosning fulltrúa á landsfund.
4) Skýrslur starfsnefnda.
5) Önnurmál. Framkvæmdastjórn
Alþýðubandaiagið Blönduósi og nágrenni
Aðalfundur
Alþýðubandalagsfélag Blönduóss og nágrennis boðar til aðalfundar í hótel-
inu á Blönduósi, sunnudaginn 18. október kl. 16.00.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Kosning fulltrúa á Landsfund.
3) Steingrímur J. Sigfússon alþm. mætir á fundinn og ræðir
stjórnmálaviðhorfin. Stjórnin
Alþýðubandalagið Akureyri
Félagsfundur
Alþýðubandalagið á Akureyri heldur félagsfund laugardaginn 10. októ-
ber kl. 14.00 í Lárusarhúsi.
Dagskrá:
1) Reikningar félagsins.
2) Kosning á Landsfund og kjördæmisþing.
3) Efnahags- og atvinnumálaskýrsla Alþýðubandalagsins.
4) Önnur mál. Stjórnin
Landsfundur Alþýðubandalagsins
Skrifstofa flokksins minnir á 2. mgr. 14. gr. laga Alþýðubandalagsins:
„Þegar boðað er til reglulegs landsfundar skulu grunneiningar hafa lokið
kjöri fulltrúa á landsfund þremur vikum áður en hann er haldinn."
Þar sem landsfundurinn verður settur 5. nóvember skal kjöri fulltrúa vera
lokið eigi siðar en 15. október.
Þess er vænst að fulltrúatal hafi borist skrifstofunni eigi síðar en 22.
október. Flokksmlðstöð Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Kjördæmisráðstefna í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldin laugar-
daginn 17. október kl. 10.00 í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 Akureyri.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Skýrsla kosningastjórnar og reikningar.
3. Útgáfumál og flokksstarf.
4. Efnahags- og atvinnumál. Framsaga.
5. Stjórnmálaályktun. Framsaga.
6. Kosningar - almennar umræður - önnur mál.
Áætluð þingslit kl. 18.00.
Kvöldvaka
Stjóm kjördæmfsráðs
AB Akranesi
Aðalfundur
Aðalfundur AB Akranesi verður í Rein laugardaginn 17.10. klukkan 14.00.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Áherslupunktar landsfundar 3.
Kosning fulltrúa á landsfund 4. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs.
5. Önnur mál. stjórnln
Ásta Jónsdóttir
Reyðarfirði
Fœdd 5. sept. 1923 — Dáin 29. sept. 1987
,F»rct m£r harmlirSrS ctarfc í QVf*itarctiíSrn Ip.nti ciálf-
Að heiman berst mér harmljóð
með haustblænum. Burtu er
kölluð vinkona og félagi um
fjölda ára. Svo alltof snöggt og
óvægilega er á lífsþráðinn klippt
og eftir stöndum við hnípin og
hrærð andspænis grimmum ör-
lögum, í orðvana spurn.
Hún Ásta, sem ljómaði af lífs-
krafti og gekk glöð til starfs og
anna, er í snöggri andrá horfin
okkur. Umferðin hefur enn tekið
sinn toll - dýrari og óbætanlegri
öllum tollum - lifið sjálft. f
hljóðri þökk með huga döprum
er minnzt allra þeirra ágætu
stunda er við áttum með Ástu í
Garði, þar sem hjálpfús hönd og
heið hugarsýn væru ætíð æðst.
Og glögglega ger ég mér þess
grein, að byggðarlagið mitt verð-
ur ekki samt og áður, þegar Ásta
vinkona okkar er ekki lengur á
vettvangi með leiftrandi gleðina
og ljúfan hressileikann á hrað-
bergi. Hennar er minningin mæt
og margt á ég henni að þakka.
Fáein kveðj uorð við hinzta beð
segja svo undurfátt um þessa
hugprúðu hæfileikakonu, um
önn hennar og allt starf heima og
heiman, um fágætiega vel rækt
félasmálastörf, um einlægni
hennar og hjartagæzlu. Eg hiýt
þó að rekja æviferil og ýmis þau
leiðarmerki á lífsgöngunni, sem
ljósast merla.
