Þjóðviljinn - 20.10.1987, Page 11
__________ERLENDAR FRÉTTIR_______
Persaflói
Hefnd á hefnd ofan
Bandaríkjamenn skutu ígær íranskan olíuborpall á kaf íhefndarskyni
fyrir árás írana á skip er sigldi undir bandarískum fána
Bandarískir ráðamenn sögðu í
gær að herskip sín hefðu eyði-
lagt íranskan olíuborpall með
stórskotahríð og hefði það verið
gert í hefndarskyni fyrir eld-
flaugaárás írana á kuwaítskt olíu-
flutningaskip fyrir helgi en það
sigldi undir bandarískum fána.
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti varaði írana við og sagði
að ef þeir létu ekki af árásum sín-
um yrði gripið til enn harkalegri
hefndarráðstafana.
Sjálfir sögðu íranir að ráðist
hefði verið á tvo olíuborpalla.
Fyrr höfðu þeir sagt að sérhver
árás Bandaríkjamanna á írönsk
mannvirki myndu koma þeim
sjálfum í koll.
Sovéska fréttastofan Tass for-
dæmdi í gær árás Bandaríkja-
manna og sakaði þá um hreina
„ævintýramennsku" sem ætlað
væri að draga athygli manna frá
Írans/Kontrahneykslismálinu.
Um helgina höfðu menn mikið
velt vöngum yfir því til hvaða
hefndarráðstafana Bandaríkja-
menn myndu grípa vegna árásar
írana á skipið er sigldi undir fána
þeirra. Skipið var á siglingu í
landhelgi Kuwaít er eldflaug skall
á því og laskaðist það verulega.
Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að þeim tuttugu eða
þrjátíu Irönum sem dvöldu á pall-
inum hefði verið veittur frestur í
20 mínútur til að forða sér og
hefðu þeir flúið í smábátum. Síð-
an hefðu fjórir tundurspillar
skotið um þúsund sprengjum á
pallinn.
Háttsettur íranskur embættis-
maður sagði í gærkveldi að eftir
árásina á olíuborpallinn væri ljóst
að Bandaríkjamenn og íranir
ættu nú í opinberri styrjöld.-ks.
Bandarísk fley á Persaflóa. Fjögur þeirra skutu íranskan olíuborpall á kaf í gær.
Sri Lanka
Indverjar þjanna að Tígmm
New York
Verðbréfa-
hmn
í gær varð eitthvert mesta
verðfall sögunnar á verðbréfa-
markaðnum í Wall Street í New
York borg.
Bréf voru seld unnvörpum og
þegar upp var staðið hafði verð
fallið að meðaltali um 22,6 af
hundraði sem er næstmesta
verðhrun á einum degi á þessari
öld. Metið á tólfti dagur desemb-
ermánaðar árið 1914. Þann 28.
október árið 1929 lækkaði verð á
verðbréfum um 12,8 af hundraði
og markaði það upphaf
heimskreppunnar miklu. -ks.
Indverskar hersveitir brutust í
gær í gegnum varnir tamílskra
skæruliða í Jaffna og náðu mið-
borginni á sitt vald eftir snarpa
viðureign að sögn indversks emb-
ættismanns.
Embættismaðurinn efndi til
blaðamannafundar í Nýju-Delhi
og sagði að fótgönguliðar hefðu
sótt inní borgina að vestan og
samtímis hefðu fallhlífahermenn
ráðist út úr Jaffnavirki. Þeir
hefðu náð að brjóta varnarsveitir
á bak aftur um miðbik Jaffna-
borgar og nú stæðu „hreinsunar-
aðgerðir" yfir. Hann fullyrti að
ráðhúsið, símstöðin og aðal
strætisvagnamiðstöðin væru nú á
valdi indversku friðargæslu-
sveitanna.
Á aus.urhluta Sri Lanka létust
að minnsta kosti 40 tamflskir
flóttamenn er jarðsprengja
sprakk undir fólksflutningabif-
reið sem var að flytja það frá
átakasvæðunum í norðri. At-
burðurinn gerðis um 35 kfló-
metra norðan Batticaloa. Að
sögn lögreglu voru það tamílskir
skæruliðar er komu sprengjunni
fyrir og fjarstýrðu henni. Hafði
hún verið ætluð indverskri her-
flutningabifreið er ók á eftir
fólksflutningabflnum en ekki
tókst betur til en þetta.
