Þjóðviljinn - 10.10.1987, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 10.10.1987, Blaðsíða 12
Aðalsími 681333 Kvöldsími' 681348 Helgarsími 681663 þJÓOVIUINN Laugardagur 10. otkóber 1987 225. tölublað 52. órgangur Þjónusta íþínaþágu 0 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Sambandið Stórsala og stórkaup Ríkið keypti Sölvhólsgötufyrir280 milljónir. Sambandið keypti Smárahvamm. Kaupverð ekkigefið upp. Kópavogursamþykkir ekki kaupin nema tryggtsé að aðalstöðvarnar komi í bæinn. w Igær var gengið frá kaupum ríkissjóðs á húseignum Sam- bandsins við Sölvhólsgötu og Lindargötu. Seinna um daginn skrifuðu Sambandsmenn svo undir kaupsamning á 23 hektur- um af Smárahvammslandi í Kópavogi. Ríkissjóður borgar 280 milljónir fyrir Sölvhóisgötuna, 50 milljónir við undirskrift í gær, 50 milljónir eftir hálft ár og restina á fjórum árum. Hvað Sambandið greiðir fyrir Smárahvamminn fæst hinsvegar ekki uppgefið, en seljendur höfðu farið fram á að þagað yrði um það. Talað hefur verið um 110-120 milljónir króna. Húsnæðið sem ríkissjóður keypti er um 5600 fermetrar auk 400 fermetra byggingarréttar. Verð á fermetra er því um 36 þús- und krónur, að sögn Jóns Bald- vins. Húsnæðið er talið geta hýst þau ráðuneyti sem eru á hrakhól- um víða í bænum. Brýnast mun vera að leysa úr húsnæðismálum menntamálaráðuneytisins og er talað um að hluti hússins verði rýmdur eftir hálft ár og að menntamálaráðuneytið flytji þá á Sölvhólsgötuna. Sambandið mun rýma allt húsið innan árs. Miklar bollaleggingar hafa ver- ið um það hvert aðalstöðvar Sam- bandsins flytji. Nokkuð ljóst er að framtíðaraðsetur þeirra verð- ur í Smárahvammi, þar sem kaupsamningurinn sem gerður var er með fyrirvara um sam- þykki bæjarstjórnar Kópavogs. Þegar Kópavogskaupstaður gekk frá samkomulagi við eigendur Smárahvamms á sínum tíma var gulltryggt að ekki væri hægt að selja landið nema með samþykki bæjarstjórnar og Ijóst er að Kóp- avogur samþykkir ekki kaupin nema tryggt sé að Sambandið flytji höfuðstöðvar sínar til bæjarins, annars væri hagnaður bæjarins enginn. Þetta gerist þó ekki strax og þangað til hús hafa risið á landinu þarf Sambandið að koma starf- semi sinni einhversstaðar fyrir. Samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans mun starfsemin við Sölv- hólsgötu dreifast í hinar ýmsu húseignir SÍS í höfuðborginni. Um næstu áramót flytur Bygg- ingavöruverslun Sambandsins á Suðurlandsbraut 32 upp á Krók- háls og sameinast byggingavöru- versluninni þar. Rafbúð Sam- bandsins við Ármúla flytur á Suð- urlandsbraut en Samvinnutrygg- ingar munu færa út kvíarnar og fara í núverandi húsnæði Rafbúð- arinnar. Þessi tímasetning passar vel við að hluti Sölvhólsgötu verði rýmdur eftir hálft ár. Aðrir hlutar starfseminnar geta svo fengið inni á Kirkjusandi, en fisk- vinnslan þar hefur dregist mikið saman á undanfömum árum og í Holtagörðum, eða húsnæði Skip- adeildarinnar við Sundahöfn. Þeir voru margir pappírarnir sem þeir Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, og Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra þurftu að undirrita áður en endanlega var gengið frá kaupunum og 50 milljón króna ávísun afhent. Sigurður Þórðarson, skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins, fylgist með og sér til þess að allt sé gert eftir réttum kokkabókum lögfræðinnar, en hann mun hafa verið sá maður í ráðuneytinu sem bar hitann og þungann af samningun- um. Mynd Sig. M L ' K '”íf llll jéBSmw Wm J®SIr gp&i . ■ . ' . ■ ; - . : ' ' Lambakjötið er Ijúffengur matur. Það er á mjög góðu verði í KRON verslunum núna. Úrval af Itmbakjöti í allskonar rétti. Frampartar Marinerað kjöt Læri Úrbeinað kjöt Lærissneiðar London lamb Hryggur Hangikjöt Kótilettur Saltkjöt Svið K3CN Kauptu inn hjá KRON, það er hagstætt. v/Norðurfell v/Tunguveg v/Stakkahlíð v/Dunhaga v/Furugrund, Kóp. Stórmarkaður, Skemmuvegi Kaupstaður í Mjódd.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.