Ásta var sannarlega mikil og
farsæl félagshyggjukona; hvenær
sem liðsinnis var leitað, var hún
til taks, ágæt greind og glögg-
skyggni gerði henni allt auðveld-
ara, er hún tók sér fyrir hendur á
félagsmálasviði, og byggðarlagið
okkar litla naut í margri grein
góðra, skapandi hæfileika henn-
ar. Síkvik og áhugasöm hafði hún
ævinlega gott til mála að leggja og
fylgdi þeim málum fram af festu,
heitu skapi en léttri lund. Hún
lagði hverju þörfu máli lið og örfá
brotabrot megna vonandi að sýna
hversu víða og farsællega var að
verki komið.
Kvenfélag Reyðarfjarðar naut
ötulla starfskrafta hennar um
fjölda ára, hún var löngum meðal
burðarása þess ágæta félags,
enda að vonum, þar sem fórnfýsi
og kærleikslund eru allra dyggða
æðstar. Hún söng um árabil í
kirkjukórnum, hafði reglulega
fallega söngrödd, var tónelsk og
tónvís, og enn er mér í minni er
hún söng einsöng með kórnum á
samkomum af öryggi og ærinni
fágun.
Áhugasvið Ástu var vítt, en
ævinlega voru mennta- og menn-
ingarmál henni ofarlega í huga.
Hún sat lengi í skólanefnd, ýmist
sem aðal- eða varamaður og
hafði þar sín áhrif í því, sem
mestu máli skiptir, enda hafði
hún einlægan metnað fyrir hönd
hinna ungu, að þau mættu sem
allra bezt menntast og mannast.
Ásta var sannur Reyðfirðing-
ur, hún var stolt yfir búsældar-
legri byggð, en vildi stuðla að því
að gera gott betra. Hún vildi sjá
framtíðina fegurri og bjartari,
fólkið glaðara og ríkara að raun-
gæðum. Þessi viðhorf mótuðu
starf hennar að sveitarstjórnar-
málum, en nálægt þeim kom hún
talsvert og er þá komið að grund-
vallarskoðun hennar, fastmót-
aðri og farsællega grundaðri þar
sem jafnrétti og jöfnuður voru
efst í öndvegi. Ötulli málsvara og
ákveðnari með heita sannfæring
og góða málafylgju var ekki unnt
að eiga.
Ásta sat oftsinnis fundi í
sveitarstjórn Reyðarfjarðar-
hrepps sem varamaður 1962-1966
og aftur og enn frekar á árunum
1974-1978, þegar undirritaður sat
á Alþingi og meginþungi alls
starfs í sveitarstjórn lenti sjálf-
krafa á Ástu, sem þá annars full-
trúa Alþýðubandalagsins. Hvort
tveggja var, að aðalfulltrúinn var
mikill afbragðsmaður og eins hitt
að Ásta var öllum hnútum
gjörkunnug, enda var ég með
öllu áhyggjulaus og mátti sannar-
lega vera með slíka öndvegisfull-
trúa heima.
Vissulega mætti segja mikla og
góða sögu af stjórnmálaaf-
skiptum Ástu, áróðurshæfni
hennar og einlægum sannfæring-
arkrafti, en það eitt fullyrt hér, að
ráðhollari félaga var ekki unnt að
eiga, hreinskilnin og trúmenns-
kan héldust svo í hendur, að
hennar leiðsögn var hollt að
fylgja.
Fyrir óeigingjarnt starf í þágu
hreyfingar okkar eru nú fluttar
alúðarþakkir. Mættum við
eignast sem allra flestra líka Ástu
í Garði að allri gerð og athöfn.
Og af því á athöfn var minnzt þá
var Ásta auðvitað mikil og góð
húsmóðir, hörkudugleg til allra
verka, enda kom það sér vel,
heimili stórt en húsnæði lítið,
gestagangur mjög mikill, enda
óvíða betra inn að líta, en hjarta-
rúmið nægt og öllum af alúð
tekið.
Um langt árabil annaðist Ásta
afgreiðslustörf í heilsugæzlu-
selinu og til hennar var leitað
jafnt á nótt sem degi, ef á lyfjum
eða annarri slíkri aðstoð þurfti að
halda. í þessu starfi sýndi Ásta
einstaka óeigingirni og heilla-
drjúga hjálpsemi. Og allt var það
gert af lipurð og með ljúfu geði.
Reyðfirðingar mega og eiga
vissulega að þakka þessa af-
bragðsþjónustu og ég veit að
þökkin býr í þeli margra í dag,
þökk fyrir mikið starf og eril-
samt, innt af hendi af þeirri
skyldurækni og náunganskærleik
sem Ástu voru svo eiginleg.