Indverskir dátar hafa nú barist
í tíu daga samfleytt í Jaffna. Þeim
hefur ekki veist það auðvelt að
yfirbuga andstæðinga sína og
kemur tvennt til. Borgin er þétt-
býl og kinoka þeir sér við að beita
fullum sóknarþunga þar eð slíkt
myndi hafa miklar þjáningar al-
mennra borgara í för með sér.
Þar að auki hafa Tamíltígrar veitt
þeim mjög harða mótspyrnu þótt
þeir séu mun fámennari og verr
vopnum búnir.
Flóttamenn úr borginni segja
um 8 þúsund indverska hermenn
hafa slegið hring um stöðvar
Tígranna og rigni kúlum og
sprengjum yfir þá. Ekkert raf-
magn hefur verið á í borginni í
þrjá daga og skemmdir eru mikl-
ar af völdum átakanna. Sveitir
starfsmanna Rauða krossins á
Indlandi og Sri Lanka hafa að
undanförnu skoðað sig um á ind-
versku umráðasvæði í Jaffna og
lagt mat á tjónið.
En þrátt fyrir ósigra hyggjast
Tígrarnir ekki ætla að láta deigan
síga og segja þeir uppgjöf alls
ekki koma til greina. „Við drep-
um okkur frekar með því að
gleypa blásýru en leggja niður
vopn. En fyrst fara fáeinir óvina
OKkar á undan okkur,“ var haft
eftir einum foringja þeirra í gær.
-ks.
SKAK
Umsjón: Helgi Ólafsson
HM-einvígið:
Kasparov stendur til vinnings
Fjórða skákin fór í bið
Garrí Kasparov jafnar að
öllum líkindum metin í einvíginu
um heimsmeistaratitilinn í Sevilla
á Spáni. Fjórða skák einvígisins
fór í bið í gær eftir 5 klst. tafl-
mennsku og 40 leiki. Kasparov er
tveimur peðum yflr en Karpov
hefur nokkur gagnfæri vegna
virkrar stöðu manna sinna. Með
nákvæmri taflmennsku ætti
heimsmeistarinn þó að vinna ör-
ugglega.
Enski leikurinn varð aftur
uppá teningnum í gær og fram að
9. leik Karpovs voru leikirnir þeir
sömu og í 2. skák. Þá reyndi
Karpov athyglisverða peðsfórn
en nú breytti hann út af greinilega
sannfærður um að Kasparov væri
með endurbætur á takteinum.
Hann tefldi byrjunina furðu ó-
markvisst, sólundaði tíma sínum
og áður en varði var Kasparov
búinn að byggja upp ógnandi
sóknarstöðu, vann peð í 28. leik
og myndaði síðan ógnandi frels-
ingja á a-línunni. Þótt Karpov
hafi náð að virkja liðsafla sinn og
eigi viss gagnfæri er allt sem
bendir til þess að Kasparov knýi
fram vinning og jafni metin.
Staðan er eins og kunnugt er 2:1,
Karpov í vil.
4. einvígisskák:
Garrí Kasparov -
Aanatoly Karpov.
Enskur leikur.
1. c4 Rfó 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rcó 4.
g3 Bb4 5. Bg2 0-0 6. 0-0 e4 7. Rg5
Bxc3 8. bxc3 He8 9. f3 exf3.
Kasparov er vitanlega búinn að
kynna sér 9. .. e3 rækilega sem
gafst Karpov vel í 2. skák. Áskor-
andinn hefur engan áhuga á
hvernig Kasparov hyggst bregð-
ast við þeim leik og hann velur
gamla framhaldið.
10. Rxf3 De7
Eins og áður hefur komið fram
þótti 10. .. d5 besti leikurinn hér í
eina tíð en Karpov sniðgengur
hann og væntanlega margra tíma
rannsóknir Kasparovs.
11. e3 Re5 12. Rd4!?
Dæmigerð peðsfórn sem Karp-
ov þiggur ekki. Hann hefur yfir-
leitt ekki mikinn áhuga á peðs-
fómum heimsmeistarans. Eftir
12. .. Rxc4 13. Rf5 hefur hvítur
auðvitað gott spil fyrir peðið t.d.
13. .. Df8 14. Rh6+ Kh8 15. Bd5
o.s.frv.
12. .. Rd3?!
Þetta finnst manni dálítið langt
seilst. Sterklega kom til greina að
leika 12. .. d6. Karpov hyggst ná
biskupsparinu af hvítum en tapar
við það miklum tíma.
13. De2 Rxcl 14. Haxcl dó 15.
Hf4!
Hvítur nær öflugum og óþægi-
legum þrýstingi eftir f-línunni.
Kasparov hefur greinilega borið
hærri hlut í hinni fræðilegu bar-
áttu.
15. .. có 16. Hcfl De5
Skiptamunsfórn á f6 vofir yfir
og við henni getur svartur í raun
og veru ekkert gert. Hins vegar er
nauðsynlegt að hindra aðgang
hvítu drottningarinnar að h5-
reitnum.
17. Dd3 Bd7 18. Rf5 Bxf5 19.
Hxf5 De6 20. Dd4 He7 21. Dh4
Auðvitað kom 21. Hxf6 gxf6
22. Hxf6 De5 23. Hxd6 einnig til
greina. Hvítur hefur þá tvö peð
fyrir skiptamuninn og góða vinn-
ingsmöguleika. En Kasparov tel-
ur að honum standi enn betri
leiðir til boða.
21. .. Rd7
Það var ekki hægt að bíða öllu
lengur vegna hótunarinnar 22.
Hxf6 gxf6 23. Hxf6 með sterkri
kóngssókn.
22. Bh3 Rf8 23. H5f3
Eftir 23. Hxf7 Dxf7 24. Hxf7
Hxf7 hefur hvítur drottningu og
peð gegn tveimur hrókum og
betri stöðu að auki. Drottningin
er talin 9 stig - hrókur 5 stig, svo
Kasparov leitar annarra leiða.
23. .. De5
Aðrir leikir koma ekki til
greina vegna möguleikans -
Dxe7.
24. d4 De4 25. Dxe4 Hxe4 26.
Hxf7 Hxe3
27. d5!
Afar óþægilegur leikur sem
eykur stórlega á vandræði Karp-
ovs sem voru þó ærin fyrir. Eftir
27. Hxb7 Hxc3 er svartur enn á
lífi en þessi leikur byggir á hug-
myndinni 27. .. cxd5 28. Bg2!!
með vinningstafli. Ef til vill er hér
komið eitt dæmið enn um
þrautseigju Karpovs í erfiðum
stöðum. Hann finnur einu leiðina
til að halda taflinu gangandi.
27. .. Hae8
Vitaskuld ekki 27. .. Hxc3??
28. Hxf8+! Hxf8 29. Be6+ og
vinnur. Þá gagnar ekki 27. .. c5
vegna 28. Hxb7 Hxc3 29. Hff7 g6
30. Hg7+ Kh8 31. Be6 Rxe6 32.
Hxh7+ Kg8 33. dxe6 og hvítur
stendur til vinnings.
28. Hxb7 cxd5 29. cxd5 H3e7 30.
Hfbl h5!
Það er einum of mikið að gefa
heilt peð til þess að geta byrjað á
því að tefla skákina. Karpov nýtir
vel þau aumu færi sem staða hans
býður uppá.
31. a4 g5 32. Bf5 Kg7 33. a5 Kf6
34. Bd3 Hxb7 35. Hxb7 He3 36.
Bb5 Hxc3 37. Hxa7 Rg6 38. Hd7
Re5
Ekki 38. .. Ke5 39. a6 og ridd-
arinn kemst ekki í spilið.
39. Hxd6+ Kf5 40. a6 Ha3
Hér fór skákin f bið. í frétta-
skeytum er þess getið að svartur
sé ekki án jafnteflisfæra þótt
hann sé tveim peðum undir. Mér
sýnast þau færi heldur lítilfjörleg
og eftir t.d. 41. Be2 ætti Kaspar-
ov að vinna skákina án mikilla
erfiðleika.
Hjúkrunarforstjóri
Dvalarheimilið Garðvangur, Garði auglýsir stöðu
hjúkrunarforstjóra með umsóknarfresti til 5. nóv-
ember 1987.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri og fram-
kvæmdastjóri í síma 92-27151.
Umsóknir sendist Dvalarheimili aldraðra, Suður-
nesjum, pósthólf 100, 250 Garði, ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf.
Þriöjudagur 20. október 1987. ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 15