Þjóðviljinn - 20.10.1987, Page 16

Þjóðviljinn - 20.10.1987, Page 16
SVONA GERUM VIÐ FRÉITIR Háir vextir Grunnvextir á Kjörbók eru nú 27% á ári og leggjast þeir við höfuðstól tvisvar á ári. Ef innstæða, eða hluti hennar, hefurlegið óhreyfð í 16 mánuði hækka vextir í 28,4% og í 29% eftir 24 mánuði Þrepahækkun þessi er afturvirk, hámarks ársávöxtun er því allt að 31,1% án verðtryggingar. Verðtrygging Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun Kjörbókarinnar borin saman við ávöxtun 6 mánaða bundinna verðtryggðra reikninga. Reynist ávöxtun verðtryggðu reikninganna hærri ergreidd uppbót á Kjörbókina sem því nemur. Örugg og óbundin Þrátt fyrirháa vexti og verðtryggingu er innstæða Kjörbókar aiitaf laus. Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,8%, en reiknast þó ekki afvöxtum tveggja síðustu vaxtatímabila. Kjörbókin erbæði einfaltog öruggt sparnaðarform. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Boris Weil, fyrrum samviskufangi i Sovétríkjunum, og Ævar Kjartansson, for- maður Amnesty, á Islandi kynntu starf samtakanna fyrir menntskælingum í gær. Mynd - E. Ól. Menntskælingar pæla í Amnesty Aú stendur yfir alþjóðleg vika Amnesty International og um sextíu stúdentsefni í Menntaskól- anum við Sund tengjast henni með því að kynna sér samtökin og viðfangsefni þeirra. í gær fengu þau heimsókn Ævars Kjartanssonar, formanns ís- landsdeildar Amnesty, og Boris- ar Weils, fyrrum samviskufanga í Sovétríkjunum, sem nú er búsett- ur í Danmörku. Ævar kynnti starfshætti Amnesty og Boris sagði frá reynslu sinni úr fanga- búðum og þýðingu þeirrar að- stoðar sem Amnesty veitir. í Þjóðviljanum er þessa viku sagt frá máii eins langtímafangaa dag, en þeim er vikan helguð. Er fólk hvatt til að nota sér þau sýni af bréfum til yfirvalda sem með eru prentuð. - Á bls 13 er viðtal við Boris Weil. áb. Akureyri 1400 konur vilja konu Aðalheiður Alfreðsdóttir, form. jafnréttisnefndar: Abyrgðarhluti að hafna konu ístöðu kvensjúkdómalœknis. Ráðherra afhentar 1400 undirskriftir kvenna. að var mikill ábyrgðarhluti af stjórn Fjórðungsjúkrahússins að hafna konu í stöðu sérfræðings í kvensjúkdómum við stofnunina. Eftir því sem ég kemst næst eru ekki nema tvær íslenskar konur sérmenntaðar til þessa starfa og það er því alls óvíst hvort kona fáist í þessa 60% stöðu sem óráðið er í við Heilsugæsluna, sagði Að- alheiður Alfreðsdóttir, form. jafnréttisnefndar á Akureyri. Konur á Akureyri og jafnréttisnefnd hafa staðið í ströngu að undanförnu og gera að kröfu sinni að fyrst konu var hafnað í stöðu kvensjúkdóma- læknis við Fjórðungssjúkrahúsið, þrátt fyrir eindregin tilmæli kvenna um hið gagnkvæma, verði kona ráðin í 60% stöðu kvensjúkdómalæknis við heilsu- gæsluna. Heilbrigðisráðherra hafa verið afhentar undirskriftir um 1400 kvenna, þar sem þessi skoðun er frekar áréttuð. Til þessa hefur ekki neinn sótt um hlutastöðu kvensjúkdóma- læknis við Heilsugæsluna. - Við leggjum það til að það sem vanti uppá heila stöðu verði bætt upp með stöðuhlutfalli við sjúkrahús- ið og heilsugæslulækninum gefist þannig kostur á að fylgja sjúk- lingum sínum áfram. Petta hefur ekki hvað síst staðið í veginum fyrir því að nokkur hafi kært sig um að sækja um stöðuna, sagði Aðalheiður. - Talandi dæmi um meðferð þessa máls er að engin kona er1 starfandi í læknaliði sjúkrahúss- ins og öll þau ráð og nefndir sem 20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN fjölluðu um stöðuumsóknirnar voru eingöngu skipaðar körlum, sagði Aðalheiður. Aðalheiður sagði að það væri eindrægur vilji jafnréttisnefndar- innar að stjórn heilsugæslunnar og heilbrigðisyfirvöld gerðu allt sem í þeirra valdi stæði til að fá konu í stöðu kvensjúkdóma- læknis við Heilsugæsluna, sem væri í anda jafnréttislaganna. - rk Kynferðisafbrot Fái forgang Salóme Þorkelsdóttir mælti fyrir frumvarpi til laga, sem gerir ráð fyrir því að siijaspell og skírlífisbrot fái forgang fram yfir önnur hegningarlagabrot hvað varðar rannsókn og meðferð og að dómur í undirrétti skuli ganga innan átta mánaða frá ákæru nema sérstakar ástæður hamli. f greinargerð með frumvarp- inu segir Salóme að allt sl. ár hafi verið mikil umræða um kynferð- isafbrot gegn börnum. Segir hún að afbrotin séu svo gróf að þau hljóti að setja mark sitt á þá sem fyrir þeim verða og aðstandendur þeirra. Þá segir hún að ef halda eigi uppi réttarríki hér á landi sé nauðsynlegt að virðing ríki fyir lögum og reglum en hætt sé við að sú virðing þverri þegar í ljós kem- ur að sami maður kemst upp með að brjóta af sér gegn börnum ára- tugum saman. - Sáf

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.