Ég gæti haldið áfram lengi enn
að lýsa eðliskostum og athöfn
minnar látnu vinkonu, en þann
eðliskost vissi ég þó einna sterk-
astan að láta ekki mikið yfir sér
eða sínum gjörðum og henni því
lítt að skapi að mæra hana svo
sem vert væri.
Ásta Arnbjörg var fædd á
Reyðarfirði hinn 5. september
1923 og var því aðeins sextíu og
fjögurra ára, er hún lézt svo svip-
lega. Foreldrar hennar voru
hjónin Ragnheiður Sölvadóttir
og Jón Árnason skipstjóri. Faðir
hennar drukknaði, er Ásta var á
fyrsta ári og hún ólst upp hjá
þeim sæmdarhjónum Ásgeiri
Árnasyni, föðurbróður sínum og
konu hans Láru Jónasdóttur, en
þau bjuggu einnig á Reyðarfirði.
Þær Lára og Ragnheiður eru báð-
ar á lífi.
Ásta þráði eins og margir á
þeim tíma að fara í skóla, það
kvað hún hafa verið sinn óska-
draum, er aldrei rættist, því
kröpp kjör þá og ýmsar aðstæður
öftruðu þeirri för hjá alltof mörg-
um, er góðar námsgáfur höfðu
eins og Ásta.
Þann 1. apríl 1945 giftist Ásta
Metúsalem Sigmarssyni bifreiða-
stjóra og síðar verkstæðisfor-
manni, en búskap hófu þau 1941
og á Reyðarfirði hefur aðsetur
þeirra verið alla tíð. Hjónaband
þeirra var hið farsælasta. Metús-
alem er hinn prúði og duli þegn
með sína notalegu kímni, verk-
laginn hið bezta og ljómandi
heimilisfaðir. Hans er nú missir
mestur en fleiri eiga um sárt að
binda.
Þau hjón höfðu mikið barnalán
og eignuðust fimm efnisbörn; Ás-
geir fulltrúi Reyðarfirði, hans
kona er Inga Ingvarsdóttir og
eiga þau fimm börn, Hildur hús-
móðir Eskifirði, hennar maður er
Svavar Kristinsson og eiga þau
þrjú börn, Lára Ragnheiður hús-
móðir Eskifirði, hennar maður er
Guðni Elísson og eiga þau þrjú
börn, Guðlaug húsmóðir Grinda-
vík, hennar maður er Sigurður
Kristjánsson og eiga þau tvö böm
og yngstur er Sigmar háskóla-
nemi.
Æviferill Ástu verður ekki
ffekar rakinn, en framúrskarandi
góða starfssögu átti hún á heimili
sem utan þess, dugur og velvirkni
sáu til þess. Garðurinn hennar
ber gleggst vitni nærfærni og
natni, góðri smekkvísi og mikilli
alúð, en þar undu þau hjón
löngum við að hlynna og hlúa að
viðkvæmum og vandmeðförnum
gróðri. Slík handaverk segja
mikið um manneskjuna, sem á
þau verk.
Harmljóðið í haustblænum
hefur einnig að geyma leiftrandi
ljósbrot mætra minninga um
kæra vinkonu okkar hjóna, sem
ævinlega lagði okkur örláta lið-
semd og lífgaði upp á gráma dag-
anna, með geislandi lífsorku sinni
og glöðu viðmóti. Það eru tærir
tónar harms og hugljúfra minn-
inga, sem vlja okkur nú, sem átt-
um hana Ástu að vin. Við send-
um eiginmanni hennar, börnum
og aðstandendum öðrum okkar
innilegustu samúðarkveðjur og
biðjum þeim allrar blessunar.
Farsæl æviganga er á enda svo
alltof skjótt. Eftir situr minningin
ein, sem góð kona gaf okkur af
vörmu og veitulu hjarta. í ein-
lægri þökk fyrir allt kveð ég kær-
an félaga og mæta manneskju, -
sanna og heilsteypta, en umfram
allt gefandi umhverfi sínu öllu.
Hennar er gott að minnast í
harmi þessara haustdaga.
Blessuð sé sú minningin mæt.
Helgi Seljan
Barnaheimili
í Vogahverfi
Dagheimitiö Sunnuborg, Sólheimum 19, óskar
eftir uppeldismenntuöu fólki og aðstoðarfólki í
störf á barnadeildum og í eldhús. Upplýsingar
gefur forstöðumaður í síma 36385.
Leikskólann Álftaborg
Safamýri 32
vantar starfsmann til uppeldisstarfa eftir hádegi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 82488.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN