Þjóðviljinn - 20.10.1987, Side 6
FLÓAMARKAÐURINN
Húsnæði óskast
Ungt par, háskólanemar, óskareftir
2-3 herb. íbúö á leigu. Uppl. í síma
656299 eftir hádegi.
Góöur bíll til sölu
Til sölu Fiat árg. '85. Einstaklega
sparneytinn og þægilegur bíll í
toppstandi. Vetrardekk fylgja. Til
greina koma skipti á ódýrari. Uppl. í
síma 681310 kl. 9-17 og í síma
13462 e.kl. 19.
Bráðvantar
íbúö, litla eöa stóra. Erum 2 í heim-
ili, fullorðin og barn. Góðri um-
gengni og skilvísum greiðslum
heitiö. Uppl. í síma 50751.
Ársgömul Lancia „skutla”
lúxusgeröin, fæst í skiptum fyrir
ódýrari bíl og peningamilligjöf.
Uppl. í síma 18054 eftir kl. 18.
Handunnar rússneskar
tehettur og matrúskur
í miklu úrvali. Póstkröfuþjónusta.
Ath. Get komiö meö vörurnar á t.d.
vinnustaöi og í saumaklúbba ef
óskað er. Uppl. í síma 19239.
Til sölu
gamalt, mjög gott og vandaö hjón-
arúm, án dýnu. Stærð 1.40x1.80.
Sími 651616 (Þórhallur) og eftir kl.
19 í síma 54327.
Trommusett til sölu
Gamalt en nothæft trommusett til
sölu. Selst mjög ódýrt. Uppl. í síma
34959.
Fyrir lítið
Fiat 128 árg. 1978 með ösku-
bökkum aftur í, ónýta tímareim og
lítið ryögaður til sölu fyrir lítið. Hafið
samband í síma 681663 og spyrjið
eftir Herði.
Vetrardekk á Trabant til sölu
Uppl. í síma 671901 eftir kl. 7 á
kvöldin.
Vantar tölvuprentara
Óska eftir að kaupa Apple tölvu-
prentara (Imagewriter). Hafið sam-
band í síma 23561 eftir kl. 18.
Til sölu
baststóll með baki og lítið tekksófa-
borð, eldhúsborð og þrír stólar,
fótanuddtæki, 3 loftljós, 3 kvenkáp-
ur. Uppl.s. 18614.
Lada 1500 79
selst á kr. 25.000 gegn staðgr.
Uppl.s. 15192 milli 8 og 10 á kvöld-^
in.
ísskápur til sölu
notaður ca. 140x60x60. Selst
ódýrt. Uppl.s. 38486, Eydís.
Amstrad tölva óskast
Uppl.s. 41660 e.kl. 19.
Vandaður sellóbogi til söiu
Á sama stað fást keyptar íslend-
ingasögurnar, 42 bindi. Uppl.s.
29105.
Til sölu
tekkkommóða. Uppl.s. 30623 eftir
kl. 17.
Stórt og gott tekkskrifborð
til sölu á 4 þús. Sími 22337.
Til sölu
Brother prjónavél með öllum fylgi-
hlutum og miklu garni til sölu.
Uppls. 28637 á kvöldin og um helg-
ar. Unnur.
Tilsölu glæsilegur siður
brúðarkjóll
frá Lilly í Kaupmannahöfn. Kjóllinn
er nr. 38 og selst með öllu til-
heyrandi. Uppls. 42810 eftir kl. 17.
Óska eftir að kaupa
svefnsófa
eða rúm 1 og '/2 þreidd. Uppl.s.
40193.
Til sölu Ford Escort
ekinn aðeins 70 þús. km. Sjálf-
skiptur, gott útlit. Vetrardekk. Ný-
skoðaður. Verð aðeins um kr. 75
þús. Uppl.s. 21764.
Til sölu Fiat 12 P
'81 árg. ekinn 65000 km. Þarfnast
viðgerðar. Uppl.s. 53284 Jón og
651589 eftir kl. 19.00.
Ung móðir óskar eftir ódýrri
vöggu
og kommóðu. Uppl.s. 72900.
Barngóð kona
óskast til að gæta 11 mán. stráks á
heimili hans á Flókagötunni frá kl.
12-18 5 daga vikunnar. Uppl.s.
28412 eftir kl. 18 á daginn.
Til sölu
er lítið notuð 210 lítra Atlas frysti-
kista. Verð 8000 kr. Sími 22894.
Rex Rotary
1050 S fjölritari og Rex Rotary 2202
S stensilbrennari fást gefins. Bæöi
tækin eru í góðu ástandi. Þeim
fylgja einnig margir aukahlutir.
Upplýsingar í síma 22894.
íbúð
Bráðvantar litla íbúð. Fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Reglusemi í
hávegum höfð. Birna Björnsdóttír,
sími 76847.
Til sölu fyrir lítið
borðstofuborð, skenkur, sófasett
(3+1 + 1), barnaskrifborð með hill-
um ásamt skáp sem þarfnast smá-
lagfæringar. Sími 42662.
