Þjóðviljinn - 20.10.1987, Side 18
/ Stýrimannaskólanum
Ósammála
fiskveiðistefnu
Þröstur Hreinsson frá Hólmavík á fyrsta ári: Lítill
þorskkvóti til Hólmavíkur. Mikil vinna að baki hverri
krónu sem við þénum. Líst vel á námið í skólanum
„Það er mikil vinna sem liggur að baki sérhverri krónu sem við sjómenn fáum í
vasann," segir Þröstur Hreinsson frá Hólmavík, á fyrsta stigi í Stýrimannaskól-
anum. Mynd: Sig.
„Ég er ósammála fiskveiði-
stefnunni, eins og hún hefur verið
rekin á undanförnum árum. Að-
alástæðan fyrir því er sú að hún
kemur ójafnt niður á landshlut-
unum. Við á Hólmavík höfum til
dæmis alltof lítinn þorskkvóta,“
segir Þröstur Hreinsson, 23ja ára
gamall Hólmvíkingur á fyrsta ári í
Stýrimannaskólanum.
Tíðindamaður Þjóðviljans brá
sér einn góðan veðurdag fyrir
skömmu upp í Stýrimannaskóla
til að tala við hina ungu sjómenn
sem sitja þar á skólabekk til að
fullnema sig í fræðunum, og forv-
itnast um afstöðu þeira til fisk-
veiðistjórnunarinnar og sjó-
mennskunnar.
Hvernig var á sjónum í sumar?
„Það gekk vel á rækjunni í
sumar. Þar á undan hafði ég verið
á netum en þá var hann mjög
tregur. Aftur á móti var gott á
línunni í janúar. Þetta eru ekki
stórir bátar sem gerðir eru út frá
Hólmavík. Ég var á 50 og 25
tonna bátum. Stærsta skipið sem
gert er út að heiman er að sjálf-
sögðu togarinn Hólmadrangur
sem er frystitogari. Þeir sem eru á
honum hafa það mjög gott og
kannski er það framtíðin að vera
á einum slíkum. Hver veit.“
Þénarðu vel á sjónum?
„Það er nú það. Þetta er voða-
lega afstætt hverju sinni. í sumar
á rækjunni hafði maður það
ágætt. Aftur á móti mun minna á
línu. En að baki sérhverri krónu
sem maður fær í sinn vasa, liggur
mikil vinna, sem varla nokkur
maður skilur sem ekki hefur unn-
ið sjómannsvinnu.“
Að lokum Þröstur: Hvernig líkar
þér námið?
„Vei, það sem af er, en ég er
nýkominn hingað. Maður gerir
ráð fyrir að klára námið á til-
skildum tíma, og meira getur
maður ekki sagt að sinni um það.
En samkvæmt námsvísi skólans
geri ég ráð fyrir að læra hér ýmis-
legt sem getur komið mér að
„Kvótinn gerir það að verkum að hráefnið verður betra sem komið er með að
landi," segir Þorsteinn Guðmundsson frá Eskifirði, á fyrsta stigi í Stýrimannask-
ólanum. Mynd: Sig.
Atlanter tölvu-
stýrða
handfærarúllan.
Bylting í handfæraveiðum.
• Fullkomið kerfi til botn- og
handfæraveiða.
• Dýptar- og handfæraveiðikerfi.
• Mesta dýpi: 899 faðmar.
• Skakhæð: 0,5-99,5.
• Hlé upp: 0,1-9,5 sek.
• Hlé niður: 0,5-9,5 sek.
• Sérkerfi fyrir smokkfisk.
• Línudreifir sem dreifir linunni jafnt yfir
keflið.
Atlanter tölvan hefur veriö framleidd í 6
ár, og er fyrsta og elsta tölvustýröa hand-
færarúllan á markaönum. Þekkt meöal
sjómanna um heim allan, fyrir hæfni í
þorsk, ufsa og smokkfiskveiðum.
Þróuö og hönnuö af sérfræöingi meö
mikla reynslu í handfæraveiðum.
H. Þorgeirsson
KF^IíRS umboðið
Byggöarenda 12 108 Reykjavík
sími 686470
heimasímar 76175 og 672419
góðu gagni síðar meir, eins og lög
gera ráð fyrir. í þessum skóla fær
maður að minnsta kosti tækifæri
til að geta orðið hæfur stjórnandi
um borð í fiskiskipi, en hvort
maður verður jafn fær að veiða
þann gula, skal ósagt látið sagði
Þröstur Hreinsson frá Hólmavík
og var þar með þotinn af stað í
kennslustund, enda nokkuð um
liðið síðan hringt var inn.
- erh
/ Stýrimannaskólanum
Ánægður með
fiskistefnuna
Þorsteinn Guðmundsson frá Eskifirði á fyrsta stigi:
Menn vanda sig betur með hráefnið. Vorum afla-
hæstir fyrir austan á Vísi SF 64 með 720 tonn á
vertíðinni
„Mér líst áfiskveiðistefnuna
eins og hún er í dag. Bæði er
að mér finnst kvótinn vera í
lagi og svo verður hráefnið
mun betra þegar menn hafa
bara ákveðinn kvóta sem þeir
’megafiskauppí. Þávanda
menn sig enn betur,“ segir
' Þorsteinn Guðmundsson, 21
árs Eskfirðingur, sem erá
fyrsta stigi í Stýrimannaskól-
anum, við blaðamann Þjóð-
viljans, sem spurði hann álits
á fiskveiðistefnunni.
Ertu jafn ánœgður með fisk-
markaðina?
„Ég hef nú lítið af þeim að
segja því við höfum aldrei selt
nokkurn skapaðan hlut á þeim.
Hinu er ekki að leyna að mér
finnst allt gott um frjálsa fisk-
verðið að segja. Með því fyrir-
komulagi getum við sjómenn átt
meiri von á því að fá greitt það
sem okkur ber hverju sinni. En
það eru ekki allir ánægðir með
það, eins og gengur og vafalaust
hafa ekki farið framhjá ykkur
blaðamönnunum átökin sem
hafa verið um fiskverðið fyrir
austan uppá síðkastið."
Hvað gerðirðu í sumar?
„Ég var á humar í sumar og við
náðum kvótanum sem var 13
tonn. Þar á undan var ég á netum
en það var frekar tregt. Þó urðum
við hæstir á Vísi SF 64 sem er 150
tonna bátur á vertíðinni með 720
tonn. Svo það er hægt að vera
hreykinn, þó af litlu sé.“
Bjartsýnn á framtíðina?
„Það er ekki um annað að ræða
þegar maður er á fyrsta ári í ný-
jum skóla. Hvað sjómennskuna
varðar er ekki um auðugan garð
að gresja. Það er talað um að
minnka þorskkvótann á næsta ári
og ef það gengur eftir fer að harð-
na á dalnum hjá sjómannastétt-
inni. Við verðum bara að bíta á
jaxlinn og sjá hvað fram fer,“
sagði Þorsteinn Guðmundsson
frá Eskifirði.
- grh
Gúmmíbátaþjónustan
Eyjargötu 9 - Reykjavík - Sími 14010
Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta
allt árið.