Þjóðviljinn - 20.10.1987, Page 1
Þriðjudagur 20. október 1987 233. tölublað 52. órgangur
Skák
Góðar
vinningslíkur
Kasparofs
Fjórða skák í einvígi þeirra
Garrí Kasparofs hcimsmeistara
og Anatólís Karpofs áskoranda
fór í bið í gærkveldi eftir 40 leiki.
Skáksérfræðingar eru á einu máli
um að heimsmeistarinn standi
mun betur, sumir segja hann hafa
gjörunnið tafl.
Kasparof stýrði hvítu mönnun-
um, lék c-peði sínu fram um tvo
reiti einsog í annarri skákinni sem
hann tapaði eftir snarpa og dram-
atíska viðureign. Karpof varð
fyrri til að breyta frá þeirri skák
en heimsmeistarinn styrkti skjótt
stöðu sína og í biðskákinni hefur
hann tvö peð umfram fjanda
sinn.
Sjá skákskýringu Helga Ólafs-
sonar á bls.15.
Alþýðubandalagið
Ovænt í Reykjavík
Staða Ólafs Ragnars talin hafa styrkst eftir fulltrúakjörið hjá A BR. Sigríður Stefánsdóttir segir
stuðning sinn aukast. Svavar heldurfast við að hœtta
Urslit atkvæðagreiðslu í Al-
þýðubandalaginu í Reykjavík
komu mönnum allnokkuð á
óvart, og er talið að líkur á kjöri
Ólafs Ragnars Grímssonar sem
formanns flokksins á landsfund-
inum hafi aukist verulega eftir
það kjör. Túlkun úrslitanna er þó
með ýmsum hætti eftir því hvar
túlkendur standa í flokknum.
406 félagar greiddu atkvæði á
fundinum á fimmtudagskvöld og
voru 378 atkvæði gild. Fulltrúa-
listinn frá Reykjavík ber merki
mikillar endurnýjunar, og sitja
margir fulltrúanna nú fyrsta
landsfund sinn, en kunn nöfn í
flokknum er í staðinn að finna á
varamannalista.
Bríet Héðinsdóttir fékk flest
atkvæði í kosningunni, yfir 90%,
og næstar henni urðu Olga Guð-
rún Árnadóttir og Soffía Guð-
mundsdóttir. Guðrún Helgadótt-
ir þingmaður og Kristín Á. Ólafs-
dóttir borgarfulltrúi og varafor-
maður fengu rúm 70% atkvæða,
og urðu í 24. og 25. sæti, en Svav-
ar Gestsson flokksformaður varð
í 44. sæti með um 67% atkvæða.
Tíu konur af varamannalista
verða aðalmenn vegna kynja-
kvótans, og eru Sigurjón Péturs-
son borgarfulltrúi og Ásmundur
Stefánsson forseti ASÍ og vara-
þingmaður í hópi þeirra karla
sem þessvegna verða varamenn.
Fyrir kosningarnar gengu ýms-
ir listar þarsem mælt var með
ákveðnum mönnum til kjörs, og
er til þess tekið að nær allir náðu
kjöri af þeim sem stuðningsmenn
Ólafs Ragnars mæltu með, tæp-
lega 90. Þeir sem áttu nöfn sín á
þeim lista munu þó ekki allir hafa
gert upp hug sinn.
Deildar meiningar eru í
flokknum um úrslit kosninganna.
Hvorki meira né minna en 450 grömmum af kókaíni og 780 þúsund krónur í
peningum, aðallega dollurum, náði fíkniefnalögreglan af brasilískum hjónum í
Hveragerði nýlega. Arnar Jensson og Guðjón S. Marteinsson skýra frá mála-
vöxtum í gær. Mynd - Sig.
Lögreglan
Avana- og fíkniefnadeild lög-
rcglunnar í Reykjavík hand-
tók síðastliðinn laugardag brasi-
lísk hjón á gistihúsi í Hveragerði
og þau reyndust hafa undir hönd-
um 450 grömm af kókaíni og 780
þúsund krónur í peningum, aðal-
lega í dollurum. Þau hafa verið
úrskurðuð í gæsluvarðhald fram
til 1. desember næstkomandi.
Jenssonar,
og
Að sögn Arnars
lögreglufulltrúa hjá avana-
fíkniefnalögreglunni, er rann-
sókn málsins á byrjunarstigi, en
bæði lögreglan á Selfossi og í
Foreldrasamtökin
Hneyksluð á borgarstjóra
Stjórn Foreldrasamtakanna í
Reykjavík hafa lýst hneykslun
sinni á málsmeðferð þeirri, sem
tillaga minnihlutans í borgar-
stjórn um dagvistarmál hlaut á
fundi borgarstjórnar sl.
fímmtudag.
-Tillögunni var hafnað án má-
lefnalegrar umræðu. Frávísun-
artillaga Davíðs Oddssonar borg-
arstjóra var lesin af Önnu K.
