Þjóðviljinn - 20.10.1987, Qupperneq 19
/ Vélskólanum
Höfum hafið framleiðslu á þessum 9,5 tonna fiskibát úr trefjaplasti.
Nánari upplýsingar í síma 652146.
Bátasmiðjan sf
Kaplahrauni 13,
Hafnarfirði.
Sverrir Pétursson er að Ijúka fjórða stiginu frá Vélskóla íslands og ætlar beint
vestur að námi loknu á sjóinn á rækju. Mynd: Sig.
Rækjuflotinn
alltof stór
Sverrir Pétursson áfjórðastigi: Rœkju-
verðið lágt. Aðeins rækjuverksmiðjur
geta gert út. Skömm að þyrlan skuli ekki
vera stœrri
„ Verðiö á rækjunni er svo lágt
að það getur enginn nema
rækjuverksmiðjur gert út nú-
orðið. Enda er flotinn orðinn
alltof stór. í dag eru allt að 250
bátar og skip á rækjuveiðum
hér við land, en þegar ég fór
fyrst á rækju fyrir 9 árum voru
það 25 bátar sem stunduðu
rækjuveiðar," segir Sverrir
Pétursson, 30 ára Vélskóla-
nemi sem útskrifast í vor,
fæddur í Reykjavík en búsett-
ur í Súðavík.
„Ég var á Val ÍS 420, 40 tonna
bát í sumar á rækju. Þegar skóla
lýkur fer ég vestur á sjóinn.
Manni veitir heldur ekkert af
peningunum eftir að hafa leigt
hér í borginni með fjölskyldu.“
Heldurðu að það verði settur
lcvóti á rœkjuna?
„Það er ómögulegt að segja.
Allavega er lítið talað um það
fyrir vestan. Það kemur bara í
ljós á sínum tíma ef að því verð-
ur.“
Ánœgður með öryggismál sjó-
manna?
„Þau verða alltaf í deilunni á
meðan skip er á sjó. En varðandi
öryggismálin eins og þau eru í
dag, þá verð ég að segja að sjó-
mönnum finnst það skjóta
skökku við í allri umræðunni að
við skulum ekki standa betur að
vígi en svo að þyrla Landhelgis-
gæslunnar er svo lítil að hún getur
ekki tekið heila áhöfn á venju-
legum vertíðarbát í einu. Það er
engin önnur stétt í landinu sem
býr við aðra eins sjúkraþjónustu
og sjómenn“.
Telurðu að breytingar verði á
stjórn fiskveiða á nœsta ári?
„Ég vil nú lítið úttala mig um
það, og hef ekki séð neinn mun á
hráefninu sem kemur á land eftir
að kvótinn kom. Var það ekki
annars ein aðalröksemdin fyrir
kvótanum á sínum tíma fyrir utan
að takmarka hámarksveiðina,“
sagði Sverrir Pétursson.
- grh
Hausskurðarvélin
KVIKK 205
Bylting í nýtingu
þorskhausa
Þeir sem ætla
að tryggja sér vél
fyrir vetrarvertíð
staðfesti pantanir strax!!!!
Söluaðili:
fy.
«r h
KVIKK SF.
Ingólfsstræti 1a - 101 Reykjavík
Sími 91-29177, tlx: 3152 KVIKK IS
91-18420
Framleiðandi:
BAADER-þjónustan hf.
Armúli 5 Reykjavík
Framleiðendur frystra
sjávarafurða
VIÐ KAUPUM TIL ÚTFLUTNINGS M.A. EFTIRTALDAR FRYSTAR
SJÁVARAFURÐIR:
Flök og flakablokkir - Þorskfés og þunnildi - Rækjur, soðnar og skelflettar - Rækjur og
skel, hráar eða soðnar - Humarhala og heilan humar - Hrogn - Grálúðu - Síld og
síldarflök.
Sjófryst og landfryst
Ennfremur söltuð grásleppuhrogn í tunnum.
Kaupum eingöngu vörur í fyrsta gæðaflokki.
Kynnið ykkur verðin okkar
örugg greiðsla strax eftir afskipun hverrar sendingar
SJÁVARAFURÐASALAN HF.
Hafnarstrœti 20, Pósthólf 787,121 Reykjavík
Símar: 6215 22 og 6215 42, Telex: 3036 ocean is
Símnefni: Ocean, Reykjavík
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19