5 til 6 herb. íbúð eða sérhæð
óskast á leigu í Hafnarfirði, Kópa-
vogi eða Garðabæ. Uppl.s. 36742
eftir kl. 18.
Óskum eftir 3ja herb. íbúð frá
1. des. n.k.
Hafið samb. í síma 611017 eða
688115 milli kl. 8 og 4.
Hvar eigum við að sitja
Við erum heil skátasveit sem hvergi
getum setið í skátaheimilinu okkar.
Þ.e. okkur vantar húsgögn; stóla,
sófa, sófaborð og e.t.v. gömul
hljómfl.tæki gefins. Sími 689713
milli kl. 16 og 18 næstu daga. Óli
eða Heiðrún.
Til sölu
4 stk. notuð vetrardekk á felgum
fyrir Lödu á kr. 6 þús. Sími 15342 kl.
5-7.
Átt þú eitthvað til að sofa á?
Mig bráðvantar svefnbekk eða rúm
til kaups. Vinsamlegast hringið í
síma 96-22132.
Til sölu
Rauð ullarkápa með minkaskinns-
kraga og grá (amerísk) dragt.
Stærð 48-50. Sími 15501 eftir kl.
17.00.
Ráðstefna
um starfsmenntun
í atvinnulífinu
Laugardaginn 28. nóvember 1987, kl. 9-17 verö-
ur haldin í Borgartúni 6 ráðstefna um starfs-
menntun í atvinnulífinu. Lögð er áhersla á þátt-
töku fulltrúa samtaka aðila vinnumarkaðarins,
stjórnvalda menntamála, sveitarfélaga og ann-
arra sem hafa áhuga á viðfangsefni ráðstefnunn-
ar. Nánari tilhögun verður auglýst síðar.
Féiagsmálaráðuneytið
19. október 1987
MINNING
Páll Hróar Jónsson
Fœddur 2.11.1972 Dáinn 10.10. 1987
Hann var ekki hár í loftinu þeg-
ar hann kom fyrst í heimsókn, 5
ára snáði, með kankvíst bros og
stór talandi augu. Þeir Ingvi
Jökull urðu strax perluvinir. Það
var þeyst um húsið eins og litlir
fætur toguðu með súpermanns-
stjörnur í augum, það var hjólað,
skíðað, smíðað og leikinn fót-
bolti ... allt verður tápmiklum
snáðum að áhugaefni ef hugurinn
er frjór; fjallið, fjaran og allt þar
á milli. Dagurinn var aldrei nógu
langur.
Palli var einn af þeim góðu vin-
um sem gerðu Ingva Jökli erfitt
að flytja frá Neskaupstað. En
vináttan hélst þótt ísland endi-
langt væri á milli og hver heim-
sókn Palla hingað suður var afar
kærkomin. I vor kom hann og
sagðist vera að flytja í næsta ná-
grenni við okkur í Kópavoginum
og sýndi okkur nýja heimilið sitt.
Að síðustu kom hann alkominn
og vináttuþráðurinn var tekinn
upp.
En yndislegt sumar tók skyndi-
lega enda. Palli, þessi tápmikli og
einstaklega efnilegi piltur, var
hrifinn burt í miðjum klíðum.
Það er erfitt að kveðja, einkum
þegar kveðjustundin kemur allt
of snemma. Okkur verður orða
vant.
Við þökkum honum ómetan-
lega vináttu við Ingva Jökul og
fyrir að hafa auðgað líf okkar.
Við söknum hans öll sárt.
Lóa, Logi og börn
Oli Kristinn Sigurjónsson
Fœddur 6. ágúst 1940
Vinur minn, Óli Kristinn Sig-
urjónsson frá Vestmannaeyjum,
eða Óli Tótu, eins og við félag-
arnir kölluðum hann oftast, er
farinn. Hann fór í róður á báti
sínum, Hvítingi VE-21, um
morguninn 2. september, ásamt
félaga sínum. Þeir komu ekki aft-
ur. Öli fæddist 6. ágúst 1940, var
einn af okkur eins og við köllu-
ðum það: ’40 módelið. Ég
kynntist Óla fyrst í Eyjum, þá
vorum við ungir og lífsglaðir. Síð-
an héldust okkar kynni og uxu
sífellt. Sumarið ’81 fórum við þó
fýrst á sjó saman og það vorum
við út það ár. Aðallega á litlum
báti, sem Valdís hét og var 18
tonna. Minnisstæðasturþess tíma
fannst mér sá kafli sem við rerum
frá Fáskrúðsfirði um tveggja
mánaða skeið á síldveiðum og
bjuggum um borð. Með okkur
var föðurbróðir Óla, Ási í Bæ, og
sá hann um að matreiða, ásamt
annarri vinnu. Óli hafði verið
lengi í siglingum erlendis og hafði
frá mörgu að segja. Einnig var
hann mjög ljóðelskur og allir
þekktu nú Ása heitinn, enda
hafði ég oft gaman af þeim, kvið-
lingum þeirra og sögum.