Jónsdóttur formanni stjórnar
Dagvistar barna, og það sem þar
var sagt var með ólíkindum.
Meðal annars var sagt eitthvað á
þá leið að minnihlutinn hefði nú
skriðið út úr myrkum músarhol-
um svartsýninnar, en fengið of-
birtu í augun og víðáttubrjálæð-
i...tillagan væri út í hött og ger-
ræðisleg, og fleira í þeim dúr.
í yfirlýsingu Foreldrasamtak-
anna segir að málflutningur af
þessu tagi, um svo veigamikið
mál, verði að teljast óábyrgur og
flutningsmönnum til minnkunar.
Auk þess sé hann móðgun við
börn, foreldra og minnihluta
borgarstjórnar.
-•g-
Stuðningsmenn Sigríðar segja
vinnubrögð Ólafsfólks forkastan-
leg og tala um „aðför“ að traustu
flokksfólki. Margir þeirra sem
hafa myndað fylkingu um Ólaf
telja úrslitin sögulegan viðburð
og tala um þau sem upphaf nýrra
tíma í hreyfingunni.
Svavar Gestsson núverandi
formaður flokksins er óánægður
með kjör fulltrúa í Reykjavík og
telur í samtali við Þjóðviljann í
dag að ýmsum helstu tals-
mönnum flokksins í höfuðborg-
inni hafi verið hafnað. Svavar
segir vegna klofningsspádóma í
fjölmiðlum að hann muni aldrei
yfirgefa málstað Alþýðubanda-
lagsins, um leið og hann ítrekar
að hann standi fast við ákvörðun
sína um að hætta formennsku.
Sigríður Stefánsdóttir segir við
Þjóðviljann að hún hafi fundið
stuðning við sig aukast og telur
úrslitin hvergi nærri ráðin. .Hún
sagði í samtali við Þjóðviljann að
margir innan flokksins teldu að
aldrei gæti orðið sameining um
Ólaf Ragnar í forystu.
Ólafur Ragnar segir við Þjóð-
viljann að hann hafi síðustu vikur
orðið var við vaxandi stuðning
við sig. Reykjavíkurfundurinn
sýni mikið líf og þrótt, í flokknum
sé nú að skapast eindreginn vilji.
Ólafur er ekki hræddur um klofn-
ing, og segist ekki mundu hafa
gefið kost á sér ef hann hefði talið
það skapa hættu á klofningi.
-m
Sjá viðtöl og Reykjavík-
urúrslit á síðu 19
Kókaín finnst í Hveragerði
Brasilísk hjón handtekin með 450 grömm ígistihúsiþar. Hafa verið hér á landi íþrjár vikur.
Smásöluverðmæti kókaínsins um4,5 milljónir króna
Hafnarfirði hafa komið þar við
sögu. Enginn íslendingur hefur
enn verið handtekinn í tengslum
við málið. Brasilísku hjónin
komu hingað til landsins frá Lux-
emborg 1. október síðastliðinn.
Þetta er mesti kókaínfundur
lögreglunnar til þessa, en áður
hefur lögreglan mest náð á einu
ári samtals 28 grömmum og í einu
aðeins 17 grömmum.
Þar sem rannsóknin er nýhafin
varðist Arnar allra frétta af gangi
hennar, en sagði þó að grun-
semdir væru um að eitthvað af
efninu hefði þegar verið selt hér
innanlands. Talið er að verðið
fyrir eitt gram af kókaíni á mark-
aði hér sé eitthvað um 8-10 þús-
und krónur. Þannig selt er verð-
mæti kókaínsins um 4,5 milljónir
króna. - grh
Suðurnes
Loforð fyrir
30 milljónum
„Nú þegar hafa 117 manns
skráð sig fyrir hugmyndum að
hlutafé að upphæð 30 milljónum
króna og við stefnum að því að
Utgerðarfélagið Eldey verði
formlega stofnað fyrir 1. desemb-
er næstkomandi,“ segir LogiÞor-
móðsson, fiskverkandi og einn af
hvatamönnum að stofnun Út-
gerðarfélagsins Eldeyjar á
Suðurnesjum.
í fyrradag varð stólþurrð í
veitingahúsinu Glaumbergi í
Keflavík þegar 300 manns á
Suðurnesjunum fjölmenntu á
staðinn, þar sem kosin var undir-
búningsnefnd að stofnun útgerð-
arfélagsins.
Að sögn Loga Þormóðssonar
var rífandi stemmning á fundin-
um og mikil samstaða meðal
fundarmanna um að rífa útgerð á
Suðurnesjum upp úr þeim dvala
sem einkennt hefur hana á und-
anförnum áruni og snúa vörn í
sókn.
Nú þegar er vitað um einn tog-
ara á söluskrá, sem er Dagstjarn-
an. Búið er að selja Þórkötlu 2. til
Hornafjarðar, en það er 250
tonna vertíðarbátur og einnig er
búið að ganga frá sölu 80 tonna
báts frá Suðurnesjum til Súðavík-
ur vestur á fjörðum. - grh