Eftir þetta úthald fórum við
Óli saman á Guðmund Kristin
SU og tókum þar síldar-
skammtinn. Síðan skiljast leiðir,
en alltaf vorum við í sambandi
hvor við annan.
Ekki hefði mig grunað nú er
hann hringdi í mig af þjóðhátfð,
kátur og hress, að það yrði okkar
síðasta spjall hérna megin. Líf
Óla var ekki tómur rósadans,
heldur var oft dansaður polki
með mikum hraða og gný. Og
steig ég oft sporin með honum í
þeim dansi. Orð segja svo fátt, en
það verð ég að segja að betri og
sannari dreng hef ég aldrei
kynnst. Ég og mínir vottum að-
standendum okkar dýpstu sam-
úð.
Sálin er gullþing í gleri,
geymist þó glerið sé veilt.
Bagar ei brestur í keri,
bara ef gullið er heilt.
(Stgr. Th.)
Hilrnar A. Kúld
bæta heilsu þessa fólks en að skrá
það hjá Vinnueftirliti ríkisins.
í sambandi við vöðvagigt og
aðra álagskvilla eru tveir þættir
mjög áhrifamiklir, þ.e. launakjör
og vinnutími.
Fiskvinnslufólk er láglauna-
fólk. Fólki, sem hefur dagvinnu-
laun sem ekki nægja til fram-
færslu, er langt um hættara við
álagskvillum en öðrum. Þessi
staðreynd er öllum ljós, sem hug-
leiða málið, en auk þess hefur
verið sýnt fram á þetta með rann-
sóknum og er ofannefnd könnun
ein af mörgum slíkum. Hin aukna
vinna, sem þetta fólk verður að
leggja á sig og sú efnalega sjálf-
helda sem það hlýtur oft að lenda
í, veldur hér trúlega mestu um.
Ein af grunnforsendunum fyrir
því að hægt sé að ráða bót á álags-
sjúkdómum sem fjöldasjúkdóm-
um af völdum vinnu, er að launa-
kjör viðkomandi séu viðunandi,
að dagvinnulaunin nægi fyrir
framfærslu. Ef þessa er ekki gætt
er skráning tilgangslaus.
Annar þáttur þessu nátengdur
er vinnutími. Álagssjúkdómar
eru langtum algengari hjá þeim
sem þurfa að vinna langan vinnu-
dag en þeim sem einungis vinna
dagvinnu. Láglaunafólk sem ekki
fær fyrir framfærslu með dag-
vinnulaunum sínum verður að
treysta á eftirvinnu og nætur-
vinnu til að sjá sér farborða.
Stytting vinnutímans er því önnur
grunnforsenda fyrir því að hægt
sé að ráða bóta á atvinnusjúk-
dómum á borð við vöðvagigt.
Fyrst þarf að stytta hann í hinar
lögboðnu vinnustundir á viku
með því að hækka dagvinnu-
kaupið, en síðan að huga að því
að stytta vinnuvikuna enn frekar,
sem er vel mögulegt í dag, ef vilji
er fyrir hendi.
Loks mætti nefna ákvæðisvinn-
una eða bónusinn. Öll ákvæðis-
vinna eykur vinnuhraða og eykur
þar með líkurnar á álagskvillum,
einkum hjá láglaunafólki. Þegar
ákvæðisvinna og óhóflegur vinn-
udagur fara saman, segir sig sjálft
að álagskvillar af völdum vinn-
unnar verða mjög algengir.
Niðurstöðurnar af þessum
hugleiðingum verða því þær að
það er tómt mál að tala um að
skráning á fjöldaatvinnusjúk-
dómum, eins og álagskvillar eru,
hafi nokkuð að segja við útrým-
ingu þeirra. Þeir aðilar sem einir
geta ráðið bót á þeim eru
launþegar sjálfir gegnum samtök
sín og nver á sínum stað og hugs-
anlega þeir stjórnmálamenn sem
launþegar senda inn á Alþingi. Ef
ekki er fyrir því séð að launþegar
geti séð fyrir sér með dagvinn-
unni einni saman miðað við eðli-
legan vinnuhraða, getur engin
skráning og enginn læknir forðað
því að álags- og slitkvillar verði
fjöldasjúkdómar.
Samningar um dagvinnulaun
undir framfærslumörkum eru
ávísun á atvinnusjúkdóma.
Guðmundur Helgi Þórðarson
er heilsugæslulæknir í Hafnar-
firði.
ALÞÝDUBANDAIAGK)
Alþýðubandalagið Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn laugardaginn 24. október kl.
14.00 í Þinghóli, Kópavogi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu verður haldinn miðvikudag-
inn 28. október kl. 20.00 í Hlégarði.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Önnur mál.
Sem sérstakir gestir á fundinn koma þeir: Svavar Gestsson form. Alþýðu-
bandalagsins, Geir Gunnarsson alþm., og Ólafur Ragnar Grímsson vara-
þingm. Munu þeir flytja stutt ávörp í tilefni Landsfundar og ræða flokksstarf-
ið, einnig munu þeir fjalla um það sem efst er á baugi í stjórnmálunum.
Félagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti á fundinn.
Stjórnin
6 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN